Dagur - 18.02.1982, Síða 1

Dagur - 18.02.1982, Síða 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIODIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI 65. árgangur Akureyri, fimmtudagur 18. febrúar 1982 19. tölublað Hestamenn: Undirbúa Landsmót á Vind- heima- melum „Það er ekkert að frétta af því ennþá, en þetta er allt í deigl- unni eins og við segjum. Fram- kvæmdanefndin var á fundi fyrir skömmu og það er verið að skipuleggja þetta mót í ýmsum atriðum og koma verk- um af stað,“ sagði Sveinn Guðmundsson á Sauðárkróki um landsmót hestammanna, sem h aldið verður á Vind- heimamelum 7. til 11. júlí í sumar. Sveinn á sæti í fram- kvæmdanend. Síðast var landsmót hesta- manna haldið á Þingvöllum fyrir tæpum fjórum árum. Sveinn sagði að í sumar mætti gera ráð fyrir sex til átta þúsund manns á mótið. „Nýjungar? Nei, það er ekki rétt að gera neitt svoleiðis að blaða- mat að svo komnu, en það og ann- að skýrist sennilega eftir næsta fund, sem verður í byrjun næsta mánaðar.“ Viðtal við Bjama formann svæðis- stjómar þroskaheftra á N.-landi eystra bfs. 4. Þórí úrslitin í körfu- boltanum íþróttir bls. 5. Samdráttur í kindakjötssölu til Noregs: Snúa bændur sér að loðdýrarækt? „Ég get sagt það alveg hrein- skilnislega að aukin sauðfjár- framleiðsla Norðmanna getur valdið því að við verðum að draga saman framleiðslu sauð- fjárafurða. Sá mikli samdráttur sem hefur orðið á sölu íslensks kindakjöts í Noregi, og það að allar líkur eru á að Norðmenn verði sjálfum sér nógir um kindakjöt í framtíðinni, hlýtur að hafa áhrif á framleiðslu- möguleika okkar á kindakjöti. Við verðum e.t.v. að fækka sauðfé og þá er það mín skoðun að slíkt verði að gerast á þeim svæðum þar sem menn geta tekið upp aðra atvinnustarf- semi í staðinn. Ég hef trú á því að eitt af því helsta sem menn geti tekið upp sé refaræktin.“ Þetta kom fram er Dagur ræddi við Inga Tryggvason formann Stéttarsambands bænda. Ingi hafði framsögu á bændaklúbbs- fundi á Hótel KEA fyrir nokkrum dögum og urðu miklar umræður á fundinum, sem var fjölsóttur. Framleiðsla kindakjöts hér á landi árið 1978 var samt. 15.393 tonn, árið 1980, 13.534 tonn og 14.225 tonn 1981. Neysla kinda- kjöts innanlands hefur verið svip- uð frá ári til árs eða milli 8 og 9 þúsund tonn. Mest var hún árið 1979 eða 8.760 tonn. Útflutningur á kindakjöti hefur verið milli 4 og 5 þúsund tonn undanfarin 4 ár, nema ,í fyrra þá var útflutningur rétt rúm 3 þúsund tonn. „Ástæðan var fyrst og fremst sú að það var lítill útflutn- ingur á haustmánuðum 1981, þar sem Norðmenn tóku ekki við neinu kjöti af okkur. Ef litið er á útflutning lambakjöts og horfur í því efni þá kemur í ljós að það er mjög farið að þrengjast um mark- aði í Noregi, en þó ergert ráð fyrir að selja þangað um 600 tonn af þessa árs framleiðslu, en á síðasta ári var salan þangað 2.400 tonn og hefur stundum verið meiri. Ástæðan er einfaldlega sú að Norðmenn hafa aukið framleiðslu sína og eru orðnir sjálfum sér nóg- ir með kindakjöt, og gera jafnvel ráð fyrir útflutningi á kindakjöti á næsta ári.“ Ragnheiður L. Árnadóttir, Sunna Borg og Guðbjörg Thoroddscn í hlutverk- um sínum í„Þrem systrum“ sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir annað kvöld. Flutningar Ríkisskips s.l. ár: Þeir mestu í sögu fyrirtækisins 48% aukning frá árinu 1980 Vöruflutningar meö skipum Skipaútgeröar ríkisins á síðasta ári urðu þeir mestu í sögu fyrir- tækisins. Alls voru flutt 110468 tonn sem er 48% aukning frá árinu 1980, en þá voru flutt 74758 tonn. Það ár hafði einnig verið metár í sögu fyrirtækis- ins. Á síðasta ári var gerður samn- ingur milli Ríkisskips og Hafskips um að Ríkisskip tæki að sér að mestu strandflutninga Hafskips hf. Nemur sá flutningur 30 til 35 þúsund tonnum árlega, þar af um 20 þúsund tonn af kísilgúr frá Húsavík til Reykjavíkur. í skýrslu frá Ríkisskip segir að þetta sé stærsti stykkjavöruflutninga- samningur Ríkisskips til þessa,, og að hann marki tímamót, og gæti verið stefnumarkandi fyrir strandflutninga við ísland. „Vænta má aukinnar hag- kvæmni í flutningum að og frá landinu ef minni skip eru látin annast farmflutninga innflutn- ings- og útflutningsvara til og frá minni höfnum, sem stór ntilli- landaskip umskipa um stærri hafnir," segir í skýrslunni. Þar kemur ennfremur fram að með- altalsaukning flutninga milli ár- anna 1978 til 1981 er um 31% á ári. Þessi magnaukning er aðal- lega tilkomin vegna þess að skipa- félögin hafa í síauknum mæli látið Ríkisskip annast farmflutninga fyrir sig. Farþegar á síðasta ári voru 606 en voru 672 á árinu 1980. Flestir farþegar á veturna eru fluttir á milli Austfjarðahafna. Á sumrin koma flestir farþeganna um borð í Reykjavík og fara hringferð með Ríkisskip. „Sæluvikan“ undirbúin „Sæluvika Skagfirðinga hefst laugardaginn 20. mars með svokallaðri „ForsæIu“, en hin eiginlega Sæluvika hefst svo daginn eftir og lýkur 28. mars,“ sagði Ólafur Jónsson fram- kvæmdastjóri samkomuhúss- ins Bifrastar á Sauðárkróki í samtali við Dag, en Ólafur hef- ur haft veg og vanda að undir- búningi Sæluvikunnar. Á laugardeginum verður dans- leikur um kvöldið og þann dag verða fleiri atriði á dagskránni s.s. ræðukeppni, kórsöngur og jafn- vel eitthvað fleira. Hin eiginlega Sæluvika hefst síðan á sunnudeg- inum með guðsþjónustu. Þann dag frumsýnir Leikfélag Sauðár- króks leikritið „Hjónalíf“ eftir Novel Covart, en því leikstýrir Elsa Jónsdóttir. „Við verðum með kvikmynda- sýningar og dansleiki á „forsælu- kvöldi“ og fimmtudag, föstudag og laugardag. Gömlu dansarnir verða á fimmtudeginum en nýju dansarnir hin kvöldin og það er hljómsveit Geirmundar sem sér um fjörið á dansleikjunum. Kirkjukvöld verður í Sauðár- krókskirkju á mánudeginum og þriðjudeginum. Þá verður mál- verkasýning í Safnahúsinu en það er óákveðið hvaða listamaður sýnir að þessu sinni. Skagfirska söngsveitin kemur fram og syrígur á föstudag og laugardag. Pá er í athugun að Alþýðuleikhúsið komi norður og verði með sýning- ar,“ sagði Ólafur. Hann tjáði Degi að von væri á mörgu aðkomufólki til Sauðár- króks vegna Sæluvikunnar. í fyrra hefði Flugleiðir veitt þeim sem sótt hefðu Sæluviku heim 30% afslátt og líkur væru á því að svo yrði einnig nú.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.