Dagur - 19.02.1982, Blaðsíða 8
mjpV" “ Vorum að taka í notkun WSp
j i heitan pott með vatnsnudd[ ^
Sem fyrr bjóðum við upp á alhliða líkamsrækt sól og sauna
Innifalið í mánaðarkortum er:
Líkamsþjálfun, sól,
\ sauna, vatnsnudd. ^ 4
Mánaðarkort kostar 500 kr. og þú hefur
möguleika á aö komast í 20 skipti á mánuði.
Ath. mánaðarkortin gilda frá 1. hversmánaðar
til mánaðarmóta, en lækka eftir því sem líður
á mánuðinn.
Eitt skipti kostar 50 kr. og erþá innifalið það sama.
Komutími er frjáls, opið alla virka daga frá kl. 8-22.
Laugardaga frá kl. 10-16
sunnudaga frá kl. 10-13, karlar.
og frá kl. 13-16, konur.
Verið velkomin
Glerárgötu 26
Sími 25013.
Auglýsingastofa Einars Pálma
8 - DAGUR -19. febrúar 1982
íri nokkur las að tilraunir sýndu að
rottur og mýs fengju krabbamein af
tjörunni og nikotininu í sígarettum.
Greinin snart hann mjög og hann
flýtti sér að færa allar tóbaksbirgð-
imar sínar upp í efstu hillu, þar sem
rottur og mýs gætu ekki náð í þær.
<>0000
íri nokkur fékk starf sem hjálparhella
í hóteleldhúsi og var fengið það starf
að fylla alla saltbaukana. Nokkrum
klukkutímum eftir að hann byrjaði,
var hann spurður hvort hann væri
búinn, en þá var hann bara búinn að
fylla einn bauk.
„Þetta er andskotanum erfiðara,"
sagði hann, „að koma saltinu í gegn
umþessilitlugöt.1'
o o o o <0
írskur bóndi fór til London í brúð-
kaupsferð og varð mjög reiður þegar
hann komst að því að tvö rúm vom í
herberginu.
„Hvað er að?" spurði hin feimna
brúður.
„Ég hélt að við ættum að vera ein í
herberginu," svaraði bóndinn.
o o o o o
íri nokkur flutti til Ameríku þar sem
hann gerðist lögregluþjónn. Kvöld
nokkurt var hann búinn að skrifa 173
stöðumælasektir áður en hann átt-
aði sig á því að hann var i bílabíói.
o -q- o o o
Hvernig þekkir þú irskan kappak-
stursmann í meiriháttar kappakstri?
Hann stoppar við vegarbrúnina
hundrað sinnum. Þrisvar til að fylla á
bensín, fjómm sinnum til að skipta
nm dekk og níutíu og þrisvar til að
spyrja til vegar.