Dagur - 15.09.1981, Qupperneq 3
Börn í umferðinni eru óútreiknanleg
Aðstæður eru mjög misjafnar í
umferð. Sums staðar er gatna-
kerfi ekki fullgert, eða aðeins að
litlu leyti miðað við þarfir barna.
Við ýmsar staðbundnar aðstæð-
ur þurfa foreldrar og kennarar
að kenna rétta hegðun. En það
reynir ekki síður á bílstjóra að
þeir séu skilingsríkir og gæti ýt-
rustu varúðar í samskiptum sín-
um við börnin í umferðinni.
Oft lítur út sem 6-8 ára börn séu
fær um að fara sjálf yfir akbrautir.
Þau hafa lært að líta til beggja
hliða og hlusta. En það er stað-
reynd að börn á þessum aldri eru
óútreiknanleg í umferðinni, og
gleyma auðveldlega leiðbeining-
um. Þar getur ýmislegt gripið hug
þeirra t.d. bolti, leikfélagi o.s.frv.
Meðal atriða, sem valda erfið-
leikum hjá börnum í umferðinni,
má nefna: — vegna smæðar sinnar
sjá þau aðeins það sem næst þeim
er, — þau eiga erfitt með að greina
hvaðan hljóð berast, — þau eiga
erfitt með að meta rétt hraða, fjar-
lægð og fjölda ökutækja á ferð.
VIÐ SKULUM TAKA TILLIT
TILÞESSA.
Mikilvægt er að foreldrar eða
aðrir eldri og reyndari vegfarendur
fylgi yngstu nemendunum í og úr
skóla fyrstu skóladagana, gefi góð
ráð og sýni þeim öruggustu leiðina
frá heimili sínu. Dagleg fræðsla og
góðar ábendingar geta tvímæla-
laust komið í veg fyrir umferðar-
slys. Gott fordæmi hinna eldri
stuðlar að góðum venjum hjá
yngstu vegfarendunum. Nú reynir
á samstillt átak okkar sem eldri er-
um í umferðinni. Áreiðanlega á
hver og einn lítinn frænda eða
frænku sem nú og á næstunni á í
erfiðleikum á leið sinni í og úr
skólanum sínum einhversstaðar á
landinu.
DRÖGUM ÚR FERÐ.
Umferðarráð.
vegna gæðanna.
10 gíra reiðhjól karla og
kvenna fyrirliggjandi.
HANDVERK
SIMI 25020
STRANDGATA 23
Nýkomið:
Finnskar konukápur vattfóðraðar, stórar stærðir.
Álafossúlpurnar komnar aftur, allar stærðir.
Pils, flauelsbuxur
og peysur
á börn og
fullorðna
Siguröar Gtíbrmmdssonarhf.
HAFNARSTRÆTI 96 SÍMI96-24423 AKUREYRI
haustmaikaour
Haustmarkaðurinn er hafinn á 2.
hæð, gengið inn í herradeild
Ótrúlegt vöruúrval
Ótrúlegur afsláttur
iporthúyd
m ’A HORMMJ
Sportjakkar
4 litir.
Stærðir: 140-XL.
Sporthúydhf
HAFNARSTRÆTI 94 SÍMI 24350
Allt sem
hugurinn
girnist
frá Quelle
ístve
íBv
Quelle pöntunarlistinn með
haust- og vetrartískunni '81 -’82
er nærri þúsund blaðsíður
uppfullar af vönduðum þýskum
varningi. Úrvalsfatnaðuráalla
fjölskylduna, skór, töskur,
skartgripir, húsbúnaður,
heimilistæki, leikföng, - já allt
sem hugurinn girnist. Allt
gæðavörur á hagstæðu verði.
Öruggur afgreiðslumáti.
I
I
I
L
Vinsamlegast klippið þennan hluta auglýsingarinnar frá og sendið okkur eða hringið - ef þér
viljið kaupa Quelle pöntunarlistann. Verð listans er kr. 45.00 auk póstkröfugjaldsins.
Quelle-umboðið Pósthólf 39,230 Njarðvík. Sími 92-3576. Afgreiðsla í Reykjavík
Laugavegi 26,3. h. S(mi 21720.
Nafn sendanda
heimilisfang
sveitarfélag póstnúmer
1
I
I
I
Quelle umboðið sími 21720
15. september 1981 - DAGUR - 3