Dagur - 11.06.1981, Side 5
Fundur um flug-
sögu og minjar
Norðurlaudsmeistararnir 1981. Aftari röð frá vinstri: Þórarinn B. Jónsson, Magnús
Aðalbjörnsson, Gunnlaugur Guðmundsson. Fremri röð frá vinstri: Páll Jónsson,
Stefán Ragnarsson, Pétur Guðjónsson. Ljósm. Norðurmynd.
Sveit Stefáns Ragnarssonar
Norðurlandsmeistari í bridge
Séra Benjamín
áttræður
Séra Benjamín Kristjánsson.
fyrverandi prófastur, er áttræð-
ur í dag, en hann fæddist 11. júní
1901 að Ytri-Tjörnum
Foreldrar hans voru hjónin
Kristján Helgi Bejamínsson, bóndi
og hreppstjóri á Ytri-Tjörnum, og
Fanney Friðriksdóttir frá Brekku í
Kaupangssveit. Benjamín varð
stúdent frá Reykjavík 1924 og
kandídat frá guðfræðideild H.í.
1928, auk þess sem hann nam guð-
fræði í Kaupmannahöfn og
London.
Séra Benjamín varð prestur
Sambandssafnaðarins í Winnipeg í
Kanda 1928-1932. Honum var veitt
Grundarþing í Eyjafirði 1932 og
var þar sóknarprestur allan sinn
prestskap eða til 1967 og þar af
prófastur frá 1962. Jafnframt
preststörfum var hann mikilvirkur
rithöfundur og skeleggur baráttu-
maður fyrir hugsjónum sínum.
Hann kvæntist Jóníu Björns-
dóttur frá Karlsstöðum í Fljótum,
en hún lést árið 1977.
Benjamín dvelur nú í Lauga-
landi við Eyjafjörð hjá bróður sín-
um, séra Bjartmari Kristjánssyni,
og mágkonu. Hann sýndi Degi
ávallt mikla tryggð og ræktarsemi
og skrifaði fyrir blaðið. Dagur
sendir honum árnaðaróskir
íslcnska Flugsögufélagið heldur
fund áhugamanna um flugsögu og
flugminjar á Hótel Varöborg laug-
ardaginn 13. júní n.k. kl. 14.00.
Fundarefni verður m.a. að sagt
verður frá starfi félagsins, nefndar-
formenn gera grein fyrir verkefnum
nefnda o. fl. Almennt rabb um flug-
sögumál og flugvélaflök yfir kaffi-
bolla og sýnd gömul íslensk kvik-
mynd af fyrsta flugdegi á íslandi, en
hann var haldinn á Sandskeiði 1938.
fslenska Flugsögufélagið var
stofnað í júní 1977 af nokkrum
áhugamönnum um íslenska flug-
sögu. Eru félagar nú rúmlega 200
talsins en flestir af Suðurlandi,
enda þótt vagga flugsins hafi raun-
ar verið í Eyjafirði. Á stefnuskrá
Flugsögufélagsins er m.a. varð-
veisla gamalla flugminja, kvik-
mynda, ljósmynda og heimilda um
íslensk flugmál.
Einnig er í lögum félagsins að
gefa út ársrit, tengt íslenskri flug-
Hinar vinsælu Grímseyjarferðir
Drangs hefjast 23. þ.m. og
standa til 18. ágúst. Miðnætur-
sólarferðir Drangs hefjast hins
vegar föstudaginn 19. júnf og
verða á föstudögum allt fram til
31. júlí. Fjöldi fólks notfærði sér
ferðir Drangs’ norður undir
heimskautsbaug á s.l. ári og er
því ráðlegt fyrir hópa að panta
far hið fyrsta.
Félagsheimilið í Grfmsey stend-
ur farþegum Drangs til boða, en
sögu eingöngu, og eru nú komin út
tvö blöð er nefnast „Flugsagan" 1
og 2, sem eru prýdd fjölda mynda
og eru upp á 80-100 síður.
Flugsögufélagið hefur lagt í ýmis
verkefni frá stofnun, m.a. hafið
uppbyggingu á flugvélinni TF-
ÖGN sem þeir Gunnar Jónasson
og Björn M. Ólsen teiknuðu og
smíðuðu á árunum 1930-1940 og
flaug rétt fyrir stríð. Ennfremur
safnaði félagið fé til kaupa á Waco
flugvél frá Bandaríkjunum, sömu
gerðar og fyrsta flugvél Flugfélags
Akureyrar og síðar Flugfélags Is-
lands, og 1979 stóð félagið að
björgun Northrop flugvélar úr
Þjórsá sem nú hefur verið gerð upp
í Bandaríkjunum og verður sýnd
hér væntanlega í sumar.
Það er von Flugsögufélags-
manna, að sem flestir sjái sér fært
að koma á þennan fyrsta fund fé-
lagsins á Akureyri.
þar er hægt að fá hressingu og
svefnpokapláss. Félagsheimilið
opnar þann 16. júní.
Drangur fer á þriðjudagsmorgn-
um kl. 08 frá Akureyri og kemur til
Grímseyjar um kl. 14. Farið er
sama dag frá Grímsey kl. 18 og
komið til Akureyrar um miðnætti.
Miðnætursólarferðirnar eru hins
vegar með nokkru öðru sniði. Lagt
er af stað frá Akureyri kl. 15 á
föstudegi og dvalið yfir nótt í
Grímsey, en farið til baka kl. 12 á
hádegi á laugardag.
Dagana 5.-7. júní var spilað í
Varmahlíð í Skagafirði Norður-
landsmót í bridge. Sigurvegari nú
varð sveit Stefáns Ragnarssonar frá
Akureyri sem hlaut 150 stig af 180
mögulegum og sigraði með tals-
verðum yfirburðum. í sveitinni eru
allt ungir menn, sem auk Stefáns
eru, PéturGuðjónsson, Þórarinn B.
Jónsson, Páll H. Jónsson, Gunn-
laugur Guðmundsson og Magnús
Aðalbjörnsson. Alls spiluðu 10
sveitir víðsvegar að af Norðurlandi
á móti þessu, sem tókst í alla staði
mjög vel og var Skagfirðingum til
sóma.
Röð sveitanna varð þessi: $tig
1. sveit Stefáns Ragnars-
sonar, Akureyri.....150
2. sveit Eiríks Helgasonar,
Dalvík..............134
3. sveit Boga Sigurbjörns-
sonar, Siglufirði...122
4. sveit Þórðar Ásgeirssonar,
Húsavík.
5. sveit Páls Pálssonar,
Akureyri.
6. sveit Kristjáns Blöndal,
Sauðárkróki.
7. sveit Reynis Pálssonar.
Skagafirði.
8. sveit Baldurs Ingvarssonar.
Hvammstanga.
9. sveit Hallbjörns Kristjánss.,
Blönduósi.
10. sveit Skúla Jónssonar.
Húsavík.
Þess má geta að tvær efstu sveit-
irnar töpuðu aðeins einum leik. en
unnu alls 8. Keppnisstjóri var Al-
bert Sigurðsson frá Akureyri.
f veglegu hófi sem sýslunefnd
Skagafjarðar bauð til að keppni
lokinni voru verðlaun afhent og
ávörp flutt.
í Varmahlíð komu framámenn í
bridgeíþróttinni á Norðurlandi
saman og á fundi þeirra var ákveð-
ið að næsta Norðurlandsmót skyldi
haldið á Akureyri að ári.
Grímseyjarferðir
Drangs að hefjast
Nýkomin sending
af glœsilegum husgögnum
ÍSLEN SKUM - RÚMENSKUM
BELGÍSKUM - SÆNSKUM
Sýningin verður opin
kl. 10.00 til 15.00
á laugardag
og kl. 13.00 iil 15.00
á sunnudag
SÓFASETT
SÓFABORÐ
FATAHENGI
INNSKOTSBORÐ
VEGGSAMSTÆÐUR
HL JÓMTÆK JASKÁPAR
BLOMABORÐ
Lftíð sýnishom af husgögnum þeim sem á sýningunni verða.
Husgagnaverslunin EINIR
HafnaLstrœti 81 Akureyri
DAGUR•5