Dagur - 15.09.1981, Side 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
1 AKUREYRI
64. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 15. september 1981
KodaK
FIL-MUhúsið akuheyhi
Kartöfluverksmiðjan
á Svalbarðseyri:
Verð-
mætum
fyrir 4
bjargað
Ef kartöfluverksmiðjan á Sval-
barðseyri hefði ekki verið komin
til, hefði trúlega þurft að henda
500-600 tonnum af kartöfluupp-
skeru síðasta sumars á haugana.
Því má segja að verksmiðjan sé
nú búin að bjarga verðmætum
fyrir hartnær 4 milljónir króna.
Þetta kom fram í viðtali sem
Dagur átti við Sveinberg Laxdal,
kartöflubónda á Svalbarðseyri.
Eins og menn muna var uppskeran
mjög góð í fyrra, svo mikil að von-
laust var að koma stórum hluta
hennar í verð með hefðbundnum
hætti. Nú eru hins vegar blikur á
lofti í uppskerumálum við Eyja-
fjörð, því talið er að kartöfluupp-
skeran verði allt að þriðjungi
minni nú en I fyrra. Óttast menn nú
að uppskeran á Svalbarðsströnd
verði ekki næg til að sinna þörfum
svæðisins og kartöfluverk-
smiðjunnar, þannig að jafnvel þurfi
að flytja kartöflur að, t.d. frá
Þykkvabæ og jafnvel erlendis frá.
Stórhuga í gatnagerð á Blönduósi:
Slitlag á nær allar götur
Ekki verður annað sagt, en
Blönduósbúar séu stórtækir í
gatnagerðarmálum bæjarins
þetta sumarið, því nú er senn að
hefjast lagning bundins slitlags
á nær allar götur bæjarins, sem
enn hafa ekki fengið slíkt slit-
lag. Samtals verður lagt slitlag á
um fjóra kílómetra, en gatna-
kerfið á Blönduósi er eitthvað á
milli 5 og 6 km að lengd. Lagt
verður á 12 götur eða gatna-
hluta og heildarflatarmál nýja
slitlagsins er um 33 þúsund fer-
metrar.
Eyþór Elíasson, sveitarstjóri á
Blönduósi, sagði í viðtali við Dag,
að lagt yrði á allar göturnar sem
eftir væru, nema þær allra nýjustu,
sem enn væri verið að byggja við og
raunar væri ekki nema ein heil gata
skilin eftir. Hluti af þessum miklu
gatnagerðarframkvæmdum er
endurnýjun slitlags á aðalgötu
bæjarins, Húnabraut, sem er tæp-
lega km á lengd. Allt hitt eru ný-
framkvæmdir. Undirbúningsvinnu
er nú lokið o'g framkvæmdir áttu að
hefjast í þessari viku, en þeim hefur
seinkað nokkuð, m.a. vegna þess að
beðið hefur verið eftir tækjum til
blöndunar og útlagningar. Fyrir-
tækið Miðfell annast lagningu slit-
lagsins, sem verður olíumöl og
svokallað olíumalbik, sem er milli-
stig á milli olíumalar og malbiks.
Gert er ráð fyrir að það taki um 10
daga að leggja slitlagið, eftir að
verkið er hafið.
Eyþór sagði, að kostnaðaráætlun
vegna þess verks næmi 4,5 milljón-
um króna og það er fjármagnað
með gatnagerðargjöidum, úr
hreppssjóði og með lántökum upp á
um 1,5 milljón. Hann sagði að þar
sem dýrt væri að fá tæki til lagn-
ingar slitlagsins, en þau eru ekki til
á Blönduósi, frekar en á flestum
minni stöðum úti á landi, væri
nauðsynlegt að framkvæma eins
mikið í einu og frekast væri mögu-
legt, því minni framkvæmdir væru
óhagkvæmari. Hann sagði að það
væri hins vegar verulegt vandamál,
að skuldabréfakaup Byggðasjóðs
vegna gatnagerðarframkvæmda
minnkuðu hlutfallslega eftir því
sem framkvæmdirnar væru stærri.
Byggðasjóður ynni því nánast gegn
hagkvæmni í gatnagerð bæja þar
sem tæki til lagningar slitlags væru
ekki fyrir hendi.
Ekkert slökkvilið á staðnum
Sveitarfélagið hefur vanrækt framkvæmd laga um brunavarnir, segir Þórír Hilmarsson
brunamálastjóri
Eins og kunnugt er brunnu úti-
hús i Ártúni í Grýtubakkaheppi í
síðustu viku. Þegar slökkvibíll
hreppsbúa kom á vettvang tókst
ekki betur tii en svo að vatns-
slöngur rifnuðu. Ástæðan er
notkunarleysi, segir Þórir
Hilmarsson, brunamálastjóri,
sem telur að sveitarstjórn
Grýtubakkahrepps hafi ekki
farið að lögum hvað varðar
siökkvilið í hreppnum. í einu
sunnanblaðanna var rætt við
„slökkviliðsstjóra“ á Grenivík,
„Ég harma það mjög að
einstaka þingmaður þessa kjör-
dæmis skuli temja sér þau
lágkúrulegu vinnubrögð, að
nota mjög málefnalegan upplýs-
ingafund Sambandsins, sem efni
í pólitískan hráskinnaleik og
sem tilefni árása á samvinnu-
hreyfinguna, sem hefur verið
helsta forystuafl i uppbyggingu
atvinnulífs á því svæði sem
þingmaðurinn er fulltrúi fyrir,“
en sá hinn sami, Hermann
Ingólfsson, upplýsti í viðtali við
Dag, að hann teldi sig alls ekki
slökkviliðsstjóra og að á Greni-
vík væri alls ekkert slökkvilið.
Hins vegar hefði hann á sínum
tíma lofað að aka bílnum á
brunastað ef með þyrfti og ann-
ast geymslu á bilnum.
Þórir Hilmarsson, brunamála-
stjóri, sagði að hann teldi að sveit-
arstjórnin hefði ekki farið að lög-
um, en í þeim segir m.a. að sveitar-
félögum sé skylt að leggja fram og
sagði Valur Arnþórsson,
kaupfélagsstjóri, í tilefni um-
mæla Halldórs Blöndals, þing-
manns stjórnarandstöðunnar í
Sjálfstæðisflokknum, í síðasta
tölublaði málgagns hans á Ak-
ureyri.
„Ég vil mjög hvetja til þess, að
þingmenn kjördæmisins snúi bök-
um saman og leggist allir á eitt um
að leita lausnar á erfiðum reksturs-
grundvelli iðnaðarins. Það er það
halda við nauðsynlegum tækjum
og búnaði til slökkvistarfa og
brunavarna. Einnig kemur fram í
lögunum að slökkviliðum á smærri
stöðum er skylt að halda slökkvi-
æfingar 4 til 5 sinnum á ári, en það
jafngildir um 24 klukkustundum á
hvern mann í slökkviliðinu. „Engar
æfingar hafa verið haldnar lengi
vel á Grenivík,“ sagði Þórir.
Þórir Hilmarsson sagði að ljóst
væri að sveitarstjórn Grýtubakka-
hrepps hefði sofið í málinu og ekki
væri hægt að kenna neinum öðrum
um hvernig slöngurnar fóru í Ár-
sem iðnaðurinn þarf á að halda
núna og það er það sem hið fjöl-
marga starfsfólk í iðnaðinum getur
krafist af þingmönnum sínum.
Bregðist þeir þeirri skyldu sinni að
snúa bökum saman og vinna að
lausn mála eru þeir að bregast
starfsfólki iðnaðarins, þeir eru að
bregðast sínum kjósendum.
Persónulegur skætingur Hall-
dórs Blöndals í minn garð er ekki
svaraverður.“
túni. f umræddu sunnanblaði kom
fram að sveitarstjórnin hefði farið
fram á það við Brunamálastofnun-
ina að starfsmenn hennar gerðu
úttekt á tækjabúnaði á Grenivík.
Þórir sagði að starfsmenn sínir færu
óreglulega í skoðunarferðir á hina
ýmsu staði landsins, en ekki eftir
pöntunum einstakra sveitarfélaga.
Hins vegar gerði Þórir ráð fyrir því
að fara til Grenivíkur innan
skamms og athuga nánar hvernig
ástand mála væri á staðnum.
Ekki tókst að ná í sveitarstjórann
í gær.
í greininni gerir Halldór því
skóna að ríkisstjórnin eigi mestan
þátt í vanda iðnaðardeildar Sam-
bandsins og annarra útflutnings-
fyrirtækja í iðnaði, þegar allir aðrir
vita að gengisbreyting Bandaríkja-
dollars gagnvart Evrópumynt á þar
stærstan þátt. Einnig gerir hann að
umtalsefni og reynir að gera tor-
tryggileg kaup KÉA á fyrirtækjum,
þar sem nær undantekningalaust
hefur verið falast eftir samningum
við kaupfélagið.
Ekkert
verð
komið
á nýja
kjötið
Haustslátrun hjá Sláturhúsi
KEA á Akureyri hefst á morgun
miðvikudag. Að sögn Þórarins
Halldórssonar sláturhússtjóra
er áætlað að slátra rúmlega 39
þúsund fjár, sem er álíka mikið
og í fyrra.
Fyrr í þessum mánuði var slátrað
um 300 nautgripum, og nautgripa-
slátrun verður aftur á dagskrá að
sauðfjárslátrun lokinni.
Ekici gat Þórarinn tjáð okkur
hvenær nýtt kjöt kæmi í verslanir.
Haustverðið á kjötið vantar og er
brýnt að sögn Þórarins að 6-manna
nefndin ljúki störfum sem fyrst.
Fyrr er ekki hægt að selja kjötið, og
fyrr en verðið liggur fyrir er ekki
hægt að hefja slátursölu til fólks.
Slátrun hefst á Dalvík 22. sept-
ember og þar er áætlað að slátra
tæplega 15 þúsund fjár. Um önnur
sláturhús á Norðurlandi er það að
segja að slátrun er annaðhvort
nýhafin eða um það bil að hefjast.
„HARMA LÁGKÚRULEG VINNU-
BRÖGÐ ÞINGMANNSINS“
- SEGIR VALUR ARNÞÓRSSON UM ÁRÓÐURSSTRÍÐ HALLDÓRS BLÖNDALS
AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167 - RITSTJÓRN: 24166 OG 21180