Dagur - 04.06.1981, Blaðsíða 1
64. árgangur Akurcyri, fimmtudagur 4. júní 1981 43. tölublað
HnannnBnnBnnnnBMíinnnnnBBBnnBBnnanHnBMnBBnBn
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIODIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR
' AKUREYRI
& PÉTUR
HodaK
Saumastofur gjald-
þrota í tugatali?
— Talið að 200-250 manns missi atvinnu vegna
hrikalegs ástands í þessari atvinnugrein
langmestu leiti frá Álafossi, sem
einnig lagði til hráefnið, en þeir
fjölmörgu sem leituðu til Iðnaðar-
deildar SÍS fengu ekki verkefni þar
og voru frekar hvattir til að fara
ekki út í þessa atvinnu vegna of-
fjölgunar fyrirtækja.
Nú blasir blákaldur veruleikinn
við, svo fallegur sem hann nú er.
Talað hefur verið um að 20-25
saumastofur hljóti að fara á haus- .
inn á árinu og 200-250 manns missa
við það atvinnu sína. Álafoss ku
vera að byggja stóra saumastofu, og
lokað hefur verið að mestu fyrir
verkefni til margra saumastofa.
sem munu að öllu óbreyttu leggja
upp laupana áður en langt um líð-
ur. Eru það að langmestu leiti
minni fyrirtækin í hinum dreifðu
byggðum sem eiga í vandræðum.
Sjá opnu
Ný verslun í Kaupangi
Nú er fyrirsjáanlegt að það er
hrikalegt ástand framundan í
málefnum prjóna- og sauma-
stofa víðsvegar um landið, og er
nokkuð Ijóst að mörg fyrirtæki
muni á næstunni neyðast til að
loka og hætta allri starfsemi.
Raunar er sjálfhætt, því verkefni
fást ekki, og má rekja þetta ástand
til geysilegrar fjölgunar fyrirtækja í
þessari atvinnugrein á síðustu ár-
um. Þannig má nefna sem dæmi að
á síðasta ári voru 26 saumastofur
settar á laggirnar i landinu, til við-
bótar þeim tugum sem fyrir voru.
Tækjakostur, sem þarf til að
koma svona fyrirtæki á fót, hefur
verið mjög ódýr og margir þóttust
sjá þarna fljóttekna peninga og
lausn á atvinnuvandamálum. Á
meðan þessi þróun átti sér stað
fengu fyrirtækin verkefni sín að
Kaupfélag Eyfirðinga opnar á
morgun, föstudag, nýja mat-
vöruverslun við Mýrarveg sem
ber heitið Kjörbúðin Kaupvangi
við Mýrarveg. Þarna var áður
rekin Kjörbúð Bjarna.
í hinni nýju verslun verður höf-
uðáherslan lögð á mikið vöruúrval
en verslunin verður rekin með
svipuðu sniði og aðrar kjörbúðir
K.EA.
í hinni nýju verslun munu starfa
12-14 manns að jafnaði, en þess má
geta að um leið og hin nýja verslun
tekur til starfa verður kjörbúð KEA
i Grænumýri 9 lokað.
Terta fyrir 1000 manns!
Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri með skemmstan legutíma
ákaft um nær allt land undan-
farna daga.
Svæði það sem norðlendingarnir
leituðu á var allt frá Húnavatns-
sýslum, Skagafjörðurinn, hálendið
og niður í Eyjafjörðinn.
Leifur sagði að þetta hefði verið
mjög erfið leit, bæði var að engar
vísbendingar voru fyrir hendi
þannig að ekkert var hægt að af-
marka leitarsvæðið, og eins hitt að
svæðið var mjög erfitt til leitar.
Það kom fram í samtalinu við
Leif að tækjabúnaður Flugbjörg-
unarsveitarinnar á Akureyri er
mjög bágborinn. Þannig er bíla-
kosturinn gamall og nánast
óhreyfanlegur vegna þess hversu
bensínfrek tækin eru. Sagði Leifur
reyndar að það væri furðulegt að
björgunarsveitir þurftu að greiða
Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri er með lang skemmstan
meðallegutíma sjúkrahúsa á
landinu. Þannig er sjúkrahúsiö á
Akureyri með aðeins 9,8 daga
meðallegutíma, en ef tekin eru
dæmi úr Reykjavík, þá eru dag-
arnir 14 á St.Jósefsspítala, 14,5
á Borgarspítalanum og rösklega
17 á Landsspítalanum. Geð-
deildir eru ekki með í þessum
tölum og ekki langlegudeild á
Akureyri.
Þessar upplýsingar koma fram í
nýtútkomnum Fjármálatíðindum,
skv. athugun sem gerð var á
nokkrum þáttum heilbrigðis-
þjónustu. Þar kemur einnig fram,
að landsbyggðasjúkrahúsin eru al-
mennt með mun færra starfsfólk,
en sjúkrahúsin í Reykjavík, og
áberandi er hve læknar eru fáir.
Það er aðeins sjúkrahúsið á Akur-
eyri sem nálgast reykvísku sjúkra-
húsin, en er þó með mun færri
lækna en þau. Af Reykjavíkur-
sjúkrahúsunum er St. Jósefsspítali
með fæsta lækna, eða einn á hver
fimm rúm, sem er þó 30% meira en
á Akureyri. Sömu sögu er að segja
varðandi hjúkrunarfræðinga,
meina- og röntgentækna og
sjúkraliða og sjúkraþjálfara. Þessir
starfshópar eru hlutfallslega mun
færri á sjúkrahúsum landsbyggð-
arinnar.
Eins og áður sagði er meðal-
legutíminn á Akureyri 9,8 dagar, en
hjá öðrum landsbyggðasjúkrahús-
um töluvert meiri, enda eru lang-
legusjúklingar þá taldir með. Um
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
segir í fjármálatíðindum: ..Þar
virðist læknafjöldi og afköst fylgj-
ast að, og fæð annars hjúkrunarfólks
virðist ekki hafa afgerandi áhrif á
meðallegutímann." Starfsfólk
virðist vel mega una þessum um-
mælum, ekki síst þegar það er haft í
huga. að það er almennt samdóma
álit þeirra sem þangað hafa þurft
að leita, að umhyggju og alúðlegri
framkomu við sjúklingana sé við
brugðið.
Rjómaterta fyrir 1000 manns!
— hvorki meira né minna. Það
eru skátar sem ætla að bjóða
upp á þessa risavöxnu tertu á
landsmóti skáta, sem fram fer í
Kjarna 26. júlí til 2. ágúst. Ætl-
unin er að þeir skátar, sem verða
á mótinu og eiga afmæli ein-
hvern mótsdaginn, bjóði öllum
hinum til afmælisveislu og þar
verður þessi risaterta á boðstól-
um. Eflaust er tertan sú stærsta,
sem bökuð hefur verið á Norð-
urlandi og þótt víðar væri leitað.
Undirbúningur fyrir landsmótið
hefur staðið lengi, en nú eru skát-
arnir sem undirbúninginn annast.
búnir að koma sér upp skrifstofu á
Akureyri. Hún er í Geislagötu 1
(austan við skrifstofur Akureyrar-
bæjar) og að sögn Gunnars Jóns-
sonar verður skrifstofan opin alla
daga frá kl. 13 og fram eftir degi.
Síminn er 25300.
Garðar Lárusson, sem ásamt
Mannlffið á Hafnarstræti er alltaf jafn forvitnilegt. Svo er að sjá sem nær allir séu að
flýta sér og ekki er unglingurinn á myndinni nein undantckning frá |>ví. Myndin er
tekin með sterkri aðdráttarlinsu með þeim árangri að Brekkugatan liefur færst nær
Hafnarstrætinu. Mynd: áþ.
HÁTT í 300
LEITARMENN
„Þeir voru svo margir leiíar-
mennirnir hér af norðurlandinu
að ég hef ekki nákvæma tölu á
þeim, en þeir voru örugglega
hátt á þriðja hundraðið“ sagði
Leifur Tómasson hjá Flug-
björgunarsveit Akureyrar í sam-
tali við Dag, en Leifur stjórnaði
þessum hópi norðlendinga sem
tók þátt í leitinni af flugvélinni
TF-ROM sem leitað hefur verið
bensín á fullu verði í leitir eins og
þessar. Ríkið hriti meginþorra
bensínverðsins þótt segja mætti að
leitin væri á þess vegum og í þess
þágu.
Formlegri leit að TF-ROM hefur
nú verið hætt, en Leifur sagði að
ákveðin svæði yrðu könnuð betur,
t.d. svæði þar sem snjóskriður
hefðu fallið.
Gunnari og Eddu Hermannsdótt-
ur. hefur annast' undirbúning
mótsins (ásamt ótal mörgum öðr-
um. sem ekki er hægt að telja upp
hér) sagði að nú hefðu borist rúm-
lega 1000 staðfestar þátttöku-
tilkynningar og eflaust eiga fleiri
eftir að koma. Gert er ráð fyrir sex
tugum útlendra skáta. Viðmælend-
ur blaðsins í höfuðstöðvum lands-
mótsnefndar voru bjartsýnir á að
mótið tækist vel — nú þegar eru
komnir jafn margir og búist var við
og skipulagning vel á veg komin —
t.d. er búið að ákveða matseðilinn
og er þar ýmislegt lostæti að finna.
Fyrir framan liiifiiðstöðvar: (f.v.) Edda, Carðar or Gunnar. Myndtáþ.
AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167 - RITSTJÓRN: 24166 OG 21180