Dagur - 15.01.1982, Side 11

Dagur - 15.01.1982, Side 11
Guðlaug Hermannsdóttír skrifar: Myndin er tekin á æfingu á leikritinu „Þrjár systur“, en systumar leika Sunna Borg, Ragnheiður E. Amardótt ir og Guðbjörg Thoroddsen. Mynd: Þengill. FRÉTTIR ÚR LEIKHÚSINXJ Það sem af er vetri hefur starf- semi Leikfélags Akureyrar gengið mjög vel, má með sanni segja að félagið hafi fengið byr undir báða vængi. Hvort tveggja er að styrkir hafa hækkað og sýningar ganga óvenju vel - þarf þó varla að tíunda það hér að halda þarf utan um hverja krónu í því húshaldi, sem og öðrum í þessu landi. Fyrsta leiksýning LA á þessu leikári „Jómfrú Ragnheiður“ hlaut einróma lof gagnrýnenda og leikhússgesta. Sýningar urðu 17 og sýningargestur 3100. Má geta þess að í áramóta- uppgjöri sínu um stöðu íslensks leikhúss í Dagblaðinu/Vísi, segir Jón V. Jónsson sýningu LA „Jómfrú Ragnheiði" bestu leik- sýninguna í íslensku leikhúsi á liðnu ári. Það er ástæða til að nefna síaukna aðsókn úr ná- grannabyggðunum sem stunda leikhúsið á Akureyri æ betur. Þessi aukni áhugi bendir til þess að við séum á rétti leið. „Dýrin í Hálsaskógi“ voru svo frumsýnd 28. desember við mikinn fögnuð leikhússgesta. Síðan hafa verið 9 sýningar fyrir nálega fullu húsi. Næstu sýning- ar verða laugardag 16. janúar og sunnudag 17. janúar og eru að- eins fáir miðar eftir. Við viljum benda utanbæjarfólki á að draga leikhúsferðina ekki úr hófi, þar sem allra veðra er von á þessum árstíma. Það er orðinn árviss atburður að LA sýni barnaleikrit og vandi eigi síður til þeirra en annarra sýninga félagsins. Er það trú okkar að þar með sé verið að opna nýjum kynslóðum sýn inn í heim leikhússins - því hið for- kveðna „hvað ungur nemur gam- all temur" er enn í fullu gildi. Mun a.m.k. nokkur hópur þeirra barna sem fóru á góða leiksýningu ung, halda þeim vana fullorðin. Æfingar á leikritinu „Þrjár systur“ eftir Anton Tsékhov standa nú yfir og er frumsýning áætluð 19. febrúar. leikstjóri er Kári Halldór - ungur leikhús- maður sem starfað hefur jöfnum höndum erlendis og hérlendis; við nám, leikstjórn og kennslu. Hann var t.d. meðleikstjóri Kaisu Korhonen í þeirri frábæru uppfærslu „Sænska Leikhúss- ins“ í Helsingforsum „Konurnar frá Niskavuori“, sem sýnd var í Þjóðleikhúsinu í byrjun septem- ber síðasta árs. Kári hefur einnig kennt við Leiklistarskóla íslands. Leikritið „Þrjár systur" er eitt af síðustu verkum Tsékhovs og jafnframt eitt af þeim sem oftast hafa verið sýnd. íslenskt leikhús hefur þó aðeins einu sinni sett „Þrjár sytur“ á svið, en fyrir 25 árum var leikritið sýint í Iðnó. G.H. Slgurður Om í Rauða húsinu Nk. laugardag, þann 16. janúar kl. 16.00, hefst í Rauða húsinu sýning á verkum eftir Sigurð Orn Brynjólfsson. Sigurður Örn fæddist í Reykjavík 1947. Hann stundaði nám í auglýsingadeild Mynd- lista- og handíðaskóla íslands á árunum 1964-1968 og fram- haldsnám í Rotterdam. Sigurður er þekktur af teikni- afrekum sínum í dagblöðum landsins. hann vann til verð- launa á heimssýningu teiknara, „Cartoon 77“, en þar kepptu 647 teiknarar frá 52 löndum. Sýning Sigurðar stendur til sunnudagsins 24. janúar og er opin frá kl. 16.00 til 20.00. Hjónin Simon Vaughan og Sigríður Ella Magnúsdóttir. Söngtónlelkar Akureyri Sigríður EDa í Smlðjunni Sigríður Ella Magnúsdóttir og ur fram á öðrum stað í blað- eiginmaður hennar, Simon inu, en á laugardagskvöldið Vaughan, verða á ferð á Ak- munu þau syngja fyrir matar- ureyri um helgina. Þau halda gesti í Smiðjunni við undirleik tónleika í bænum eins og kem- Jónasar Ingimundarsonar. Hin landsþekkta söngkona, Sigríður EUa Magnúsdóttir, ásamt eiginmanni sínum Simon Vaughan baritónsöngvara og píanóleikaranum Jónasi Ingi- mundarsyni, flytja fjölbreytta efnisskrá á 2. áskrifendatón- leikum Tónlistarfélags Akur- eyrar í Borgarbíói, n.k. laugar- dag, 16. jan. og hefjast tónleik- arnir kl. 17. Á efnisskránni verða dúettar eftir Mozart, Brahms, Rossini o.fl., og einsöngslög m.a. eftir Grieg, Purcell, Mendelsohn, Borodin, Sigvalda Káldalóns og Þórarin Guðmundsson. Sigríður Ella vakti mikla athygli fyrir túlk- un sína á Carmen fyrir nokkrum árum, þegar samnefnd ópera var sýnd í þjóðleikhúsinu. Einnig hef- ur frammistaða hennar í söng- keppnum verið með miklum ágætum, en hún hefur þrívegis unnið til verðlauna í alþjóðlegum keppnum söngvara. Hún hefur haldið tónleika víða um landið, m.a. á 20 stöðum ásamt Jónasi Ingimundarsyni. Tónleika hefur hún einnig haldið víða um Evrópu og íBandaríkjunum. Sigríðurhef- ur sungið margoft í útvarpi og sjónvarpi, og nýverið kom út hljómplatan „Á vængjum söngsins", með söng hennar. Simon Vaughan hlaut Richard Taube verðlaunin, sem fólgin voru í 2ja ára námsdvöl í Vínar- borg. Söngferil sinn hóf Simon við ensku þjóðaróperuna, og hefur hann sungið víða á Bretlandi, og haldið tvenna sjálfstæða ljóða- tónleika í London. KVIKMYNDtk* Borgarbíó sýnir hina geysispenn- andi og áhrifamiklu litmynd „The onion field“, eða „Laukakurinn" eins og hún heitir f íslenskri þýð- ingu. Myndin byggir á samnefndri sögu metsöluhöfundarins Joseph Wambaugh - á sönnum atburð- um. í aðalhlutverkum eru John Savage og James Woods. Kl. 3 á sunnudag sýnir Borgar- bíó „Ungu ræningjana“, skemm- tilega og spennandi mynd fyrir alla fjölskylduna. Helstu óperuhlutverk hans hafa verið Papageno í Töfraflaut- unni, Escaniello í Carmen, og Amonasvo í Aida. Jónas er einn af okkar afkasta- mestu píanóleikurum, og hefur hlotið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína á tónleikum með ýmsum nafntoguðum söngv- urum. Aðgöngumiðasala verður í Bókabúðinni Huld og við inn- ganginn. Enn er hægt að kaupa áskriftarkort og gerast félagar, en verulegur afsláttur er veittur frá venjulegu miðaverði á þann hátt. Lausnír * Kinvígið: Rétt röð er B,D,A,C. * Talnahrmgir: Talan í miðju hvers hrings er summan af tölunum þremur í hringfertinu. Talan er 24. Krossgátan % % % % % % s % H 0 s S A R 4 V E i L U E Ji % % E F M A Ð i 1 H R A R i M & A R m j 'o rt S M t S S A § 'A M A ' D 1 Y p R A R L A F A V rS n M A % P R A G A Cr M A R % A U R: S T A M S i % R 'A fc A M s T k & T V R *k A s A % %. n V i 'A G b Ð A k i Ð A J u M M u R % i Ð A R; M A M • R A 15. janúar 1982 DAGUR-11

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.