Dagur - 20.08.1981, Síða 5
Útgefandi: ÚTGAFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Hafnarstræti 90, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 21180
Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamenn: Askell Þórisson,
Gylfi Kristjánsson
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Skyldusparn-
aðurinn
Hvers vegna er skyldusparnaðurinn
ein hagstæðasta ávöxtun sparifjár í
dag? Vegna þess að húsnæðislög-
gjöfinni hefur verið breytt.
Svo segir í upphafi auglýsingar frá
Húsnæðisstofnun ríkisins, sem birst
hefur í dagblöðunum að undanförnu.
Áður en nýju lögin um Húsnæðis-
stofnun ríkisins voru samþykkt, var
reglum um ávöxtun skyldusparnaðar
ungmenna svo háttað að þrátt fyrir
ákvæði um verðtryggingu var í raun
stórlega haft af unga fólkinu. Því
lögðu fulltrúar Framsóknarflokkslns í
félagsmálanefndum Alþingis megin
áherslu á það að í nýju húsnæðislög-
unum yrði svo eindregið kveðið á um
ávöxtun skyldusparnaðarins og fulla
verðtryggingu hans, án undanbragða,
að ekki væri hægt að halda áfram að
hlunnfara unga fólkið á sama hátt og
áður hafði viðgengist. Og þetta tókst.
f dag er skyldusparnaðurinn tví-
mælalaust hagstæðasta sparnaðar-
formið sem til er. Full verðtrygging
samkvæmt lánskjaravísitölu er reikn-
uð út mánaðarlega og lögð við höf-
uðstólinn í byrjun næsta mánaðar, en
einmitt þarna var brotalömin í þeim
reglum sem áður voru í gildi. Þá eru,
auk verðtryggingarinnar, greiddir
vextir 2% á ári, af innstæðunni. En
það sem mest munar um er að
skyldusparnaðurinn er frádráttarbær
frá tekjum til skatts og spariféð skatt-
frjálst með öllu.
Þetta þarf ungt fólk að kynna sér
vandlega og átta sig á hversu hér er
um hagstætt sparnaðarform að ræða
og hugleiða hversu traustan grunn
það leggur að framtíðinni ef það not-
færir sér þennan rétt til fulls. Það er
því kvatt til að taka ekki út inneign
sína á skyldusparnaðarreikningi
nema brýna nauðsyn beri til þó ef til
vill sé fyrir hendi réttur til þess og
einnig þarf ungt fólk að fylgjast ræki-
lega með því að atvinnurekendur
greiði tilskilinn hluta launanna út í
sparimerkjum eða inn á skyldusparn-
aðarreikning viðkomandi jafnóðum
og launagreiðslur fara fram því hér
eru ekki litlir fjármunir í húfi og fljótt
að safnast saman í stórar upphæðir ef
verðtryggingin af sparifénu tapast
jafnvel mánuðum saman.
Tilgangur skyldusparnaðar er tví-
þættur: annars vegar fjármögnunar-
leið fyrir húsnæðisstofnunina, sem
fær þennan sparnað unga fólksins að
láni og endurlánar þeim sem standa í
íbúðakaupum og byggingum og er því
mjög mikilvægt fyrir húsnæðislána-
kerfið að þetta sparnaðarform sé virkt
og fólk geri sér grein fyrir því hversu
hagstætt er að ávaxta fé sitt á þennan
hátt. Hinn megin tilgangur skyldu-
sparnaðarins er að kenna ungu fólki
sparnað og ráðdeildarsemi og fá það
til að leggja grunn að framtíðinni t.d.
vegna áframhaldandi menntunar eða
fyrirhugaðra húsnæðiskaupa í stað
þess að eyða öllu aflafé sínu jafnóð-
um í ýmiskonar stundargaman, sem
svo auðvelt er að láta glepjast af. G.B.
YFIR 10OO BÖRN HAFA DVALIÐ AÐ HÓLAVATNI
Pétur Ingimar og Arnar.
Helgi Örn:
ROSALEGA
GAMAN“
Fyrir utan skálann stóð frísklegur
strákur sem heitir Helgi örn
. Þegar blaðam. tók hann
tali kom í Ijós að þetta var 3ja
sumarið sem hann dvaldi að
Hólavatni.
„Það er alveg rosalega gaman“
var svarið þegar hann var spurður
um því hann kæmi alltaf aftur.
„Það er allt gaman. Það er gaman
að fara út á bátana, veiða í vatn-
inu og synda í því.“
— Svo þú gætir þá mælt með
staðnum við aðra krakka?
„Já, það væri mjög gott fyrir
alla krakka að fá að vera hér.“
„Leggjum mesta áherslu
á kristindómsfræðsluna“
segir Björgvin Jörgensson sem annast sumarbúðir
KFUM og K að Hólavatni í Eyjafirði
hannesdóttur í eldhúsinu og þar
kom fram að pylsur er vinsælasti
maturinn, en annars borða þau yf-
irleitt allan algengan mat. Sum
neita að vísu að eta fisk eða kjöt, en
Björgvin sagði að þau legðu á það
áherslu að viðkomandi smakkaði
matinn áður en honum væri ýtt
endanlega til hliðar.
„Börnin hafa nóg við að vera.
Við höfum vatnið, íþróttavöll og
margs konar leiktæki sem má grípa
í ef veður er vont. En aðalmarkmið
okkar er að koma þeim betur inn í
sjálfan kristnidóminn. Við getum
e.t.v. nefnt dvölina kristnidóms-
námskeið. Á morgni hvers virks
dags er biblíulestur, en á helgidög-
um er þetta meira i messuformi. Á
kvöldin eru alltaf kvöldvökur, sem
hefjast ailar með bæn, síðan eru
leikir, gátur, skrítlur og spennandi
framhaldssaga og við endum
kvöldvökurnar á guðsorði,“ sagði
Björgvin Jörgensson.
Þegar við Jón fórum út var
Björgvin sestur niður við orgelið og
nokkrir strákar höfðu umkringt
hann. Sjálfsagt hafa þeir ætlað að
syngja nokkur lög.
Pétur Ingimar og Arnar:
Ætluðu að plata strák-
ana ofan í pollana
Tveir ungir piltar voru að sulla
niður við vatnið og virtust una sér
bærilega. Þetta voru þeir Arnar
Pétursson og Pétur Ingimar Ein-
arsson báðir 11 ára.
„Það er alltaf nóg að gera hér.
Við leikum okkur stundum í fót-
bolta, förum á bátum út á vatn, en
núna erum við bara að búa til
polla,“ sagði Arnar, en Pétur
sagði strax hver væri raunveru-
legur tilgangur með pollagerð-
inni. „Við ætlum að plata stráka
ofan í pollana,“ og hann virtist
ekki skammast sín hið minnsta.
Þeir voru sammála um að það
væri gaman að róa úti á vatni, en
þeim vafðist tunga um tönn þegar
þeir voru spurðir um hvað væri
skemmtilegast við dvölina á
Hólavatni. Pétur varð fyrir svör-
um að lokum: „Þessu er erfitt að
svara. Hér allt svo skemmtilegt,
en ætli það sé ekki að fara út á
bátunum.“ Arnar samþykkti, en
vildi hafa fótboltann með.
Guðmundur Sveinbjörnsson:
„SKEMMTILEGAST AÐ
SÖKKVA BÁTUNUM“
Aðstoðarmaður Björgvins að
þessu sinni var Guðmundur
Sveinbjörnsson, 13 ára Reykja-
víkursveinn. Hann hefur það
hlutverk að fylgjast með
drengjunum þegar þeir leika sér
úti og hjálpa þeim eftir bestu getu.
Það kom í ljós að Guðmundur
hafði verið að Hólavatni þegar
hann var yngri, en Guðmundur á
ættir að rekja til Akureyrar.
„Sjálfum finnst mér mest gaman
að fara út á bátunum og sökkva
þeim við ströndina," sagði
Guðmundur, þegar við stóðum út
á veröndinni og horfðum út á
vatnið. „Vatnið er mjög djúpt á
köflum. Ég held að það sé 18
metra djúpt þar sem það er dýpst,
en við förum aldrei út án þess að
hafa björgunarbelti."
— En hvað er gert þegar rignir
og ekki er hægt að vera úti?
„Þá er t.d. farið niður og lesnar
sögur eða við búum til úr Legó.
Það er alltaf nóg að gera,“ sagði
Guðmundur.
Guðmundur Sveinbjömsson.
Helgi örn.
var sagt frá Hólavatni, en þangað lá
þá ekki bílfær vegur. Það var ekki
fyrr en 1958 að vegurinn að Hóla-
vatni var fullgerður. Það sumar var
Björgvin ekki heima, en þá fóru
nokkrir piltar — þ.á. m. Ingólfur
Georgsson, Skúli Svavarsson,
Guðmundur Hallgrímsson, Ragnar
H. Bjarnason ásamt Ólafi Ólafssyni
kristniboða og Georg Jónssyni, sem
var bílstjóri, til Hólavatns. Þeir
töldu staðinn heppilegan. Rætt var
við bóndann í Hólakoti og reyndist
hann fús til að selja svolítið land við
vatnið.
Húsið rís
að Hólavatni
„Ég held að strákarnir hafi farið
með skóflur á staðinn áður en þetta
varð allt ákveðið," sagði Björgvin
og brosti við endurminningarnar.
Georg og kona hans Sigríður
Zakaríasdóttir keyptu síðan landið
og gáfu KFUM og K. Þau gerðu
raunar ekki endasleppt við félagið
því síðar keyptu þau meira land af
bóndanum í Hólakoti og færðu
félaginu.
Við verðum að hlaupa hratt á
byggingarsögu skálans og stað-
næmumst næst við árið 1965, en þá
var skálinn tilbúinn. Séra Bjarni
Jónsson kom og vígði hann. Þetta
var. síðasta embættisverk séra
Bjarna meðan hann lifði. Fyrstu
börnin komu til dvalar um mitt
sumar. Þetta sumar voru 3 flokkar
og í hverjum flokki voru 12 drengir
sem voru í 1 viku. Seinna ákváðu
forráðamenn sumarbúðanna að
dvölin skildi vera 3 vikur, en hin
seinni ár hefur hver flokkur verið í
2 vikur. Hvert sumar eru fjórir
flokkar: tveir stúlknaflokkar og
tveirdrengjaflokkar. Og þátttaka er
ekki bundin við félagsmenn í
KFUM og K.
Pylsur vinsælastar
Það skiptir svo sannarlega miklu
máli að börn fái mikið og gott að
eta á uppvaxtarárunum. Að Hóla-
vatni er það Þórey Sigurðardóttir,
sem hefur séð um matargerð allan
tímann nema fyrsta sumarið.
Blaðamaður hitti Þóreyju og að-
stoðarkonu hennar Ingileifu Jó-
„Þú verður að muna að minnast á
kaffisöluna sunnudaginn 23.“,
sagði Jón O. Guðmundsson um leið
og við ókum eftir heimreið sumar-
búða KFUM og K að Hólavatni í
framanverðum Eyjafirði. Þessari
beiðni játaði tiðindamaður Dags
um leið og Jón stöðvaði bifreiðina
fyrir framan myndarlegt timburhús
með steyptum kjallara. Á hlaðinu
Hólavatni. Sum hver hafa komið
aftur og aftur. Séu þau reiknuð sem
einn einstaklingur hafa um 2000
böm dvalið í æskulýðsbúðunum!
Systkin nokkur frá Akureyri höfðu
dvalið í samtals 52 vikur að Hóla-
vatni, en þá fengu þau líka verð-
laun.
— En hvert var upphafið á þessu
öllu? Björgvin kom til Akureyrar
um miðjan fimmta áratuginn og
hóf þá þegar störf að æskulýðs-
málum. Hann var með nokkra
hressa stráka á sínum snærum og
þeir stefndu að því að stofna
KFUM félag þegar þeir eltust.
Félagið sá formlega dagsins ljós
árið 1951. Þeir fóru í útilegur en
undir niðri blundaði alltaf sú löng-
un að eignast eigið húsnæði. Þeim
„Þurfa að finna
kærleikann“
Hópurinn fyrir framan sumarbúðirnar. Þess skal getið að aðeins voru 13 strákar að Hólavatni er Ijósm. bar að garði. Yfirleitt eru
þeir helmingi fleiri.
blakti íslenski fáninn í strekkings
vindi. Það leið ekki á löngu þar til
við vorum sestir niður með Björgvin
Jörgenssyni, kennara, sem hefur
verið einn af umsjónarmönnum
æskulýðsstarfsins að Hólavatni frá
fyrstu tíð.
„Til þess að hægt sé að stjóma
börnunum," sagði Björgvin, eftir
að við höfðum komið okkur fyrir,
„þurfa þau að finna kærleikann, að
manni finnist vænt um þau, þá
gengur allt vel.“ Það var líka auð-
séð að Björgvini var hlýtt til strák-
anna og að þeir virtu hann. Þegar
okkur Jón bar að garði voru þeir að
ræða við Björgvin í litlum skúr, sem
þeir í KFUM höfðu keypt af
Kröflunefnd. Björgvin scgði okkur
síðar að börnunum lægi oft mikið á
hjarta og að þeim þætti vænt um að
fá einhvern fullorðinn til að tala
við.
Fram til dagsins í dag hafa u.þ.b.
eitt þúsund börn notið dvalar að
Sumarbúðimar að Hólavatni.
Umsjón:
Þorleifur Ananíasson
Kristján Arngrímsson
1. deildin í handknattleik
KA fyrst gegn Val
Þessi mynd var tekin þegar fram fór á Akureyri fyrsti leikurinn i gömlu rafveituskemmunni, árið 1964. Það var
jafnframt fyrsti leikurinn á Akureyri sem fram fór á stórum vclli, en áður hafði aðcins verið leikið utanhúss. f
fremri röð er lið fR, en fyrir aftan eru leikmenn ÍBA sem léku þennan timamótaleik.
Þar sem brátt fer að hausta
þótti okkur við hæfi að
skyggnast á bak við tjöldin hjá
handboltamönnum okkar og
leita frétta. Birgir Björnsson,
sem í fyrra tókst fyrstum
manna að leiða KA upp f I.
deild, hefur fyrir nokkru hafið
æfingar með sínum mönnum.
Hann sagði að fyrsti leikur KA
í I. deild yrði gegn Val 10. okt. í
Skemmunni, en síðan kæmi
útileikur gegn FH helgina á
eftir. Áður en deildakeppnin
hæfist sagði hann að liðið færi
suður og tæki þátt i fjögurra
liða móti í Hafnarfirði ásamt
FH, Haukum og HK. KA hef-
ur misst leikmenn frá í fyrra,
Gunnar Gíslason er farinn til
KR, Dalvíkingarnir fara aftur
heim og Jóhannes Bjarnason
fer suður í skóla. En KA hefur
endurheimt Sigurð Sigurðsson
frá Þór og þeir Kristinn Sig-
urðsson og Jón Emil Ágústs-
son sem áður voru með Fylki
æfa nú með KA. Yngri leik-
menn félagsins eru einnig í
framför, þannig að KA ætti að
geta staðið sig vel í vetur.
Þór í þjálfaraleit
Þórsarar hafa oft minnt KA-
menn á að þeir urðu á undan
þeim upp í I. deild, en þeir urðu
einnig á undan í þá III., þar sem
þeir munu leika í vetur. Ólafur
Jensson stjórnarmaður í hand-
knattleiksdeild Þórs sagði að þeir
væru enn ekki búnir að ráða
þjálfara, en unnið væri að því og
sagðist hann búast við að gengið
Þór í 2. deild
Þegar við höfðum samband við
Árna Pálsson, sem er í forsvari
fyrir körfuknattleiksdeild Þórs
var hann nýbúinn að frétta að
Ármenningar ætluðu að senda
lið í I. deild í vetur. Þór leikur
því í II. deild, en þeir féllu eins
og kunnugt er úr I. deild í
fyrra. Hins vegar kom til
greina að Ármenningar sendu
ekki lið til keppni í vetur og þá
hefði Þór tekið sæti þeirra í I.
deild.
Ekki hefur enn verið ráðinn
AKUREYRARMÓTIÐ
Nú hefur verið ákveðið að fyrri
leikur KA og Þórs i Akureyr-
armótinu í knattspyrnu fari
fram mánudaginn 24. ágúst, og
síðari leikurinn sunnudaginn
30. ágúst. Hinn nýi formaður
knattspyrnuráðs, Marinó Ví-
borg, sagðist vona að af
leikjunum gæti orðið og ekkert
óvænt kæmi uppá, en eins og
kunnugt er hefur tvívegis þurft
ÚRSLIT I 3. FLOKKI
Úrslitakeppni 3. fl. íslands-
mótsins í knattspyrnu hefst á
Akureyri í dag, fimmtudag kl.
17,00 á Þórsvellinum. Leikið
verður í tveim riðluin, í A. riðli
leika Þór, Týr, Valur og IK, en
í B riðli Fylkir, Þróttur, Hött-
yrði frá því fyrir helgi og æfingar
þá hafnar í næstu viku. Ekki væri
heldur ákveðið hvort kvennalið
Þórs yrði sent í II. deildina, en
þær féllu niður í fyrra og mikill
kostnaður við að halda liðinu úti,
en innkoma væri nær engin.
Ólafur sagði að allir yrðu með
áfram, að Sigurði Sigurðssyni
undanskildum og líkur væru á því
að þeir Guðjón Guðmundsson og
örn Guðmundsson sem verið
hafa með knattspyrnuliði félags-
ins í sumar léku með í vetur.
þjálfari, en haft hefur verið sam-
band við Mark Cristiansen o.fl.,
hins vegar sagði Árni að erlendur
þjálfari kostaði mikla peninga, en
þeir væru af skornum skammti.
Hann sagði að Þórsarar yrðu án
Alfreðs Tuliníusar í vetur, en
hann fer til náms í Danmörku.
Ekki bjóst hann við aðkomu-
mönnum til liðsins, en sagði að
byggt yrði á ungum leikmönnum,
enda heppilegra þegar til lengdar
léti heldur en þurfa sífellt að elt-
ast við aðkomumenn til að fylla í
liðið.
að fresta þessum leikjum og
eftir síðari frestunina sagði
þáverandi formaður ráðsins,
Þóroddur Hjaltalín, af sér for-
mennsku i ráðinu.
Við þetta má bæta úrslitum í
Ak.-móti Il.-flokks, Þór sigraði í
fyrri leiknum 3-1, en KA í þeim
síðari og þurfa því liðin að leika
þriðja leikinn um Akureyrar-
meistaratitilinn.
Minningarleikur
í knattspyrnu:
Í.B.A.
GEGN
HEMMA
GUNN.
OGC/O.
Á föstudagskvöldið kl. 19,00
fer fram á Akureyri hinn árlegi
minningarleikur um Jakob
Jakobsson sem fórst af slys-
förum í Þýskalandi fyrir all-
mörgum árum. Að þessu sinni
kemur hingað Stjörnulið Her-
manns Gunnarssonar sem gert
hefur garðinn frægan í sumar
og leikur gegn liði ÍBA eins og
það var skipað árið 1971. Með
ÍBA-liðinu leikur Elmar
Geirsson og mun hann ásamt
hinum gömlu landsliðsmönn-
um okkar reyna að hefta
sigurgöngu Hemma Gunn. og
félaga. Það má því örugglega
búast við góðri knattspyrnu á
Akureyrarvelli á föstudag.
ur og Akranes. Síðan verður
leikið um sætin frá 1-8 að lok-
inni keppni í riðlunum.
Úrslitaleikurinn sjálfur fer
fram á Akureyrarvelli á
sunnudag kl. 14,30.
Arnar til
Noregs
Hinn stórefnilegi hlaupari, Arnar
Kristinsson KA er á förum til
Noregs. en hann er einn fjögurra
ungmenna sem keppa þar fyrir
íslands hönd á Andrésar Andar
leikunum í frjálsum sem fram
fara nú um helgina. Arnar á að
keppa í 60 og 800 m hlaupum og
óskum við honum góðs gengis í
keppninni, sem er fyrir unglinga
12 ára og yngri.
4 - DAGUR • 20. ágúst 1981
20. ágúst 1981 - DAGUR - 5