Dagur - 28.04.1981, Síða 6
Páskamót
Iþróttadeildar
HAfMK-
ÞASSAMVNDIR___
AMSTUNDIS »*= =*
Dagana 18.-20. april var haldið
Páskamót íþróttadeildar Léttis
á vellinum í Breiðholti. Er hug-
myndin að þetta verði árlegt
mót. Talsvert margt fólk fylgdist
með íþróttamóti þessu i góðu
veðri. Helstu úrslit urðu þessi:
Fjórgangur unglinga.
1. Ásgeir Herbertsson
Hannibal 9.v. leirljós
2. Hugrún Ivarsdóttir
Haukur 17v. rauður.
3. Höskuldur Jónsson,
Logi 7v. rauður.
4. Gunnlaugur Þráinsson,
Börkur 5v. rauður.
5. Erling Guðmundsson,
Örvar 7v.
Fjórgangur fullorðinna.
1. Björn Þorsteinsson,
Blesi 5v. rauðblesóttur.
2. Birgir Árnason,
Þokki 7v. bleikálóttur.
3. Jónsteinn Aðalsteinsson,
Fákur 6v. grár.
4. Herbert Ólason,
Kládíus 7v. rauður.
5. Baldvin Baldvinsson, Þjálfa,
Flugumýrarskjóni 8v. bleikskj.
Nýr sveítarstjóri á
Raufarhöfn
Um mánaðamótin tekur Gunnar
Hilmarsson við starfi sveitarstjóra á
Raufarhöfn. Undanfarin 4 ár hefur
Sveinn Eiðsson gegnt starfi sveitar-
stjóra á Raufarhöfn, en hann fer nú
suður í Voga og mun taka við
sveitarstjórastarfi þar. Gunnar
Hilmarsson var um langt árabil
starfsmaður Flugleiða. DAGUR
óskar þeim Gunnari og Sveini
velfarnaðar í nýjum störfum.
Tölt unglinga.
1. Sigmar Bragason,
Glói 5v. rauður.
2. Hugrún ívarsdóttir,
Haukur 17v. rauður.
Höskuldur Jónsson,
Logi 7v. rauður.
Ásgeir Herbertsson,
Hannibal 9v. leirljós.
Jón Már Snorrason,
Strengur 1 lv. brúnn.
3.
5.
Fimmgangur.
1. örn Grant,
Fróði 9v. brúnn.
2. Björn Þorsteinsson,
Freyr 931 7v. brúnn.
3. Jónsteinn Aðalsteinsson,
Grettir 9v. grár.
4. Reynir Hjartarson,
Máni 5v. rauður.
5. Heiðar Hafdal,
Gustur 16v. grár.
Tölt.
1. örn Grant,
Kvika 6v. rauð
2. Óli G. Jóhannsson,
Fálki 7v. brúnskjóttur.
3. Aldís Björnsdóttir,
Ýri 13v. rauðblesóttur.
4. Herbert Ólason,
Kládíus 7v. rauður.
5. Matthías Eiðsson,
Þruma 5v. brún.
Gæðingaskeið.
1. Björn Þorsteinsson,
Blær 8v. jarpur.
2. Matthías Eiðsson,
Garður 9v. jarpur.
3. Herbert Ólason,
Sinfoníurauður 8v.
Hestaíþróttamót þetta var öllum
opið og voru skráningar frá Dalvík
og úr Þjálfa í Þingeyjarsýslu auk
Léttis manna.
Mótsstjóri var Gunnar H.
Jakobsson.
Vorhreingerning. Mynd: á.þ.
Hundaeigandi skrifar:
Hvers eigum við að gjalda?
Mér finnst mál til komið að
hundaeigendur á Akureyri fari
að láta til sín heyra. Það er nú
komið svo að afskiptaleysi bæj-
aryfirvalda af okkar málefnum
er alveg óviðunandi. I fjárhags-
áætlun Akureyrar fyrir árið 1981
er ekki einni krónu ráðstafað
okkur til handa. Og ekki er hægt
að sjá, að okkur sé nokkurs-
staðar ætlaður staður í hinu nýja
skipulagi bæjarins. Nei, við höf-
um alveg gleymst. Því var það,
að við tókum af skarið, 5
hundaeigendur, komum saman,
og stofnuðum Hundaeigendafé-
lagið.
Eftir formlega stofnun félagsins
skiptust menn í starfs- og umræðu-
hópa. Seinnipart dagsins hittust svo
Spilakvöld verður hjá Sjálfsbjörg
í nýja félagsheimilinu við Bugðu-
síðu 1, fimmtudaginn 30. apríl kl.
20.30. Allir velkomnir. Nefndin.
Vinarhöndin: Minningarspjöld
eru seld í Ásbyrgi, Huld og Bók-
vali, hjá Judith í Langholti 14 og
Júdit í Oddeyrargötu 10.
Fermingarbörn í Kaupangi 3. maí
kl. 12.00. Birgir Hauksson, Fífil-
gerði. Egill örlygsson, Þórustöð-
um 2. Ingólfur Þorsteinsson,
Gröf. Jón Þorgrímur Friðriksson,
Brekku. Sigríður Kristjánsdóttir,
Kaupangi.
Basar hefir Kristniboðsfélag
kvenna í Zíon föstudaginn 1. maí
kl. 4. Margir góðir munir, blóm,
kökur. Gerið góð kaup og styrkið
starfið. Nefndin.
Fíladelfia, Lundargötu 12. Vakn-
ingarsamkomur verða dagana
fimmtudaginn 30. apríl og föstu-
daginn 1. maí, laugardaginn 2.
maí kl. 20.30 og sunnudaginn 3.
maí kl. 17.00. Á þessum sam-
komum talar Einar J. Gíslason
frá Reykjavík. Allir hjartanlega
velkomnir. Sunnudagaskóli kl. 11
f.h. Öllbörn velkomin.
I.O.G.T. st. Isafold-Fjallkonan
nr. 1. Fundur fimmtudag 30. þ.m.
kl. 8.30 e.h. í félagsheimili
templara - Varðborg. Fundar-
efni: Vísla nýliða. Kosnir full-
trúar á þingstúku og umdæmis-
stúkuþing. Eftir fund: Sýndar
myndir. Kaffi. Æ.t.
□ RÚN 59814307 - Lokaf. Frl.
Atkv.
Aðalfundur íþróttafélags fatlaðra
Akureyri verður haldinn laugar-
daginn 2. maí kl. 2 e.h. í félags-
miðstöð Sjálfsbjargar Bugðusíðu
1. Dagskrá: Venjuleg aðalfund-
arstörf. Stjórnin.
Aðalfundur Glerárdeildar Kaup-
félags Eyfirðinga verður haldinn
fimmtudaginn 30. þ.m. í barna-
skóla G.erárhverfis kl. 20.00
Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórn-
Aðalfundur Kvennasambands
Akureyrar verður haldin í Lóni
Glerárgötu 34, þriðjudaginn 28.
apríl kl. 8.00 stundvíslega. Allar
félagskonur innan sambandsins
velkomnar. Stjórnin.
Frá Ferðafélagi Akureyrar. 1. mai
Súlur, farið verður frá öskuhaug-
unum kl. 10.00. 9. maí Kaldbak-
ur.
Akureyrarkirkja messað verður
n.k. sunnudag kl. 2 e.h. Séra Þór-
hallur Höskuldsson Möðruvöll-
um predikar og þjónar fyrir altari.
Sálmar nr. 18, 21, 170, 48, 161.
Kvenfélag Akureyrarkirkju held-
ur kaffisölu í kirkjukapellunni að
aflokinni messu.
Kristniboðshúsið Zíon. Sunnu-
daginn 3. maí. Fundur í Kristni-
boðsfélagi kvenna kl. 4. Sam-
koma kl. 20.30. Ræðumaður
Reynir Hörgdal. Allir velkomnir.
Sjónarhæð. Almenn samkoma
n.k. sunnudag kl. 17.00. Biblíu-
lestur og bænastund á fimmtudag
kl. 20.30. Verið velkomin.
Þann 25. apríl sl. voru gefin sam-
an í hjónaband í Minjasafns-
kirkjunni, brúðhjónin ungfrú
Guðrún Jónsdóttir og
Guðmundur Reykjalín, fram-
kvæmdastjóri. Heimili þeirra
verður að Lindarbraut 16. Sel-
tjarnarnesi.
Hinn 26. apríl sl. voru gefin sam-
an í hjónaband í Akureyrarkirkju
Elín Kristbjörg Sigurðardóttir
skrifstofustúlka og Marteinn
Björn Hámundarson plötusmið-
ur. Heimili þeirra verður að
Gránufélagsgötu 43, Akureyri.
hóparnir og báru saman bækur
sínar. Samþykkt voru drög að
stefnuskrá félagsins. Unnið mun
verða eftir sama kerfi og tiðkast hjá
hliðstæðum þrýsihópum.
Gerðar verða ótakmarkaðar
kröfur í fé hins almenna skatt-
greiðanda. Því að við lítum svo á,
að það sé ekkert einkamál okkar,
að við eigum hunda. Þarna er um
að ræða samband mannsins við
hinn ferfætta vin okkar, sem fylgt
hefir manninum frá ómunatíð. I
vinnslu er „bænaskjal" allmikið,
þar sem þær skýlausu kröfur verða
settar fram að okkur verði úthlutað
útivistarsvæði á bezta stað í bæn-
um. Þar verði gerð aðstaða til alls-
konar hundaíþrótta. Síðan verði
byggt yfir starfsemi félagsins
myndarlegt hús. Ráðinn verði
dýralæknir, lærðir hundatemjarar
og annað starfsfólk. Lágmarks-
krafa um menntun þess er a.m.k.
stúdentspróf. Mun þá skapast sú
langþráða aðstaða, að hundaeig-
endur þurfa ekki lengur að hafa
þessi vini sína í heimahúsum nema
sem allra minnst. Einnig opnast
þarna möguleiki fyrir fólk, sem
langar til að eiga hunda, en getur
ekki hugsað til þess að hafa þá ná-
lægt sér. Takmark okkar er: Vist-
unarpláss fyrir alla hunda á Akur-
eyri, burtséð frá þörfinni. Láta mun
nærri að fjöldi hunda hér sé nálægt
eitthundrað og fjörutíu. I ráði er
svo þegar bænaskjalið er fullgert að
félagsmenn mæti á fundi hjá bæj-
arstjórninni og hafi hundana með
sér og afhendi umrætt bænaskjal.
Ég er viss um það, að þegar hvutt-
unum hefir verið sleppt lausum á
fundinum, og bæjarfulltrúarnir
hafa fengið að klappa þeim um
stund, munu einhverjir þeirra
(bæjarfulltrúanna) samþykkja fyrir
sitt leiti, að öllum verklegum fram-
kvæmdum á vegum bæjarins verði
frestað, og því fé, sem við það
sparast verði varið til þess að láta
draum hundaeigendafélagsins ræt-
ast- H undeigandi.
Fékk sænska orðu
Fyrir nokkrum vikum var Sigurjón
Sæmundsson, prentsmiðjustjóri á
Siglufirði, heiðraður með konung-
legri sænskri orðu. Sigurjón hefur
verið sænskur ræðismaður á Siglu-
firði undanfarin ár.
AÐALFUNDUR
KRABBAMEINSFÉLAGS AKUREYRAR
verður haldinn að Hótel Varðborg mánudaginn 4.
maí, n.k. kl. 20.30 stundvíslega.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Halldór Halldórsson, læknir, flytur fræðsluerindi á
fundinum.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Stjórnin
iti
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför
TRYGGVA KRISTJÁNSSONAR,
Norðurgötu 32, Akureyri.
Sérstaklega þökkum við læknum og starfsfólki Kristneshælis og
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fyrir alla umönnun í löngum
veikindum hans.
Systklnl hlns látna og aðrir vandamenn.*
Þakka auðsýnda samúð við andlát og jarðarför eiginkonu
minnar
EVU K. MAGNÚSDÓTTUR,
Vanabyggð 13, Akureyri.
F. h. aðstandenda.
Guðmundur J. Frímannsson.
6.DAGUR