Dagur - 28.04.1981, Síða 1
Fermingar■
gjafir
í MIKLU
ÚRVALI
GULLSMieiR
v SIGTRYGGUR &
1 AKUREYRI
64. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 28. apríl 1981
33. tölublað
Kalhættan er að
mestu liðin hjá
— segir Ævarr Hjartarson ráðunautur
Kalhættan sem var yfirvofandi
er nú að mestu liðin hjá viðast
hvar, þ.e. þar sem vetrarsnjóinn
hefur tekið upp, að sögn Ævarrs
Hjartarsonar hjá Búnaðarsam-
bandi Eyjafjarðar. Fyrir
skömmu voru menn mjög ugg-
andi um að kal yrði töluvert
vegna mikilla svellaiaga, en tíð-
arfarið í fyrri hluta aprílmánað-
ar bjargaði miklu, þó enn sé ekki
útséð með hvað verður alls
staðar í héraðinu, einkum við
norðanverðan Eyjafjörð og þar
sem hátt stendur.
Ævarr sagði að mikill meirihluti
héraðsins væri nú sloppinn við
kalhættuna og liti tiltölulega vel
út. Enn væri ekki vitað hver þró-
unin yrði á Árskógsströnd, í Svarf-
aðardal og Ólafsfirði og víðar, t.d. á
dalabæjum eins og fremst í Hörg-
árdal og Öxnadal. Þó væri eins víst
að kal yrði nánast ekkert.
í öðrum sveitum norðanlands
mun ástandið vera svipað. Sagðist
Ævarr hafa heyrt að allgott útlit
væri í Skagafirði og horfur væru
einnig góðar í Þingeyjarsýslum.
Þegar á heildina væri litið væri
ástandið gott og mesta kalhættan
liðin hjá. Klaki virtist ekki mjög
mikill í jörð, því tún væru fljót að
þorna.
Ævarr var spurður að því,
hvernig hljóðið væri í bændum um
þessar mundir og sagðist hann ætla
að þeir væru tiltölulega ánægðir og
það væri þokkalegt hljóð í bændum
yfirleitt. Miðað við allt og allt væri
afkoma þeirra allgóð, einkum
vegna tiltölulega hagstæðs tíðarfars
á síðasta ári og þrátt fyrir samdrátt
og minnkandi bústofn. Kjarnfóð-
urskatturinn olli því að menn
fóðruðu með öðrum hætti og spör-
uðu kjarnfóðrið, að því er virðist án
þess að kæmi niður á afurðunum.
Menn ræða það nú að það verði að
stöðva samdráttinn og auka mjólk-
urframleiðslu jafnvel eitthvað.
Góð af koma
Umtalsverð innistæðuaukning
varð hjá Sparisjóði Mývetninga
Á s.l. ári. Að sögn Ingólfs Jón-
assonar, sparisjóðsstjóra, nam
aukningin 120%, sem verður að
teljast ágætt.
Á síðasta ári jók sparisjóðurinn
þjónustu sína við viðskiptavini og
nú geta þeir fengið ávísanahefti hjá
sparisjóðnum. Sparisjóðurinn er til
húsa að Helluvaði 3. Ingólfur hóf
starf sem sparisjóðsstjóri um s.l.
áramót — tók við af Jónasi Sigur-
geirssyni, sem var búinn að gegna
starfi sparisjóðsstjóra frá upphafi,
nánar tiltekið frá 1945 þegar spari-
sjóðurinn var stofnaður.
Nýstofnað félag foreldra sem eiga börn f Árholti, hélt útiveislu við Árholt i siðustu viku.
var ekki annað hægt að sjá en fólk skemmti sér konunglega.
Þarna komu saman ungir og gamlir og
Mynd: áþ.
Slæmt ástand í atvinnu-
málum Akureyringa
„Það hefur lítil breyting orðið á at-
vinnuleysisskráningunni frá síðustu
opinberu skýrslunni, sem kom út
um mánaðamótin mars/apríl. í lok
mars voru 125 skráðir atvinnulaus-
ir, en að jafnaði voru þeir 132 í
mánuðinum. Svona slæmt hefur
ástandið í atvinnumálum Akureyr-
inga ekki verið síðan 1970 og það er
athyglisvert að karlar eru nú í
meirihluta,“ sagði Heiðrekur
Guðmundsson hjá Vinnumiðlunar-
skrifstofu Akureyrar.
Heiðrekur gat þess að hann vissi
þess dæmi að ungir menn og ungar
konur hefðu verið atvinnulaus síð-
Ríkisstjórnin
heimilar kaupin
en málið á eftir að fara fyrir Framkvæmdastofnun
Ríkisstjórnin hefur nú fallist á
það, að heimila Útgerðarfélagi
Norður-Þingeyinga að ganga
inn í smíðasamning á
skuttogara í Noregi, i stað
togarakaupanna af
Iversenbræðrum, sem gengu til
baka. Framkvæmdastofnun
ríkisins á eftir að fjalla um
málið, en menn eru vongóðir
um að af þessum kaupum geti
orðið.
„Við höfum góða von um að
heimildin fáist til kaupa á þessu
nýja skipi og við vonum að
Framkvæmdastofnunin fjalli um
málið sem fyrst og að við fáum
svör á næstu dögum. Okkur
liggur á að fá svör og það þýðir
ekki að draga okkur á þeim í þrjá
mánuði eins og síðast, með þeim
afleiðingum að málið eyðilagðist.
Það er nú orðið ansi hart ef það
tekur lengri tíma að taka
ákvörðun um skipakaup, heldur
en það tekur að smíða skipin,"
sagði Ólafur Rafn Jónsson,
sveitarstjóri á Þórshöfn í viðtali
við Dag.
Togarinn sem um er að ræða
kostar það sama og sá fyrri, er
aðeins minni, en hins vegar alveg
nýr. Þær breytingar sem gera þarf
væri unnt að gera áður en skipið
er fullsmíðað, t.d. varðandi
tækja- og vélakaup, og rætt hefur
verið um að styrkja skipið.
an í haust og að í þeim hópi væru
nokkrir fjölskyldumenn. „Það er
samdrátturinn í byggingariðnaði,
sem orsakar þetta atvinnuleysi að
mestu og í vetur hefur tíðarfar verið
þannig að útivinna hefur verið erf-
ið. Því ntiður er atvinna lítið farin
að aukast, en ég vona að úr fari að
rætast á næstunni. Á móti kemur að
skólafólk fer að koma á vinnu-
markaðinn. Eins og nú horfir er
óálitlegt útlit með atvinnu fyrir
skólafólkið.“
Bróðurparturinn af þeim sem
hafa verið á skrá hjá Vinnu-
miðlunarskrifstofunni í vetur hafa
verið ungir verkamenn, sem voru
t.d. hjá byggingarverktökum, í
vegagerð eða unnu hjá verktökum
hitaveitunnar. Þetta fólk hefur oft
átt vísa vinnu hjá fyrirtækjum eins
og verksmiðjum SÍS á Gleráreyr-
um yfir veturinn, en nú brá svo við
að þar var litla vinnu að fá. Eins og
að líkum lætur hefur samdráttur-
inn í byggingariðnaði komið einna
verst niður á smiðum, sem hafa
verið margir á skrá síðan í janúar.
Nú fyrst virðist vera að rofa til í
atvinnumálum smiða.
í síðustu skýrslu frá Vinnu-
miðlunarskrifstofunni kemur fram
að þá voru atvinnulausir 54 verka-
menn, 18 iðnaðarmenn, 16 vöru-
bílstjórar, 5 verslunar- og skrif-
stofumenn, 23 verkakonur og 9 af-
greiðslu- og skrifstofustúlkur. „Það
er til í dæminu að menn sem komu
af sláturhúsinu í haust hafi ekki
fengið neina vinnu síðan. Einn og
einn er að verða búinn að taka út
sinn bótarétt, sem er 6 mánuðir. Að
þeim tíma liðnum er enga fyrir-
greiðslu hér að fá nema ef hægt
væri að vísa fólki á vinnu,“ sagði
Heiðrekur að lokum.
FÆRRI
FENGU
EN VILDU
„Ég skrifaði niður 30 eða 40
stúlkur, en alls gæti ég trúað að
ég hafi rætt við um 100 manns
sem vildu fá starfið“ sagði Að-
alsteinn Jósepsson, eigandi
Bókvals, en fyrir skömmu aug-
lýsti hann starf afgreiðslustúlku
laust til umsóknar.
Aðalsteinn sagði að u.þ.b.
helmingur þeirra sem komu og
vildu fá starfið hefði verið at-
vinnulaus, en hinir voru í ýms-
um störfum. „Ég hef oft auglýst
eftir fólki, en aldrei hef ég tekið
á móti jafn miklum fjölda svo
það er ljóst að í bænum er tals-
vert atvinnuleysi. Umsækjend-
umir komu hingað í búðina frá
miðvikudegi til föstudags og ég
gerði varla neitt annað en að
ræða við þá þessa daga,“ sagði
Aðalsteinn.
Kópasker:
Fengu ísfirskan bát
Að undanförnu hefur ísfirskur
rækjubátur, Bryndís ÍS 705,
veitt rækju fyrir Kópaskersbúa.
Fyrst var veidd rækja inn á öx-
arfirði, en nú síðast hefur bát-
urinn verið við veiðar á djúp-
rækju hjá Grímsey. Veiðarnar
hafa gengið sæmilega og er
rækjan góð. Auk Bryndisar er 20
tonna heimabátur á rækjuveið-
um.
Ólafur Friðriksson, kaupfélags-
stjóri, sagði að vinna hjá Sæbliki
hefði verið fremur stopul að und-
anförnu, en að sjálfsögðu hefur afli
sá sem Bryndís leggur á land
bjargað miklu. ísafjarðarbáturinn
kom til Kópaskers á vegum Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins. Hann er
nokkuð stærri en þeir bátar sem
hafa verið gerðir út á rækju frá
Kópaskeri, og sagði Ólafur að svo
virtist sem nauðsynlegt væri að
gera út rækjubáta, sem bæði gætu
veitt innfjarðar- og djúprækju.
Bryndís veiðir fyrir Kópaskersbúa
eitthvað fram á sumar.
Að mati Ólafs er fyrirsjáanlegt
atvinnuleysi meðal skólafólks og
jafnvel fleiri heimamanna ef ekki
tekst að útvega meira hráefni til
Sæbliks, sem er eina fiskvinnslu-
fyrirtækið á Kópaskeri.
Kabarett í Hrísey
Leikklúbburinn Krafla setti á svið
kabarett um miðjan mánuðinn. Á
eftir lék hljómsvcit Finns Eydals
fyrir dansi fram á rauða nótt.
í kabarettinum voru tekin fyrir á
gamansaman hátt gömul og ný
vandamál og virtust gestir skemmta
sér hið besta. Fyrr í vetur var
Krafla með leiklistarnámskeið
undir leiðsögn Jóns Júlíussonar,
leikara.
— Fréttaritari.