Dagur - 17.12.1981, Side 4
IMá3W
Útgefandl: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skriffitofur: Hafnarstræti 90, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 21180
Simi,auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaöamenn: Askell Þórisson,
Gylti Kristjánsson
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
I tilefni
jóla
„Griður verður ekki undirbúinn
með ófriði. Ást verður ekki
framkölluð með hatri. Réttlæti
verður ekki komið á með heift.
Friður, þannig til kominn er
falskur og hættulegur“. Þannig
kemst séra Hjálmar Jónsson á
Sauðárkróki að orði í jólahug-
vekju sem birt er í jólablaði
Dags. Hjálmar segir ennfremur:
„Meinsemdin liggur dýpra.
Vígbúnaðaræðið er heimsku-
legt og viti firrt. En það er ekki
ieikur nokkurra stjórnmála-
manna, heldur mannkynsins
alls. Þeir sem nú krefjast friðar
gera það á röngum forsendum.
Þeir hafa sjálfir ekki nokkurn
frið í sínum beinum. Mennirnir
verða sjálfir að umbreytast inn-
an frá.
Það sem veldur ófriðnum er
tortryggni, ótti, kvíði, öfund,
hroki og hatur, svo nokkuð sé
nefnt af meinum mannsins. Þau
stafa aftur af því, að hann hefur
misst sambandið við höfund
sinn. Hann reynir að leysa mál
sín einn og óstuddur. En
lausnir hans eru dæmdar til að
mistakast, því hann er frið-
laus“.
Síðar í hugvekju sinni um
friðinn segir séra Hjálmar
Jónsson: „Gerum það að bæn
okkar á komandi jólum, að
Kristur fái að lýsa innra með
okkur. Þiggjum þá náðargjöf,
sem hann er fús að veita af
gefandi kærieika sínum. Og
hversu mikill sem ófriðurinn í
kringum okkur annars er, þá
eigum við innri frið, því að við
erum í sátt við skapara okkar
og frelsara“.
Dagur þakkar lesendum sfn-
um og velunnurum um allt land
samstarfið á árinu.
Gleðileg
jóll
4 - DAGUR - 17. desember 1981
Er óskandi að veðurfar verði
okkur hliðhollara á næsta hausti.
K.R.A. vill þakka öllum þeim
er gerðu Firmakeppnina mögu-
lega og vonar að sem flestir hafi
„ ... haft nokkuð gaman af.
Knattspyrnuráð Akureyrar heldur Akur- Keppt verður í yfir lOflokkumogbúastmá Að lokum vilj ráðið færa sér.
eyrarmót f innanhússknattspymu í við sem áður jafnri og spennandi keppni. stakar þakkir til Hauks Torfa-
fþróttaskemmunni dagana 28. og 29. des- Skorar ráðið á sem flesta að mæta og hvetja SOnar er með óeigingjörnu starfi
ember n.k. og hefst keppnin kl. 17.00 báða sínamenn. lagði mikið að mörkum til að-
dagana. stoðar starfi K.R.A. á árinu.
AKUREYRARMÓT I
INNANHÚSSKNATTSPYRNU
TAP
OG
SIGUR
HJÁ
Gunnar Kárason og Elmar Geirsson með grípinn góða. Ljósm. Reynir Eiríksson.
KA hlaut „Dragon<£
styttuna í ár
Á hverju ári er því liði í 1. og 2. deild fs- mannlegustu knattspyrnuna í 1. og 2. deild
landsmótsins í knattspymu sem fæst refsistig veitt styttan, og kom það í ár í hlut Elmars
hlýtur í mótinu veitt hin svokallaða „Dragon Geirssonar fyrirliða KA að veita styttunni
stytta“, en styttu þessa gaf franskur maður viðtöku. KA hlaut sem sagt fæst refsistig, en
fyrir nokkrum árum. Þórsarar komu í 2. sæti.
Sem fyrr sagði er því liði sem leikur prúð-
Skíðagöngumenn
keppa í Kjarna
- Mótið m.a. úrtökumót fyrir H.M.
Um næstu helgi verður keppt í skíðagöngu í
Kjarnaskógi og verða allir bestu göngumenn
KA GEGN
VÍKINGUM
íslandsmeistarar Víkings í handknattleik
leika gegn KA í íþróttaskemmunni á
Akureyri í kvöld, og hefst viðureign liðanna í
1. deild íslandsmótsins kl. 20. Sem kunnugt
er hlutu KA-menn sín fyrstu stig um síðustu
helgi er þeir sigruðu HK úr Kópavogi, en
hætt er við að róðúrinn verði þyngri gegn
meisturunum í kvöld.
KA með
jólaskemmtun
Hin árlega jólatréskemmtun KA fer að þessu
sinni fram í Sjálfstæðishúsinu, og hefst kl. 14,
2. dag jóla.
landsins meðal þátttakenda. Fyrir mótinu
standa Skíðasamband íslands og Skíðaráð
Akureyrar. Mót þetta er m.a. úrtökumót
vegna Heimsmeistaramótsins sem fram fer í
Noregi í febrúar n.k.
Keppt verður i flokkum 17-19 ára og 20 ára
og eldri. Á laugardag 19. des. kl. 13.30 verður
keppt í 10 km. göngu. Annað göngumót
hliðstætt þessu verður svo haldið 9. og 10.
janúrar n.k.
Þegar nægur snjór er í Kjarnaskógi er
gönguaðstaða þar mjög góð, lands-
lagið fjölbreytt og fallegt, upplýst braut á
kvöldin, brautir troðnar með nýjum snjó-
sleða, sem skógræktin hefur nýlega fest kaup
á og aðstaða er til að bera á skíði í upphituðu
húsi rétt við göngubrautina.
Með þessum göngumótum sem nú verða
haldin vill Skíðaráð Akureyrar og Skógrækt-
arfélagið vekja athygli almennings á þessari
ágætu aðstöðu og hvetja fólk til að notfæra
sér göngubrautina.
ÞÖR
Þór lék um helgina tvo leiki i
þriðju deildinni i handbolta.
Fyrri leikurinn var við ögra og
þann leik sigruðu Þórsarar
örugglega með 32 mörkum
gegn 13. Að sögn Amars Guð-
laugssonar þjálfara Þórs var
þarna um algjöra einstefnu að
ræða, og mótspyrnan nánast
engin. Þess má geta að leik-
menn ögra em nýliðar í hand-
boltanum og eru allir heymar-
skertir.
Síðari leikurinn var svo gegn
Ármanni sem ásamt Þór hefur
verið á toppi deildarinnar. Þórs-
arar unnu Ármenninga nokkuð
auðveldlega í fyrri leik liðanna,
en í þessum leik hefndu Ár-
menningarnir ófaranna frá fyrri
leiknum og unnu nokkuð auð-
veldan sigur 24 mörk gegn 19.
Staðan í hálfleik var 12 gegn 8
Ármanni í vil. Arnar sagði að
nokkurrar taugaspennu hefði
gætt hjá leikmönnum Þórs fyrir
þennan leik. „Við vorum með af-
brigðum óheppnir,“ sagði Arnar.
Eftir þetta tap hjá Þór er staðan
í þriðju deild orðin mjög spenn-
andi, en þrjú lið, Þór, Ármann og
Grótta hafa öll tapað þremur
stigum. Þór gerði jafntefli við
Gróttu fyrr í vetur, og hefur nú
lokið báðum leikjum sínum við
Ármann. Þá er einnig möguleiki
að Akranes og Keflavík geti tekið
stig af einhverjum þessara liða.
JC-mót í
lyftingum
JC-mót í lyftingum verður haldið
laugardag kl. 14 í Glerárskóla.
Meðal keppanda eru gestir að
sunnan og má nefna þá Guð-
mund Sigurðsson og Þorkel Þórs-
son.
HIBÝLI
SIGRAÐI
Firmakeppni Knattspyrnuráðs
Akureyrar lauk laugardaginn
5. desember s.l.
Sigurvegari varð lið Híbýlis er
vann lið Otgerðarfélags Akureyr-
inga í úrslitaleik 4-1.
Eru þeir vel að sigrinum
komnir því þeir töpuðu ekki leik í
keppninni og með markahlutfall
15:5 í 6 leikjum.
Alls voru 25 leikir í keppninni
er hófst 17. september og er því
búin að standa í tvo og hálfan
mánuð.