Dagur - 11.06.1981, Qupperneq 12
MIKIÐ
KAL OG
GRÓÐUR-
LEYSI
„Það hafa verið mikil harðindi
hér og mikið kal. Á mörgum
jörðum er helftin af túnunum
ónýt. Hins vegar skiptist kalið
mjög mikið á milli bæja. Á sum-
um er 10% túna kalin en á öðr-
um er kalið 70 til 80%,“ sagði
Einar Gislason, Syðra-Skörðu-
gili, Skagafirði
„Við sjáum fram á mikil vand-
ræði ef ekki fer að skipta til hins
betri. Ég veit varla um neinn ein-
asta mann hérna, sem er farinn að
bera á tún því það er stöðugur
þurrkur og frost um nætur,“ sagði
Einar og bætti því við að þeim
bændum, sem hefðu orðið illa úti
vegna kals, væri ráðlagt að hefja
ræktun á grænfóðri.
Fé á gjöf
Cili, Svartárdal 9. júní.
Hér um slóðir er kalt og gróðurlítið.
Víða er mikið kalið og það má segja
að fé hafi verið á gjöf fram undir
þennan tíma. Annars má segja um
kalið að það sé ekki komið í ljós hve
miklar skemmdirnar verða — því
ræður veðurfar næstu daga. En
gróðri fer heldur aftur því hér er
frost á hveri nóttu eins og víða
annarsstaðar á Norðurlandi.F.B.
70% heyfengur
Túnsbcrgi 9. júní.
Óhætt mun að segja að illa horfi
með kartöfluræktun og hey-
skaparhorfur á Svalbarðsströnd.
Tún eru víða mjög ljót, kal tals-
vert, og sagði mér glöggur bóndi
í Fnjóskadal að hann álíti að
heyfengur austan Vaðlaheiðar
verði ekki nema 70% í sumar
miðað við meðalár sem er auð-
vitað ekki nógu gott.
Kartöfluniðursetning fór fram á
eðlilegum tíma en meðalhiti í maí
var aðeins 4,8 stig sem er 1,5 stigi
undir meðalhita í þessum mánuði.
Það sem af er júní hefur hiti verið
við frostmark á hverri nóttu þannig
að útlitið varðandi kartöfluupp-
skeruna er langt frá því að vera
gott, þótt menn séu ekki farnir að
örvænta enn sem komið er. S.L.
Spretta nánast
engin
Ylra-Felli, Aðaldal 7. júní.
Tíðarfarið er ölium hér efst í
huga enda er það erfitt og óálit-
legt. Spretta er nánast engin.
Hiti hefur verið rétt fyrir ofan
frostmark dögum saman og s.l.
nótt var t.d. sex stiga frost á
Staðarhóli. Gróðri hefur í raun
og veru farið aftur að undan-
förnu.
Tún litu ekki svo illa út í vor, en
eitthvað af þeim mun hafa
skemmst um sumarmálin. Víða eru
kalskellur. Ég hef ekki haft fregnir
af stórfelldu kali, en að sjálfsögðu
eru líka til staðar gamlar skemmd-
ir. Skepnur eru enn á gjöf hjá mér,
en nágranni minn sleppti þeim fyrir
mánuði síðan og hætti að gefa. En
aðstæður manna eru misjafnar eins
og gengur. I.K.
f vikunni kom nýleg flugvél til
Akureyrar og bættist við í flug-
flota F.N. Vélinni flugu þeir
Sigurður Aðalsteinsson og Jóh-
annes Fossdal frá Bandaríkjun-
um, en vélin var í eigu aðila í
Suður-Ameríku, Vélin er af
Mitsubitchi gerð.
Sigurður Aðalsteinsson sagði að
þessi vél, sem ber 10 farþega auk
flugmanns, væri töluvert hrað-
fleygari en Fokker og nýja vélin fer
milli Reykjavíkur og Ólafsfjarðar á
30% skemmri tíma en Tvin Otter.
Nýja vélin í flugskýli á Akureyrarflugvelli. F.v.: amerískur maður sem annast þjálfun
flugmanna á vélina, Cunnar Karlsson, Jóhannes Fossdal og Sigurður Aðalsteinsson.
IVIynd áþ.
Byssubófar“ í
33
Skagafirðinum!
Maður nokkur sem var á ferð-
inni í Skagafirði aðfaranótt s.l.
mánudags varð fyrir heldur
óskemmtilegri reynslu austan-
vert við Héraðsvötn.
Klukkan mun hafa verið um
eitt um nóttina er maðurinn ók
fram á nokkuð gamla rauða
Skodabifreið með K-númeri sem
lagt hafði verið þar í vegkantinn.
Þegar örstutt var á milli bifreið-
anna kom skyndilega hönd út um
opinn glugga Skodabifreiðarinnar
og var lítil byssa í hendinni. Var
henni miðað þvert yfir veginn
þannig að viðmælandi Dags varð
að aka í „gegn um mið“
byssunnar.
„Að sjálfsögðu varð mér á að
beygja mig niður um leið og ég sá
þetta og var ég samanhnipraður
undir stýri er ég ók fram hjá
Skodabifreiðinni," sagði sá sem
fyrir þessu varð. Hann bætti við,
að enginn skothvellur hafi heyrst
og þegar hann var kominn úr
skotlínunni steig h'ann bensín-
gjöfina í botn til að komast sem
fyrst frá þessum ófögnuði.
Ekki vildi viðmælandi okkar
fullyrða að hér hafi verið um
alvöruskammbyssu að ræða sem
notuð var til þess að hræða hann,
enda gildir það einu. Það þarf
ekki að hafa mörg orð um það við
fullorðið fólk hversu hættulegur
leikur hér var iðkaður, það má
sennilega ekki mikið út af bera til
þess að athæfi sem þetta geti
kostað útafakstur eða eitthvað
þaðan af verra.
Staðarvals-
nefnd í
heimsókn
Staðarvalsnefnd um orku-
frekan iðnað heimsækir
Eyjafjörð og Húsavíkur-
svæðið í næstu viku.
Nefndin kemur til Akureyrar
mánudaginn 15. •júní. Farið
verðut til Dagverðareyrar og
skoðaðar aðstæður út með
Hörgárbrú, farið til Hjalteyrar
og á Gálmaströnd, komið við á
Árskógsströnd, Svalbarðseyri
og í Reykjahreppi og fundur
verður með atvinnumálanefnd
og bæjarráði Akureyrar.
Þriðjudaginn 16. júní verður
svo farið til Húsavíkur og komið
við á Tjörnesi. nefndarmenn
munu ræða við sveitarstjórnar-
menn og með í för verða fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssam-
bands Norðlendinga og iðnþró-
unarfulltrúi sambandsins.
KOMU RfÐANDI
TIL KIRKJU
Séra Þórsteinn Ragnarsson á
Miklabæ bauð skagfirskum
hestamönnum til messu um síð-
ustu helgi. Hestamennirnir
komu til Miklabæjar úr þremur
hrcppum — Lýtingsstaða-,
Seylu- og Akrahreppi. Alls
munu þetta hafa verið um 60
hestamenn. Hrossaræktardeild-
in í Akrahreppi bauð öllum
kirkjugestum í kaffi í Héðins-
minni eftir messu.
Messan hófst klukkan tvö, en
prestur kom ríðandi á móti mönn-
um og fylgdi þeim til kirkju. Þar
voru hrossin geymd í hólfi meðan
gengið var til messu í blíðskapar-
veðri
Knattspyrnu-
kappi í bflveltu
Nýleg bifreið af Subaru gerð
valt á „Drottningarbrautinni“
rétt fyrir hádegi s.l. þriðjudag,
en síðan hafnaði bifreiðin á
fjórum hjólum utan vegar.
Tildrög óhappsins voru þau að
ökumaðurinn, knattspyrnukapp-
inn kunni Jóhann Jakobsson, var
að huga að barni sem var í aftursæti
bifreiðarinnar. Þegar hann leit
fram á veginn sá hann að næstu
bílar fyrir framan höfðu svo gott
sem staðnæmst, og sá Jóhann ekki
önnur ráð til að forða árekstri en að
beygja snöggt til hliðar. Við það
valt bifreiðin og hafnaði síðan sem
fyrr sagði á fjórum hjólum utan
vegar mjög mikið skemmd.
Jóhann kvartaði um eymsli í baki
eftir óhappið, mun hafa hruflast
eitthvað, en þurfti ekki að fara á
sjúkrahús. Barnið sakaði ekkert
þannig að óhætt mun að segja að
betur hafi farið en ástand bifreið-
arinnar gaf til kynna eftir veltuna.
£7
T crp " N 1 o 1
11 $ S Jii
# Verktaka-
skammtur
hinn seinni
Nú má enginn skilja um-
fjöllun Dags um verktaka og
samskipti þeirra við íbúða-
kaupendur sem svo að hinir
fyrrnefndu séu allir óalandi
og óferjandi. Sem betur fer er
málið ekki svo slæmt — en
hitt er staðreynd að of mörg-
um verktökum, sem hafa
byggt íbúðarhúsnæði í því
skyni að selja það, hefur liðist
að draga framkvæmdir úr
hófi. Á þetta sérstaklega við
um bílaplön, grófjöfnun lóða
og fleira. Þessi mál verður að
taka föstum tökum.
Það er hart til þess að vita
að Pétur og Páll geta farið að
byggja raðhús eða fjölbýlis-
hús án þess að leggja fram
nokkra tryggingu. Slíkt getur
orðið til þess að sárasaklaust
fólk, sem hafði það eitt í huga
að koma þaki yfir höfuðið á
sér, verði fyrir miklu fjár-
hagslegu tjóni. ( því sam-
bandi nægir að minna á rað-
húslð við Litluhlíð 2.
§ Oplægöur
akur
Fram til þessa hafa neytenda-
samtökln einkum beitt sér
fyrir athugun á verði vara í
matvöruverslunum. Slíkt er
góðra gjalda vert og hefur án
efa orðið til að vöruverð er
víða lægra en ella. Á forsíðu
Dags leggur byggingafulltrúi
bæjarins til að neytendasam-
tökin gangi í málið og beiti
sér fyrir löggjöf um samskipti
kaupenda og seljenda. Hver
veit nema neytendasamtök-
unum takist að fá löggjafann
til að rumska. Hér er á ferð-
inni stórt „neytendamál" og
þess virði að það sé kannað.
% Frábær
frammistaða
Það hefur vart farið fram hjá
neinum, að Akureyringurinn
Kristján Jóhannsson hefur
undanfarið sungið aðalhlut-
verkið í óperunni La Bohem,
sem sýnd er í Þjóðleikhúsinu.
Það hefur tæpast heldur farið
fram hjá neinum, hversu frá-
bæra dóma Kristján hefur
fengið fyrir frammistöðu sína.
Hver gagnrýnandfnn á fætur
öðrum hefur farið slíkum
orðum um frammistöðu
Kristjáns, að jafnvel örgustu
óperu- og sinfóníuandstæð-
ingar hljóta að fyllast forvitni
um það, hvað það er sem
getur slegið svo í gegn. Þó
Kristján sé orðinn eða að
verða alþjóðaeign sökum
listar sinnar, finnst mörgum
Akureyringum hann vera fuil-
trúi bæjarins. Þætti þeim því
gaman að fá þennan fulltrúa
sinn til að syngja fyrir sig,
þegar hann heimsækir fæð-
ingarbæ sinn.