Dagur - 12.05.1981, Blaðsíða 4
HMGUIR
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsimar: 24166 og 23207
Simi auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamaður: ÁSKELL ÞÖRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Framleiðslustefna
Framsóknar-
flokksins
Á aðalfundi miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins sem haldinn var
fyrir nokkru var í stjórnmálaálykt-
un fjallað ítarlega um stefnu
flokksins í framleiðslu- og at-
vinnumálum. f ályktuninni segir:
Nauðsynlegt er að halda áfram
þeirri framleiðslustefnu, sem
Framsóknarflokkurinn hefur beitt
sér fyrir. Með aukinni framleiðslu,
hagkvæmni og hagræðingu á öll-
um sviðum atvinnulífsins verða
lífskjörin treyst og bætt. Góð af-
koma atvinnuveganna er forsenda
þess. Aðalfundur miðstjórnar
leggur áherslu á eftirtalin atriði:
Haldið verði áfram þeirri aðlög-
un landbúnaðarins að markaðs-
aðstæðum sem hófst 1979. Nýjar
búgreinar verði efldar skipulega
og stutt að því að nýjar atvinnu-
greinar þróist í dreifbýli og þannig
verði komið í veg fyrir byggða-
röskun og tekjuskerðingu bænda.
Fylgt verði þeirri fiskveiðistefnu
sem mörkuð hefur verið. Þar er
lögð áhersla á gæði, samræmingu
sóknarþunga og dreifingu aflans.
Áhersla verði lögð á endurnýjun
bátaflotans án þess að sóknar-
þungi aukist. Vaxandi samkeppni
vegna ýmiss konar styrkja- og
niðurgreiðslustefnu erlendis verði
mætt með hagkvæmni og vöru-
vöndun.
Áfram verði haldið framkvæmd
þeirrar byggðastefnu, sem Fram-
sóknarflokkurinn hafði frumkvæði
að. Áhersla verði lögð á uppbygg-
ingu fjölbreytts atvinnulífs á
landsbyggðinni. Endurskoðaðar
verði lánareglur Byggðasjóðs til
þess að hann geti í ríkara mæli
stuðlað að framkvæmd mark-
vissrar byggðastefnu.
Samkeppnisstaða iðnaðar verði
bætt með því að skapa honum
svipuð skilyrði og eru í nágranna-
löndunum m.a. með því að létta af
honum ýmsum álögum. Smáiðn-
aður í dreifbýli verði efldur.
Auka þarf framkvæmdir í orku-
málum til eflingar atvinnulífsins
og vegna stórhækkaðs verðs á
olíu. Á næstu 10-12 árum verði
ráðist í nýjar virkjanir í Blöndu, í
Fljótsdal og við Sultartanga. Jafn-
framt verði unnið að hagnýtingu
háhitasvæðanna. Raforka þess-
ara virkjana á að mæta almennri
þörf landsmanna sem sífellt fer
vaxandi, en auk þess skal hún
hagnýtt á hvern þann hátt sem hún
með arðbæru móti getur komið í
stað innfluttrar orku og einnig
sem grundvöllur að auknum iðn-
aði í landinu, þ.á.m. orkufrekum
iðnaði.
SKÓGRÆKTARFÉLAG EYFIRÐINGA:
Friðun á Þelamörk og framkvæmd-
ir á útivistarsvæðinu í Kjarna
— var meðal verkefna félagsins á sl. ári, segir Hallgrímur Indriðason framkvæmdastjóri
SKJÓLBELTI
Árið 1980 var einstakt fram-
kvæmdaár í sögu Skógræktar-
félags Eyfirðinga. Þann 10. og 11.
maí 1980 hélt félagið upp á 50 ára
afmæli sitt með tveggja daga
fundi, en á honum voru félaginu
færðar góðar gjafir, sem að
nokkru leiti stóðu undir fram-
kvæmdum og fjárfestingum árs-
ins.
Ef hugað er að tíðarfari til
skógræktar kemur í ljós að sum-
arið 1980 var öllu ræktunarstarfi
mjög í hag og skipti þar mjög um
frá árinu 1979, sem varð eitt
áfallasamasta ár í sögu félagsins.
Vorstörf hófust hjá félaginu með
fyrsta móti, eða um miðjan apríl.
Segja má að unnið hafi verið
nokkuð stöðugt allt til áramóta,
þó mismargir hafi lagt hönd á
plóginn á hverjum tíma. Alls voru
greiddar hjá félaginu um 4500
vinnustundir, fyrir utan vinnu
framkvæmdastjóra. Á útivistar-
svæðinu voru á sama tíma unnar
2700 stundir. Þannig að samtals
voru unnar um 7.200 stundir hjá
Skógræktarfélagi Eyfirðinga árið
1980 og er það meira en áður
hefur verið. Hópur frá Vinnu-
skóla Akureyrar, sem staðsettur
var í Kjarnaskógi skilaði um 3000
vinnustundum.
Hér á eftir verður gerð grein
fyrir einstökum þáttum starfsem-
innar. Verkefnum félagsins er
skipt niður í 5 þætti í samræmi við
áætlun um starfsemi félagsins frá
1979.
ÚTIVIST ARSVÆÐIÐ
IKJARNA
Rekstur útivistarsvæðisins var
með svipuðum hætti og undan-
• farin ár. Nýframkvæmdir voru
aðallega í formi gróðursetninga
og gerð trimmbrautar. Á árinu
voru gróðursettar um 4000 plönt-
ur í Kjarnaskógi. Aðal gróður-
setningasvæðið er nú í norð-vest-
urhluta svæðisins. Þaðan er svo
fyrirhuguð tenging svæðisins við
Naustaborgir og þar verður
væntanlega byrjað að girða á
þessu ári. Einnig var gróðursett
Héraðsskóg-
ræktaráætlun
fyrir Eyjafjörð
AðalfuncJur SkógrœktarféUigs
Evfirðinga ha,dinn á Akurevri 11.
april 1981 bcinir þeim eindregnu til-
nuelum til Skógrœktar ríkisins og
Skógrwktarfélags Jslands, að þegar i
stað verði gerð áietlun um héraðs-
skó%rcekt í Eyjafirði.
Áietlun þessi verði með svipuðu
sniði og átvtlun um skógrcekt i
Fljótsdal frá 1965. (Fljótdálsácetlun)
Markmið þessarar ácetlunar fyrir
Evjafjörð skulu vera:
A. Að gera bændum og öðruin land-
cigcndum fjárhagslega kleyft að
nýta lönd sfn til skógræktar.
B. Að ná scm stserstu sainfelldu
svæöi i Kyjafirði til skðgræktar á
félagsiegum grundvelli.
^Skógræktarfélag Eyfirðinga vill
máli þessu til stuðnings benda á
þann skógræktar árangur. seni
náðst hefur vlða I Eyjafirði.
Einnig bendum við á álit snm-
starfsnefndar um Landgræðslu-
áætlun 1981-1985. þar scm lagt er til
að gerð verði héraðsskógræktar-
áætlun fyrir Eyjafjarðarsvæðið.
nokkuð af plöntum á þeim stöð-
um, sem harðast höfðu orðið úti
vegna skemmda 1979.
Allt sumarið 1980 vann flokkur
frá Vinnuskóla Akureyrar við að
fella barrtré sem drápust 1979 og
er ljóst að fjöldi þeirra skiptir
þúsundum. Á síðasta ári var
opnuð formlega trimmbrautin,
sem byrjað var á 1977, er hún um
2,7 km. að lengd og raflýst með
um 70 staurum. Rafveita Akur-
eyrar kostaði lýsingu. Lætur
nærri að kostnaður við trimm-
brautina sé um 20.000.000 gkr.
Hlutverk þessarar brautar er m.a.
að gera útivistarsvæðið aðgengi-
legt allt árið og auka nýtingu þess.
Þetta hefur að mínu mati tekist og
má segja að aðsókn sé nú vaxandi
allt árið um kring. Þess má og
geta að nokkrar endurgreiðslur
hafa fengist frá íþróttasjóði en
hann mun endanlega greiða um
60% af kostnaði við brautina.
Mikið var unnið að grisjun í
Kjarnaskógi á síðasta ári og er
Leiga á landi til
áhugamanna um
skógrækt
„Aðalfundur Skógræktarfélags
Eyfirðinga, haldinu á Akureyri 11.
apríl 1981, beinir þeini tilmælum til
stjórnar félagsins að hún taki upp
viðræður við hreppsnefndir f Eyja-
firði, jarðanefnd Eyjafjarðarsýslu,
Búnaöarsamband Eyjafjarðar og
skipulagsyfirviild héraðsins um leigu
á landi til áhugamatma um skóg-
rækt.“
l greinargerð segir að telja megi
líklegt að áhugamenn um skógræki
mundu sýna því áhuga að fá land
leigt til skógræktar, ef vitað væri að
slik málaleitan væri auðveld í fram-
kvæmd og nyti skilnings hlutaðeig-
andi yfirvalda.
Allmikið land er í Eyjafirði sem
ekki er nytjað eða illa er fallið til
annarrar ræktunar en skógræktar.
Heldur mun það auka giidi jarða í
héraðinu ef óræktarland og melar
verða klæddir skógi, sem veitir
skepnum skjól, hefur mildandi áhrif
á veðurfar og gefur af sér afurðir
þegar fram ifða tímar.
Eftirsóknarvert er að færa sér það
í nyt að áhugamenn um skógrækt
eru reiðubúnir til þess að verja
tómstundum sínuni og fjármunum
til slikrar uppgræðslu. Búast má við
að áform um byggingu sumar-
bústaða fylgi á stundum umsóknum
um leiguland til skógræktar. Margs
er að gæta við afgreiðslu slikra um-
sókna. Það væri heppilegt ef hlut-
aðcigandi yfirvöld gætu, I samvinnu
við Búnaðarsamband Eyjafjarðar
og Skógræktarfélag , Eyfirðinga,
mótað stefnu í þessum málum: gæti
slik slefna einfaldað skipulagsyfir-
völdum afgrciðslu umsókna af
þessu tagi og um leið skýrt stöðu
skógræktarmanna og auðvcldað
þeim málaleitanina.
Kjarnaskógur nú það skógar-
svæði í umsjá félagsins, sem best
er á vegi statt hvað grisjun og
umhirðu snertir, þó enn sé langt í
land. Heildarkostnaður við úti-
vistarsvæðið í Kjarna var árið
1980 gkr. 17.952.112,- og greiddi
Akureyrarbær gkr. 17.072.112,-
en Skógræktarfélagið greiddi gkr.
880.000,-.
PLÖNTUUPPELDIÐ
Störf við uppeldisstöðina hóf-
ust í byrjun maí og var afhending
plantna komin í fullan gang um
10. maí. I heild voru afhentar úr
uppeldisstöðinni um 40.000
plöntur þar af röskur helmingur
garðplöntur af ýmsum tegundum
og ýmsum aldri. Hagnaður varð á
þessum þætti starfseminnar.
Greiðslur vinnulauna við plöntu-
uppeldið voru 7.500.000, eða 47%
af heildarkostnaði við þann
rekstrarþátt.
Allt frá því að uppbygging
plöntuuppeldisstöðvarinnar hófst
árið 1977 hefur verið að því stefnt
að hún gæti gefið félaginu nokk-
urn arð, sem síðan mætti nýta í
þágu markmiða félagsins. Nú er
svo með plöntuuppeldi eins og
aðra lífræna framleiðslu, að á það
virka ýmsir þættir, sem ekki
stendur í mannlegum mætti að
stjórna. Hér er að sjálfsögðu átt
við tíðarfarið. En með því að
fjárfesta á skynsamlegan hátt
innan þessa verkþáttar getum við
gert okkur óháðari duttlungum
náttúrunnar. Mikið hefur miðað í
þessa átt á síðustu árum, en
nokkuð vantar þó á að fullnaðar
árangri sé náð.
Helstu framkvæmdir í þessa átt
á árinu 1980 var bygging 300 m2
gróðurhúss, sem kemst í full not
nú á næstu dögum. Fjölgun
plantna í uppeldisstöð var að
öðru leyti sem hér segir:
Plöntur
DreifseltarI5.000
Fjölgað m. vetrargr. 13.000
Fjölgað m. sumargr. 20.000
Sáð í 120 m2 ca.60.000
108.000
Það átak sem Skógræktar-
félagið gekkst fyrir í samvinnu
við Skógrækt ríkisins og bændur
um ræktun skjólbelta á jörðum
bænda hefur því miður farið
minnkandi. Ástæður fyrir því eru
þær að ekki fékkst framlag frá
Skógrækt ríkisins til girðinga á
árinu 1980. Vinna við þau belti
sem búið var að kbma upp var
samt nokkur. Einnig tókst að
ljúka gerð tveggja nýrra skjól-
belta á Knarrarbergi og Klauf á
síðasta ári. Félagið lagði til efni í
girðingu á öðrum staðnum. Und-
irbúið var skjólbelti á Búðarnesi
og verður plantað í það í vor.
Heildarkostnaður félagsins vegna
skjólbeltaræktunarinnar var 1,5
m. gkr.
Um framtíðarverkefni á þessu
sviði er það að segja að ný land-
græðsluáætlun gerir ráð fyrir
verulegu fjármagni til skjólbelta-
ræktar í framtíðinni ca. 40 m. gkr.
(Framhald á bls. 7).
Plöntur f gróðrarstöðinni i Kjarna. Hallgrimur Indríðason litur yfir plönturnar.
Yfirlit yfir tíðarfarið á Akureyri, sumarið 1980.
Maí Júnf Ju'lí Ágúst Sept.
Meðalhiti 7.9 (+1,6) 9,5 ( + 0,2 11.2 ( + 0,3) 10,5 ( + 0,2) 6,9 (-0,9)
Meðal hámark 12,6 13,1 14,8 14,2 10,3
Meðal lágmark 4,4 6,3 8,1 7,3 4,0
Hæsti hiti 24,6 (22.) 20,0(13.) 27,0 (31.) 26,6(1.) 15,8(1.)
Lægsti hiti -4,6 (7.) 0,8(1.) 4,2 (27.) 1.0 (29.) -3,2(19.)
Úrkoma, mm 8,6(57%) 48,2 (219%) 22,5 (64%) 34,0 (87%) 49,3(107%)
Úrkomudagar 9 13 8 15 17
Sólskinsstundir 219,4 ( + 28%) 222,1 ( + 29%) 137,9 (-6%) 154,2 ( + 37%) 64,5 (+15%)
Algengasta átt S-SE 49% N-NW 66% N-NW 49% N-NW 41%
Mai: Mánuðurinn í heild var
góður, nema hvað úrkoma var of
lítil og auk þess sem kuldakast
6.-10. hafði nokkur áhrif á gróð-
ur. Hámarkshitinn þann 22. maí
var 24.6°C, sem er hæsti hiti sem
mælst hefur í maímánuði á Ak-
ureyri þau 50 ár sem hámarks-
hitamælingar hafa verið gerðar.
Sólskin var 28% yfir meðallagi.
Jtáni: Tíðarfarið var hagstætt
að öðru leiti en að þurrkar fyrri
helming mánaðar drógu verulega
úr sprettu. Sólskin var 29% um-
fram meðallag.
Júlí: Tíðarfar má kalla gott en
sól í minna lagi. Hitabylgja fór
yfir landið síðustu daga mánað-
arins og hæsti hitinn mældist þ.
31. 27 °C.
Agúst: Hitabylgjan stóð enn 1.
óg 2. en þá tók við kafli með úr-
komu og óþurrkum næstu 3 vik-
umar. Það létti til síðustu vikuna
og var hiti mánaðarins yfir með-
allagi og sól 37% umfram meðal-
lag þrátt fyrir marga úrkomu-
daga.
September: í lok 1. viku kólnar
og er hiti undir meðallagi til 19.,
þegar aftur hlýnar og er þá hlýr
kafli í vikutíma, og er því meðal-
hiti mánaðarins aðeins 0,93 °C
undir meðallagi. Úrkoma er um
7% umfram meðallag og sólskin
15% minna en í meðalári.
Október er um 4 °C undir
meðallagi og það er talið alsnjóa
á Akureyri frá 7. okt. og út mán-
uðinn, svo segja má að vetur
gangi snemma í garð. Tvo síðustu
daga október gerði góða hláku
svo að snjó tók upp.
Örugg kunnátta - vönduð vinnubrögð
Passíukórinn á Akureyri.
Tónleikar í Akureyrar-
kírkju 7. maí s.l.
Messa í D-dúr op. 86 eftir
Antonin Dvorak.
Einsöngvari:
Þuríður Baldursdóttir.
Orgelieikari:
Gígja Kjartansdóttir Kvam
Stjórnandi: Roar Kvam.
í vandaðri og greinargóðri efnis-
skrá, sem tónleikagestir fengu í
hendur, segir á þessa leið: „Dvorak
, var beðinn að semja kirkjulegt verk
í tilefni vígslu nýrrar kirkju í Luzay
í Tékkóslóvakíu, og samdi hann þá
Messu í D-dúr. Tónverkið er samið
fyrir blandaðan kór, einsöngvara
og orgel, og er það í hefðbundnu
klassísku messuformi, skiptist í sex
meginkafla: Kyrie, Gloria, Credo,
Sanctus, Benedictus og Agnus Dei.
Þetta tónverk er talið eitt af
mestu meistaraverkum í kirkjulegri
tónlist frá síðari hluta rómantíska
tímabilsins.
Messan var frumflutt 11. nóv.
1887 og stjórnaði höfundurinn
flutningnum. Einfaldleiki og lát-
leysi ásamt reisn og hátíðleik ein-
kennir þetta tónverk.“
Passíukórinn á Akureyri hefur
nú starfað um níu ára skéið og
vaxið við hverja raun. Þar hefur
liðið samanlegt ævinlega sett
markið hátt og færzt í fang flutning
á öndvegisverkum tónbókmennta.
Stórhugur og listrænt frumkvæði
stjórnandans Roars Kvam svo og
kórfélaga fyrr og síðar er að-
dáunarvert, hefur auðgað tónlist-
arlíf bæjarins og hækkað risið á
tónlistarstarfsemi hér um slóðir.
Tónlistarskólanum á Akureyri er
heiður og sæmd að því að hafa
verið nátengdur starfi þessa kórs,
allt frá því hann hóf göngu sína
undir nafninu „Kirkjutónlistar-
sveitin“, ef mig misminnir ekki.
Ég er áreiðanlega ekki ein um
það í hópi kennara skólans að geta
borið því vitni hve þátttaka í þessu
kórstarfi hefur aukið við músík-
reynslu þeirra nemenda, sem hafa
verið með í því. Kórstarfið hefur
aukið þeirra mennt, og þeim hafa
þar opnazt ný svið. Mörgum
kennurum skólans hefur einnig
þótt tíma sínum vel varið með
virkri þátttöku í starfi Passíukórs-
ins. Nú hefur kórinn enn og aftur
efnt til flutnings á merkilegu tón-
verki, sem mér vitanlega hefur ekki
áður verið flutt hér á landi, og tókst
ágætlega. Stjórnanda Roar Kvam
og flytjendum eru hér með færðar
beztu þakkir.
Einsöngur Þuríðar Baldursdótt-
ur var með glæsibrag, enda er
hennar raddfegurð með ein-
dæmum samfara góðri stílkennd.
Gígja Kjartansdóttir orgelleikari
skilaði sínum hlut einnig með
prýði, af öryggi og festu.
Ég hef löngum dáðst að þeim
eiginleika í fari Passíukórsins hve
þar fer saman ögun kórsins sem
heildar, örugg kunnátta og vönduð
vinnubrögð, og svo hið virka fram-
lag kórfélaga sem einstaklinga,
sjálfstæði þeirra og músíkgleði.
Þarna virðist hver og einn vera svo
persónulega ábyrgur fyrir því, sem
verið er að gera.
Því er ekki að leyna, að af rödd-
um kórsins er sópraninn í forystu,
og skyldi ekki vera leitun á kór hér
á landi, sem hefur öðrum eins auk
heldur betri sópran á að skipa.
Hann er glæsilegur og hljóm-
fallegur, þróttmikill og einstaklega
viðbragðsléttur. Altröddin virtist
mér einnig sérlega áheyrileg. Það er
svo auðvitað gamla sagan, að
karlaraddimar eru alltof þunn-
skipaðar, og þar af leiðandi hefur
Passíukórinn ekki að jafnvægi milli
radda, sem hann vissulega ætti
skilið. Mig undrar það, að söngfólk
skuli ekki beinlínis flykkjast í svona
hóp, og mig undrar það líka hverju
Passíukórinn svona fáiiðaður getur
til leiðar komið.
Bæjarbúar ættu miklu oftar að
eiga þess kost að heyra til hans, en
mikil vinna liggur að baki tónleik-
um á borð við þá, sem hér um
ræðir. Það sýnist tilvalið að leita til
Passíukórsins um tónflutning t.d.
við kirkjulegar athafnir, messur og
því um líkt. Þar væru þættir úr
þessu yndislega verki Dvoraks,
Messu í D-dúr, vel til fallnir. Næsta
verkefni kórsins er að flytja Carm-
ina Burana eftir Carl Orff, og verða
þeir tónleikar í byrjun júní. Þeir
verða væntanlega vel sóttir.
Sofffa Guðmundsdóttir.
Bikarkeppni K.R.A.:
Evrópumótið í kraftlyftingum:
KA hafði betur
í vítaspyrnukeppni
7-8 ára stúlkur
Unnur Valdimarsd.
Helga Helgadóttir
7-8 ára drengir
Magnús Þorgeirss.
Ólafur Óskarsson
Sigmar Kárason
Gunnl. Helgason
l.f. 2. f. samt.
35.62 35.33 70.95
38.58 33.62 72.20
l.f. 2. f. samt.
32.24 32.81 65.05
32.96 32.1 6.14
32.99 32.76 65.75
37.22 35.98 73.20
9-10 ára stúlkur 1. f. 2. f. samt.
Kristín Sigurgeirsd. 32.89 33.04 65.93
Silja Bára ómarsd. 36.65 36.28 72.93
Ragna Rós Bjarkad. 46.83 45.96 92.79
9-10 ára drengir. l.f. 2. f. samt.
Sæmundur Ámason
Halldór Bragason
Björgvin Stefánsson
11-12 ára stúlkur
Svanhildur Svavarsd
Fjóla Guðnadóttir
Heiða Guðmundsd.
Lilja Guðnadóttir
39.80 41.29 81.09
45.03 71.02116.07
hætti
l.f. 2. f. samt.
46.35 45.02 91.37
51.24 46.01 97.25
46.88 51.29 98.17
45.14 53.18 98.32
11-12 ára drengir i.f. 2. f. samt.
Brynjar Bragason 38.15 38.32 76.47
Jóhann Eyjólfsson 43.78 46.78 90.56
Björn Brynjar Gislas.hætti
13-15 ára stúlkur l.f. 2. f. samt.
Selma Vigfúsdóttir 42.14 43.37 87.51
Unnur Einarsdóttir 45.27 48.67 93.94
13-14 ára drengir l.f. 2. f. samt.
Pétur Valdimarsson 37.46 38.00 75.46
Sigurpáll Gunnarss. 41.20 42.67 83.87
15-16 ára drengir l.f. 2. f. samt.
Eggert Bragason 35.74 35.84 71.58
Magnús Gunnarsson 37.57 37.10 74.67
Hafsteinn Jakobsson 37.52 39.08 76.60
Lagning brauta: Eggert Bragason.
Ritari: Kalrín Davíðsdóttir.
Ræsar: Bjöm Þór ólafsson,
Bjöm Guðmundsson.
Tímaverðir: Ragnheiður Brynjólfsdóttir,
Svavar B. Magnússon.
Víkingur á
verðlaunapalli
Evrópumótið í kraftlyfting-
um var haldið á Parma á
Ítaiíu nú um helgina. Tveir
Akureyringar kepptu á mót-
inu, og náðu þeir ásamt öðr-
um íslendingum mjög góðum
árangri. Á laugardaginn
keppti Kári Elísson í 67,5 kg
flokki. Hann lyfti 222.5 kg í
hnébeygju sem er Islands-
met, 135.0 kg í bekkpressu og
242.5 kg í réttstöðulyftu sem
einnig er íslandsmet, og
samanlagt, er þetta 600 kg og
er það þriðja íslandsmet
Kára á þessu móti. Hann
varð sjötti í sínum flokki.
Víkingur Traustason keppti á
sunnudaginn í þyngsta flokki,
og lyfti samanlagt 800 kg, sem
þó er 10 kg undir hans besta.
Þetta dugði Víkingi til annars
sætis og er hann þá um leið
fyrsti Akureyringurinn sem
kemst á verðlaunapall á
Evrópumeistaramóti.
{þróttasíðan óskar Víkingi og
Kára til hamingju með góðan
árangur.
Víkingur Traustason.
UMSJÓN:
Ólafur Ásgeirsson
Kristján G. Arngrímsson
Ólafsf jarðarmót í
stórsvigi laugar-
daginn 9. maí
Fl. 6 ára og yngri l.f 2.f samt.
Hólmfr. Svavarsd. 42.74 41.28 84.00
Brynjólfur Ómarss. 49.25 36.61 85.86
Elmar Geirsson, fyrirliði KA, tekur á móti bikarnum, sem gefinn var af Kjörbúð
Bjarna. Mynd: K.G.A.
Á laugardaginn léku KÁ og
Þór síðasta leikinn i bikar-
keppni KRÁ. Leikurinn var
lélegur af beggja hálfu, enda
setti hvöss sunnanátt stórt
strik í reikninginn. Þegar
venjulegum leiktíma lauk,
var staðan núll núll, og var þá
gripið til vítaspyrnukeppni,
og náðu KA menn að sigra.
Leikmönnunum gekk illa að
hemja boltann í hvassveðrinu,
og fátt var um fína drætti. Liðin
voru nokkuð jöfn, frá báðum
sáust eitt og eitt ágætt skot, sem
öll sigldu þó framhjá, eða beint í
fang markvarða.
í seinni hálfleik voru KA
menn öllu meira með boltann,
en lítið hafði knattspyrnan sem
spiluð var, skánað — mest um
ónákvæm spörk og pot, iðulega
undir vindinum komið hvert
boltinn fór. Þórsarar áttu þó t.d.
ágætt færi eftir aukaspyrnu frá
Árna, en inn vildi boltinn ekki
— sigldi yfir þverslá. KA
mönnum tókst að koma boltan-
um í netið hjá Þór, en markið
var dæmt af sökum rangstöðu.
Og þegar flautað var til leiks-
loka var staðan núll gegn núll.
Þá var tekið til við vítaspyrnu-
keppnina. í henni skoruðu KA
menn úr fimm skotum af sjö, en
Þórsarar úr fjórum. KA hafði
þar með krækt í veglegan bikar,
gefinn af Kjörbúð Bjarna.
4.DAGUR
DAGUR.5