Dagur - 16.03.1982, Page 12
r» ,Pt EIRRÖR -TENGI
(5™netþíts SMURKOppAR
Forráðamenn Ferðamálafélags
Akureyrar sátu sl. fimmtudag
fund með bæjarráði. Á fundinum
ræddu menn um ferðamál á Akur-
eyri og sagði Gunnar Karlsson,
formaður félagsins og hótelstjóri,
að fundurinn hefði verið gagnleg-
ur fyrir alla sem. fundinn sátu.
M.a. var rætt um upplýsingamið-
stöð fyrir ferðamenn og var
ákveðið að Ferðamálafélagið
gerði skýrslu um það hvernig best
væri staðið að þessari miðstöð.
Talsverðar annir hafa verið hjá
rannsóknarlögreglunni á Akur-
eyri að undanförnu vegna inn-
brota í bænum. Að sögn þeirra
Daníels Snorrasonar og
Ófeigs Baldurssonar upplýstu
þeir á dögunum átta innbrot í
bænum. Unglingar voru þar að
verki í öll skiptin, ekki alltaf
þeir sömu, en oftast voru þeir
tveir eða fleiri saman. í flestum
þessara innbrota voru litlar
skemmdir unnar, og yfirleitt
litlu stolið, allt frá nokkrum
krónum og upp í 3 þúsund
krónur þegar mest var.
í síðustu viku var innbrot í
Byggingavöruverslun Tómasar
Björnssonar. Þar var litlu stolið.
Þar var einnig farið í skrifstofur
Hagkaups sem eru í sama húsi og
unnar þar nokkrár skemmdir.
Loks var brotist inn í íbúð í
Tjarnarlundi s.l. miðvikudag og
stolið þaðan talsverðu af pening-
um.
Að lokum má geta þess að
rannsóknarlögreglan auglýsir
eftir bíla og mannaferðum vegna
innbrots í Kaupfélagið á Dalvík
aðfaranótt miðvikudagsins í síð-
ustu viku.
Enn hefur ekki tekist að ráða
lækni til Ólafsfjarðar, en eng-
inn fastráðinn læknir hefur
verið þar frá áramótum eins
og áður hefur verið skýrt frá í
Degi.
Olafur Halldórsson fyrrver-
andi læknir á Akureyri sem
hættur var störfum, hefur af og
til frá áramótum hlaupið undir
bagga og sinnt læknisstörfum í
Ólafsfirði, var hann í Ólafsflrði
til síðustu mánaðarmóta en fór
þá burt. En nú er hann kominn
aftur til Ólafsfjarðar, og vonast
heimamenn til þess að fá notið
krafta hans þar til úr rætist og
fastráðinn læknir hefur störf
þar.
Biðlisti hjá endurhæfingarstöð Sjálfsbjargar:
Mikilvægt að fá næsta
áfanga í notkun sem fyrst
„Það er ekki hægt að segja ann-
að en að það sé góð nýting á
endurhæfingarstöö Sjálfsbjarg-
ar, en það fara í gegn á annað
hundrað manns á degi
hverjum. Biðlisti er talsverður
og er ástæðan m.a. sú að okkur
skortir sjúkraþjálfara,“ sagði
Magnús Ólafsson, sjúkraþjálf-
ari er hann og Sævar Jónatans-
son ræddi við Dag.
Sævar sagði að nú væri búið að
taka fyrsta áfanga í notkun, þ.e.
sjúkraklefa, sjúkraþjálfunarsal,
vinnuaðstöðu fyrir starfsfólk og
skrifstofur. „Á öllum endurhæf-
ingastöðum er talið nauðsynlegt
að hafa sundlaug, enda er sund oft
undirstaða endurhæfingar. Sam-
kvæmt upphaflegum teikningum
af endurhæfingastöðinni er gert
ráð fyrir sundlaug og hópæfinga-
sal, en hann er einkum ætlaður til
fyrirbyggjandi æfinga og endur-
hæfingar. í þessum sal er gert ráð
fyrir að einstaklingar, fyrirtæki
svo og félagasamtök fái aðstöðu.
Fram til þessa hefur þessi þáttur
starfseminnar farið fram í sal, sem
ætlaður er til sjúkraþjálfunar og
því hefur orðið að takmarka þann
fjölda sem hægt hefði verið að
taka á móti. Auk þess vantar
sjúkraþjálfara.“
Sævar sagði að það væri mjög
mikilvægt að þessi áfangi kæmist í
notkun sem fyrst. Teikningar af
honum eru nú í endurskoðun.
Stefnt er að því að framkvæmdir
geti hafist á jjessu ári. „Þegar því
líkur getur endurhæfingarstöðin
komið enn fleiri að notum,“ sagði
Sævar
Það kom fram hjá þeim félög-
um að framkvæmdir sem þessar
eru svo dýrar að það er ekki á færi
félags eins og Sjálfsbjargar að
standa í þeim eitt. „Við höfum
orðið að leita eftir fjárstuðningi
og fengið hann, og það ríkir skiln-
ingur á mikilvægi endurhæfingar-
stöðvarinnar," sagði Sævar og
vildi að lokum benda á, að sam-
kvæmt lögum um endurhæfingu
ber Erfðafjársjóði að leggja fram
1/3 hluta byggingarkostnaðar,
sem óafturkræft framlag, og auk
þess 1/3 sem lán. Sjóðurinn setur
það sem skilyrði að þriðjungur
framkvæmdafjár liggi fyrir heima
í héraði áður en lánið er veitt.
Rauði krossinn:
Söfnunarkassarnir
eru aðeins fyrir
16áraog eldri
„Reynslan af rekstri söfnun-
arkassanna hefur leitt í Ijós að á
einstaka stöðum er ásókn ung-
linga meiri en góðu hófi gegnir
og hafa aðalskrifstofu RKÍ bor-
ist kvartanir þess vegna,“ segir
í bréfí er Jón Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri RKÍ sendi til
umboðsmanna RKÍ. í þessu
bréfí er vakin athygli á því að
börnum og unglingum innan 16
ára aldurs er óheimil notkun
söfnunarkassa RKI, sbr. að-
vörun á kössunum sjálfum, þar
sem stendur: Aðeins fyrir 16
ára og eldri nema í fylgd með
fullorðnum.
Það kom fram í samtali Dags
við Jón, að engar kvartanir hafi
borist aðalskrifstofunni frá Akur-
eyri, en Jón sagði að forráðamenn
RKÍ vildu hafa sem best eftirlit
með kössunum og koma í veg
fyrir að fólk hefði ástæðu til að
kvarta.
„Það er í sjálfu sér ekki
um neitt vandamál að ræða, en
við viljum hafa vaðið fyrir neðan
okkur og koma í veg fyrir að skap-
ist vandamál. Þess vegna sendum
við þetta bréf og brýnum fyrir
okkar mönnum um að standa
vörð um heiður félagsins."
Jón sagði að ef í ljós kæmi að
kassarnir væru misnotaðir væru
þeir samstundis teknir niður. Þess
má geta að ein helsta fjáröflunar-
leið RKÍ eru umræddir kassar.
Fundu einn hrafn, eina
rjúpu og tvo tittlinga
„Á miðvikudaginn fórum við á
sex snjósleðum suður fyrir
svokallaðan Fljótshnjúk. Við
sáum ekki neitt nema eina
rjúpu, einn hrafn og tvo titt-
linga. Við reyndum ekki að
smala þessu saman,“ sagði
Tryggvi Harðarson í Svartár-
koti í Bárðardal. Tilgangur
ferðarinnar var að leita að úti-
gangsfé.
„Það er nú oftast sem maður
finnur einhverjar skepnur, en
tess ber að gæta að það var mjög
seint farið f 3ju göngur og hafi
eitthvað orðið eftir, er eins víst að
það hafi drepist í vetur.“
Tryggvi sagði að snjólög hefðu
minnkað eftir því sem ofar dró,
en þeir félagarnir komust allra
sinna ferða á sleðunum. Þeir sem
fóru voru Páll Kjartansson í Víði-
keri, Sigurgeir Sigurðsson í Lund-
arbrekku, Tryggvi Höskuldsson á
Mýri, Ingvar Ketilsson á Hall-
dórsstöðum, Torfi Aðalsteinsson
í Stórutungu og Tryggvi í Svart-
árkoti.
# Alþjóðlegur
baráttudagur
Að sjálfsögðu lét Rauðsokka-
hreyfingin í sér heyra á al-
þjóðlegum baráttudegi
kvenna, sem var fyrir nokkru.
Þjóðviljinn fjallar um hreyf-
inguna í síðustu viku og fjall-
ar m.a. um grein er Hildur
Jónsdóttir ritaði í málgagn
hreyfingarinnar, Forvitin
rauð. Þar gerir Hildur upp við
kvennaframboðið, segir Þjoð-
viljinn, en Hildur segir að
kvennaframboðskonur vilji
Rauðsokkahreyf inguna feiga,
þyki hún of róttæk, að hún
hafi lokið hlutverki sínu, og
nokkrar þeirra hafi á fundi í
Rauðsokkahreyfingunni í
desember sl. iagt til að hún
yrði lögð niður. Híldurtelurað
ekki sé ástæða til að fórna
henni „á altari hentistefnu og
pólitiskrartilraunastarfsemi."
# Falskarvonir
... með ofuráherslu á ein-
hvern fyrirfram gefinn
„reynsluheim kvenna“
skyggja þær (þ.e. kvenna-
framboðskonur, innsk. Dag-
ur) einnig á raunverulegar
þjóðfélagsandstæður og
sjálfa orsök kvennakúgunar-
innar. Eins og að kvennafram-
boðum hefur verið staðið
hingað til, vekja þær einnig
upp falskar vonir um að rót-
tækra breytinga sé að vænta í
borginni, falsvonir, sem geta
haft alvarlegar afleiðingar
fyrir baráttuvilja kvenna í
framtíðinni.“ S&S tekur undir
þessi orð Hildar og bendir á
að ekki er marktækur munur á
kvennaframboðum í Reykja-
vík og á Akureyri.
# Veriðmeð
frá byrjun
í blaðinu í dag birtist fyrsti
hluti ferðagetraunar, sem
blaðið efndi til í samvinnu við
Samvinnuferðir-Landsýn.
Ferðagetraunin er fyrir áskrif-
endur Dags, og þá sem gerast
áskrifendur meðan ferðaget-
raunin stendur yfir.en henni
lýkur 27. apríl. Séu menn
áskrifendur frá upphafi eru
meiri líkur til þess að þeir
hreppi ferðavinninginn, sem
er að upphæð kr. 10.000, því
dregið verður úr öllum inn-
sendum bréfum. Þeir, sem eru
með frá upphafi, hafa einnig
möguleika á öllum aukavinn-
ingunum, sem eru vöruúttekt
í verslunum á Akureyri að
fjárhæð kr. 400 í hvert sinn,
og eiga auk þess fleiri lausnir
í pottinum þegar dregið verð-
ur um aðalvinninginn. Það er
því best að vera með frá upp-
hafi!
# Baraað
hringja!
Þeir, sem vilja vera með, en
eru ekki áskrifendur, geta
hringt í Jóhannes Mikaelsson
útbreiðslustjóra Dags í síma
24222 - eða til næsta um-
boðsmanns Dags.