Dagur - 12.01.1982, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
65. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 12. janúar 1982
3. tölublað
Er flotanum lagt vegna fisk-
verðs sem ekki er farið eftir?
— því er haldið fram, að ekki sé fyrr búið að semja um nýtt fiskverð,
en yfirborganir hefjist á Suður- og Vesturlandi
Til hvers er verið að karpa um
fískverðsákvörðun, þegar ekk-
ert er farið eftir henni á vertíð-
arsvæðinu fyrir sunnan og
vestan? Er ekki að bera í bakka-
fullan lækinn, að leggja flot-
anum vegna deilna um físk-
verð, ef ekkert er síðan farið
eftir þessu fískverði? Þess-
um spumingum er hér varpað
fram, vegna þess að tíðkast hef-
ur að fískverkunarfyrirtæki á
Suður- og Vesturlandi yfírborgi
afla, einkum sem fer í skreið og
salt, samkvæmt þeim upplýs-
ingum, sem Dagur hefur aflað.
Eigendum báta á Norðurlandi
hefur verið boðið upp á yfír-
borganir, séu þeir tilbúnir til að
koma í viðskipti. Gjarnan er
þetta gert með því að greiða
fyrir allan físk eins og væri hann
í fyrsta flokki.
Aðalgeir Olgeirsson, útgerð-
armaður á Húsavík, sagði í viðtali
við Dag, að þessar yfirborganir
hefðu ekki aðeins þær afleiðingar,
að bátarnir fyrir norðan hættu að
afla fyrir sínar heimabyggðir,
heldur skekkti þetta einnig allar
forsendur, sem notaðar væru til
útreiknings fiskverðsins.
Hann sagði, að vegna þessara
yfirborgana liti svo út, sem staða
bátaflotans í heild væri betri en
hún í raun væri og staða fisk-
vinnslunnar að sama skapi verri.
Þetta kæmi verst við þá sem „að-
eins“ gerðu út báta, en væru ekki
jafnframt með fiskverkun.
„Það þarf ekki að fjölyrða um
það, hvaða áhrif þetta hefur á
þeim stöðum, þar sem greitt er
fyrir afla eftir matsverði. Fisk-
verðið er ákveðið með hliðsjón af
afkomu veiða og vinnslu í heild
yfir allt landið. Betri afkoma
bátanna fyrir sunnan og vestan,
vegna þessara yfirborgana, skerð-
ir því í rauninni afkomu hinna.“
Aðalgeir sagði, að m.ö.o. væru
forsendur hins opinbera og hags-
munaaðila, sem ákveða fiskverð-
ið, rangar þegar staða útgerðar-
innar væri reiknuð út. Hann sagði
að útgerð á Norðurlandi eystra
bæri þess merki að rangt væri að
staðið og benti í því sambandi á
ástandið á Raufarhöfn, þar sem
bátaútgerð virðist vera að leggjast
niður, eins og skýrt hefur verið frá
í Degi.
„Það er spurning hvort verið sé
að karpa og leggja flotanum fyrir
fiskverð, sen) aðeins, Iítið brot af
vertíðarflotanum þarf að búa við.
Ef svo er, er vissulega um alvar-
legt mál að ræða,“ sagði Aðalgeir
að lokum.
Forval framsóknarmanna:
Allir þeir sem
eru félagar
25. janúar nk.
geta tekið þátt
Eins og fram kom í síðasta
Degi, hefur fulltrúaráð Fram-
sóknarfélags Akureyrar ákveð-
ið að efna til forvals fyrir bæjar-
stjómarkosningar í maí. For-
valið verður leiðbeinandi fyrir
uppstillingarnefnd, sem mun
annast framkvæmd þess.
Allir þeir sem eru félagar í
Framsóknarfélagi Akureyrar 25.
janúar, en þá lýkur forvalinu,
geta tekið þátt í því. Þeir sem ekki
eru félagsbundnir Framsóknar-
menn í dag, en vilja hafa áhrif á
framboðslistann til næstu bæjar-
stjórnarkosninga, geta gengið í
félagið með því að snúa sér til
skrifstofu Framsóknarfélags Ak-
ureyrar að Hafnarstræti 90 og
starfsmaður flokksins, Snorri
Finnlaugsson, mun taka við inn-
tökubeiðnum.
Fólk er hvatt til að hafa sam-
band við skrifstofuna, ef það ósk-
ar nánari upplýsinga um forvalið,
en síminn þar er 21180. Nánar
verður gerð grein fyrir reglum,
sem gilda eiga um forvalið, síðar.
Slökkvilið Akureyrar var kallað út sl. sunnudagskvöld en kviknað hafði í íbúð í raðhúsinu nr. 10 við Furulund. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Slökkviliði Akureyrar er íbúðin gífuriega mikið skemmd. íbúðin er á jarðhæð og íbúð á ann-
arri hæð skemmdist einnig töluvert, m.a. sprungu gler í gluggum og svalarhandrið sviðnaði og þakskegg sömuleiðis.
Eins og sjá má á myndinni er fátt heillegt í íbúðinni. Mynd: áþ.
Ódrengilegt að reyna að afla fylgis með því að nota:
Dylgjur og rakalausar fullyrðingar
— segir í yfirlýsingu frá stjórnarmönnum í Einingu og formönnum deilda félagsins
Stjórnarmenn í Einingu, nema
formaður og Guðmundur
Sæmundsson og formenn
Ólafsfjarðar-, Dalvíkur-, Hrís-
eyjar- og Grenivíkurdeildar fél
agsins hafa sent frá sér undirrit-
aða yfirlýsingu, þar sem svarað
er „dylgjum og rakalausum
fullyrðingum“ Guðmundar
Sæmundssonar, en hann hyggst
sem kunnugt er gefa sig fram tH
formannskjörs í Einingu.
í yfirlýsingunni segir m.a.:
„Það er ekkert nema gott um
það að segja að fólk hafi tækifæri
til að velja í þessu tilfelli um for-
ystu verkalýðsfélagsins Einingar,
milli lista trúnaðarmannaráðs fél-
agsins og lista Guðmundar Sæ-
mundssonar, en það er ódrengi-
legt að reyna að afla sér fylgis með
dylgjum og rakalausum fullyrð-
ingum, en það er einmitt það sem
við teljum að Guðmundur Sæ-
mundsson geri í grein sinni.
Það er órökstudd fullyrðing að
segja að forysta félagsins vinni á
„einræðislegan" hátt. Stjórn fél-
agsins vinnur eftir lögum þess, en
þau hafa verið samþykkt á félags-
fundum af meirihluta fundar-
manna. Lagabreytingatillögur GS
komu einnig fyrir félagsfund og
voru afgreiddar þar á lýðræðisleg-
an hátt. Ennþá, að minnssta
kosti, telst það lýðsæðisleg
ákvörðun þegar meirihlutinn
ræður.“
í yfirlýsingunni er síðan svarað
fullyrðingum Guðm. Sæmunds-
sonar. Segir þar m.a. að vafa-
laust hafi vegið þyngst á metun-
um, þegar listakosning var valin
sem leið til kjörs í trúnaðarstöður,
að félagið sé mjög stórt, spanni
yfir stórt svæði og margar og ólík-
ar starfsgreinar. Þá séu það engir
afarkostir, að þurfa 3,3 prósent
félagsmanna á bak við lista til
breytinga á forystu félagsins.
Athyglisvert er að formenn
allra deildanna undirrita þessa
yfirlýsingu, en Guðmundur talaði
m.a. um „ofríki gagnvart deildum
félagsins“. Um samningamálin
sagði Guðmundur að forusta fél-
agsins væri tilbúin til að éta ofan í
sig kröfugerð félagsins og ýmis
stór orð, en því er svarað á þann
hátt, að bráðbirgðasamningarnir,
sem GS eigi sennilega við, hafi
verið afgreiddir með lýðræðisleg-
um hætti á almennum félagsfundi.
Svo mikil tengsl hafi forystan
a.m.k. haft við félagsfólk, að hún
hafi gert sér grein fyrir því, að fólk
hafi ekki verið tilbúið til stórátaka
í desember og yfirvofandi hafi
verið verkfall hjá sjómönnum frá
áramótum, þó Guðmundur Sæ-
mundsson hafi verið tilbúinn til
aðgerða.
Undir yfirlýsinguna skrifa allir
stjórnarmenn, nema Jón Helga-
son og að sjálfsögðu Guðmundur
Sæmundsson, svo og formenn
allra deildanna, eins og áður
sagði.