Dagur - 19.02.1982, Qupperneq 11
Leikfélag Hiisavíkur:
KONUMtNAH I
NISKAVUOMU
Höfundur:
Hella Wuolijoki
Þýðandi:
Gunnar Gunnarsson
Leikstjóri, leikmynd
og búningar:
Hallmar Sigurðsson
Leikfélag Húsavíkur hóf sýn-
ingu á þessu leikriti föstudags-
kvöldið 5. febrúar sl., og hefur
það ekki áður verið leikið á ís-
lensku. Gunnar Gunnarsson
þýddi það fyrir Leikfélag Húsa-
víkur. Sænska leikhúsið í Hels-
ingfors sýndi það á sínum tíma í
Þjóðleikhúsinu í Reykjavík.
f leikskránni, sem fylgir sýn-
ingunni á Húsavík, er nokkuð
greint frá höfundinum, Hellu
Wuolijoki. Hún er upprunnin í
Eistlandi, stundaði háskólanám
í Finnlandi, giftist þar erfingja
herragarðs og bjó þar lengst af
ævi sinnar. Hún fæddist árið
1886 og lést 1954. Hún skrifaði
mörg leikrit og nutu þau mikilla
vinsælda í Finnlandi. Hér á landi
mun kunnast verka hennar, sag-
an af Puntilla og Matta í leikgerð
eftir Bertolt Brecht. Hella var
mikilla sanda og sæva og litrík
manngerð. Hún tileinkaði sér
sósialískar skoðanir, var jafn-
framt óðalsherrafrú og stundaði
verslunarviðskipti á alþjóða-
vettvangi og samkvæmislíf. Um
skeið var hún útvarpsstjóri
Finnska útvarpsins. Leikrit
hennar fjalla um mannlíf í Finn-
landi.
Leikritið, Konurnar á Niska-
vuori, gerist á finnsku óðals-
setri. Konur þess eru kempur,
en karlmenn litlir karlar. Fram
kemur í leikritinu, að erfingjarn-
ir að óðalinu N iskavuori, höfðu
í tvo ættliði kvænst til fjár og til-
lagt sér ástkonur að auki. Nú,
sem þriðji ættliðurinn er búinn
að vera kvæntur í nokkur ár og
átt við konu sinni nokkur börn,
verður hann ástfanginn í
kennslukonu. Sú er nýkomin í
sveitina frá Helsingfors og hefur
mjög aðrar hugmyndir um flesta
hluti en sveitafólkið.. Hún er
ekki í vafa um siðferðislegan rétt
sinn í ást sinni á óðalsherranum.
Ástin er sterk einkaréttartilfinn-
ing og svo sem í flestum „þrí-
hyrningum" er hún blind og mis-
kunnarlaus, mjög andvíg sam-
vinnu- eða sameignarformi og
sér í lagi óholl fyrir ungu óðals-
frúna og börnin.
Unga kennslukonan er
kempa. Það er gamla óðalsfrúin
líka. Þær tvær réðu því, sem
varð.
Nema hvað, að úr þessari
Leikritið er spennandi og at-
burðarásin í sýningunni er hæfi-
lega hröð. Hlé var gert á sýning-
unni milli annars og þriðja
þáttar. Það hlé rýfur spennuna
og ætti þess vegna að sleppa því.
Þorm. J.
„komedíu“ í þrem þáttum hefur
leikfélagsfólk á Húsavík og
leikstjórinn, Hallmar Sigurðs-
son gert skemmtilega sýningu.
Alls eru hlutverkin 15. Með ekk-
ert þeirra er illa farið og með
sum þeirra er mjög vel farið. Eitt
aðalhlutverkanna, gömlu óðals-
Frá sýningu Leiktélags Húsavíkur.
frúna, leikur Hrefna Jónsdóttir
með miklum ágætum. í minni
hlutverkum þykir mér skara
framúr leikur Herdísar Birgis-
dóttur í hlutverki aldinnar sögu-
burðarkonu og Sigurðar Hall-
marssonar í hlutverki apótekar-
ans í sveitinni.
Skák um helgina
Mikil gróska er nú í skáklífi
hér norðanlands sem og hjá
frændum okkar á Suðurland-
inu. Úrslit úr skákþingi Akur-
eyrar munu nú brátt liggja Ijós
fyrir, þar sem aðeins lokaum-
ferðirnar eru nú ótefldar.
Vænta má að hrein úrslita-
skák standi á milli Áskels Ö.
Kárasonar núverandi Akur-
eyrarmeistara og Þórs Valtýs-
sonar sigurvegara frá Haust-
mótinu. £n þejr munu eigast
við í síðustu umferð sunnu-
daginn 21. febr. og eru áhorf-
endur hvattir til að mæta og
fylgjast með harðri og spenn-
andi keppni.
Staðan í mótinu er nú þessi:
Áskell 3>/2 v (af 5) Þór 3 v 4- bið-
skák að ógleymdum Jakobi
Kristinssyni sem hefur 3 v. Þá
mun væntanlega verða húsfyllir
hjá félaginu dagana 27.-28.
febr., þar sem hraðskákmót
Akureyrar verður haldið fyrir
unglingana fyrri daginn, en þann
seinni fyrir eldri flokkinn og
hefst kl. 14.00 báða dagana. Það
verður síðan einhvern tíman í
vikunni þarna á milli «em sú
stund rennur upp, og beðið hef-
ur verið með eftirvæntingu, að
einhver hinna erlendu skák-
meistara á Reykjavíkurskák-
mótinu muni leggja land undir
fót og sækja okkur Akureyringa
heim, og þá er að slá í hringinn
og reyna sig í fjölteflinu. Þá er
fyrirhugað að Norðurlandsmót-
ið verði haldið á Húsavík að
þessu sinni upp úr miðjum mars.
Skákfélag Akureyrar hefur nú í
því sambandi ákveðið að styrkja
nokkra unglinga til farar á það
mót, jafnframt sem það gengst
fyrir skáknámskeiðum. Hefst
það fyrsta föstudaginn 26. febr.
kl. 17.00 í Skákheimilinu.
99
Prjár systur
Leikfélag Akureyrar frumsýnir í
kvöld leikritið „Þrjár systur“
eftir eitt þekktasta leikritaskáld
allra tíma, rússan Anton
Tsékhov. Leikritið fjallar um
Sunna Borg og Guðbjörg Thor-
oddsen í hlutverkum sínum.
grundvallarspurningar mann-
legs eðlis og lífs á þann hátt að
við könnumst öll við. Af þessum
sökum glímir leikhúsfólk enn
þann dag í dag, víðs vegar um
heim, við að setja leikrit Tsék-
hovs á svið.
Leikstjóri sýningar LA er
Kári Halldór, leikmynd og bún-
inga gerði Jenný Guðmunds-
dóttir. Lýsingu annast Ingvar
Björnsson og Oliver Kentish
flytur frumsamda tónlist. Þýð-
inguna gerði Geir Kristjánsson.
Leikarar í sýningunni eru 12:
Guðjón Pedersen, Ingibjörg
Björnsdóttir, Sunna Borg,
Ragnheiður Elfa Arnardóttir,
Guðbjörg Thoroddsen, Þórey
Aðalsteinsdóttir, Þröstur Guð-
bjartsson, Gestur E. Jónasson,
Andrés Sigurvinson, Theodór
Júlíusson, Marinó Þorsteinsson
og Jónsteinn Aðalsteinsson.
í tilefni af frumsýningunni á
„Þrem systrum“ fékk LA hing-
að rússneskan bókmenntafræð-
ing Sergei Alisjonok, til þess að
kynna skáldið og verk hans.
Þessi Tsékhov-kynning fór fram
laugardaginn 13. febrúar í Sam-
komuhúsinu. Kynningin var öll-
um opin og fór fram á ensku. Á
samkomunni færði Ásgeir
Höskuldsson LA fyrir hönd
Menningartengsla Islands og
Ráðstjórnarríkjanna, kær-
komna bókagjöf, sem verður
vísir að bókasafni félagsins.
LA sýndi stórmyndina
„Ofullgert verk fyrir sjálfspil-
andi píanó“ eftir Nikita Mik-
halkov. Myndin sækir efni sitt í
verk Téskhovs. Sýningin var í
Borgarbíó mánudaginn 15.
febrúar. Sýningar á „Þrem
systrum“ verða a.m.k. á venju-
legum sýningarkvöldum, þriðju-
daga, fimmtudaga og sunnu-
daga, svo lengi sem aðsókn
helst.
Tónleikar
Gunnar Kvaran sellóleikari
og Gísli Magnússon píanó-
leikari flytja fjölbreytta efnis-
skrá á þriðju áskriftartónleik-
um Tónlistarfélags Akureyrar
í Borgarbíói, nk. laugardag
20. febrúar kl. 17.
Gunnar Kvaran og Gísli
Magnússon hafa haldið sameig-
inlega tónleika víða um land á
síðustu árum, og hvarvetna ver-
ið kærkomnir gestir.
Samstarf þeirra hófst árið
1974 og hafa þeir auk tónleika
innanlands, farið í tónleikaför
um öll Norðurlöndin og til New
York, auk þess sem þeir hafa
leikið fyrir sjónvarp og útvarp.
Á efnisskránni verða:
Sónata í e-moll eftir Vivaldi,
sónata eftir Schubert, serenaða
eftir Hans Verner Henze, til-
brigði Beethovens við stef
Hándels og einnig nokkur
smærri lög.
Sala aðgöngumiðanna fer
fram í Bókabúðinni Huld og við
innganginn. En áskriftarmiðar
gilda fyrir félagsmenn.
Vinabæjakynning
Á ráðstefnu vinabæja Akur-
eyrar sem haldin var í Ála-
sundi á sl. ári, var ákveðið að
„vinarbæjardagur“ skyldi
vera 15. febrúar ár hvert.
Af þessu tilefni verður „opið
hús“ á vegum Norræna félagsins
og Akureyrarbæjar í Gildaskála
Hótel KEA á sunnudaginn kl.
14-18. Þar verður starfsemi
Norræna félagsins kynnt, Her-
mann Sigtryggsson ræðir fram-
kvæmd sambandsins við vinabæi
Akureyrar, sýndar verða kvik-
myndir og boðið verður upp á
kaffi og brauðveitingar á vægu
verði. Allir sem áhuga hafa á
norrænni samvinnu eru vel-
komnir.
Selja blóm á
kon udaginn
Lionsklúbbur Akureyrar
gengst að venju fyrir blóma-
sölu á konudaginn, þ.e. á
sunnudaginn kemur. Gengið
verður í hús á Akureyri og
konubióm boðin til sölu, en
þetta er nú orðin árviss at-
burður í bæjarlífínu á Akur-
eyri.
Að sögn Gunnars Ragnars,
formanns útbreiðslunefndar
klúbbsins, hafa klúbbfélagar
ævinlega fengið mjög góðar
móttökur bæjarbúa, en þeir
verða á ferðinni milli klukkan 10
og 12 á sunnudagsmorgun.
Sagðist Gunnar vona að sölu-
mönnum Lionsklúbbsins yrði
vel tekið, en ágóða sölunnar
verður varið til styrktar Sólborg
og hjúkrunarheimili aldraðra í
Systraseli.
19-‘ febvúac 1982 -DAGURÁ11» t