Dagur - 17.12.1981, Blaðsíða 10
I.O.O.F. 2 — 16212188 '/: —
jólaf.
□ RÚN 598112207 —jólaf.
Hjálpræðisherinn — Hvanna-
völlum 10: Sunnudag 20. des-
ember kl. 13.30 sunnudagaskóli
fyrir börn. Kl. 17 almenn sam-
koma, „Við syngjum jólin í
garði“. Yngriliðsmenn sýna
leikþátt, mikill söngur. Allir
velkomnir. (Sjá jóladagskrá í
jólablaðinu).
Fíladelfía Lundargötu 11. Jóla-
dagssamkoma kl. 17,00.
Sunnudagur 27. Samkoma kl.
17,00, allir velkomnir. Mánu-
dagur 28. Jólahátíð sunnudaga-
skólans kl. 15,00. Gamlársdag-
ur. Vitnisburðarsamkoma kl.
20.30. Nýjársdagur, samkoma
kl. 17,00. Allir velkomnir.
Kristniboðshúsið. Zfon: Hátíð-
arsamkomur. Jóladag kl. 20.30.
Ræðumaður Guðmundur Ó.
Guðmundsson. Nýársdag kl.
20.30. Ræðumaður Jón Viðar
Guðlaugsson. Allir hjartanlega
velkomnir.
Byggja barna-
heimili á
Ólafsfirði
Vinna er hafin við innréttingu
nýs barnaheimilis á Ólafsfirði.
Að sögn Svandísar Júlíusdóttur,
forstöðukonu heimilisins, er
gert ráð fyrir að nýja húsið
verði tilbúið í vor. Það stendur
við Ólafsveg og er hið glæsileg-
asta hús. Svandís sagði að þar
yrði pláss fyrir um það bil 40
böm á tveimur leikskóladeild-
um.
Gamla barnaheimilið eryfirfullt
og er langur biðlisti við það. Þegar
það nýja verður tekið í notkun mun
biðlistinn hverfa. Núverandi
bamaheimiler allsendis ófullnægj-
andi og sagði Svandís að það héldi
hvorki vatni né vindi.
Nýja húsið er byggt eftir sams-
konar teikningu og Lundarsel á
Akureyri. Að vísu er það heldur
minna í sniðum, en er hægt að
stækka eftir því sem þörfin eykst.
Aðventukvöld
í Stórutjarnaskóla
20. desember
Sunnudagskvöldið 20. desember
verður aðventukvöld í Stóm-
tjarnaskóla á vegum Æskulýðs-
félags Hálsprestakalls.
Meðal efnis á aðventukvöldinu
má nefna söng ungra barna undir
stjóm Ingu Hauksdóttur organista,
— einsöngur Hólmfríðar Bene-
diktsdóttur skólastjóra Tónlistar-
skólans á Húsavíic, — jólasaga
verður lesin og jólakvæði flutt. Sr,
Björn H. Jónsson sóknarprestur á
Húsavík mun flytja frásögu af
gömlum jólasiðum, og Björg Áma-
dóttir og Inga Hauksdóttir munu
leika saman á orgel og þverflautu.
Að síðustu verður ljósahelgileikur,
þar sem stúlkur úr æskulýðsfélag-
inu lesa og syngja. Sóknarprestur-
inn sr. Pétur Þórarinsson mun þar
flytja stutta jólahugverkju.
Aðventukvöldið í Stórutjarna-
skóla hefst kl. 21.00 og er ætlað
bæði ungum sem eldri.
Frá Kjörmarkaði
K.E.A., Hrísalundi
Til jólanna:
Marineruð lambalæri
* Fyllt lambalæri
* Fylltur lambabógur
* Marineraður lambabógur
+ Marineraðar grillkótelettur
* Nautasnittsel
^ Nautafile
* Roastbeef
* T-beinstelk
* Beef-A-LA-MODE,
eftir pöntunum
i Fylltar svínakótelettur
m/sósu ísklnku
* Svínakjöt,
nýtt, reykt og úrbeinað
* Folaldakjöt,
nýtt, saltað og reykt
* Hangikjöt,
úrbeinað og m/beini
* Rjúpur,
hamflettar og splkdregnar
+ Lundi, nýr og
^ Gæsir
* Hrásalat
+ Rækjusalat
* Ávaxtasalat
+ Sfldarsalat
Gjörið svo vel
að líta inn!
Kjörmarkaður
K.E.A., Hrísa-
lundi
Frá söngfélaginu
Gígjunni
Orðsending til þeirra sem
vilja gefa vandaða jólagjöf:
Við minnum ykkur á plötuna okkar.
Á henni eru íslensk og erlend lög við undirleik
Guðrúnar Kristinsdóttur undir stjórn Jakobs
Tryggvasonar.
Söngfélagið Gígjan.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem við andlát og útför
MAGNÚSAR JÚLÍUSSONAR
Sunnuhvoll
hafa vottaö minningu hans virðingu og auðsýnt okkur vinsemd
og kærleika með blómum, bréfum, skeytum, minningargjöfum
eða á annan hátt.
Guð blessi ykkur öll.
Þuríður Jónsdóttlr,
börn, tengdabörn og barnabörn.
BeLnskgytt og
skemmnleg plata
BÖOVAR
GUDMUNDSSON
þaóepengin
þönfaókvarta
10 - DAGUR -’17. désémbét' 'véU'i'