Dagur - 15.09.1981, Page 7
. . . Skammsýni
(Framhald af bls. 2).
ingu. Ennfremur er best að ráð-
herra geri sér fulla grein fyrir því að
á meðan öll okkar sjávarútvegsmál
eru svo vanþróuð sem raun ber
vitni um er of snemmt að snúa baki
við þeim vandamálum, sem við
blasa og hugsa um aðrar og tví-
ræðar atvinnugreinar. Herra
sjávarútvegsráðherra, vertu nú svo
vænn að setjast niður og semja
viðunandi aflakvóta; löggjöf, því í
henni gæti falist mikill sparnaður
fyrir þjóðarbúið, og hugleiddu síð-
an hve það er hræðilegt að við
skulum enn búa við það hörmung-
arástand að þurfa að henda um
20% af öllu því sem við öflum þrátt
fyrir alla þessa fræðinga í hinum og
þessum greinum sem verið er að
mennta á almennings kostnað al-
veg fram í andlátið.
Ef eitthvað er til sem heitir um-
hverfisnefnd á Akureyri eða ná-
grenni þá vil ég beina þeim til-
mælum til forráðamanna hennar
að þeir sjái svo um að allar hug-
leiðingar um stóriðju við Eyjafjörð
og þó sér í lagi öll áform um ál-
bræðslu og aðra slíka skaðlega
mengunarvalda verði kæfð strax í
fæðingu.
Eyjafjörðurinn er einn af feg-
urstu stöðum iandsins og gróður-
sæld er þar mikil og mild veðrátta
sem gerir það að verkum að öll
mengun þar yrði staðbundin og
hreyfingarlítill og gæti haft ófyrir-
sjáanlegar afleiðingar fyrir allan
gróður, auk þess er fjörðurinn
uppeldissvæði margra fisktegunda,
sem að sjálfsögðu yrðu mengaðar
og óhæfar til manneldis. Eitraður
fiskur gæti blandast öðrum fiski á
miðunum fyrir Norðurlandi. Takið
eftir orðum mínum. Stóriðja og
fiskiðnaður eiga enga samleið og
spurningin er viljum við verða
verksmiðjuþrælar eða viljum við
vera frjálsir og hraustir íslendingar
í eigin landi?
Landsmenn, berjumst gegn öll-
um illum erlendum áhrifum, forð-
umst stóriðju og alla mengun á
landi voru, stöndum einnig saman
um að forðast skemmdir á sálarlífi
upprennandi kynslóða með auknu
eftirliti á því sem kvikmyndahús,
sjónvarp og önnur erlend áhrif hafa
upp á að bjóða.
Garðar Björgvinsson,
útgerðarmaður, Raufarhöfn.
Sameiginlegir viðtals-
tímar alþingismanna
Aiþingismenn Norðurlandskjördæmis eystra hafa sam-
eiginlega viðtalstíma fyrir sveitastjórnir og aðra aðila,
sem þurfa að ná tali af þingmönnum á eftirtöldum
stöðum:
Á Akureyri. Hótel KEA fimmtudaginn 24. sept. og
föstudaginn 25. sept.
Panta þarf viðtalstíma hjá Snorra Finnlaugssyni í
síma 24167.
Á Húsavík. Laugardaginn 26. sept. á Hótel Húsavík.
Panta þarf viðtalstíma hjá Bjarna Aðalgeirssyni
bæjarstjóra í síma 41222.
Á Raufarhöfn. Sunnuaginn 27. sept. á Hótel Norð-
urljósi.
Panta þarf við talstíma hjá Gunnari Hilmarssyni
sveitarstjóra í síma 51151 eöa 51251.
''fl/^/r/r/í/rj///)/é/i//// // rz . // ’/ r y>/
Innritun hefst miðvikudaginn 16. september.
Sími 24948.
Skólastjóri
i XUN3S
Innritun er
halin
Kenndir verða:
Barnadansar, yngst 3ja ára
Diskódansar
Tjútt og rokk
Gömlu dansar fyrir alla.
Samkvæmisdansar fyrir hjón og
einstaklinga.
Stepp fyrir börn og fullorðna.
Sértímar í dömubeat fyrir dömur 20
ára og eldri.
Sértímar í suöuramerískum döns-
um fyrir ungt fólk.
Kennsla fyrir byrjendur og framhald
í öllum flokkum.
Upplýsingar og innritun í síma
22368 kl. 2-8.
Kennum 1 tíma vikulega.
/ÍU
Veriö ávallt
velkomin
TILB.OÐ
næstu daga
í ÖLLUM MATVÖRUBÚÐUM
Á FÉLAGSSVÆÐINU!
BACON
niðursneitt í bréfum
Hámarksverð ...........kr. 103,50
Tilboðsverð............kr. 72,00
Gerið hagstæð kaup.
H^Matvörudeild
Bflstjóri
Óskum að ráða meiraprófsbílstjóra strax.
Möl og sandur
Sími21255
Afgreiðslustúlkur
óskast
Vinnutími frá kl. 09-13 og 13 til18.
Þurfa að geta byrjað strax.
Upplýsingar í síma 23619 milli kl. 18 og 19.
Biðskýli S.V.A.
Innheimtumaður
Röskur innheimtumaður óskast til að annast fyrir
góðar prósentur innheimtu á reikningum.
Hentugt aukastarf um nokkurra vikna skeió.
Upplýsingar í síma 24803 á daginn.
Stúlku
vantar til verslunarstarfa.
Hálft starf gæti komið til greina.
Umsóknir leggist inn á afgreiðslu Dags.
Skólaritari
Skólaritari óskast í hluta starf við þjálfunarskóla
ríkisins Sólborg.
Upplýsingar gefur skólastjóri sími 21757.
AKUREYRARBÆR
Laust starf
Æskulýðsráð Akureyrar framlengir hér með um-
sóknarfrest um starf forstööumanns félagsmið-
stöðva á Akureyri til 30. september n.k.
Umsóknir um starfið sendist til Æskulýösráðs Ak-
ureyrar Ráðhústorgi 3, sími 22722, þar sem frekari
upplýsingar eru gefnar.
Æskulýðsráð Akureyrar.
Hefur þú áhuga á verslun?
Þekktur fataframleiðandi óskar eftir að komast í
samband við aðila á Akureyri, sem hefði áhuga á að
standa fyrir rekstri sérverslunar.
Viðkomandi yrði að hafa frumkvæði og annast
rekstur, en gæti vænst góðs stuðnings og fyrir-
greiðslu.
Áhugasamir vinsamlegast sendi nöfn sín og síma-
númer, ásamt upplýsingum um aldur og fyrri störf
tii auglýsingadeildar Dags fyrir 18. september
merkt ,,Sérverslun“.
Hús til niðurrifs
Dalvíkurbær auglýsir eftir tilboöum í húseignirnar
Grundargötu 9, og Grundargötu 15 Dalvík til nið-
urrifs.
Húsin skulu fjarlægð fyrir 15. október 1981.
Nánari upplýsingar veita bæjartæknifræðingur og
bæjarstjóri.
Tilboð þurfa að berast á skrifstofu bæjarins fyrir 20.
september 1981.
Bæjarstjórinn Dalvík
15. september 1981 - DAGUR - 7