Dagur - 02.02.1982, Blaðsíða 8

Dagur - 02.02.1982, Blaðsíða 8
Molar af borðum bæjars- tjórna: Akureyri: Bifreið til flutnings fatlaðra Það kom fram á fundi bæjarráðs Akureyrar fyrir skömmu, að komin væri til landsins bifreið, sem pöntuð var til flutnings á fötl- uðu fólki. Bæjarráð heimilaði bæjarstjóra að láta leysa bifreið- ina út úr tolli og semja um smíði sérbúnaðar í hana fyrir fatlaða. Innheimta bæjargjalda A árinu 1982 var til innheimtu, að meðtöldum dráttarvöxtum, kr. 98.230.281, þar af innheimtust kr. 91.256.765 eða 92,9%. Af útsvör- um og aðstöðugjöldum innheimt- ust 93,6% af fasteignagjöldum 96,7% og af dráttarvöxtum 69,8%. Mötuneyti fyrir starfsmenn Á bæjarráðsfundi voru lögð fram þrjú bréf, öll dagsett 5. október 1981, frá starfsmönnum Hitaveitu Akureyrar, starfsmönnum slökkvistöðvar Akureyrar og starfsmönnum tæknideildar/ gatnagerðar, þar sem þess er farið á leit við bæjarráð og/eða viðkom- andi stofnun, að nú þegar verði framkvæmd ákvæði um mötu- neyti fyrir starfsmenn í STAK. Bæjarráð fól bæjarstjóra, bæjar- verkfræðingi og bæjarritara að gera tillögur til bæjarráðs um mötuneytisaðstöðu fyrir starfs- menn bæjarins. í bréfi starfs- mannanna kom fram að beiðni þeirra er byggð á grein í aðal- kjarasamningi félagsins frá 1. ágúst 1980. Vatnsveitan rýmir hús Stjórn vatnsveitunnar lagði til að bæjarsjóður Akureyrar yfirtæki verkstæði og bragga vatnsveit- unnar, ásamt lóð á Gleráreyrum, fyrir fasteignamatsverð húsanna. Húsin verði afhent jafnóðum og vatnsveitan rýmir þau. Á sama fundi samþykkti stjórn vatnsveit- unnar að taka upp rekstur mötu- neytis fyrir starfsfólk vatnsveit- unnar. Læra líkamsrækt íþróttaráði barst fyrir skömmu bréf frá Lyftingaráði Akureyrar með beiðni um styrk til handa þeim Sigurði Gestssyni og Gísla Rafnssyni vegna námsferðar til Bandaríkjanna í líkamsrækt. Þar sem íþróttaráð er ekki með styrk- veitingar til félaga eða einstak- linga á sinni fjárhagsáætlun var vísað á æskulýðsráð. Þangað fóru líkamsræktunarmennirnir og samþykkti ráðið að veita til þessa 5 þúsund krónur. Ólafsfjörður: 93,6% um áramót Innheimta bæjargjalda á Ólafs- firði hefur gengið svipað sl. ár og árin á undan. Um ármót var inn- heimtan 93,6%. Lóðir í Ólafsfirði Bygginganefnd Ólafsfjarðar kom saman á fund í byrjun janúar og var rætt um úthlutun lóða á þessu ári. Nefndin samþykkti að aug- lýsa eftirtaldar lóðir lausar til um- sóknar: Aðalgata, þrjár iðnaðar- lóðir austan götu og tvær iðnaðar- lóðir vestan götunnar, eina rað- húsalóð við Bylgjubyggð, þrettán einbýlishúsalóðir við Hlíðarveg, eina iðnaðarlóð við Námuveg, eina fjölbýlishúsalóð við Ólafsveg og sjö lóðir undir einbýlishús við sömu götu. Við Vesturhöfn verð- ur úthlutað fimm lóðum undir sjóhús og fjórum einbýlishúsalóð- um við Ægisbyggð. Sektir vegna vanskila Menningarmálanefnd Ólafsfjarð- ar kom saman og m.a. var rætt um sektir vegna vanskila á bókum, en nokkuð hefur verið um það að bókum sé ekki skilað á réttum tíma. Eftirleiðis verður hringt heim til fólks og það áminnt um að skila bókunum. Við fyrstu að- vörum skal greiða fimm krónur. Ef að þarf að ítreka eða sækja bókina heim, hækkar sektin í tíu krónur. Á dögunum luku múrarar við að renna í gólf I nýbyggingu Dagsprents og innan skamms verður nýr inngangur tekinn í notkun. Ef áætlanir standast verður húsnæði Dags og Dagsprents fullbúið eftir nokkrar vikur. Mynd: á.þ. Ý Jónas Jónasson frá Brekknakoti Fæddur 1. júní 1901 — Dáinn 12. janúar 1982 Hinn 20. janúar sl. var til moldar borinn á Ákureyri, Jónas Jónsson frá Brekknakoti. Hann fæddist í Brekknakoti í Reykjahverfi í Suður-Þingeyjar- sýslu l. júní 1901, næstyngstur átta systkina, barna þeirra hjóna, Jóns Frímanns Jónssonar bónda þar og Hólmfríðar Jónsdóttur. Bæði voru þau hjónin ættuð úr Mývatnssveit, afkomendur Jóns snikkara í Vogum og Jóns Hinrikssonar skálas á Helluvaði. Jónas kenndi sig ætíð við fæð- ingarbæ sinn, sem stendur í vesturhlíð Reykjafjalls, ekki langt frá Syðstahver. Síðustu ábúendur í Brekknakoti voru tveir bræður Jónasar, þeir Böðvar og Þórður og byggðu þeir sér á fimmta áratugnum sitt nýbýiið hvor í landi Brekknakots og nefndu Bláhvamm og Laufahlíð. Húsvíkingar, sem fyrir allmörg- um árum komu sér upp hitaveitu, njóta heita vatnsins frá Reykja- hverfi, meðal annars frá hinu gamla landi Brekknakots. Hinn látni aldamótamaður, Jónas Jónsson frá Brekknakoti, fæddist að telja má inn í hina miklu menningarstrauma, sem hér á landi urðu sterkastir og áhrifaríkastir í Þingeyjarþingi fyrir aldamót og fram á okkar öld. Þingeyingar, sem ólust upp á fyrstu áratugum aldarinnar, voru laugaðir í þessum menningar- straumum og enginn vitiborinn héraðsmaður komst hjá því að verða fyrir miklum áhrifum þeirra strauma og um leið þeirra framúr- skarandi andans- og fram- kvæmdamanna, er settu svip sinn á héraðið, látnir og lifandi. Má í því sambandi nefna menn eins og Jón á Gautlöndum og syni hans, Benedikt Sveinsson, Guðmund og Sigurjón Friðjónssyni frá Sandi, Sigurð ráðherra í Ystafelli, Sigurð búnaðarmálastjóra frá Draflastöðum, Jakob Hálfdánar- son, Benedikt á Auðnum, Jón Trausta, Þorgils gjallanda og Tryggva Gunnarsson og þannig mætti áfram telja. Það er sennilega ekkert merki- legt, að næsta þingeyska kynslóð- in, sem nú er að kveðja, yrði um margt merkileg og víða í fremstu röð ágætustu manna, nærð og hert í hugsjónaeldi sinnar tíðar. Aldamótafólkið í þessu landi var svo hamingjusamt, að eiga þess kost að umskapa landið og þjóðfélagið eftir langa kyrrstöðu. Lítinn arf hafði það hlotið, fyrir utan hrjóstugt land, bókmenntir og tunguna. Þá var enginn vegur til á landinu, engin brú, engin hús úr varanlegu efni, engin hafnar- mannvirki og ekkert skip og hám- arkshraði var hestsins. Varla var hægt að segja, að til væri sjúkra- hús eða mannúðarstofnanir af nokkru tagi. Aldamótakynslóðinni auðnað- ist að lyfta Grettistaki, sem nánast má telja kraftaverk. Henni tókst að hefja þjóðina til góðra lífs- kjara, sem nálgast það besta með- al vestræna þjóða. Hlutur þessar- ar kynslóðar er svo mikill og lær- dómsríkur, að nauðsynlegt er að líta til nálægrar fortíðar og þess þrekvirkis, sem þá var unnið. í þá sögu geta næstu kynslóðir sótt bæði þrek og visku. Jónas í Brekknakoti fór að heiman með léttan mal, ákveðinn í að hasla sér völl þar sem þörfin var mest, og má segja, að hann hafi ávaxtað vel sitt pund og skil- að miklu og góðu dagsverki. Hann átti snemma þrek og bjart- sýni og undanbragðalaus reglu- semi var honum í blóð borin. Sú þrá brann honum í blóði, að bæta heiminn og það hefur mönnum gengið erfiðlega. Jónas valdi sér kennarastarfið og var þvf trúr starfsævi sína alla. Fyrst gekk hann í unglingaskóla á Breiðumýri í Reykjadal, sem var undanfari Laugaskóla í sömu sveit, síðan gekk hann í íþrótta- skóla Sigurðar Greipssonar í Haukadal og var þá þegar orðinn góðum íþróttum búinn. Síðar var hann nemandi á lýðháskólanum Tárna í Svíþjóð. Fimleika- námskeið sótti hann í Kaup- mannahöfn og varð síðan bæði kennari og nemandi við tvo sænska skóla, Jakobsberg og Fornby, um nokkurt skeið. Loka- áfanginn á námsbrautinni var svo próf við Kennaraskóla Islands og var þá Jónas kominn undir fertugt. Svo sem á þessari upptalningu má sjá, var Jónas frá Brekknakoti vel undir það búinn að hefja hið eiginlega ævistarf og auk þess hafði hann fágætlega mikinn áhuga á æskulýðsmálum, ekki síst íþróttamálum og menningarmál- um almennt. Jónas var fyrst barnakennari á Tjörnesi og síðan á Húsavík og var þar skólastjóri eitt ár. Um skeið kenndi hann fimleika, sund, frjálsar íþróttir og þjóðdansa í Þingeyjarsýslum og Eyjafjarðar- sýslu. Kennari og skólastjóri var hann í Stykkishólmi í þrjú ár og jafn lengi formaður Ungmenna- felagsins Snæfellings. Að því loknu réðist hann kennari við Barnaskóla Akureyrar og kenndi þar þangað til hann lét af störfum sakir aldurs. Jafnhliða erfiðri kennslu, sem reyndist mörgum kennaranum erfið, vann Jónas að ýmsum fél- agsmálum íbænum. Hann vart.d. formaður Þórs á Akureyri í ára- tug, átján ár í stjórn Karlakórs Akureyrar og þar af fimmtán ár formaður kórsins. Öll eru störf af þessu tagi mjög tímafrek. Auk þess skrifaði hann í blöð og tíma- rit, flutti útvarpserindi og fyrir- lestra. Málefni æskunnar og menning- armál lét hann mest til sín taka og sagði mönnum oft ótæpt til synd- anna, þegar honum þótti þurfa, en gladdist innilega þegar vel gekk. Áhugi hans á ýmsum vel- ferðarmálum var svo brennandi, að hann gat ekki orða bundist og valdi þann kostinn, sem oftast er erfiðastur, að tala opinskátt um hin ýmsu mál og taka á sig þær óvinsældir manna, sem flokka réttmæta og rökstudda leiðsögn undir nöldur. Ég kynntist Jónasi frá Brekknakoti austur á Laugum. Hann var fullþroska ungur maður, þá orðinn þrautþjálfaður íþróttamaður og hinn vaskasti, traustur ungmennafélagi og þar í forystusveit, hagur í höndum, vel máli farinn sögumaður og dans- maður og að öllu vel á sig kominn. Skapfestumaður hefur hann ætíð verið, ákveðinn í skoðunum og hélt þeim skoðunum fram, sem hann áleit réttar. Bágstöddum var hann hjálpsamur, harður við sjálfan sig, féll sjaldan verk úr hendi og var umhyggjusamur heimilisfaðir. Oft kom Jónas á skrifstofur Dags og ætíð færandi hendi, oft með góðar ábendingar um hin ólíklegustu efni, og stundum með greinar til birtingar. Skapríkur maður var Jónas og stundum tals- vert óþjáll málafylgjumaður. En þá var hann að vinna fyrir aðra, en ekki fyrir sjálfan sig. Á heimili hans vitna margir fagr- ir munir um hagleik hans og vinnusemi, bæði útskornir í tré og útsaumaðir. Og þar er fiðlan hans og orgelið, sem fyrrum veittu honum og fjölskyldunni yndis- stundir. Fyrir tveim áratugum tók Jónas sér fyrir hendur að skemmta gamla fólkinu á elliheimilinu með upplestri úr nýjum bókum. Það gerði hann síðan tvisvar í viku þegar veikindi hömluðu ekki. Heima hjá sér las hann einnig og hélt á þann hátt við gamalli heim- ilisvenju, sem kennd er við kvöld- vökur. Dagbók skrifaði hann reglulega í rúm sextíu ár og jafnvel veikindi komu ekki í veg fyrir þann fasta vana, því þá las hann konu sinni fyrir og hún ritaði fyrir hann í bókina. Geyma dagbækurnar fróðleik um margvísleg efni, auk þess sem þar má lesa ævisögu hans sjálfs. Árið 1954 kvæntist Jónas eftir- lifandi, ágætri konu sinni, Borg- hildi Einarsdóttur hjúkrunar- konu. En hún er dóttir hjónann Einars Guttormssonar frá Ósi, sem enn lifir og Jórunnar Páls- dóttur, sem er nýlega látin. Þau Jónas og Borghildur eignuðust tvær dætur, Valhildi Margrétu kennara, sem gift er Jóni William Andréssyni og búa þau í Reykja- vík og Svanhildi Jórunni, sem gift er Agli Geirssyni og búa þau á Akureyri. Jónas Jónsson frá Brekknakoti var af sterkum, þingeyskum stofnum kominn og sjálfur heil- steyptur og fjölhæfur atorku- maður, goður kennari svo kalla mátti sóma sinnar stéttar. Einlægur trúmaður var Jónas og hefur eflaust hugleitt leyndar- dóma ævilokanna og jafnvel fund- ið nálægð þeirra í eigin æðaslög- um. Um leið og hann hverfur inn í birtu eilífðarinnar, þakka ég hálfrar aldar kynni og sendi vandamönnum samúðarkveðjur. Erlingur Davíðsson. 8 - DAGUR 2. febrúar 1982

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.