Dagur - 18.02.1982, Page 12
Akureyri, fímmtudagur 18. febrúar 1982
LlMUM BORÐA
RENNUM SKÁLAR
HÓLASKÓL1100 ÁRA
Sauðárkrókur:
Skortur
JT
a
leigu-
húsnæði
„Við höfum getað leyst öll
húsnæðisvandamál kennara,
en það er mikil húsnæöisekla á
Sauðárkróki“, sagði Jón Hjart-
arson, skólameistari fjölbraut-
arskólans á Sauöárkróki, en
Dagur hafði haft af því spurnir
að yfir veturinn væri mikill
skortur á leiguhúsnæði á
Króknum. Jón sagðist vita þess
dæmi að maður hefði orðið að
fara af staðnum vegna þess að
honum tókst ekki að útvega sér
húsnæði.
Húsnæði heimavistar fjölbraut-
arskólans er gjörnýtt og að auki
búa um 40 nemendur í leiguher-
bergjum úti í bæ. Fyrirhugað er að
hefja byggingu nýrrar álmu við
heimavistina og á fjárlögum er
gert ráð fyrir að verja til bygging-
arinnar þremur milljónum króna.
Jón sagði að tilkoma þessa húss
myndi létta vandann, en það
vcrður vart fyrr en eftir þrjú ár að
hægt verður að taka það í notkun.
í tilefni 100 ára afmæli Hóla-
skóla á þessu ári, hafa nokkrir
af eldri búfræðingum frá Hól-
um tekíð sig saman um að efna
til sameiginlegrar gjafar til
skólans.
Framkvæmdanefnd hefur verið
mynduð og mun hún á næstunni
leita til allra Hólamanna sem á lífi
eru og næst til, með ósk um þátt-
töku í gjöfinni.
Hugmyndin er að gefa skólan-
um sundlaug og er verið að kanna
það mál í samráði við skólastjóra
og tæknimenn, sem unnið hafa að
hitaveitunni á Hólum og endur-
bótum á staðnum. Tilboða hefur
verið leitað og bendir allt til þess
að koma megi upp góðri sundlaug
og tilheyrandi aðstöðu við
íþróttahúsið á Hólum fyrir um
það bil 500-600 þúsund krónur.
Nefndin hefur þegar opnað
sparisjóðsreikning í Búnaðar-
bankanum á Sauðárkróki. Reikn-
ingsnúmerið er 11000.
Bráðlega verða gíróseðlar stíl-
aðir á þennan reikning sendir til
allra „gamalla" Hólamanna. En
þar sem ætla má að ekki náist tii
allra m.a. vegnabreyttra heimilis-
fanga, væntir nefndin þess að þeir
sem ekki fá seðla næstu vikurnar
og leggja vilja nokkuð til gjafar-
innar leggi það inn á nefndan
reikning, en það er ekki hægt að
gera í hvaða banka sem er.
Aðrir sem hafa áhuga á að
heiðra Hólastað í tilefni afmælis-
ins geta að sjálfsögðu einnig kom-
ið framlögum til sundlaugarsjóðs-
ins á sama hátt.
Ætlun er að varðveita nöfn
allra gefenda í sérstakri bók á
Hólum.
Þess má geta að fyrirtækið Fjöl-
hönnun, sem séð hefur um hita-
veituna á Hólum hefur ákveðið að
gefa alla vinnu við tæknilegan
undirbúning málsins og veitir það
hverskonar ráðgjöf í þessu sam-
bandi ókeypis.
í framkvæmdanefndinni eru:
Gísli Pálsson, bóndi á Hofi í
Vatnsdal sem er formaður, Ás-
geir Bjarnason, bóndi í Ásgarði
formaður Búnaðarfélgs íslands,
Guðmundur Jóhannsson, bókari
Hjaltabakka 14, Reykjavík, Jón-
as Jónsson, búnaðarálastjóri og
Stefán H. Sigfússon, landgræðslu-
fulltrúi, Sogavegi 36 Reykjavík.
Hitaveita var lögð að Hólum á
síðastliðnu ári og þar er gnægð af
heitu vatni sem ekki nýtist. Það
væri vissulega ánægjulegt ef þar
yrði komin vel búin sundlaug,
gjöf frá „gömlum Hólamönnum"
þegar 100 ára afmæli skólans
verður minnst 4. júlí á komandi
sumri, en að því er stefnt.
Fjar-
söfnun á
Grenivík
Fjögur félagasamtök í Grýtu-
bakkahreppi hafa ákveðið að
efna til nokkurra skemmtana i
lok febrúar á Grenivík. Ágóð-
anum af skemmtunum verður
varið til kaupa á bifreið handa
Víði Þorsteinssyni sem lenti í
bifreiðaslysi 23. maí 1980.
Víðir er nú bundinn við hjóla-
stól.
Víðir hyggst kaupa bifreið, sem
verður að breyta sérstaklega með
hliðsjón af fötlun hans. Vitað er
að þessi bifreið mun verða mjög
dýr „og bindum við því miklar
vonir við góðar undirtektir við
þessa fjáröflun, sem mun veita
Víði aukin tækifæri til sjálfbjargar
og frelsis, sem okkur er öllum svo
nauðsynlegt," segir í fréttatil-
kynningu.
Víðir er tvítugur að aldri. í
fréttatilkynningunni segir að
hann hafi sýnt einstakt jafnaðar-
geð og hugrekki í sjúkdómslegu
sinni, sem hefur vakið aðdáun og
stolt þeirra sem hann þekkja.
Þær skemmtanir, sem verða
haldnar til að fjármagna kaupin,
verða sniðnar við hæfi allrar fjöl-
skyldunnar. Margháttað efni ann-
ast bæði börn og fullorðnir. í mars
verður að sama tilefni haldinn
almennur dansleikur, en þar á að
bjóða upp muni gerða af hagleiks-
manninum Ingólfi Benediktssyni
málara. Hann gefur þá til styrktar
þessu málefni.
Hólar í Hjaltadal.
HRÍSEY:
Nýr grunnskóli
Ákveðið hefur verið að hefja í
vor byggingu á nýjum grunn-
skóla í Hrísey. Nýja skólahúsið
verður 650 fermetrar að grunn-
fleti, að hluta til á tveimur
hæðum.
Pctta nýja skólahús verður reist
rétt við sundlaugina, en þar er
framtíðar skólasvæðið í eynni.
Par er ætlunin í framtíðinni að
byggja einnig félagsheimili og
íþróttahús. Nýjagrunnskólabygg-
ingin mun leysa af hólmi mjög
gamla og úrelta skólabyggingu.
Þrengsli hafa verið þar mjög
mikil, gangur notaður sem
kennslustofa svo eitthvað sé
nefnt.
Mikið hefur verið byggt í Hrís-
ey að undanförnu. Þar hafa verið í
byggingu 8 verkamannaíbúðir í 2
einbýlishúsum og þremur par-
húsum og nú er að verða lokið
tveimur af þessum íbúðum. Það
er fyrirtækið Stuðlafell á Akur-
eyri sem hefur reist þessi hús.
Á síðasta ári var hafin bygging
tveggja nýrra fiskvinnsluhúsa og
viðbyggingu við frystihúsið. Ann-
að af nýju húsunum er í eigu Birg-
is Sigurjónssonar sem rekur út-
gerð í féiagi við Smára Thorarens-
en. Jóhann Sigurbjörnsson og
fleiri Hríseyingar hafa reist hitt
húsið. Bæði þessi hús eru nú til-
búin til notkunar og byrjað að
vinna í þeim.
Þá er einnig verið að byggja við
fiskvinnslustöð KEA, viðbygg-
ingu á tveimur hæðum sem er um
400 fermetrar hvor hæð og er stutt
þar til hægt verður að taka neðri
hæðina í notkun.
JH-Hrísey.
íslenska samvinnuhreyfingin 100 ára:
Kaffiveitingar í
öllum kjörbúðum KEA
Þann 20. febrúar nk. eru liðin
100 ár frá stofnun fyrsta sam-
vinnufélagsins hér á landi,
Kaupfélags Þingeyinga, og 80
ár frá því að kaupfélögin ís-
lensku stofnuðu sín samtök,
Samband íslenskra samvinnu-
félaga, kaupfélögunum og fé-
lagsmönnum þeirra til eflingar
og hagsbóta.
Þessara merku tímamóta munu
samvinnumenn minnast með
ýmsu móti á þessu ári. Sérstök
samstarfsnefnd K.Þ. og Sam-
bandsins annast undirbúning há-
tíðarhaldanna, en hápunktur
þeirra verður aðalfundur Sam-
bandsins, sem haldinn verður
dagana 18. og 19. júní nk. á Húsa-
vík og sérstakur hátíðarfundur að
Laugum í Reykjadal, sunnudag-
inn 20. júní, sem opinn verður öll-
um samvinnumönnum.
Kaupfélögin um land allt og
Sambandið munu gera margskon-
ar afmælistilboð sem dreifast á af-
mælisárið allt. Gert hefur verið
sérstakt afmælismerki með kjör-
orði ársins, sém er „Máttur hinna
mörgu", og mun það skreyta búð-
ir og auglýsingar samvinnuhreyf-
ingarinnar þetta ár.
Kaupfélag Eyfirðinga mun
minnast afmælisins með því að
bjóða félagsmönnum og við-
skiptavinum upp á kaffiveitingar
föstudaginn 19. febrúar kl. 3-6
e.h. í öllum matvöruverslunum
félagsins á Akureyri og við Eyja-
fjörð og í Vöruhúsi KEA. Sérstök
afmælistilboð verða þennan sama
dag í öllum kjörbúðum KEA á
reyktu svínafleski, bjúgum og
London-lamb framparti frá Kjöt-
iðnaðarstöð KEA. Verða þessar
vörur sérstaklega merktar „af-
mælistilboð" og seldar með 20%
afslætti. Síðar á árinu verða vænt-
anlega fleiri slík tilboð.
# ... að koma í
veg fyrir
fordóma
í þessari viku hafa þær Helga
Steffensen og Hallveig Thor-
lacius sýnt börnum á Akur-
eyri brúðuleikrit, en tilgangur-
inn með sýningunni er að
kynna ófötluðum börnum Iff
og starf fatlaðra. S&S hafði
það eftir nemanda sem sá
sýninguna að hún hefði verið
fræðandi og skemmtileg. Eftir
því sem S&S komst næst
voru félagar nemandans hon-
um sammála. f síðasta tölu-
blaði Dags greindu þær stöll-
ur frá því að með sýningunni
væri verið að reyna að koma í
veg fyrir fordóma í garð fatl-
aðra, en of lítið hefur verið
gert af slíku undanfarin ár.
Það ber því að þakka fyrir
þessa sýningu og vona að
framhald verði á starfi þeirra
Helgu og Hallveigar.
# Ðlárefur
skotinn
Fyrr í mánuðinum var skotinn
blárefur í Kelduhverfi. Enginn
veit hvaðan rebbi kom, en það
er vitað að hann hefur ein-
hvern tíma átt heima í refabúi.
Fullyrt hefur verið að blárefur
geti ekki lifað hér á landi - að
veturinn gangi af þeim dauð-
um fyrr en síðar. Það heyrði
S&S að slíkar fullyrðingar
gætu ekki staðist því ekki alls
fyrir löngu hefðu menn fyrir
vestan séð blárefslæðu f
fylgd með alfslenskum ref.
Ekkí hefði verið hægt að sjá
annað en læðunni hefði liðið
afskaplega vel. En það gerlr
varla mikið til þótt einn og
einn refur og minkur sleppi út
úr búri, þvf þessi kvikindi eiga
marga ættingja fyrir hér á
landi og skiptir varla máli þótt
bætist ögn við hópinn.
# Aukabúgrein-
ar
íslenskir bændur hafa í seinni
tfð velt fyrir sér hvaða auka-
búgreínar geti veriö hag-
kvæmt að taka upp. Sumfr
bændur hafa einnig velt þeim
möguleika fyrir sér að hætta
með öllu f hinum hefðbundnu
greinum og snúa sér alfarið
að einhverju nýju. Það kemur
Ifka fram f viðtali við Inga
Tryggvason í blaðinu í dag,
að hætta sé á, að bændur
verði að minnka sauðfjár-
stofninn, því kjetsala til Nor-
egs hafi dregist saman.
• Til fyrir-
myndar
Það er Ijóst að við óbreyttar
aðstæður geta sveitirnar ekki
tekið við mikið fleiri körlum
og konum - því verður að leita
nýrra leiða. Bændur, eða öllu
heldur samtök þirra, hafa
verið ótrauð við að athuga
nýjungar og væri betur ef
fleiri aðilar tækju vinnubrögð
þeirra sér til fyrirmyndar.