Dagur - 29.01.1982, Blaðsíða 6
Gömlu dansamir
Gömlu dansamir
Gömlu dansamir
Gömlu dansamir
Gömlu dansamir
Gömlu dansarnir
Dagur helmsækir Sporld í Dynheimum:
„Þetta er hin besta
hj ónabandsmiðlun ‘
— segir Haraldur Guðmundsson formaöur klúbbsins
Gömlu dansarnir hafa alltaf
notiö vinsælda. Að vísu hafa
komiö lægðir og hæðir í vin-
sældirnar, en nú virðast þeir
vera í vaxandi áiiti. Þetta kem-
ur berlega í Ijós á dansstöðum
og það sem meira er: Þeir sem
fara út á gólfið sýna æ meiri
leikni svo Ijóst má vera að ein-
hvcrsstaðar hafa þeir lært.
Dansklúbburinn Sporið, sem
heitir reyndar fullu nafni Gömlu-
dansaklúbburinn Sporið, hefur
aðsetur í Dynheimum. Þar koma
klúbbfélagar saman einu sinni í
viku og þeytast um gólfið þvert og
endilagt undir tilsögn kunnáttu-
fólks. Það er öllum heimill að-
gangur í klúbbinn og þú þarft ekki
annaö en að koma í Dynheima
klukkan átta á fimmtudagskvöld-
um, bregða þér í lakkskóna og
taka þátt í dansinum.
Dagur fór á staðinn í síðustu
viku og hitti þar fyrir í upphafi
Harald Guðmundsson, formann
klúbbsins. Haraldur er búinn að
vera þar innan veggja í fjögur ár,
en klúbburinn er fimm ára. Har-
aldur hefur bæði haft gagn og
gaman af klúbbnum. Hann er
einn þeirra sem dansar gamla og
nýja dansa sér ti! ánægju og hann
hitti konuna sfna í klúbbnum.
„Þetta er hin besta hjónabands-
miðlun" segir Haraldur brosandi.
„Ég veit fleiri dæmi um það að
fólk hefur kynnst í klúbbnum og
gengið síðan í hjónaband.“
Nú eru rösklega tveir tugir fé-
lagsmanna í Sporinu, og sagðist
Haraldur gjarnan vilja sjá fleiri
virka. Fyrir áramót, þegar félag-
arnir æfðu samkvæmisdansa,
voru fleiri með í spilinu. Um
gömlu dansana sagði Haraldur að
áhuginn fyrir þeim væri ekki í
samræmi við efndirnar. „Margir
tala um að koma, en hafa sig svo
ekki í það. Við sækjumst aðallega
eftir fólki sem er um tvítugt og
eldra, en aldursmörkin eru 16ár-
voru 20 fyrir áramót."
„Er skemmtilegra að dansa
gömlu dansana en samkvæmis-
dansa?“
„Samkvæmisdansarnir eru
skemmtilegri fyrir þá sem kunna
þá mjög vel. Þeir krefjast mun
meiri æfingar en gömlu dansarnir,
eru auðveldari viðfangs, auk þess
læra margir þá í skólum.“
Þegar kemur að böllunum þá er
það svo að oft fer saman drykkja
og dans, en þetta tvennt á ekki
saman. Og því miður er það oft
ákaflega erfitt að dansa á
skemmtistöðum, fólk kemur
þangað oft með því hugarfari að
drekka sig fullt, láta dansinn eiga
sig. Það eru þó til böll þar sem
hægt er að dansa gömlu dansana,
það eru helst gömlu góðu
sveitaböllin og þangað höfum við
stundum farið.“
Þess má geta í lokin að félagar í
Sporinu hafa sýnt gömlu dansana,
en Haraldur tók fram að þátttaka
í Sporinu þýddi ekki endilega að
viðkomandi yrði drifinn í dans-
sýningar. Þvert á móti - aðalat-
riðið væri að fólk kæmi og dansaði
af áhuga einu sinni í viku. Og ef
einhver vill kynna sér betur starf-
semi klúbbsins, ér þeim hinum
sama bent á að símanúmer Har-
aldar er 25417 og veitir hann góð-
fúslega allar upplýsingar, sem til-
vonandi meðlimir þurfa á að
halda.
Það var skortur á karlmönnum og því urðu þessar stúlkur að dansa saman.
Myndir: á.þ.
Þau sýndu mikla lipurð.
Guðmundur formaður klúbbsins ásamt konu sinni.
Dynheimar við Hafnarstræti.
Sigurður Ólafsson sést hér ásamt Guðlaugu eiginkonu sinni.
Gömlu dansarnir
6 - DAGUR 29. janúar 1982
Sigurður Olafsson:
„BYRJA.ÐI 10 i:i) \
11 Á RA GAMAEE“
„Þaö eru mörg ár síðan ég
byrjaði að dansa gömlu dans-
ana. Ætli ég hafi ekki byrjað
að læra þá þegar ég var 10 eða
11 ára gamall. Síðan ég varö
16 ára hef ég yfirleitt dansaö
um hverja helgi eða einu sinni
í viku.“
„En nú haiið þið í Sporinu
ekki aðeins verið í gömlu döns-
unum. IVlér skilst að þið hafið
lært samkvæmisdansa fyrir ára-
mót.“
„Já, það er rétt og við ætlum
að vera í gömlu dönsununi
núna.“
„Hvaða dans er það sem þér
þykir skcmmtilegastur?“
„Ætli það sé ekki vínarkrus og
marsúki.“
„Telur þu að áhugi unglinga á
dansi sé að aukast?“
„Já, ég hcld að þeir hafi nú
meiri áhuga á gömlu dönsunum
en áður og samkvæmisdönsum
sömuleiðis.“
„Eru krakkarnir búnir að gefa
hoppið og híið upp á bátinn?“
„Ekki alveg. Þau yngstu og
táningarnir hafa enn áhuga á
því.“
Sigurbjörg Porsteinsdóttir:
99
MEST GAMAN
I VUSÆRKRUS“
„Það eru ein 6 eða 7 ár síð-
an ég byrjaði,“ sagði Sigur-
björg þegar við höfðum kom-
ið okkur út úr dunandi har-
monikkutónlistinni. „Það er
mjög gaman að dansa gömlu
dansana og ég held að mér
finnist mest gaman að dansa
vínarkrus.“
„Er ekki erfitt að dansa þessa
dansa í danshúsum á Akur-
eyri?“
„Jú, það er svo mikil traffík
og maður verður bara að
setjast.“
„Getur hver sem er lært að
dansa gömlu dansana?“
„Já, ég býst alveg við því.“
„Er erfíðara að læra gömlu
dansana en samkvæmisdans-
ana?“
„Nei, ég tel að það séléttara.“
Meiðdís Björk Karlsdóttir:
„SKOTTIS ER SVO
FJÖEBREYTBLEGUR“
„Það er mjög gaman að
standa í þessu og í Sporinu er
ég búin að vera í 2 eða 3 ár,“
sagði Heiðdís Björk. Hún var
móð og másandi eftir að hafa
snúist á gólflnu með glæsi-
„Er svona erfitt að dansa
gömlu dansana?“
„Það er það þegar maður hef-
ur ekki dansað þá í nokkurn
tíma.“
„Fyrir áramót voruð þið að
dansa samkvæmisdansa. Hvort
er skemmtilegra að dansa þá eða
samkvæmisdansana?“
„Gömlu dansana.“
„Er áhugi þinna jafnaldra á
gömlu dönsunum farinn að
aukast.“
„Já, mjög mikið.“
„Hún Sigurbjörg sagði mér að
það væri varla hægt að dansa
gömlu dansana í danshúsum.
Hvað vilt þú segja um það mál?“
„Það er rétt að það hefur ver-
ið erfitt, en þetta er svolítið að
batna.“
„Uppáhaldsdans?“
„Skottís, hann er svo fjöl-
breytilegur, krefst kunnáttu.“
Páll Sveinsson:
„AEEIR DAJSTSA.R
SKEMMTIEEGIR“
„Ég hef meira gaman af
gömlu dönsunum en sam-
kvæmisdönsunum, en annars
finnst mér allir dansar rnjög
skemmtilegir,“ sagði Páll
Svcinsson.
„Nú hcfur það komið fram að
áhugi á dansi er farinn að
aukast . . .“
„Já, en þrátt fyrir það er
stundum erfitt aö fá fólk til að
koma. Ástæðan er ekki einföld.
Ef til vill hcfur okkar klúbb
skort auglýsingu og líka getur
fólk verið feimið og þorir ekki
að koma. Það er misskilningur
að það sé nokkur ástæða til að
óttast okkur.“
„Er erfitt að læra og dansa
gömlu dansana?"
„Nei og nei. Það getur hver
sem er lært að dansa gömlu
dansana. Og ég vildi eindregið
hvetja fólk til að koma og dansa
hér eða annarsstaðar. Þetta er
mjög holl og góð hreyfing, þú
umgengst fólk og kynnist því. í
stuttu máli: Mjög skcmmtilegt.“
Gömlu dansamfr
Oömlu dansamir
Cvömlu dansamir
Gömlu dansarnir
Oömlu dansarnir
29. janúar 1982 - DAGUR - 7