Dagur - 10.03.1981, Síða 8
RAFGEYMAR
[ BÍUNN, BÁTINN, VINNUVÉUNA
VEUIÐ RÉTT
MERKI
mmmmmmmmmmmmmmmm
SLÆMT ÁSTAND
MANNVIRKJA I
HLÍÐARFJALLI
Samkvæmt upplýsingum sem
DAGUR hefur aflað sér er mikil
þörf á að ráðist verði í endur-
bætur á vélum og byggingum í
Hlíðarfjalli.
Viðgerð á þaki og gluggum
Skíðastaða er brýn nauðsyn. Báru-
járnið á þaki hússins er að lang-
„Allir í
verkfair
Um mánaðamótin hófust æfing-
ar hjá Leikfélagi Akureyrar á
næsta verkefni sem er gaman-
leikurinn „Allir í vcrkfall“ eftir
Duncan Greenwood. Leikstjóri
verður Svanhildur Jóhannes-
dóttir. Gert er ráð fyrir að verkið
verði frumsýnt um eða eftir
páska.
Leikendur í þessunt ærslaleik
verða Marinó Þorsteinsson, Þórey
Aðalsteinsdóttir. Gestur E. Jónas-
son, Guðrún Alfreðsdóttir, Theo-
dór Júlíusson. Kristjana Jónsdóttir
og Sunna Borg. Leikmynd gerir
Hallmundur Kristinsson.
Nú er búið að sýna Skáld-Rósu
13 sinnum og hefur aðsókn verið
mjög þokkaleg þegar á heildina er
litið. Það fer eftir aðsókn hversu
lengi verkið verður sýnt. en rétt er
að hvetja þá sem ætla að sjá þessa
ágætu sýningu að láta það ekki
dragast mjög lengi.
(skappleikar
á Leirutjörn
fþróttadeild hestamannafélags-
ins Léttis efnir til ískapplcika á
Leirutjörn laugardaginn 28.
ntars n.k.
Fyrirhugað er að keppa í tölti,
fimmgangi, gæðingaskeiði, 150 m.
skeiði og 200 m. skeiði. Síðar verð-
ur auglýst hvenær þátttökutilkynn-
ingar þurfa að berast. Síðustu
ískappleikar voru haldnir i fyrra og
voru þá um 60 skráðir til leiks.
Fyrstu kappleikarnir voru haldnir í
mars 1979 og voru það jafnframt
fyrstu ískappleikarnir sem haldnir
hafa verið hér á landi.
mestu leiti það sama og var á gamla
sjúkrahúsinu þegar það var flutt
upp í fjall. Það er nú orðið svo
ryðgað og þunnt að víða sést í
gegnum það, enda húsið hriplekt
þegar rignir. Það er nú árvisst að
plötur og plötupartar losna og
fjúka jafnvel alveg af í suðvestan
stórviðrum.
Gluggar í húsinu eru margir mjög
lélegir enda sumir úr gamla
sjúkrahúsinu og komnir verulega
til ára sinna.
í eigu Skíðastaða er ein jeppa-
bifreið af Landrovergerð. Hún
hefur verið mikið notuð við alls
konar aðstæður enda er hún orðin
léleg. Viðgerðarmaður bílsins sagði
nýlega, þegar bíllinn var í viðgerð
vegna bruna á rafkerfi, að nú
borgaði sig ekki að tjasla meira í
þennan bíl. Lagt er til af ráða-
mönnum Skíðastaða að keyptur
verði nýr bíll af Toyota gerð með
drifi á öllum hjólum.
Húsnæðisleysi hefur einnig háð
starfsmönnum Skíðastaða.
Geymslur fyrir snjótroðarana og
önnur verkfæri Skíðastaða hafa
verið hingað og þangað um bæinn,
nú seinast á Galtalæk, en
samningur við Flugbjörgunarsveit-
ina rennur út innan eins árs og fæst
ekki franilengdur.
Slippstöðin h.f.:
Verður samið um
smíði 3ja báta?
Samningar e.t.v. undirritaðir í vikunni
„Við höfum verið í viðræðum
við Vestmannaeyinga um
smíði á þremur 150-180 tonna
bátum. Á þessu stigi málsins er
ekki hægt að segja neitt til um
hvaða lyktir verða á þessum
viðræðum, en e.t.v. verður
skrifað undir samninga í þess-
ari viku. Rætt hefur verið um
smíði á togara fyrir Þingeyr-
inga og við treystum á að verði
af smíði hans og umræddra
báta. Þessi togari er af sömu
gerð og Húsavíkurtogarinn og
þá gætum við smíðað tvö skip
af sömu gerð. Nú er verið að
smíða togara fyrir Skag-
strendinga, sem er 8. nýsmíðin
á síðustu 5 árum og ekkert
skipanna hefur verið eins,“
sagði Gunnar Ragnars, fram-
kvæmdastjóri Slippstöðvar-
innar.
Gunnar sagði einnig að rætt
hefði verið unr að Slippstöðin af-
henti bátana þrjá á tímabilinu
apríl til september 1982. Kaup-
verð er 16 milljónir króna eða
1600 milljónir gkr. Vestmanna-
eyingarnir könnuðu á s.l. ári
skipakaup frá Póllandi og var
boðið þar upp á svipaða stærð
skipa fyrir um 13 milljónir króna,
en hins vegar eru íslensku skipin
mun betur búin og gert ráð fyrir
öllum nýjasta búnaði og besta
sem völ er á.
Ef Slippstöðin fengi smíði á
bátunum fyrir Vestmannaeying-
ana, og einnig togarann fyrir
Þingeyri er ljóst að stöðin hefur
næg verkefni á næstunni. Þá
verður unnt að vinna að smíði
togarans í skipasmíðahúsinu, en
bátarnir yrðu settir sarnan úti á
görðunum. „Ef það skýrist ekki
alveg á næstu dögurn hvort verð-
ur af smíði allra þessara skipa er
ljóst að miki! óvissa ríkir í fram-
tíðinni," sagði Gunnar, en smíði
togarans fyrir Skagstrendinga
lýkur um næstu áramót og Húsa-
víkurtogarinn er að verða tilbú-
inn.
jf .
'v ■■ ■> ... Xý >.-
>. **<£-**?** pHki
Séð yfir athafnasvæði Slippstöðvarinnar.
Akureyrarbær færir út kvíarnar:
Vill kaupa hlut
Smára í Kaupangi
Á síðasta bæjarráðsfundi gerði
Helgi Bergs, bæjarstjóri grein
fyrir könnun, sem gerð var að
beiðni mcirihluta bæjarráðs á
leigu og/eða kaupum á skrif-
stofuhúsnæði í Kaupangi við
Mýrarveg.
í fyrsta lagi er um að ræða leigu á
167,5 m2 húsnæði á annarri hæð
hússins af Lögfræðiskrifstofu
Gunnars Sólnes s. f. I öðru lagi er
urn að ræða möguleika á kaupum á
ca 180 m2 húsnæði á sömu hæð af
Smára h.f. Bæjarráð samþykkti
með 4 atkvæðum gegn 1 að leggja
til við bæjarstjórn að keypt yrði
húsnæðið af Smára h.f. og verði
bæjarstjóra falið að semja um
kaupin á grundvelli þeirra um-
ræðna, sem fram fóru á fundinum.
Tillaga um að taka á leigu hús-
næðið af Lögfræðiskrifstofu
Gunnars Sólnes s. f. hlaut 2 at-
kvæði, án mótatkvæða, og féll því
vegna ónógrar þátttöku.
Sigurður Óli Brynjólfsson vísaði
á fundinum til bókunar sinnar 19.
febrúars.l. varðandi afstöðu sína til
þessa máls. Á þeim fundi sam-
þykkti meiri hluti bæjarráðs að fela
bæjarstjóra að kanna kaup og/eða
leigu á umræddu húsnæði. Sigurð-
ur Óli óskaði þá að bókað yrði að
hann teldi það ranga stefnu hjá
bæjarráði að hugsa til kaupa á
skrifstofuhúsnæði utan miðbæjar-
svæðisins.
Málið verður tekið fyrir á fundi
bæjarstjórnar í dag.
Vantar bryggju
og vöruskemmu
Á síðasta ári losaði og lestaði
Skipaafgreiðsla K.E.A. alls 37
þúsund tonn, en afgrciðslan
hefur uniboð fyrir Skipaútgerð
ríkisins og Skipadcild S.f.S.
Þetta er örlítil minnkun frá fyrra
ári, en ástæðan er sú að scmcnt
er nú flutt laust til Akureyrar og
sífellt aukast flutningar á lausu
fóðri.
Að sögn Jóns Samúelssonar, af-
greiðslustjóra hjá Skipaafgreiðslu.
K.E.Ai. voru skipaviðkomur alls
169 á síðasta ári, sem er 37 fleiri en
árið á undan. Skip Skipaútgerðar
ríkisins komu oftast eða 97 sinnum,
sem er 87% aukning frá 1979.
Jón sagði að Skipaafgreiðsla
K.E.A. byggi við erfiða aðstöðu
bæði hvað varðar geymsluhúsnæði
og athafnapláss, en bryggjuaðstað-
an sagði Jón að væri sér á parti, þar
sem hún er nánast engin. en slíkt
hlýtur að vera slæmt þegar skipa-
afgreiðsla á i hlut!
„Ný flutningatækni útheimtir
StrandferAaskip við bryggju. Vörugeymslur
eru nokkru noröar. Mynd: á.þ.
góðar bryggjur og vöruskemmur
nálægt þeim. Slíka aðstöðu eru af-
greiðslur Eimskips og Hafskips
búnar að fá, en við erum enn á
hrakhólum mcð hvort tveggja. Við
væntum úrbóta, sem vonandi koma
fyrr en síðar,“ sagði Jón Samúels-
son að lokum.
\h\
% Vígbúnaðar-
kapphlaupið
Um helgina var dreift í hús á
Akureyri dreifibréfi, sem ýmis
félagasamtök hafa gefið út.
Þar segir m.a. að árið 1980
hafi verið í fyrsta skipti varið
yfir einum milljarði dollara á
dag til vígbúnaðar í heimin-
um eða um einum og hálfum
dollara á viku á hvern íbúa
jarðarinnar. Sama ár var var-
ið u.þ.b. helmingi meira fé til
vígbúnaðar í Bandaríkjunum,
en til menntamála og heii-
brigðismála samanlagt.
Sjálfsagt eru Sovétmenn
engir eftirbátar . Banda-
ríkjamanna í þessum efnum.
§ Afkoma
kaupfélaga
f síðasta hefti Samvinnunnar
er viðtal við Erlend Einars-
son, forstjóra Sambandsins,
þar sem m.a. er rætt um af-
komu kaupfélaganna 1980.
Hann segir um þetta mái:
„Það veldur miklum áhyggj-
um, að versiun kaupfélaga í
dreifbýli hefur varla nokkurn
rekstrargrundvöil. Hávaxta-
kostnaðurinn veldur gífur-
legri aukningu á rekstrar-
kostnaði verslunarinnar. í
dreifbýli, þar sem vörubirgðir
þurfa að vera miklu meiri og
veituhraðinn er mjög lítill, er
vaxtabyrgðin sérstaklega
mikil. Verðlagsyfirvöld hafa
ekki tekið neitt tillit til há-
vaxtanna og ekki hefur verið
leyfilegt að færa upp vöru-
birgðir á móti verðbólgunni.
Mér virðist augljóst að þessar
ákvarðanir yfirvalda eiga
enga stoð í lögum. Hvað
myndi t.d. einstklingur segja,
ef hann væri skyldaður með
boði þeirra að selja bifreið,
sem hann keypti fyrir einu til
tveimur árum síðan, á sama
verði og hann keypti hana á.
Því verður ekki trúað, að
stjórnvöld ætli sér að brjóta
niður þá burðarása byggðar-
laganna sem kaupfélögin eru
— og það með ákvörðunum í
verðlagsmálum sem ekki fást
staðist lagalega séð.“ I lok
svars síns krefst Erlendur
þess fyrir hönd samvinnu-
hreyfingarinnar, að þetta
hróplega ranglæti verði af-
numið nú þegar.
§ lllagengurað
berja saman
fjárhags-
áætlun
Heyrst hefur að bæjarráði
Akureyrar gangi illa að koma
saman fjárhagsáætlun, sem
unnið er að þessa dagana.
Ástæðan er einfaldlega sú að
rekstur bæjarins er orðinn
svo mikill hluti af tekjunum
að það vantar fé til fram-
kvæmda.