Dagur - 12.01.1982, Blaðsíða 10

Dagur - 12.01.1982, Blaðsíða 10
zSmáauelvsinear RifnPÍAin Taunus 20M árg. 1969 tíl sölu. Bíll í mjög góöu lagi. Uppl. í Bólstrun Björns Sveinssonar, Strandgötu 23, sími 25322. Mazda 929 station, árg. 1979, ek- inn 23 þús. km. meö útvarpi, sumar og vetrardekk. Uppl. gefur Stefán Þórhallsson í síma 44185 og á vinnustað í síma 44182. Bifreiöin A-4746 sem er Fíat 131 Mirafiori CL 1300 árg. 1978 er til sölu. Ekinn 30.000 km. í mjög góðu ásigkomulagi. Skipti á ódýrara. Uppl. í síma 25889 eftir kl. 17.00. Mazda 323 árg. 1980 sem nýr, ek- inn 12 þús. km, til sölu. Einnig Vauxall Viva árg. 1975 í góðu lagi. Allar uppl. í síma 21058 á kvöldin. Húsnædi Iðnaðarhúsnæði óskast til leigu, 50-100 fm. Margt kemur til greina. Uppl. í síma 22789. Atvinna 24 ára stúlka óskar eftir atvinnu, fyrri hluta dags. Uppl. í síma 21910. Ung stúlka með stúdentapróf, óskar eftir vinnu á skrifstofu hálfan daginn. Uppl. í sima 23302. Ýmisleöt Stór gulbröndóttur högni hefur tapast. Hvítur á hálsi og bringu. Uppl. í síma 22936. Failegir kettlingar fást gefins. Uppl. í síma 22307. Bændur, hestamenn. Tapast hef- ur úr högum hestamannafélagsins Léttis rauður, glófextur hestur á fimmta vetri. Hesturinn er með mikið tvískipt fax og síðan ennist- opp. Klippt er í síðu hans númerið 26. Mark bitið framan vinstra. Uppl. í síma 21313. Sala Sjónvarp (s.h.), til sölu, einnig góður barnavagn. Uppl. í síma 24339. Onkyo plötuspilari og kraft- magnari til sölu, einnig Sonics hát- alarar. Uppl. í síma 22766. Evenrude snjósleði, 30 hö. til sölu. Uppl. gefur Jósef í sima 43186. Oliumálverk, verð frá kl. 200 til sölu. Fallegar myndir. Uppl. í síma 25717. Ámoksturstæki á Zetor, til sölu, 60 og 70 hestafla vélar. Uppl. i síma 33162. YamahaYZ125 árg. 1979 mótor- krosshjól til sðlu. Uppl. í síma 21439, milli kl. 18 og 19. Skidu blissard vélsleði árg 1981 til sölu. Uppl. í síma 41281. Sem nýr Kawasaki Invader 340 snjósleði til sölu, lítið ekinn. Uppl. ísima 21071 milli kl. 18og20. Möðruvallakla ust ursprestakall: Barnaguðsþjónusta í Möðru- vallakirkju nk. sunnudag kl. 11.00 fh. Sóknarprestur. Akureyrarprestakall. Messað verður í Akureyrarkirkju nk. sunnudagkl. 2e.h. Sálmarnr. 17, 114, 113, 335,529, B.S. Messað verður í Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri nk. sunnudag kl. 5 e.h. Þ.H. jMrirvv/t’iuiv Fíiadelfía. Þriðjudagur 12.1.'82. Bænasam- koma kl. 20.30. Fimmtudagur 14.1 .'82. Biblíu- lesturkl. 20.30. Sunnudagur 17.1. ’82. Sunnu- dagaskóli kl. 11.00. Sunnudagur 17.1.'82. Vakninga- samkoma kl. 17.00. Allireru hjartanlega velkomnir. Fíladelfía, Lundargötu 12. Kristniboðshúsið Zíon: Sunnudaginn 17. jan. Sunnu- dagaskóli kl. 11.00. Öll börn velkomin. Samkoma kl. 20.30. Ræðumaður Björgvin Jörgensen. Allir velkomnir. Spilavist verður í Alþýðuhúsinu fimmtudaginn 14. janúar kl. 20.30. Góð verðlaun. N.L.F.A. Brúðkaup: Hinn 31. desember sl. voru gefin saman í hjónaband í Kópavogs- kirkju, Hulda Gunnlaugsdóttir hjúkrunarfræðingur, Birkigrund 57, Kópavogi og Ólafur Örn Har- aldsson bankastarfsmaður, Klappastíg 1, Akureyri. Heimili þeirra verður að Birkigrund 57, Kópavogi. Borgarbíó sýnir í kvöld kl. 21, bandarísku myndina „Saint Jack“ sem ber heitið „Gleði- konumiðlarínn“ í íslenskri þýð- ingu. Hér er á ferðinni skemmtUeg og spennandi mynd, sem fékk verðlaun sem „besta mynd“ á kvikmyndahátíð Feneyja 1979. í aðalhlutverkum eru Ben Gazzara og Denholm Elliott. Konur f Styrktarfélagi vangefinna á Norðurlandi. Fundur verður haldinn á Sólborg, miðvikudag- inn 13. janúar kl. 20.30. Stjórnin. HULD 59821137 VI/V 2 HULD 59821162 VI/V 4 I.O.O.F. RB2 = 1311138«/z = ATGR Nýir símar Auglýsingar og afgreiösla: 24222 Ritstjórn: 24166 & 24167 Dagur, Strandgötu 31, Akureyri. Dalvík: Ný endur- skoðun tekin til starfa Dalvík, 11 janúar. Nýlega var stofnað nýtt fyrir- tæki hér á Dalvík, Endurskoð- un Dalvík sf. Eigendur eru Bókhaldsskrifstofan hf. á Dal- vík og Endurskoðun hf. í Reykjavík. Tilgangur fyrirtæk- isins er að annast hverskonar þjónustu og ráðgjöf á sviði endurskoðunar og reiknisskila og skattamála, ásamt rekstrar- ráðgjöf og lögfræðiþjónustu. Heimili og varnarþing hins nýja sameignarfélags er á Dalvík. Með stofnun þessa fyrirtækis er atvinnufyrirtækjum, opinberum aðilum og stofnunum á Dalvík og nágrenni gefinn kostur á þjónustu löggiltra endurskoðenda í sam- vinnu við sérhæfingu bókhalds- skrifstofunnar á sviði reiknishalds. Kemur þetta sér vel þar sem ný lög gengu í gildi í byrjun mánaðar- ins ~um að ársreikningar stærri hlutafélaga skuli verða endur- skoðaðir af löggiltum endurskoð- enda. Að auki mun viðskiptaaðil- um vera boðin aðstoð á sviði reiknisskila og skattamála, en þörf fyrir þj ónustu á þessum svið- um hefur aukist að undanförnu, að sögn forráðamanna hins nýja fyrirtækis, vegna nýrra reiknis- skilaaðferða og breyttra skatta- laga. Þá mun fyrirtækið einnig geta tekið á sig verkefni á sviði áætlanagerðar og almennrar rekstrarráðgjafar ásamt lögfræði- þjónustu sem tengist öðrum verk- efnum þess. Framkvæmdastjórar verða þeir Hilmar Daníelsson, frá Bók- haldsskrifstofunni og Sveinn Jónsson frá Endurskoðun. Til að byrja tneð verður skrifstofa fyrir- tækisins í húsakynnum Bók- haldsskrifstofunnar í ráðhúsi Dalvíkur. 10 DAGUR —12. jamíar 1982 Laus staða Viö embætti bæjarfógetans á Akureyri og Dalvík og sýslumannsins í Eyjafjarðarsýslu er laustil um- sóknar staöa skrifstofumanns. Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkis- ins. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf óskast sendar undirrituöum fyrir 8. febrúar n.k. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík. Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu. $ SAMBANDISLEN2KRA SAMVINNUFÉLAEA Óskum að ráða nú þegar í eftirtalin störf: Tækni- eða hagfræðing í hagræðingardeild við ýmiskonar vinnuhagræð- ingarstörf í ullariðnaði. Starfsmann í tölvudeild til náms í vélstjórn og forritun. Stúdentspróf, Sam- vinnuskólamenntun eða hliðstæð menntun æski- leg, enskukunnátta nauðsynleg. Einnig óskum við eftir að ráða Starfsfólk við saumaskap á dagvakt og kvöldvakt. Upplýsingar hjá starfsmannastjóra, sími 21900 (20). Iðnaðardeild Sambandsins Glerárgata 28 Pósthólf 606 Sími (96)21900 it: Ástkæri sonur okkar og sonarsonur, SIGTRYGGUR ÓMAR JÓHANNESSON, sem lést af slysförum 10. þessa mánaðar, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju, föstudaginn 15. janúar kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeir, sem vilja minn- ast hins látna, látið Hjálparsveit skáta og Flugbjörgunarsveitina njóta. Guðný Sverrisdóttir, Jóhannes Sfgtryggsson, Helga Jóhannesdóttir, Sigtryggur Sveinbjörnsson. Útför SIGRÚNAR STEFÁNSDÓTTUR, frá Kambfelli, er lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 7. janúar 1982, fer fram frá Akureyrarkirkju laugardaginn 16. þ.m. og hefst kl. 13.30 e.h. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað, en þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Elliheimilið á Akureyri. F.h. systkina og annarra vandamanna, Hólmfríður Stefánsdóttir. Þökkum innilega öllum er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður minnar BJARGAR SIGURJÓNSDÓTTUR, Gránufélagsgötu 22, Akureyri. Marteinn Sigurólason, Birna Jakobsdóttir, Siguróli Marteinsson, Sigfríð Friðbergsdóttir og barnabörn. A.G.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.