Dagur - 02.02.1982, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIDIR
i SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
65. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 2. febrúar 1982
12. tölublað
Fer Jón G.
Sólnes á ný
í slaginn?
„Nújá, var ég tólfti,“ sagði Jón
G. Sólnes þegar Dagur sagði
honum þau tíðindi að hann
hefði hreppt tólfta sætið í
forvalinu sem fór fram innan
fulltrúaráðs Sjálfstæðis-
flokksins, og fastanefnda hans,
um helgina. Jón vildi ekki segja
neitt um hvort hann myndi gefa
kost á sér í prófkjöri flokksins
sem fer fram seinna í mánuðin-
um. Forvalinu var
ætlað að gefa kjósendum í próf-
kjöri hugmynd um vilja flokks-
manna.
Úrslit í forvalinu urðu annars
sem hér segir: 1. Gísli Jónsson (86
atkv.), 2. Sigurður J. Sigurðsson
(72), 3. Bergljót Rafnar (70), 4.
Björn J. Arnviðarson (59), 5. Sig-
urður Hannesson (49), 6. Guð-
finna Thorlacíus (44), 7. Stefán
Sigtryggsson (41), 8. Nanna Þórs-
dóttir (36), 9. Gunnar Ragnars,,
10. Margrét Kristinsdóttir, 11.
Karólína Guðmundsdóttir, 12.
Jón G. Sólnes, 13. Þórunn Sigur-
björnsdóttir, 14. Gunnar Jónsson
og 15. Bjarni Árnason. Um 80%
fulltrúa í fulltrúaráðinu og þeirra
sem sitja í fastanefndum bæjarins
á vegum Sjálfstæðisflokksins tóku
þátt í forvalinu.
í gær var ekki ljóst hvort allir
þeir sem lentu í 15 efstu sætunum
myndu gefa kost á sér í prófkjör-
inu. Þátttaka í því er ekki bundin
því að hafa komist á blað í for-
valinu og því verður hægt að velja
úr mun stærri hóp en nefndur var
hér að ofan.
Lá við stórslysi
Mesta mildi var að ekki varð
alvarlegt slys neðarlega í Kaup-
vangsstrætinu um hádegið í
gær. Þar var kona með barn á
ferð yfir gangbraut á móts við
Hótel KEA, og hugðist öku-
maður sendiferðabifreiðar
hleypa henni yfír götuna.
Þá bar að stóran vörubíl, og
skipti engum togum að hann lenti
aftan á sendiferðabílnum sem
kastaðist á konuna. Hún féll í göt-
una og fór barnið undir sendi-
ferðabílinn á milli hjóla hans.
Vörubifreiðin rann hins vegar
meðfram hlið sendiferðabifreið-
arinnar og var mesta mildi að kon-
an varð ekki undir honum.
Eftir óhappið voru konan og
barnið flutt á sjúkrahús, en
meiðsli þeirra reyndust ekki
teljandi. Er óhætt að segja að
þarna fór betur en á horfðist.
Rætt um stóriðju við
Eyjafjorð
bls. 6-7
KA fallið í aðra i
deild? bls. 9.
1 — 1
Og þá er sólin farin að skína á nýjan leik. Samspil Ijóss og myrkurs er mörgum Ijósmyndurum hugleikið viðfangsefni,
og á þessari mynd má sjá sólargeisla yfír Akureyri í síðustu viku. Mynd: KGA
Helgi Bergs bæjarstjóri á Akureyri:
„FJARHAGSLEG AFKOMA
GÓÐ Á SÍÐASTLIÐNU ÁRI“
„Ég held að það megi segja að
rekstrar- og greiðsluafkoma
bæjarins hafí verið mjög viðun-
andi, nánast góð á síðastliðnu
ári, sagði Helgi Bergs bæjar-
stjóri á Akureyri þegar við
spurðum hann um fjárhagslega
afkomu Akureyrarbæjar.
Það er erfitt að segja þetta al-
veg nákvæmlega í tölum, en það
má segja það að rekstraráætlun
ársins 1981 hafi staðist í öllum
meginatriðum. Að vísu eru bæði
tekjur og gjöld heldur undir áætl-
un en gjöldin eru meira undir
áætlun hlutfallslega heldur en
tekjurnar. Þarna kemur til, að
eins og venja er, þá gerðum við
áætlun um verðlagsþróun í áætl-
uninni og tókum tillit til þess við
áætlun í launum, t.d framreiknuð-
um launin miðað við ákveðnar
forsendur. Verðbólga á sl. ári
varð heldur minni en við höfðum
reiknað með, þannig að í heild
varð nokkuð góð niðurstaða.
Ef borin eru saman árin 1980 og
1981 þá var lausafjárstaða bæjar-
ins allan síðari hluta ársins 1980
mjög slæm. Við vorum í stöðug-
um vandræðum með að greiða
reikninga á réttum tíma og vorurr
að rúlla ákveðnum bolta á undan
okkur. Greiðslustaðan var léleg
um áramótin 1980-1981 en á sl.
ári lagaðist þetta mjög mikið og
greiðslustaðan batnaði stöðugt
allt árið og var nokkuð góð um
síðustu áramót."
„Jú, ég held að það megi segja
að framkvæmdir á vegum bæjar-
félagsins hafi verið ívið meiri á sl.
ári en í meðalári," sagði Helgi
Bergs að lokum.