Dagur - 08.12.1981, Blaðsíða 7
Útgafandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifatofur: Hafnarstræti 90, Akureyri
Ritstjórnarslmar: 24166 og 21180
Simi auglýsinga og afgreióslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamenn: Áskell Þórisson,
Gylfi Kristjánsson
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Höfuðáhersla
á að tryggð verði
full atvinna
í landinu
f stjórnmálaályktun kjördæmis-
þings Framsóknarmanna í Norð-
urlandskjördæmi eysfra er minnt
á að myndun núverandi ríkis-
stjórnar í febrúar 1980 hafi leyst
langvarandi stjórnarkreppu og
það samstarf sem þá hafi tekist
innan Alþingis hafi reynst eina
leiðin til myndunar þingræðis-
stjórnar. Síðan segir orðrétt:
„Ríkisstjórnin tók við erfiðu
efnahagsástandi eftir upplausn-
artímabil í stjórnmálum, sem m.a.
orsakaðist af ótímabærum stjórn-
arslitum haustið 1979. Ástandið
var þannig í febrúar 1980 að út-
gerð og fiskvinnsla var að stöðv-
ast víða um land og sums staðar
þegar stöðvuð, verðbólga var yfir
60% og stefndi í 80-90% verðbólgu
á árinu ef ekki yrði að gert. Við
stjórnarmyndun var þess ræki-
lega getið að vandi efnahagslífs-
1ns yrði ekki leystur á skömmum
tíma, heldur yrði að ætla stjórninni
nokkur ár til þess að ná efna-
hagsmarkmiðum sínum svo að
viðunandi væri til frambúðar.
Kjördæmisþingið lítur því svo á
að Framsóknarflokknum beri að
styðja af alhug núverandi stjórn-
arsamstarf, enda ekki fyrir hendi
aðrir kostir í því sambandi.
Kjördæmisþingið hvetur ríkis-
stjórnína til þess að ná þeim
efnahagsmarkmiðum sem hún
hefur sett sér; minnkandi verð-
bólgu, stöðugu gengi krónunnar
og jafnvægi í þjóðarbúskapnum
án þess að atvinnuöryggi sé fórn-
að.
Kjördæmisþingið leggur höfuð-
áherslu á að tryggð verði full at-
vinna í landinu. Þess vegna ber að
treysta rekstrargrundvöll atvinnu-
veganna og líta með raunsæi á
þau vandamál, sem einstakar at-
vinnugreinar eða fyrirtæki eiga við
að stríða. f því sambandi minnir
kjördæmisþingið öðru fremur á
vandamál útflutnings- og sam-
keppnislðnaðar, svo og ferða-
mannaþjónustuna, en þessar at-
vinnugreinar, snerta mjög hags-
muni fólks í Norðurlandskjör-
dæmí eystra. Vandamál iðnaðar-
ins eru sérstæð og þurfa sérstakra
og brýnna aðgerða við.“
Tónaútgáfan á Akureyri hefur
gefið út nýja hljómplötu með
söng þeirra Jóhanns Konráðs-
sonar og Kristins Þorsteinsson-
ar, sem báðir eru þekktir borg-
arar á Akureyri. Þessi plata er
merkileg fyrir margra hluta
sakir. T.d. eru lögin með sam-
söng Kristins og Jóhanns einu
upptökurnar sem til eru með
þeim saman, en þau fylla aðra
hlið plötunnar. Á hinni hliðinni
er einsöngur Jóhanns og eru
elstu upptökurnar frá 1947, áður
en segulbandið kom til sögunnar
og raunar einnig áður en stál-
þráðurinn kom til. Upptökurnar
voru gerðar á svokallaðar lakk-
plötur. Þá var aðeins til eitt ein-
tak af hverri upptöku og var það
notað við útsendingar. Upptök-
urnar eru allar fengnar hjá Rík-
isútvarpinu, en þegar það eign-
aðist segulbönd, var hljóðritað
af lakkplötunum yfir á böndin.
Plöturnar höfðu þá að sjálf-
sögðu verið spilaðar mismun-
andi mikið, en hljómgæðin á
þessari plötu eru furðanlega
góð, enda hinar gömlu upptökur
búnar að fara í gegn um hreins-
unareld nútíma hljóðritunar-
tækni.
Jóhann Konráðsson og KHstinn Þorsteinsson tóku lagið fyrir Dagsmenn og Kristinn lék undir á pfanó.
Kristinn Þorsteinsson.
Á A-hlið plötunnar, sem ber
nafnið „Upp á himins bláum
boga,“ syngja þeir félagar saman
níu lög við undirleik Guðrúnar
Kristinsdóttur, píanóleikara, sem
er dóttir Kristins Þorsteinssonar.
Þessi lög voru hljóðrituð hjá Ríkis-
útvarpinu árið 1964. Þar er meðal
annars að finna lögin „Upp á him-
ins bláum boga,“ „Hríslan og læk-
urinn,“ „Kossavísur" og „Smala-
drengurinn,“ svo eitthvað sé nefnt.
„Við vorum saman í Geysi, þeg-
ar þetta var, en höfðum auk þess
æft saman heima með aðstoð
Guðrúnar, dóttur minnar. Þegar
upptakan var gerð vorum við á
söngferð fyrir sunnan og má eigin-
lega segja, að við höfum verið að
bíða eftir ferð til Selfoss, þegar við
ið með Karlakór Akureyrar á
hlaupum, þegar ég kom í land af
sjónum, og fengið svolitla tilsögn
hjá Sigurði Birkis," sagði Jóhann
Konráðsson í spjalli við Dag.
Einsöngslögin hans Jóhanns eru
á B-hlið plötunnar og þeirra á
meðal má nefna lögin „f fjarlægð,“
„Lindin“ og „Gígjan.“
Platan var kynnt á fundi með
fréttamönnúm á Akureyri á
fimmtudag í síðustu viku. Við það
tækifæri sagði Pálmi Stefánsson,
sem rekur Tónaútgáfuna og hefur
haft veg og vanda af því að þessi
plata varð til, að aðdragandi þessa
máls væri orðinn nokkuð langur,
því hugmyndinni um að koma
þessum gömlu hljóðritunum á
mikill „míkrófónn“ var notaður við
upptökuna. Maður varð að standa
svo til grafkyrr og mátti helst ekki
róta sér neitt, hvorki snúa sér til
hægri né vinstri, því þá fór upptak-
an út um þúfur. Nákvæmnin í
uppstillingunni var svo mikil, að
þegar menn voru orðnir ánægðir
með tóninn var strikað hvítt strik á
gólfið, og þar átti maður að hafa
tæmar.
Ég var þrítugur þegar þetta var
og þetta var fyrsta hljóðritunin með
mínum söng, en síðan eru þær
orðnar ansi margar. Ég var á ferð
með séra Pétri Sigurgeirssyni, vini
mínum, í Reykjavík til að syngja á
æskulýðssamkomum. Þórarinn
Guðmundsson, tónskáld og starfs-'
maður útvarpsins, lék undir og
hann sagði við mig, að nú færum
við bara niður á útvarp og tækjum
þetta upp. Það var svo FritzAVeiss-
happel sem lék undir 1 hljóðritun-
inni. Þegar þetta var hafði ég 'ang-
plötu hefði skotið upp kollinum
fyrir a.m.k. 4-5 árum.
Blaðamaður og ljósmyndari
Dags tóku ekki í mál að mynda þá
félaga nema þeir tækju lagið. Ekki
stóð á því; Kristinn settist við pía-
nóið á Hótel KEA, þar sem fund-
urinn var haldinn, og síðan sungu
þeir af krafti og næmleik nokkur
stef, — hafði ekkert farið aftur,
enda báðir syngjandi enn þann dag
í dag. Hvort þeir færu nú í diskó-
tekin til að kynna nýju plötuna,
eins og tíðkast í dag, svaraði Krist-
inn, að hann væri nú líklega orðinn
nokkuð gamall fyrir slíkt, hálfátt-
ræður maðurinn, enda vafasamt að
þessi tónlist ætti erindi á slíka
staði. „Söngmenn eru alltaf ung-
ir, Kristinn minn“, sagði Jóhann
þá, „þeir eldast aldrei, þeir bara
deyja.“ Að svo búnu kvöddum við
þessa öldnu, bráðhressu unglinga,
ogóskuðum þeim til hamingju með
nýju plötuna.
Jóhann Konráðsson.
Jóhann, Pálmi Stefánsson og Kristinn ræða um nýju plötuna.
Ljósmynd: K.G.A.
fórum niður á útvarp og tókum
þetta upp, svona að nokkru til að
eyða tímanum.
Upptakan sjálf gekk mjög vel og
þurfti sáralítið að endurtaka, enda
vorum við Jóhann búnir að syngja
töluvert mikið saman víðs vegar
um Norðurland, þegar þetta var,
auk þess sem við sungum saman
eftir þetta,“ sagði Kristinn í viðtali
við Dag. Hann sagðist hafa sungið
síðan hann man eftir sér, sagðist þó
efast um að hann hafi komið syn-
gjandi í heiminn. Hann hefur nú
sungið í kirkjukór í 60 ár og í
karlakómum Geysi síðan árið
1930. Hann hafði aðeins tvívegis
áður sungið í útvarpið, þegar sam-
söngur hans og Jóhanns var hljóð-
ritaður.
„Þetta var nú svolítið kúnstugur
útbúnaður, sem notaður var við
upptökurnar 1947. Tekið var upp á
lakkplötur og aðeins einn, stór og
Auðveldur sigur Þórs
gegn (sfirðingum
- og Þórsarar virðast nær öruggir með að
komast í úrslitakeppni 2. deildar
Á laugardaginn léku i annarri
deild í körfubolta Þór og ís-
firðingar. Kvöldið áður léku
ísfirðingar við Tindastól frá
Sauðárkróki, og sigraði
Tindastóll með tveimur stig-
um.
Leikur Þórs og ísfirðinga
byrjaði frekar illa, hittni var léleg
hjá báðum liðum, og mikið um
mistök leikmanna. Þegar leikið
hafði verið í fimm mínútur höfðu
Isfirðingar forustu með 12stigum
gegn 8, en fimm mín. síðar höfðu
Þórsarar náð fimm stiga forustu
og eftir það fór dæmið betur að
ganga upp hjá þeim og varð sig-
urinn þeirra, 69 stig' gegn 51, eftir
að staðan í hálfleik hafði verið 35
gegn 27 Þór í vil. Allir leikmenn
Þórs fengu að spreyta sig í þessum
leik, en oft vill það verða svo að
þjálfarar verða íhaldssamir á
innáskiptingar, og þrátt fyrir það
að leikurinn sé gjörsamlega
sigraður, leyfa þeir varamönnum
ekki að koma inná. Leikreynslu
öðlast enginn nema hann fái að
leika í alvöruleik. Eftir að Eiríkur
fór að finna körfuna í þessum leik
var hann frábær og skoraði alls 27
stig. Valdimar skoraði 16, Björn
8, Jón og Bjarni 4, og Einar
Þórður og Þórhallur 2 hver.
Dómarar voru Rafn Bene-
diktsson og Gunnlaugur Björns-
son og dæmdu þeir ágætlega.
Isfirðingar verjast Jóni Héðinssyni.
Haustmót IFA
Um helgina hélt íþróttafélag fatl-
aðra á Akureyri árlegt haustmót
sitt. Keppt var í boccía, borð-
tennis og bogfimi. Mót þetta var
haldið í tengslum við sjö ára af-
mæli íþróttafélagsins, en það átti
afmæli 7. desember. Úrslit í mót-
inu urðu þessi:
Boccia.
1. Hafdís Gunnarsdóttir.
2. Sigurrós Karlsdóttir.
3. Björn Magnússon.
Borðtennis.
1. Hafdís Gunnarsdóttir.
2. Rúnar Björnsson
3. Sigurrós Karlsdóttir.
Bogfimi.
1. Rúnar Björnsson
2. Aðalbjörg Sigurðardóttir
3. Hafliði Guðmundsson.
Þórsarar
með KA í
kennslustund
Á fimmtudagskvöldið léku Þór
og KÁ í haustmóti meistara-
flokks. Þessi lið höfðu ekki
mæst í opinberum leik fyrr á
þessum vetri, en KÁ leikur í
fyrstu deild en Þór í þriðju.
Þórsarar eru nú á toppi þriðju
deildar en KA á botni þeirrar
fyrstu.
Það er skemmst frá því að segja
að Þór vann stórsigur á fyrstu
deildar liðinu, en Þór skoraði 25
mörk en KA aðeins 17. Þá hafði
KA ekki skorað nema eitt mark
síðustu 15 minútur leiksins en á
þeim kafla gerðu Þórsarar sjö
mörk. KA menn létu mótlætið
fara í taugarnar á sér, og ekkert
gekk þeim í haginn. Stundum
stóðu einn eða tveir úr KA liðinu
og röfluðu við dómarana, meðan
Þórsarar dunduðu sér við að
skora. Leikur KA olli miklum
vonbrigðum þar sem miklar
kröfur eru gerðar til liða sem
leika í fyrstu deild í íslenskum
handknattleik.
Sóknarleikurinn var máttlaus
og vömin í molum. Eini maður-
inn sem hélt höfði i KA liðinu var
Magnús Birgisson, en hann gerði
m.a. falleg mörk úr homunum og
skoraði alls 4 mörk. Guðjón var
markhæstur hjá Þór með 8 mörk,
en hann ásamt Áma Gunnarssyni
voru bestir Þórsara.
Eirikur sendir boltann i körfu tsfirðinga. Ljósm. KGA.
6 - DAGUR - 8. desember 1981
8. desember 1981 - DAGUR • 7