Dagur - 12.01.1982, Blaðsíða 4

Dagur - 12.01.1982, Blaðsíða 4
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI RITSTJÓRNARSÍMAR: 24166 OG 24167 SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222 RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÓRNSSON BLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÓRISSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT H.F. Atvinnurekendavaldið og íhaldið Einn kaflinn í áramótagrein Ingvars Gísla- sonar í Degi, ber heitið „Atvinnurekenda- valdið og íhaldið". Þar segir Ingvar meðal annars: „En það eru einmitt öfgar í efnahags- og kjaramálum sem nú þarf að varast. Ríkis- stjórnin þarf vissulega að gæta sín á öfgum og oftrú á ákveðnar formúlur, en forystu- menn á öðrum sviðum ættu ekki síður að var ast öfgar í orðum og athöfnum. Þetta á við um forystumenn launþega, en ekki síður málsvara atvinnurekenda, að ekki sé minnst á stjórnarandstöðuna. Að vísu ætlast eng- inn til þess að stjórnarandstöðuflokkarnir hagi sér öðruvísi en þeir gera. Hins vegar ætti að mega gera þá kröfu til atvinnurek- enda, að þeir ætli sér af í samskiptum við ríkisstjórnina. Ekki verður þó betur séð en atvinnurekendavaldið, sem borið er uppi að mestu af harðsvíruðum Geirsmönnum í Sjálfstæðisflokknum, hafi vahð þann kost að vinna leynt og ljóst gegn ríkisstjórninni. Um það eru skipuleg samtök sem ekki verða dulin. Sjálfstæðisflokkurinn beitir atvinnurek- endavaldinu nú af því purrkunarleysi, sem áður var alþekkt, en flestir héldu að heyrðu sögunni til. Sjálfstæðismenn hafa oft brugð- ið Alþýðubandalaginu um pólitíska mis- notkun launþegahreyfingarinnar. En hvað má nú segja um það nána samspil, sem er milli Geirsarmsins og atvinnurekendavald- sins í landinu gegn ríkisstjórninni? Slíkt samspil hlýtur að leiða af sér öfgar og átök, sem ekki verða til annars en óþurftar. Þess er þörf nú sem oftast áður að valda- öflin í þjóðfélaginu vinni saman og leggist á eitt um að stjórn landsins fari sem best úr hendi. Síst ættu atvinnurekendur að skera sig úr um gott samstarf við ríkisstjórnina, svo mjög sem stefna og störf hennar tengj- ast efnahagsmálum og vanda atvinnu- veganna með fullum vilja til þess að atvinnulífið blómgist og geti staðið undir góðum lífskjörum almennings í landinu." Fóm til frambúðarhagsældar Síðar í grein sinni segir Ingvar Gíslason m.a.: „Efnahagsaðgerðir sem framundan eru geta því ekki miðast við almennar launa- hækkanir, heldur það að vernda kaupmátt launa og halda uppi fullri atvinnu. En jafn- framt verður að treysta rekstrargrundvöll atvinnuveganna, sem hlýtur að verða aðal- markmið efnahagsaðgerðanna, ásamt niðurfærslu verðbólgunnar. Óefað verða menn að leggja eitthvað á sig í því sam- bandi, m.a. það sem áður er sagt að fórna kröfum um almnennar launahækkanir og aðrar óraunsæjar kjarabætur. Ef slíkt er fórn, þá er það fórn til frambúðarhagsældar og atvinnuöryggis. “ odidasm cdidos^j Eigendur Pallas i húsakynnum fyrirtækisins. Frá vinstri eru Pétur Stefánsson, Hjördís Harðardóttir, Inga Pálmadóttir og Guðmundur Svansson. „Við höfum orðið varir við mjög mikinn áhuga meðal fólks, enda teljum við fulla þörf á stað eins og þessum hér á Akureyri,“ sögðu þeir Guðmundur Svansson og Pét- ur Stefánsson er þeir sýndu blaðamönnum „Líkamsrækt- ina Pallas“ sem þeir hafa opn- að að Glerárgötu 26 ásamt eiginkonum sínum, Ingu Pálmadóttur og Hjördísi Harðardóttur. í Pallas er boðið upp á fjöl- breytileg tæki til líkamsræktar. Má nefna þrekhjól, „hlaupa- braut“ og allskyns tækk til lyft- inga. . Eigendur staðarins sem hafa kynnt sér alhliða líkams- rækt munu sjálfir starfa á staðn- um og þar veita þeir viðskipta- vinum allar upplýsingar eftir því hvernig þeir vilja haga þjálf- un sinni. Eigendur staðarins tóku það skýrt fram að hér væri ekki um að ræða stað þar sem viðskipta- vinir gætu eingöngu stundað vöðvarækt. Þeir sögðust leggja mikla áherslu á að þeir veittu viðskiptavinum sínum tækifæri til þess að stunda létta líkams- rækt á hinn fjölbreyttasta hátt, og styrkja þannig líkama sinn. f Pallas er viðskiptavinum boðið upp á margvíslegar að- ferðir til að fara eftir við þjálfun- ina, og fá þeir sérstök eyðublöð sem þeir fylla út eftir hverja komu, þannig að þeir geti fylgst með árangri sínum. Þá útbúa forráðamenn Pallas sérstök kerfi fyrir þá sem sækja staðinn í þeim tilgangi að ná aukakílóum Á staðnum er einnig gufubað og sólarlampar. Sérstakir tímar eru fyrir karla og aðrir fyrir konur. Kvennatímar eru á mán- udögum kl. 8-12, þriðjudögum 8-22, fimmtudögum 8-22, föst- udögum 8-12 og á laugardögum kl. 9-12. Karlatímar eru á mán- udögum kl. 12-22, miðvikudög- um kl. 8-22, föstudögum 12-22, laugardögum kl. 12-17 og á sunnudögum kl. 10-17. Komu- tími á æfingar er frjáls. Nánari upplýsingar, s.s. um gjald eru gefnar í síma 25013. Hjálpræðisherinn hefur unnið mikið starf I þágu aldraðra á Akureyri undanfarin ár, auk þess sem „herinn“ heldur reglulega samkom- ur fyrir börn og unglinga. Um jólin var samkoma í nýja samkomusaln- um við Hvannavelli og var boðið þangað öldruðu fólki. Á myndinni má sjá nokkra gesti á samkomunni, en á litlu myndinni eru Hjálpræðis- hermenn að spila fyrir samkomu- esti. -Mynd: áþ. 4 DAGUR-12. janúar 1982

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.