Dagur - 09.03.1982, Blaðsíða 1

Dagur - 09.03.1982, Blaðsíða 1
TRULOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR I SIGTRYGGUR & PÉTUR 1 AKUREYRI 65. árgangur Akureyri, þriðjudagur 9. mars 1982 27. tölublað Þriðjudaginn 16. mars næst- komandi heldur Passíukórinn á Akureyri tónleika í Akureyr- arkirkju. Þar verður flutt óra- torían Messías eftir Georg Friederich Hándel. Einsöngv- arar með kórnum verða Garðar Cortes, Halldór Yilhelmsson, Rut L. Magnússon og Sigrún Gestsdóttir. Undirleik annast kammersveit skipuð kennurum og nemendum Tónlistarskól- ans á Akureyri og félögum úr Sinfóníuhljómsveit Islands. Stjórnandi er Roar Kvam. Fimm ár eru nú liðin síðan Passíukórinn réðst í það stórvirki að flytja Messías eftir Hándel, en það var á Tónlistardögum í maí 1977. í það sinn var verkið flutt í fullri lengd, en það hefur hvorki fyrr né síðar verið gert hér á landi. A tónleikunum 16. mars verður Messías hins vegar fluttur í tals- vert styttri gerð, eins og víðast tíðkast í seinni tíð. Tónleikarnir verða í þetta sinn í Akureyrarkirkju og vegna anna aðkomandi listamanna svo og þess hve kirkjan er ásetin til ann- arra athafna um þetta leyti árs veða þeir ekki endurteknir. Tón- leikarnir verða sem fyrr segir í Akureyrarkirkju, þriðjudaginn 16. mars og hefjast kl. 20.30. For- sala aðgöngumiða verður hjá Bókabúð Jónasar. Verða Alþingis- kosningar í haust? „Ég tel að margt bendi til að það verði alþingiskosningar í haust,“ sagði einn stjórnarliða í samtali við Dag, en þær raddir hafa orðið æ háværari, sem telja nær öruggt að Alþýðu- bandalagið sé nú í óða önn að leita sér að „góðum“ kosninga- málum og tylliástæðu til stjóm- arslita. Annar viðmælandi blaðsins benti á að ef Alþýðu- bandalagið styddi dyggilega við kröfur ASÍ og VMSI um hærra kaup, þegar nær dregur samn- ingum, væri það að undirbúa stjórnarslit. „Úrslit bæjar- og sveitarstjórnakosninganna skipta líka miklu máli. Ef t.d. Alþýðubandalagið kemur illa út úr þeim getur allt gerst.“ Af samtölum við stjórnarliða og andstæðinga stjórnarinnar má ráða að hér er ekki um einberar sögusagnir að ræða. En hvað gerðu fylgismenn Gunnars Thor- oddsen, forsætisráðherra? Menn voru á einu máli um að þeir myndu ekki bjóða fram sér heldur fylgja flokksforystunni, og halda því fram í kosningabaráttunni að sættir hefðu tekist. „En hvað svo sem hver segir, þá er mikið bil á milli þeirra sjálfstæðismanna, sem styðj a stjórnina og þeirra sem eru henni andsnúnir," sagði einn heimildarmannanna. Stjórnarliði lagði á það mikla áherslu að það væri mikið djúp milli þeirra þingmanna Sjálfstæð- isflokksins, sem sætu á þingi fyrir Reykjavíkursvæðið og þeirra sem kæmu utan af landi. „í sumar verða samningar laus- ir og áhrif af ráðstöfunum ríkis- stjórnarinnar fara að dvína, en ég á ekki von á að reyni verulega á samningamálin fyrr en í haust. Um það leyti er eins víst að Al- þýðubandalagið verði búið að finna sér kosningamál og að stjórnarsamstarfið spryngi,“ sagði sami maður og bætti því við að líklega yrðu kosningarnar í október eða nóvember - ef spá- dómurinn reynist réttur. Þennan höfðingja þekkja víst flestir, þó oftar leiki hann á hljómborð en klarinettu. Þetta er Ingimar Eydal, ásamt fleiri jassáhuga- mönnum, en myndin var tekin á jasskvöldi í Menntasólanum í síðustu viku. Hótel KEA var svo gott sem undirlagt af jassi um helg- ina. Þar var bandaríski jassgítaristinn Paul Weeden á ferð ásamt þcim sem sóttu námskeið hans í jassi. Á sunnudagseftirmiðdag hlýddu um 200 manns á jassleik á KEA og 150 manns sóttu jass-dansleik á sunnduagskvöldið, auk þeirra 30 flytjenda sem fram komu. Mynd: KGA Næstkomandi föstudag verður fræðslu- og umræðufundur um riðu í sauðfé í þinghúsinu að Grund í Svarfaðardal. Að sögn Jóhanns Ólafssonar, formanns Búnaðarfélags Svarfdæla, er fundurinn einkum ætlaður bænd- um í Svarfaðardal, á Dalvík, Ólafsfirði og Árskógsströnd. Framsögumaður á fundinum verður Sigurður Sigurðarson, dýralæknir á Keldum. Jóhann sagði það mikilvægt að sem flestir sæju sér fært að mæta og að um- ræður yrðu málefnalegar. Fundur um riðu í Svarf- aðar- dal Siglósíld að stöðvast eina ferðina enn: „Það er ekki hægt að flytja út verðbólguna“ — segir Pálmi Vilhjálmsson framkvæmdastjóri „Verksmiðjan mun stöðvast eftir þrjár vikur,“ sagði Pálmi Vilhjálmsson, framkvæmda- stjóri Siglósfldar á Siglufirði. „Ástæðan er sú að það vantar sölusamninga fyrir okkar vörur. Það var gerður sölu- samningur í desember við Rússa, og við ásamt K. Jóns- syni, erum að framleiða upp í hann núna. Við erum að Ijúka við okkar hlutdeild í þeim samn- ingi, en það eru gaffalbitar sem við erum að framleiða.“ „Við vonum að það verði hægt að gera samninga við Rússa á næstunni, en það er ekki vitað um hve mikið magn verður að ræða, og verksmiðjan hefur ekki tryggt sér hráefni vegna frekari samn- inga. Slíkt er erfitt þegar ekki er vitað hve mikið er hægt að selja og illt að fjármagna hráefniskaup eingöngu með lánafyrirgreiðslu með tilheyrandi vaxtakostnaði." Pálmi var spurður um hvenær verksmiðjan gæti farið af stað á ný ef nú tækjust samningar við Rússa. Hann svaraði því til að það væri varla fyrr en eftir tvo mánuði frá og með deginum í dag. „Ástæður fyrir þvi' að ekki gengur betur að ná samningum við Rússa eru margþættar." Pálmi sagði að e.t.v. skorti þá sjálfa fé til kaup- anna, en auk þess væri það stað- reynd að íslendingar gætu ekki flutt út verðbólguna - hvorki til Rússlands eða annarra landa. „Við erum að verðleggja okkur út af þessum mörkuðum," sagði Pálmi. „Það er unnið að framtíð- arskipulagningu á verkefnum verksmiðjunnar. Ég vona að eftir það komi svona stöðvun ekki fyrir, en það er spurning um vilja stjórnvalda og stuðning frá þeim.“ Pálmi sagði að um 70 heilsdags- störfværuíverksmiðjunni. lOeru í föstu starfi. Hann bætti við að það væri ekki bjart útlit í atvinnu- málum Siglfirðinga og benti á að útlit væri fyrir stórminnkaða loðnuveiði. „Ef eitthvað verður ekki aðhafst í atvinnumálum Sigl- firðinga, má allt eins gera ráð fyrir að fólk flytji héðan,“ sagði Pálmi Vilhjálmsson að lokum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.