Dagur - 17.12.1981, Qupperneq 12
ONY-FLEX
VATNSKASSAHOSUR
Akureyri, fimmtudagur 17. desember
Á aðfangadagsmorguninn klukkan 9.05 verður fluttur óska-
lagaþáttur í útvarpinu. Þátturinn nefnist: Með kærri kveðju. Í
þættinum munu börn frá Akureyri senda jólakveðjur til vina og
ættingja, og leikin verða jólalög af hljómplötum. Stjórnandi
þáttarins er Heiðdis Norðfjörð. Þessi mynd var tekin er hljóð-
ritun fór fram. Sitjandi frá vinstri: Halldór Jóhannsson,
Svanhildur Björgvinsdóttir, Jóhann V. Gunnarsson og Logi
Ragnarsson. Standandi frá vinstri: Hrönn Aðalheiður Bjöms-
dóttir, Heiðdis Norðfjörð og Sigriður Margrét Jónsdóttir.
Mynd: á.þ.
Hlíðarfjall:
OPIÐ UM HÁTtDARNAR
Tónleikar
fyrir alla
Strengjasveitir Tónlistarskólans á
Akureyri halda Jólatónleika sina á
fimmtudaginn 17. des. kl. 8.30 e.h. i
Akureyrarkirkju.
Strengjasveitirnar hafa æft síðan
í haust undirstjórn Olivers Kentish
og Hrefnu Hjaltadóttur. Á efnis-
skrá verða stutt verk eftir m.a.
Mozart og Satie ásamt hinu fræga
verki Albinonis, „Adagio" fyrir
orgel og strengi. Yngri nemendur
nrunu einnig flytja Jólasyrpu útsett
af Robert Bezdek.
Einleikarar að þessu sinni verða
Árni Hilmarsson (orgel) og Sigrún
Viktorsdóttir (þverflauta).
Bæjarbúar eru hvattir til þess að
styðja þetta unga tónlistarfólk með
því að fjölmenna á tónleikana sem
eru jafnt fyrir unga sem aldna. Að-
gangur er að sjálfsögðu ókeypis.
LEIKFÉLAG
AKUREYRAR:
„ÞRJÁR
SYSTUR“
Þessa dagana á sér stað spenn-
andi vinna í leikhúsinu á Akur-
eyri, eins og reyndar alltaf þegar
byrjað er á nýju góðu verkefni.
Leikararnir eru að taka sín fyrstu
spor á fjölunum í skemmtilegum
hlutverkum í hinu snilldar vel
skrifaða leikverki. Og nú hef-
ur L.A. fengið 4 unga leikara að
sunnan til liðs við sig. Þessir nýju
liðsmenn félagsins eru, Ragnheiður
Arnardóttir, Ingibjörg Björnsdótt-
ir. Guðjón Pedersen og Þröstur
Guðbjartsson.
Þegar í sumarbyrjun var ákveðið
að „Systurnar" yrðu fyrsta verk-
efnið á nýju ári og má segja að þar
með hefjist forvinnan a.m.k. fyrir
leikstjóra og leikmyndateiknara.
Að ráði Kára Halldórs og undir
hans leiðsögn eyddu allir aðstand-
endur sýningarinnar hér vikutíma í
endaðan ágúst, til að skoða verkið
og kynnast hvert öðru og ber leik-
urunum saman um það hafi lukk-
ast mjög vel og sé góður undirbún-
ingur fyrir æfingatörnina.
Það þarf mikið átak og mikla
bjartsýni fyrir litið leikfélag að
taka tvö jafn viðamikil leikverk og
„Jómfrú Ragnheiði“ og „Þrjár
systur" á sama leikárinu.
Allir vita hversu vel til tókst með
„Jómfrúna" og sýndi tala leikhúss-
gesta að þeir kunnu vel að meta
vel unna og heiðarlega sýningu,
jafnvel þó að efni hennar vekti
trega en ekki hlátur.
GRAFIK-
SÝNING
TIL JÓLA
Sýning 6 grafiklistamanna að
Klettagerði 6 sem staðið hefur
yfir frá 5. desember fer nú senn
að Ijúka, en síðasti sýningar-
dagur er þann 23. desember.
Á sýningunni eru alls 45 myndir
og eru þær til sölu. Sýningin þykir
vera mjög góð, og er því full ástæða
til þess að hvetja alla til þess að láta
hana ekki framhjá sér fara.
Nú er nægur góður skíðasnjór í
Hlíðarfjalli. Um næstu heigi
verða lyfturnar opnar kl. 10-16,
einnig mánudag, þriðjudag og
miðvikudag. Um jólin verður
lokað.
Sunnudaginn 27. verður opið kl.
10-16 og alla daga fram að gaml-
ársdegi. Lokað verður gamlársdag
Um þessar mundir ganga undir-
skriftarlistar víða á vinnustöðum,
þar sem er að finna félagsmenn í
verkalýðsfélaginu Einingu. Á list-
unum er skorað á Guðmund Sæ-
Jón. Guðmundur.
Byggingavörudeild Kaupfélags
Húnvetninga hefur flutt í nýtt
og stærra húsnæði. Eftir flutn-
inginn verður deildin mun betur
í stakk búin til að sinna þörfum
íbúa Blönduóss. Vöruflokkum
hefur verið fjölgað og einstök-
um vörutegundum meiri sómi
sýndur — t.d. með betri útstill-
ingu.
Hávarður Sigurjónsson, deildar-
stjóri, sagði að gamla húsnæðið
hefði verið um 100 fermetrar, en
og nýjársdag en opið kl. 10-16
rneðan frí er í skólum fyrstu dagana
í janúar. Stefnt er að því að hafa 3
lyftur í gangi þessa daga, Stóla-
lyftu, Stromplyftu og Hólabraut.
Þá verður einnig troðin göngu-
braut.
í Kjarnaskógi verður göngu-
brautin troðin daglega gerist þess
þörf.
mundsson til að bjóða sig fram til
formanns, en framboðsfrestur.
rennur út í næsta mánuði og gert er
ráð fyrir að kosningin verði í byrjun
febrúar. Ef Guðmundur ákveður
að verða við tilmælum þeirra sem á
listana skrifa verða tveir menn í
kjöri til formanns, þ.e. Jón Helga-
son, núverandi formaður, og Guð-
mundur Sæmundsson. Samkvæmt
heimildum Dags er það ætlun
stuðningsmanna Guðmundar að
bjóða Reyni Helgason, starfsmann
Ú.A., fram sem varaformann.
það nýja er hvorki meira né minna
en 500 fermetrar. Nýja deildin er
viðbygging við aðalverslunina.
„Nú verður allt á sama stað, en það
má segja að við höfum verið með
vöruflokkana út um hvippinn og
hvappinn. Nú verðum við með
dúka og teppi og við tökum líka
sportvörur, reiðhjól og hljómflutn-
ingstæki,“ sagði Hávarður.
Fram til þessa hafa þrír starfs-
menn verið í byggingavörudeild-
inni, en Hávarður gerði ráð fyrir að
þeim yrði fjölgað um einn.
Um næstu helgi verður göngu-
mót í Kjarnaskógi. Allt þetta mið-
ast við að veður verði skikkanlegt.
Verði veður og snjór um hátíðarnar
líkt og nú síðustu dága er ástæða til
að hvetja alla til að fara á skíði.
% Hættulegt
að hjóla
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar er talsvert um að
börn séu að reyna að hjóla á
götum bæjarlns. Lögreglu-
þjónn sagði t.d. að það skap-
aðl stórhættu þegar börnin
væru að hnoðast áfram á hjól-
unum í slæmri færð í skamm-
deginu, og það sem verra væri,
oft væru hjólin Ijóslaus og
því vanbúin til notkunar í
myrkri.
Lögregluþjónninn hvatti for-
eldra og forráðamenn barna og
unglinga að beita sér fyrir því,
að hjólin væru höfð helma í
kjallara og ekki notuð fyrr en
nokkuð væri liðið á nýtt ár.
Ungur
píanóleikari
í Borgarbíói
örn Magnússon píanóleikari
heldur tónleika í Borgarbíói n.k.
laugardag kl. 17.
■ Örn kemur frá Manchester þar
sem hann stundar framhaldsnám á
píanó hjá Georg Hdjinikos. Örn
lauk 8. stigs prófi á píanó frá
Tónlistarskólanum á Akureyri vor-
ið 1979, og var Soffía Guðmunds-
dóttir píanókennari hans. Sama vor
lauk hann stúdentsprófi frá M.A.
Næsta vetur stundaði Örn fram-
haldsnám við Tónskóla Sigursveins
í Reykjavík, en jafnframt kenndi
hann við sama skóla. Síðan þá hef-
ur Örn dvalið á Englandi. Öm hef-
ur komið fram á tónleikum og hélt
tónleika í Norræna Húsinu ásamt
Óðni G. Óðinssyni flautuleikara
vorið 1980.
Einnig flutti Örn píanókonsert í
D-dúr' eftir Haydn á tónleikum
með hljómsveit Tónskóla Sigur-
sveins í Reykjavík og hljómsveit
Tónlistarskólans á Akureyri vorið
1980. örn hlaut styrk úr Minning-
arsjóði Þorgerðar fyrir frábæra
námsframmistöðu við Tónlistar-
skólann á Akureyri.
Á efnisskrá Arnar verða prelúdí-
ur og fúgur eftir Bach, sónata eftir
Schubert, polonaise og impromptu
eftir Chopin og tilbrigði við stef
Schumanns eftir Brahms.
Fólk er hvatt til að slaka á I jóla-
annríkinu og að hlýða á tónleikana.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn.
§ Tímamótí
samningagerð
í síðasta tölublaði var fyrirhug-
aður samnlngur rlkisins og
heimamanna birtur í heild og í
framhaldi af því væri rétt að at-
huga hvað hreppsnefnd
Blönduósshrepps hafði að
segja um hann:
.....er Ijóst að samnlng-
urinn markar tímamót ( samn-
ingagerð milli landeiganda og
opinberra aðila, verður stefnu-
markandl fyrir aðra slíka
samninga og kemur í veg fyrir
að þeim kosti, sem verstur er,
verði beitt — það er að landið
verði tekið eignarnámi án þess
landeigendur verði spurðir um
eitt eða neitt.“
verður til afgreiðslu
f rá og með 19. des.
• •
Olumboðið Hafnarstræti 86 Sími 22941
Verða tveir um
formannssætið?
Blönduós:
Byggingavöru-
deildin flytur