Dagur - 19.03.1982, Side 3

Dagur - 19.03.1982, Side 3
MATUR Margrét Kristinsdóttir: EGGJARÉTTIR í TILEFNI PÁSKAKOMUNNAR Fleira er egg en súkkulaðiegg á páskum. Víða í Evrópu eru egg tákn vorkomunnar og frjóseminnar þar sem fuglar eru víða farnir að verpa um það leyti sem páskarnir eru. Hér í okkar landi kemur slíkt ekki til og þó að súkkulaði- eggin séu allsráðandi á mark- aðnum eru þó alltaf til hænu- egg og þar sem þau eru af- burða holl og góð fæða, skul- um við gera þeim hátt undir höfði um páskahátíðina. Hvað um að baka páskabrauð með eggjum í. - Þau eru gjarnan lituð fyrst, þannig að nokkrir dropar af matarlit eru settir í kalt vatn, egginu eða eggjahluta haldið ofan í baðinu í nokkrar mínútur og síðan látið þorna. Ath. að nota aðeins matarlit þar sem eggin snerta deigið í bakst- inum. Páskabrauð með eggjum 80 gger (pressuger eða 8 tsk. þurrger) 'h bolli volgt vatn 'h bolli volg mjólk 'h bolli sykur 2egg lk bolli lint smjörlíki saxað hýði af 2 sítrónum (ath. að- eins ysta lagið af berkinum) 4'A-S bollarhveiti 12 hrá egg, e. t. v. máluð Leysið gerið upp í vatninu. Bæt- ið mjólk, eggjum, smjörlíki, salti, rifnu hýði og helming af hveiti út í og hrærið vel. Bætið hveiti í, þar til hægt er að hnoða deigið í skál, breiðið klút yfir og látið lyfta sér þar til það hefur náð tvöfaldri stærð sinni (I-IV2 klst). Hnoðið deigið aftur og látið lyfta sér í 30 mín. Skiptið deig- inu í tvo hluta. Mótið tvo ca. 90 cm sívalninga úr hvorum helm- ing - leggið þá saman eins og sést á myndinni, þannig að hægt sé að koma 6 eggjum fyrir í hólfun- um. Látið lyfta sér á plötunni í ca. 40 mín. Hærið 1 msk. af vatni saman við 1 eggjarauðu og penslið brauðið. Stráið birkifræi eða skrautsykri yfir og bakið í 20-30 mín í 180°C heitum ofni. Tveir hringir fást úr uppskriftinni. Eggjabaka með beikoni 2 dl hveiti 60 g smjörlíki, kalt 1 tsk. salt 1 egg 2-3 msk. kalt vatn. Saxið smjörlíkið saman við hveitið og saltið, vætið í með eggi og vatni, hnoðið og kælið deigið í u.þ.b. 2 klst. Breiðið deigið út og setjið í kringlótt mót og pikkið botninn með gaffli. Fylling: 3 egg + 2 eggjarauður 50 g rjómaostur 2V2 dl rjómi salt og pipar 8 sneiðar beikon Merjið rjómaostinn með gaffli, hrærið rjómanum saman við og blandið síðan út í vel þeytt egg. Kryddið með salti og pipar. Hellið fyllingunni í botninn og bakið við 200°C í 20 mín., lækk- ið þá strauminn í 175°C og bakið áfram í ca. 10 mín. Ristið beik- onið á þurri pönnu á meðan, rúllið sneiðunum upp og setjið á bökuna þegar hún er tilbúin. Heitur eggjaréttur úr harðsoðnum eggjum 5 harðsoðin egg 70gsmjör salt, pipar 1 búnt steinselja 1-2 dl sýrður rjómi Takið skurninn af eggjunum, skerið þau í tvennt eftir lengd- inni, losið rauðurnar úr og merj- ið þær með gaffli. Hrærið smjöri og klipptri steinselju saman við rauðurnar og fyllið í hvíturnar aftur. Raðið þeim í eldfast mót. Bragðbætið sýrða rjómann með salti, pipar og klipptri steinselju, hellið honum í botninn á fatinu og bakið í 200°C heitum ofni í 10-15 mín. Eggjakaka með Gráðaosti 6egg 3 msk. rjómi lh tsk. salt lh tsk. pipar 2 msk. smjör 150 g Gráðaostur Paprika eða graslaukur Skerið Gráðaostinn í litla ten- inga. Sláið saman egg og rjóma, kryddið með salti og pipar. Hitið smjör á pönnu, hellið eggja- hrærunni út í, dreifið ostbitun- um yfir þegar kakan byrjar að hlaupa. Hitið áfram og hrærið öðru hverju í með gaffli, þar til kakan er hlaupin. Hafið fremur vægan hita. Skreytið eggjakök- una með paprikuhringjum eða graslauk. Berið eggjakökuna fram á pönnunni eða færið hana gætilega yfir á fat. Við bjóðum Akureyringum ókeypis þjónustu. Hringið til okkar og við komum heim og hönnum skilrúm í stofiina eða handrið fyrir stigann. Símar 91-84630 og 91-84631. BJÓÐUM EINNIG VALIN ÍSLENSK HÚSGÖGN SÝNINGARSALUR ÁRMÚLA 20 - SÍMAR: 84630 og 84635 Þii getur gjörbreytt hemúíí þvm með sfábrúmxun, handrlðum og skápum jráÁrfelEfif. ÁRFELLS skilrúm, handrið og skápar eru sérhönnuð fyrir yður. ÁRFELLS-þjónusta. .. .. . við komum og mælum, gerum teikningar og verðtilboð á staönum, yöur að kostnaðar- lausu. ... við biðjum yöur að hafa sam band timanlega. . . . komið með yðar hugmyndir. . . . Greiðsluskilmálar. .. . . . alltað 6 mánuöir. .. . með breytanlegum styttukössum og hillum. . . . með skápum f. hljóm- flutningstæki, bókaskápum, blómakössum og Ijósa- köppum. ... framleidd úrstööluðu, varanlegu. vönduðu efni. .. . Framleiöslan öll er hönnuð af Árfell hf. 19. mars 1982 - DAGUR - 3

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.