Dagur - 04.06.1981, Side 4
Utgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Hafnarstraeti 90, Akureyri
Ritstjórnarsimar: 24166 og 21180
Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaöamenn: Áskell Þórisson,
Gylfi Kristjánsson
Augl. og afgr.: JÖHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Hvers vegna
samvinnu-
hreyfing?
Á aðalfundi KEA sem haldinn var
fyrir skömmu flutti Eysteinn Jóns-
son, fyrrverandi ráðherra og fyrr-
um stjórnarformaður Sambands-
ins, erindi sem hann nefndi: Hvers
vegna samvinnuhreyfing? Ey-
steinn rakti upphaf samvinnustarfs
hér á landi og sagði, að með til-
komu kaupfélaganna fyrir nær
hundrað árum síðan hafi orðið
bylting í landinu í öllu því er laut að
jafnrétti og eðlilegri framkvæmd
almennra mannréttinda. Tilkoma
samvinnuhreyfingarinnar hafi í
raun og veru verið upphaf félags-
hyggju á íslandi, sem nú hefði sett
sitt mark á þjóðarbúskapinn langt
út fyrir sjálfa samvinnuhreyfing-
una.
Um kaupfélögin í nútíma þjóð-
félagi sagði Eysteinn m.a.:
„Kaupfélögin starfa í öllum
byggðarlögum. Þau eru félög
fólksins, opin öllum og þola súrt
og sætt með íbúunum. Með starfi
þeirra og tilstyrk styður hver
einstaklingur annan og með
mörgu móti er þeim beitt til þess
að stuðla að framförum í
byggðarlögum og farsæld íbú-
anna. Þau miða störf sín við það
sem þarf að gera og því ekki alltaf
við það sem borgar sig — og eru
því ómissandi í hverju byggðar-
lagi. Kaupfélögin eru því meira en
viðskiptafélög, — þau eru líka
hjálparhellur við að koma í fram-
kvæmd ýmsum nauðsynjamáium,
hvert á sínu héraði. Kaupfélögin
hafa víða orðið kjölfesta í við-
skipta- og atvinnulífi, sem aldrei
hefur brugðist, þótt ýmislegt ann-
að hafi bilað og án þeirra hefði
ekki orðið sú farsæla þróun, sem
við blasir víðs vegar um landið.“
„Samvinnuhreyfingin byggist á
samhjálp og samstarfi. Hugsjónin
er sú, að menn styðji hver annan
og efli annarra hag um leið og sinn
eigin.... Með því að efla sam-
vinnuhreyfinguna og notfæra
okkur úrræði hennar á sem flest-
um sviðum gerum við margt í
senn, sem til farsældar horflr;
Vinnum að bættum lífskjörum at-
mennings, eflum mannúð, sam-
hug og umburðarlyndi, treystum
efnahag þjóðarinnar og vinnum
gegn því, að útlendingar nái á ný
tökum á atvinnu- og efnahagslífi
landsmanna.
Ég tel engar ýkjur að segja, að
samvinnuhreyfingin er ein styrk-
asta stoð íslensku þjóðarinnar og
hætt er við að húsið hallaðist, ef
eina undirstöðuna vantaði, eða
bara ef hún veiktist um of,“ sagði
Eysteinn Jónsson í lok erindisins
á aðalfundi Kaupfélags Eyfirð-
inga.
Valsmenn heppnir
íslandsmeistarar Vals í
knattspyrnu máttu þakka
fyrir að ná öðru stiginu úr
viðureign sinni við nýliða KA
í gærkvödli. Þrátt fyrir að
leikið væri á Laugardalsvelli,
heimavelli meistaranna, áttu
þeir í vök að verjast nær ailan
leikinn, en ávailt var eins og
herslumuninn vantaði hjá
KA að koma boitanum í
markið.
Golfmót
Um næslu helgi verður stórmót
í golfi á Jaðarsvellinum við Ak-
ureyri. Það er Coka-cola
keppnin svokallaða, sem er 36
holu keppni með og án forgjaf-
ar. Vegleg verðlaun eru í boði
gefin af Coka-cola fyrirtækinu.
Keppnin hefst á laugardag kl.
13.00.
Um fátt er nú meira rætt á
meðal knattspyrnuáhuga-
manna þessa dagana en stór-
góða frammistöðu akureyrar-
liðanna í upphafi íslandsmóts-
ins, en nú leika þau sem
kunnugt er bæði saman í 1.
deild í fyrsta skipti. Var þeim
satt að segja ekki spáð mikilli
velgengni í sumar, en þau hafa
rækilega bitið frá sér í fyrstu
leikjunum og sýnt að þau eru til
alls líkleg.
KA hóf mótið með naumum
ósigri gegn Akranesi á Sana-
vellinum og voru KAmenn ó-'
heppnir að ná a.m.k. ekki öðru
stiginu úr þeirri viðureign. En í
næsta leik kom sigur á útivelli
gegn KR, þá stórsigur á Sana-
vellinum gegn FH og loks jafn-
teflið gegn íslandsmeisturunum
í Laugardalnum í gærkvöldi.
Þór - Víkingur
Á föstudagskvöldið kl. 20.00
verður stórleikur í fyrstu
deild í knattspyrnu. Þá leika
á Þórsvelli Þór og Víkingur.
Víkingar hafa átt ágæta leiki
í mótinu til þessa, og Þórsar-
ar hafa komið mjög á óvart.
Sennilega mæta Víkingar til
leiks með því hugarfari að
þeir þurfi fyrir sigri að hafa
og þess vegna getur orðið um
skemmtilegan leik að ræða.
Eins og áður segir hefst leik-
urinn kl. 20.00 og verður á
Þórsvelli.
Þórsarar fengu skell í Eyjum í
fyrsta leik sínum, en síðan
mættu þeir Breiðablik á Þórs-
vellinum og voru óheppnir að
ná ekki nema öðru stiginu. Því
næst lá leið þeirra í Laugardal-
inn þar sem þeir mættu bikar-
meisturum Fram, og þar uðru
óvæntustu úrslit mótsins til
þessa staðreynd að Þór sigraði
1:0.
Vorhlaup HSÞ
Vorhlaup H.S.Þ. verður haldið í
Mývatnssveit 8. júní. Hlaupið
hefst við Hótel Reynihlíð kl.
14.30 og hlaupið verður í
Skútustaði. Hver sveit skal
skipuð 10 mönnum og verður
hlaupinu skipt þannig að
hlaupnir verða 2 sprettir 1000
m, 3 sprettir 1500 m, 4 sprettir
2000 m, og 1 sprettur 2500 m.
Þetta eru alls 17 km, en hlaup-
inu lýkur við Skjólbrekku.
Áhorfendum er bent á að
safnast saman við Skjólbrekku,
en þangað verður tilkynnt um
talstöð hvernig hlaupinu miðar.
Þar verða til sölu veitingar á
meðan á hlaupinu stendur og
þar fer fram afhending verð-
launa fyrir unnin afrek að
hlaupinu loknu.
Lifl Völsungs, aftari röð talið frá vinstri: Jón Gunnlaugsson þjálfari, Olgeir Sigurðsson, Hörður Benónýsson, Magnus
Heiðarsson, Aðalsteinn Óskarsson, Páll Rikharðsson, Sigmundur Hreiðarsson, Birgir Skúlason, Gunnar Bóasson,
Pétur Pétursson. Fremri röð: Helgi Benediktsson, Sveinn Freysson, Sigurgeir Stefánsson, Friðrik Jónasson, Sigurður
Illugason, Halldór Gíslason, Arnar Laufdal. Á myndina vantar Óðinn Haraldsson, Rúnar Arason og Björn Ingintarsson.
Hannes Baldvinsson:
„Slæmar horfur“
„Afkoma þessara fyrirtækja er
upp og ofan eins og gerist og
gengur, en því verður ekki
mótmælt því miður að horf-
urnar eru ekki góðar með
framtíðarverkefni“ sagði
Hannes Baldvinsson sem rek-
ur prjónastofuna Salínu á
Siglufirði, en Hannes er einnig
formaður samtaka prjóna- og
saumastofa á Norðurlandi.
„Það er bæði minna um pant-
anir en verið hefur, og eins kemur
það til, að framleiðslugetan í
þessari atvinnugrein er þannig að
söluaukning hefur ekki fylgt
henni eftir. Af þeim sökum blasa
við erfiðir tímar hjá þeim fyrir-
tækjum sem eru í þessu.“
— Er þá ástandið þannig að
það munu mörg fyrirtæki leggja
niður starfsemi sína?
„Því þori ég ekki að spá, en það
er greinilegt að það eru ekki
verkefni fyrir þau öll og ómögu-
legt er að segja hvað þetta ástand
varir lengi.“
— Hvað eru mörg fyrirtæki 1
þessari atvinnugrein innan ykkar
samtaka á Norðurlandi?
„Þau eru að ég held átta talsins
af öllum stærðum“
— Hvernig er ástandið hjá
þínu fyrirtæki?
„Þetta hefur gengið ágætlega
en það eru ekki mörg verkefni
sem blasa við eins og stendur og
ég er því alls ekki of brattur eða
bjartsýnn. Staðreyndin er sú að
fyrirtækin eru of mörg^ Út-
flytjendur segja að vísu að salan
og pantanir hafi ekki dregist
saman, en mér sýnist á út-
flutningsskýrslum að um mun
minna magn sé að ræða í útflutn-
ingi en verið hefur til þessa.“
AF VÖLSUNGUM
Zophonías Zophoníasson:
Næg verkefni
ekki tryggð
Þrír furðufiskar
Guðmundur L. Jónsson,
Smárahlíð 5b á Akureyri,
sjómaður á togaranum SVAL-
BAK, hefur um nokkurra ára
skeið verið óþreytandi að færa
Náttúrugripasafninu sjaldgæfa
fiska og önnur fágæt sjókvik-
indi.
Ekki alls fyrir löngu færði hann
safninu sœdjöful, en það er sem
Gefa út
snældu
kunnugt er afar furðulegur djúp-
fiskur, svartur og ljótur, eins og
nafnið bendir til. Augun eru svo
lítil að þau sjást varla, enda lifir
fiskurinn 1 eilífðarmyrkri haf-
djúpsins, þar sem augu hafa litla
þýðingu. Á hryggnum hefur hann
sérkennilega „veiðistöng“, með
dálitlu „ljóskeri“ á endanum. Er
talið að með því lokki hann aðra
fiska til sín, enda heldur hann ljós-
inu gjarnan beint fyrir framan gin-
ið á sér, og getur dregið það nær
eða fjær eftir þörfum. Hængar
(karldýr) Sædjöfsa eru litlir trítlar,
sem líkjast mest seiðum annarra
fiska, og sjúga sig gjarnan fasta á
kvendýrið og fá næringu frá því, en
nærast ekki sjálfir. Þar með er
tryggt að kynin „nái saman“ því
annars er það mikil tilviljun í víð-
áttum hafdjúpanna.
Nýlega bættust svo við tveir aðrir
furðufiskar úr hafdjúpinu syðra,
þ.e. trjónufiskur og álsnípa.
Trjónufiskurinn telst til brjóstfiska,
er skyldur geirnyt. Hann hefur
langa trjónu fram úr hausnum, of-
anvert við munninn, og er hún full
af fitumauki.
Álsnípan er afar löng og mjó-
vaxin (minnir á ál) með löngum
hala, sem endar 1 eins konar þræði,
og nef sem minnir á fuglsnef
(snípu). Fiskar þessir hafa nú verið
settir upp 1 sýningarsal safnsins, en
hann er opinn á sunnudögum, kl.
1-3 s.d.
Fíladelfíusöfnuðurinn á Akur-
eyri hefur nú í fyrsta sinn gefið
út kassettu (snældu), sem ber
nafnið „Lofum Drottin saman“.
Söngurinn er allur trúarlegs
eðlis og er sunginn af ungu fólki
úr Hvitasunnusöfnuðinuiu
(Fíladelffu) í Reykjavík.
Fjölbreyttur söngur er á hennt
svo sem einsöngur, tvísöngur, þrí-
söngur og kórsöngur.
Ágústa Ingimarsdóttir, sem er
þekkt af Samhjálparplötunum,
syngur einsöng í nokkrum lögum.
Einnig syngur bróðir hennar
Samúel Ingimarsson. Tvísöng
syngja þau hjónin Anne Marie og
Garðar Sigurgeirsson, sem eru
þekkt frá útvarpsguðsþjónustum
Fíladelfíusafnaðarins í Reykjavík.
Þrísöng syngja þau systkinin
Ágústa, Samúel og Jóhannes Ingi-
marsbörn. Stjórnandi er Hafliði
Kristinsson.
Allur ágóði af sölunni rennur til
styrktar húsbyggingu Fíladelfiu-
safnaðarins á Akureyri, sem í verð-
ur félagsheimili (kirkja) og
leikskóli fyrir börn.
Ert þú búinn að yfirfara veiðarfærin?
Þar sem einn af starfsmönnum
blaðsins fóí þess á leit við undir^
ritaðan að skrifa ehthvað um
stangavcL$í otuau birtaSt í aæstú
blöðoaf . prstfáF ' um lax og
1 silungsveiði'á' stöng.
Það er athyglisvert að lítið sem
ekkert hefur verið skrifað um
stangaveiði í bæjarblöðin þrátt
fyrir öfluga starfsemi stanga-
veiðifélaga hér 1 bænum. Félagar
í þremur stærstu veiðifélögunum
gætu verið á fjórða hundrað,
bæði konur og karlar.
Samkvæmt venju fara einkenni
„dellunnar“ að bæra alvarlega á
sér, þegar hækkandi sól og batn-
andi tíð ná sterkari tökum á til-
verunni. Menn verða misjafnlega
hart úti í faraldri þessum. Sumir
fá aðeins létta verki eina helgi eða
húmbláa kvöldstund á miðju
sumri og sleppa með það. Við
hinir föllum alveg og erum mest
allt árið undirlagðir. Tökum hann
Simma vin minn sem dæmi. í
vetuc stundar I(ann nám í Skot-
bilað hjól þegar á „dýran'f bakk-
: anii ér komið. Ekki- ér verra að
' æfa sig, :td. að-trimma svplítið 1
vet.ðimenninguha þár i'lánai. Eitt
fimmfudagskvöWið um daginn
hringir síminn og Simmt er á Hn-
unni. Hann mátti til með að segja
mér frá heimsókn sinni í The
House of Hardy. Þegar frásögn
hans hafði staðið í þrjá stundar
fjórðunga fór ég að ókyrrast og
spurði hvort ekki sé óguðlega dýrt
að tala um laxveiðarfæri á milli
landa. „Engar áhyggjur“ svaraði
vinurinn „ég er í biluðum sjálf-
sala.“
Nóg um það. Nú styttist 1 aðal
veiðitímann og sértu ekki búinn
að yfirfara hjól og stengur, línur
og tauma er best að byrja strax.
Sýnum fiskinum þá virðingu að
hafa allar „græjur“ í fullkomnu
lagi, því ekkert er ergilegra en
línuleysi, laus stangarlykkja eða
fluguveiðiir e( að ná töjcum á
viðkomandi. Þó hekki éoTihað af
eigin reynslu að heppilegra er að Að lokum, það er enginn of
velja sér afvikinn stað til þeirra ungur til að fljóta með í veiðitúr
hluta, því athugasemdir. og . og atdrei of seint að 4netjast
úbendingar gam.ansgmra granna., „dellunni". ,
eru off el^ki’ nðglí úhhhýóBffiíiíiin" ■ Meifa' Iimfeiírin JAfnna.
fyrir sálarlífið.
Það er aldrei of seint að byrja. Á sjötugsaldri hóf þessi maður laxveiðar.
Kynslóðabil — hvað er það?
Völsungar fóru í vikudvöl tii
Skotlands, dagana 10.-17.
apríl s.l. Tókst sú ferð I alla
staði mjög vel og var til mik-
ils gagns og ánægju fyrir alla
er téku þátt í henni. Leiknir
voru tveir æfingaleikir vlð
áhugamenn þar úti. Fndoðu
þelr 1-t og 2-2 og: er það
góður árangur og gefur góð-
ar vonir um gott gengi I
knattspyrnunni hér heima í
sumar.
Næstu æfingaleikir voru við
FH, og fóru þeir fram á Húsa-
vík. Fyrri leiknum lauk með
sigri Völsunga, 4-3, en þann
seinni vann FH 1-0. Voru þetta
nokkuð góðir leikir af vor-
leikjum að vera.
Einn leik léku Völsungar við
KA og endaði hann 1-1. Líka
var leikið við Magna frá Greni-
vík og sigruðu Völsungar 3-0.
Af framantöldu sést að ár-
angur Völsunga í vorleikjunum
er mjög góður og er vonandi að
eins verði með framhaldið.
í lokin má geta þess, að það er
samdóma álit allra sem til
þekkja, að Völsungur hafi verið
mjög heppinn að fá. Jóri
Gunnlaúgssön sem þjáifara í
sumaf. og það et vfsti að Jón *
Eins og áður hefur komið
fram i blaðinu, starfrækir Þór
knattspyrnuskóla í sumar.
Skólinn var starfræktur í
fyrrasumar, og gaf góða
raun. Þrír íþróttakennarar
munu starfa við skólann, þeir
Þröstur Guðjónsson, Valþór
Þorgeirsson og hollending-
urinn Case, sem starfað hef-
ur hér á landi siðastiiðin þrjú
ár.
Tekið skal fram, að nám-
skeiðið er ekki eingöngu fyrir
Þórsara, heldur alla krakka sem
„Það er orðið allt of mikið af
þessum fyrirtækjum, menn
hafa hlaupið upp og' stofnað
þau án þess nokkur grundvöll-
ur hafi verið fyrir þeim. Þar á
ég við að það væri tryggt að
næg verkefni væru fyrir hendi.
Það held ég að sé megin
vandamálið“ sagði Zophonias
Zophoníasson forstjóri Pólar-
prjóns á Blönduósi, er Dagur
ræddi við hann um þá erfið-
leika sem nú steðja að mörgum
prjóna- og saumastofum sem
vinna vörur til útflutnings úr
u 11.
„Erfiðleikarnir eru aðallega
hjá minni fyrirtækjunum því þau
verða undir þegar ekki er lengur
næg vinna fyrir alla. Hjá okkur í
Pólarprjóni þar sem starfa yfir
100 manns, hefur afkoman verið
góð á þessu ári, betri en s.l. ár og
við erum með næg verkefni fram
að sumarleyfum sem verða í júlí-
byrjun. Það hjálpar mikið að
gengið hefur verið stöðugt og hjá
stærri fyrirtækjunum hefur verið
komið á fót hagræðingu sem gerir
reksturinn færari um að bera sig,
en litlu fyrirtækin hafa ekki haft
möguleika á að gera slíkt.“
Zophonías sagðist vera sam-
mála þeim röddum sem segja að á
næstunni muni mörg fyrirtæki
Áhugamenn um harmonikkuleik:
Stofna landssamtök
eftir að gera góða hluti í sumar.
Honum fylgja óskir um allt hið
besta bæði 1 leik og starfi.
Einnig á knattspyrnuráð Völs-
ungs þakkir skildar fyrir ágætt
starf.
Þrátt fyrir að eftirspurn cftir tiskuvarningi sé mikil, nægir hún ekki til að halda
lífinu í prjóna- og saumastofum landsins.
Fyrir nokkru komu saman á
Akureyri fimm fulltrúar félaga
harmonikuunnenda, auk Akur-
eyrarfulltrúans. Á fundi þessum
var ákveðið að stofna samband
íslenskra áhugamanna um
harmonikuleik (S.Í.H.U.) og
kosin var þriggja manna aðal-
stjórn sem í eiga sæti Karl
Jónatnasson, Akureyri, sem
kosinn var forseti, Ingvar
Hólmgeirsson ritari, Húsavík,
og gjaldkeri Ágúst Pétursson,
Kópavogi. Meðstjórnendur voru
kosnir þeir Aðalsteinn Símon-
arson, Laufskálum Mýras.,
Jónas P. Bjarnason, Nes-
kaupstað og Þórir Jóhannsson,
Blönduósi.
Stefnt er að iandsmóti að ári
liðnu í Reykjavík.
Starfssemi félagsins hér á Akur-
eyri hefur verið góð, segir í orð-
sendingu frá því, og má þar nefna
árshátíð í janúar, sem fékk viður-
nefnið árshátíð aldarinnar og svo
hlöðuball í maí, bæði við húsfylli.
Félagið hefur gengist fyrir fjöl-
skyldukaffi, sem kryddað var með
harmonikutónlist, hvern fyrsta
sunnudagseftirmiðdag í mánuði.
Þessir kaffitímar, sem voru frá okt-
óber til maí s.l., nutu vinsælda, en
það sannar ört vaxandi aðsókn fél-
aga og gesta. Margir urðu t.d. frá að
hverfa sunnudaginn 3. maí því þá
fylltist salurinn að Hótel K.E.A af
áheyrendum.
áhuga hafa, stúlkur á aldrinum
10 ára og yngri og stráka á
aldrinum 9 ára og yngri. Nám-
skeiðið stendur i þrjár vikur,
alla virka daga milli kl. 10-12
f.h. og kl. 1.30-3.30 e.h. Á nám-
skeiðinu verða ýmsar knatt-
spyrnuþrautir lagðar fyrir, al-
hliða knattspyrnukennsla og
kvikmyndasýningar. Að nám-
skeiðinu loknu verður farin
dagsferð og leikin knattspyrna
við utanbæjarfélag.
Innritun er hafin, í síma
21539, alla virka daga milli kl, 5
og 7, þátttökugjald er 55 krónur.
hætta störfum í þessari atvinnu- mörg í dag og ekki grundvöllur
grein, enda væru fyrirtækin allt of fyrir rekstri þeirra allra.
Átján manna harmonikuhljómsveit Tónlistarskóla Akureyrar undir stjórn kennar-
ans, en harmonikudeild skólans er ört vaxandi undir stjórn Karls Jónatanssonar. Að
sögn Karls eru menn að vonum ángæðir með |>ann mikla áhuga sem er á liar-
monikuleik og það eina sem skyggði á, ef til þess kæmi, að þyrfti að vísa unt-
sækjcnditm frá næsta haust.
Hinir nýkjörnu fulltrúar
Karl.
(f.v.) Jónas, Ingvar, Ágúst. Aðalsteinn, Þórir og
4.DAGUR
DAGUR.5