Dagur - 11.08.1981, Síða 8
MONROE
\
MONRO-MATIC ®
SHOCK ABSORBER
HÖGGDEYFAR
í FLESTA BÍLA
Skóverksmiðjan Iðunn:
ÚTLIT FYRIR
AÐ UMBEÐIW
AÐSTOÐ FÁIST
Nær fullvíst má nú telja að
Skóverksniiðjan Iðunn á Akur-
eyri fái það fjármagn sem fyrir-
tækið þarf til að tryggja áfram-
haldandi rekstrargrundvöll sinn.
Atvinnujöfnunarsjóður og Ak-
ureyrarbær höfðu hvor um sig
heitið fyrirtækinu 300 þúsund
króna fjárhagsaðstoð gegn því að
Framkvæmdastofnun ríkisins legði
fram 400 þúsund krónur.
Sverrir Hermannsson forstjóri
Framkvæmdastofnunar ríkisins
hefur látið hafa eftir sér að upplýs-
ingar frá Iðunni liggi nú fyrir, en
þær voru unnar af finnsku ráð-
gjafafyrirtæki og fjölluðu um
rekstur og framtíðarhorfur fyrir-
tækisins.
Sverrir hefur sagt að samkvæmt
þeirri skýrslu virðist sem rekstrar-
möguleikar fyrirtækisins séu góðir
og bendir því allt til þess að Iðunn
fái umbeðna fjárhagsaðstoð að
upphæð 1 milljón krónur.
Póstkröfusendingar:
„Vörurnar ekki
leystar út‘c
- segir verslunareigandi í Kópavogi
„Ég veit ekki hvort það er mikið
um það að fyrirtæki séu hætt að
senda vörur í póstkröfu út um
landið, en við sáum okkur til-
neydd til þess að hætta þessari
þjónustu fyrir um þremur árum“
sagði Kristján ölafsson eigandi
Línunnar í Kópavogi í samtali
við DAG.
„Það var ýmislegt sem olli því að
við tókum þessa ákvörðun. Það
gerðist sífellt oftar að vörurnar
voru ekki leystar út, þær lágu á
vöruafgreiðslum hér og þar um
landið og að lokum urðum við að
greiða flutningskostnað undir þær
til baka aftur og fengum vöruna oft
skemmda eftirslíka flutninga fram
og aftur um landið.
„Ég vil taka það fram að það
voru sumir staðir á landinu þar sem
þetta kom ekki fyrir, en því miður
voru svo mikil brögð að þessu að
við neyddumst til að hætta að veita
þessa þjónustu. Þá gerðist það
einnig, sérstaklega á minni stöðun-
um, að varan var keyrð beint heim
til kaupandans! Honum var þá í
lófa lagið að greiða póstkröfuna
þegar hentaði. Og í þriðja lagi get
ég nefnt að fyrir kom að það tók allt
upp undir mánuð að fá greiðsluna
eftir að kaupandi hafði greitt kröf-
una. Þannig hjálpaðist ýmislegt að
og við gátum ekki veitt þessa þjón-
ustu lengur.“
Dagur hafði samband við nokk-
ur önnur fyrirtæki á Reykjavíkur-
svæðinu og spurði hvernig þessi
póstkröfuverslun gengi og hvort
mikil brögð væru að því að fólk
leysti ekki út vörur sem það hefði
pantað. Svörin voru á ýmsa lund,
alls staðar var sagt að það kæmi
fyrir að pantanir væru endursendar
sökum þess að þær væru ekki
leystar út, en við því væri ekkert að
gera.
Loftþurrkunarkerfi:
Auðvitað voru Þing
eyingar fyrri til!
„Svona upphitunarkerfi hafa
verið til á tveimur bæjum í
Reykjahverfi í mörg ár. Þetta
eru bæirnir Bláhvammur og
Reykjarhóll. Á báðum þessum
bæjum hafa verið settir upp
ofnar í súgþurrkunarklefun-
um,“ sagði Stefán Skaptason,
ráðunautur, en á dögunum
greindi Dagur frá lofthitunar-
kerfi, sem búið er að setja upp í
Eyjafirði. Leiddar voru getur
að því að þetta væri fyrsta
kerfið sinnar tegundar á
Norðurlandi, en auðvitað voru
Þingeyingar löngu búnir að
setja svona nokkuð upp hjá sér
og án þess að hafa um það
mörg orð.
En það eru ekki aðeins um-
ræddir tveir bæir sem eru búnir
að koma sér upp lofthitunarkerf-
um í sambandi við heyþurrkun-
ina. Eftir að hitaveitan kom víðar
í Reykjahverfi hafa fleiri orðið til
að taka þetta upp.
Árið 1975 voru settir upp ofnar
og element á bænum Skarðaborg
og þremur árum síðar voru settir
upp ofnar á Litlu-Reykjum. Ári
síðar var sett upp lofthitunarkerfi
í Reykjarvelli og Víðiholt. Á
Reykjarvöllum eru ofnar, en
element í Víðiholti. í fyrra voru
sett upp mjög fullkomin element í
Skógum II.
„Ég tel að Víðiholt og Skógar
séu með einna fullkomnustu
kerfin og raunar má bæta
Skarðaborg við í þá upptaln-
ingu,“ sagði Stefán. „Þessi kerfi
öll ganga nokkuð vel. Þau hita
loftið upp um einar 10 gráður við
bestu aðstæður og minnka raka-
stig loftsins mjög mikið. Ég hef
fylgst nokkuð vel með þessu í
Víðiholti og það má segja að
bóndinn þar taki heyið inn eftir
daginn og í hlöðunni er heyið
grænt og fallegt. Á þeim bæ er
loftið dregið í gegnum þessi
element áður en því er blásið inn í
hlöðuna.“
Bóndinn í Reykjahlíð í
Mývatnssveit hefur einnig yfir að
ráða mjög fullkomnu kerfi, að
sögn Stefáns. Þar eru element, en
í Reynihlíð var hins vegar á sín-
um tíma settur upp þurrkpallur.
Heyinu var ekið ný slegnu á
þessan pall og þar var það þurrk-
að áður en því er blásið inn í
hlöðu. Það fyrirkomulag gafst
ekki nógu vel.
„Þessi lofthitunarkerfi eru af-
kasta mikil þurrkunartæki. Að
mínu mati er þetta allt að því
jafnmikil bylting eins og þegar
menn voru að setja súgþurrkun í
hlöðurnar," sagði Stefán
Verðá
heyi
hækkar
Á vegum Búreikningastofu
landbúnaðarins hefur verið
reiknaður framleiðslukostnaður
á heyi nú i sumar.
Miðað við vélbundið hey og að
baggarnir séu teknir á túni er áætl-
aður framleiðslukostnaður kr. 1,40
á kg., en komið í hlöðu, er kostn-
aðurinn áætlaður kr. 1,50 á kg.
ÞÆR
HAFA
NÓG
AÐ
GERA
Eins og fram kom i Degi i sið-
ustu viku stendur til að tengja 03
— upplýsingar — á Ákureyri og
víðar við tölvubanka í Reykja-
vík.
Þessi breyting hefur í för með sér
töluverða breytingu á vinnutilhög-
un þeirra elskulegu radda sem
svara okkur i 02 og 03. Nú þurfa
Þarna sitja þær við afgreiðsluna. Jóhanna Elfasdóttir á innfelldu myndinni t.v., en við
langa borðið sitja þær Svala Halldórsdóttir, Þórkatla Sigurbjörnsdóttir og Borghild
Hansen.
þær ekki lengur að aðstoða fólk
sem er að leita eftir númerum, en
að sögn Jóhönnu Elíasdóttur,
varðstjóra, er alltaf mikið hringt og
spurt.
Þegar ljósmyndari blaðsins var á
ferð í húsi Pósts og síma leit hann
við hjá því starfsfólki, sem svarar
þegar hringt er og símtöl pöntuð,
skeyti send eða spurt um númer. I
þeirri stuttu heimsókn kom fram að
símstöðin á Akureyri afgreiðir
u.þ.b. 230 til 280 langlínusímtöl á
dag og einnig þjónar hún á 3ja
hundrað sveitabæjum í nágrenni
Akureyrar. Alls vinna 12 manns við
afgreiðslu símstöðvarinnar og unn-
ið er á vöktum frá kl. 09 til kl. 24.
Einnig er næturvarsla á stöðinni.
£ Slysahætta
og sóðaskapur
Lesandi hafðl samband við
blabið og vildi benda á hættu
sem stafaði af grjótflutninga-
bílum, sem aka um bæinn.
Sumir hverjir a.m.k. eru í eigu
bæjarins. Lesandinn sagðist
hafa ekið eftir Þingvallastræti
rétt á eftlr bfl frá bænum, en á
palllnum var fullfermi af möl.
Enginn hleri var aftast og féll
grjót af pallinum á götuna og
sumt hafnaði að lokum á
gangstéttinni. „Bílarnfr sem
eftir komu áttu bremsum fjör
að iauna“, sagði þessi við-
mælandi okkar. Sá hinn sami
benti á að sér þætti það
óeðlilegt að bílar frá bænum
sóðuðu göturnar út á þennan
hátt, en skömmu síðar má oft
sjá starfsfólk bæjarins—eða
götusópinn góða — mæta á
vettvang og hrelnsa göturnar.
E.t.v. er hér um að ræða
skipulagða atvinnubótavinnu
— hver veit. „Ég hélt að það
þyrftl að hafa hlera aftan á
pöllum þessara bíla til þess
að koma í veg fyrir svona
sóðaskap og slys sem af
þessu geta leitt," sagði við-
mælandinn að lokum.
% Helgar-
innkaup
í sölulúgum
Á Akureyri njóta bæjarbúar
þeirrar þjónustu að geta
keypt ýmsar nauðsynjavör-
ur í söluopum eftir að komið
er fram yfir venjulegan opn-
unartíma verslana. Er ekki
nema gott eitt um það að
segja, enda getur oft verið
þægilegt að notfæra sér
þessa þjónustu t.d. ef óvænta
gestl ber að garði eða ef f Ijós
kemur að eitthvað hefur
gleymst f Innkaupunum. En
þvf miður er það svo að tölu-
verður fjöldi fólks vlrðist
annaðhvort ekki skllja það tll
hvers þessi þjónusta er, eða
þá að það mlsnotar hana vllj-
andi. Staðreyndin er nefni-
lega sú að á föstudags- og
laugardagskvöldum kemur
það oft fyrir að fólk mætlr f
lúgurnar til þess að gera öll
sín helgarinnkaup. Er þá allt
keypt, jafnt mjólk sem kjöt og
allt þar á milll. Þarf varla að
taka það fram hversu hvim-
leitt það er fyrir annað fólk að
standa í biðröð á meðan
helgarinnkaupin fara fram í
gegn um söluopið, enda slíkt
tímafrekur verslunarmáti.
% Hitaveitugjöld
hækka
Iðnaðarráðuneytið hefur
helmilað Hitaveitu Akureyrar
gjaldskrárbreytingu frá 1.
ágúst. Hækkunin nemur 8% á
vatns- og tengigjöldum. Hita-
veitan fékk í upphafi árs 10%
hækkun og 15. maí fékk fyrir-
tækið heimild til að hækka
vatnsgjöldin um 15%.