Dagur - 11.06.1981, Side 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
> SIGTRYGGUR & PÉTU
' AKUREYRI
tfodaVi
64. árgangur
Akureyri, fimmtudagur 11. júní 1981
45. tölublað
TRILLU-
Verktakar standa ekki við gerða samninga við íbúðakaupendur:
ÞURFA EKKIAÐ LEGGJA
FRAM NEINA TRYGGINGU
Verðugt verkefni fyrir Neytendasamtökin - segir byggingafulltrúi
SUMARIÐ
MIKLA
tryggingafé áður en þeir fara að
byggja." Og Jón tók dæmi af manni
sem hæfi byggingu á húsum og
seldi. Hann gæti fengið lóðir ár
eftir ár, án nokkurra trygginga, og
smám saman kæmi upp sú staða að
fé frá nýjum kaupendum væri not-
að til að ljúka við gömul verk — en
fer samstundis, eða því sem næst, á
hausinn þegar illa árar. Og þá er
ekki að neinu tryggingafé að ganga
og eins líklegt að blásaklausir
kaupendur verði að þola verulegt
fjárhagslegt tjón. Jón sagðist hafa
hreyft því á fundi hvort ekki væri
hægt að láta akureyrska verktaka
leggja fram tryggingu, en slíkt hef-
ur ekki náð fram að ganga, enda
vantar lagabókstaf. „Mér finnst
furðu gegna að samtök eins og
neytendasamtökin skuli ekki beita
sér í máli eins og þessu. Það er
verðugt verkefni fyrir neytenda-
samtökin að beita sér fyrir að sett
verði lög um þessi mál,“ sagði Jón
Geir að lokum.
EITT BLAÐ
I NÆSTU
VIKU
Dagur kemur út einu sinni í þessari
viku. Blaðið kom ekki út s.l.
þriðjudag sökum þess að frídagur
var daginn áður, og í næstu viku
kernur aðeins eitt blað út.
Það blað kemur út á þriðjudag,
en fimmtudagsblaðið fellur niður
sökum frídagsins á miðvikudag 17.
júní. Þeir sem þurfa að koma aug-
lýsingum í þriðjudagsblaðið eru
beðnir að hafa samband við aug-
lýsingadeild Dags fyrir kl. 19 á
mánudag.
Kappakstur í Hafnarstræti? - Nei, þær voru bara á róli i biíðunni í gær mcð börnin sín. Ljósm. á.þ.
REVlA Á AKUREYRII SUMAR
Siglufirði 10. júní.
Togararnir öfluðu vel í síðasta
mánuði. Þe;-r komu að jafnaði
inn vikulega. Atvinna hjá fisk-
verkunarfólki hefur verið jöfn
og enginn þurft að kvarta af
þeim sökum. Skólafók hefur
fengið vinnu við skreiðarverkun
og í saltfiski. Nú er unnið við
endurbætur á SR. Það er árviss
atburður og gaman verður að sjá
verksmiðjuna að lokum.
Trillukarlarnir eru að byrja,
enveðráttanhefurveriðóhagstæðað
undanförnu. Áttin er stöðugt aust-
læg og karlarnir hafa komið hel-
bláir af kulda að landi. Aflinn er
misjafn. Nú virðast menn hafa
komist að þeirri niðurstöðu að
trilluútgerð sé arðbær því búið er
að kaupa fimm nýjar trillur til
bæjarins og fleiri væntanlegar.
Þetta verður því „trillusumarið“
mikla og ekki það fyrsta því menn
hafa áður fengið þessa flugu í höf-
uðið en læknast fljótt.
Annars eru trillukarlarnir að
jafna sig eftir góða grásleppuvertíð.
Þeir hafa þegar selt meiri partinn af
hrognunum, öfugt við starfsbræður
sína annarsstaðar á landinu. Kjart-
an Friðbjarnarson hefur keypt
hrognin og selt þau jafn harðan til
Danmerkur. Dekkbátar eru margir
hverjir í landi, en eigendur þeirra
eru að pakka saltfisk og skreið. S.B.
„Samskipti verktaka og kaupenda
íbúða hafa komið til kasta bygg-
inganefndar, en í mörgum tilfellum
hafa verktakarnir ekki staðið við
ákvæði í samningum — skilað
íbúðunum og seint og/eða eiga eftir
ákveðin verk við húsin. Til mín hafa
komið fulltrúar úr þessum húsum
og kvartað, og ég hef oftast beðið
þá um að skrifa til bygginganefnd-
arinnar og kvarta formlega ef þeim
þykir verktakar hafa brotið á sér.
Nefndin hefur ekkert dómsvald, en
hún getur skoðað kvartanir og tekið
tillit til þeirra við úthlutun lóða til
fyrirtækjanna,“ sagði Jón Geir
Ágústsson, byggingafulltrúi Akur-
eyrarbæjar, en eins og getið var um í
síðasta blaði er töluvert um að
verktakar gangi ekki frá íbúðarhús-
um — s.s. raðhúsum og fjölbýlis-
húsum, sem þeir hafa selt einstakl-
ingum. Jón tók það fram að fáir
hefðu í rauninni haldið málinu
áfram eftir þessari leið, en ástæðan
kann að vera sú sem Jón gat um —
nefndin hefur í rauninni ekkert vald
til að krefja verktaka um umsamdar
framkvæmdir.
Um langa hríð hefur sá siður
viðgengist að verktökum er greitt
fyrir íbúðina meðan verið er að
byggja hana. Gjarnan tekur fólk
við henni fokheldri og lýkur
greiðslum til vérktakans um svipað
leyti þrátt fyrir að verktakinn eigi
ýmislegt eftir. Þess eru dæmi að
verktaki hafi lagt upp laupana og
að fólk hafi tapað verulegum
fjárhæðum.
En hvað er til ráða og hver ætti
að hafa forgöngu um að koma
þessum málum í betri farveg? Jón
sagðist hafa látið þá skoðun í ljós á
fundum bygginganefndar að hér
þyrfti löggjafinn að grípa í taum-
ana. „I þessum lögum þyrfti að
gera þeim skylt að leggja fram
Nú er afráðið að sett verði upp
revía í Sjálfstæðishúsinu á
Akureyri í sumar. Stefnt er að
því að hefja sýningar um eða
upp úr næstu mánaðamótum.
Sjálfstæðishúsið stendur að
þessari revíusýningu en upphafs-
menn og höfundar efnis eru Her-
mann Arason og Þorvaldur Þor-
steinsson, báðir kennarar á
Akureyri. Þeir félagar vildu lítið
tjá sig um efni revíunnar að svo
stöddu, en sögðu að hún fjallaði
m.a. um ferðamála-,,bransann“ á
gamansaman hátt, þannig að
ferðamenn á Akureyri ættu að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Efnið væri ekki staðbundið og
ætti því við hvort sem væri á Ak-
ureyri, í Papey eða á Broadway.
Flytjendur verða allir frá Ak-
ureyri og hafa fæstir komið fram
opinberlega áður. Æfingar eru
hafnar. Tilgangurinn með revíu-
sýningunum er fyrst og fremst sá,
að lífga upp á bæjarlífið, að sögn
höfundanna.
Frá Húsavfk.
OLDRUNARMAL
í BRENNIDEPLI
Það er víðar en á Akureyri sem
öldrunarmálin eru í brennidepli
og nú hefur verið ákveðið að
breyta húsnæði gamla sjúkra-
hússins á Húsavík og koma þar
upp hjúkrunar- eða langlegu-
deild, að sögn Egils Olgeirsson-
ar, bæjarfulltrúa.
f byrjun maí var tekinn í notkun
fyrsti hluti dvalarheimilis fyrir
aldraða, sem ber nafnið Hvammur,
og verður það formlega vígt 20. júní
n.k. Jafnframt þessu var lögð niður
ellideildin á gamla sjúkrahúsinu,
en sú stefna hefur nú verið mörkuð
af sjúkrahússstjórn, að koma þar
upp hjúkrunar eða langlegudeild.
Þar á að vera pláss fyrir a.m.k. 12
sjúklinga.
Þar sem ekkert fé er ætlað til
þessa verkefnis í fjárlögum verður
leitað á náðir Þingeyinga með fjár-
framlög, en verið er að gera teikn-
ingar að þeim breytingum sem gera
þarf á húsnæðinu. Enn er ekki ljóst
hversu mikill kostnaðurinn verður.
Hótel Norður-
Ijós opið
aftur eftir
breytingar
Hótel Norðurljós á Raufar-
höfn hefur nú opnað eftir
nokkrar breytingar og lag-
færingar innanhúss og utan.
Raufarhafnarhreppur keypti
hótelið á sínum tíma og var
það opnað seinnipart júlí
1980 og starfaði það nokkuð
fram á s.l. vetur.
í hótelinu eru nú 40 gistiher-
bergi, eins, tveggja og þriggja
manna. Alls geta 76 manns gist í
hótelinu. Það býður upp á fjöl-
breyttar veitingar frá kl. 7.30 til
23.30 í rúmgóðum veitingasal
auk þægilegrar setustofu.
Hótelstjóri er Sigrún Jónsdóttir.
mm AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167 - RITSTJÓRN: 24166 OG 21180