Dagur - 19.03.1982, Side 5

Dagur - 19.03.1982, Side 5
Föndur Auður Sæmundsdóttir — Vilborg Aðalsteinsdóttir Lítil taska fyrir litla stelpu Efnisþörf: Afgangar. Ef afgang- ar eru ekki fyrir hendi, þarf ca. 30 cm. efnis, vatt og tölu. Taskan á myndinni er ein- göngu unnin úr afgöngum - 8 mismunandi grænmynstruð efni eru í framstykkinu. Bakhliðin og fóður, ásamt bandi, er úr grænu fínriffluðu flaueli. Fóik er auðvitað í sjálfsvald sett hvernig það velur litina saman. Vinnulýsing: Hringurinn er stærð töskunnar. Sníðið 3 stykki eftirhringnummeð3/4cm. saum- fari og 2 vattstykki án saumfars. í bandið 8V?x60cm. Framstykk- ið er saumað saman úr 8 geirum, sem síðan mynda hring. Best er að sauma saman 2 og 2 geira - þannig að þá séu stykkin 4, sem síðan eru saumuð saman. Fá er framstykki og fóður lagt saman (rétta á móti réttu) og vattið lagt öðru hvoru megin við; sama hvoru mégin það er. Nú er hringurinn saumaður saman, en op skilið eftir til að snúa við í gegnum - þannig að réttan snúi fram. Varpið opið saman f höndum. Eins er farið að með bakstykki og fóður, nema lykkju er stungið inn á milli, en lykkjan er notuð til að loka töskunni. Fallegt er að vattstinga fram- stykkið og þá iná fylgja saumun- um. Einnig er tilvalið að vatt- stinga bakstykkið. Bandið lagt saman eftir endilöngu (rétta móti réttu) og saumað, en u.þ.b. 8 cm. skilið eftir ósaumað í byrj- un og þegar endað er. Leggið endana saman (rétta á móti réttu) og saumið. Pressið saum- farið til sitthvorrar hliðar - brjótið saumfarið inn og varpið eða jaðrið opin saman. Ef vill má stinga bandið eftir endi- löngu. Þá er aðeins eftir að sauma stykkin saman. Pað er bæði hægt að sauma saman í saumavél og/eða varpa saman í höndum, sem er óneitanlega fallegra. Framstykkið er saumað við aðra hlið bandsins og bak- stykkið á móti. Gætið þess þegar þið saumið saman að geirar beggja stykkjanna standist á. Að lokum er fest tala á framhlið töskunnar. Þeirri hugmynd skaut niður síðar að þetta væri fyrirtaks ball- taska. Ef taskan er hugsuð til slíkra nota, þarf bandið trúlega að vera lengra, en það verður hver og einn að finna út sjálfur. Segja má að fyrirtækið hafí byrjað fyrir slysni - spjaUað við Viðar Garðarsson í Skíða- og reiðhjólasölunni Við hvern á að tala ef ætlunin er að fjalla um skíðabúnað? Það tók tíðindamann Dags ekki langan tíma að ákveða það - hann fór til fundar við Viðar Garðarsson, sem hefur aðsetur í Kambagerði. Viðar veit allt um skíði, enda lifir hann og hrærist í skíðum - og reiðhjól- um. A veturna selur Viðar ný og notuð skíði, nýja og notaða skó og skauta fyrir þá sem vilja. Þegar vetraríþróttirnar liggja í dvala selur Viðar og gerir við reiðhjól. Það má e.t.v, segja að fyrir- tækið hafí byrjað fyrir slysni - fyrir nokkrum árum gátu þeir sem stunduðu mikið skíði, hvergi Iosnað við gamlan búnað. Viðar og Tómas Leifs- son tóku upp á því að geyma hann heima hjá hinum fyrr- nefnda og þar reyndu þeir að selja það sem keppnismenn- irnir gátu ekki notað lengur. Smám saman hlóð boltinn utan á sig og fyrr en varði varð Skíða- og reiðhjólasalan að veruleika. Það var því kvöld eitt að farið var á fund Viðars og hann spurður spjörunum úr, en til að byrja með var Viðar beðinn um að svara því hvort ekki væri rétt að áhugi á skíðaíþróttinni hefði vaxið mikið undanfarin ár. „Samfara þeim trimm-áróðri sem hefur gengið yfir hefur áhugi á skíðum vaxið mikið. Það hjálp- aði mikið nú í vetur að snjórinn kom tveimur mánuðum fyrr en venjulega. Ef við tölum um búnaðinn, þá er það staðreynd að skíðaskór hafa batnað mikið á undanförn- um árum, þeir eru orðnir léttari. Nú er líka hægt að fá tiltölulega ódýr skíði fyrir túristatrimmara. Þessi skíði eru mjög létt og hver sem er getur auðveldlega Iært að renna sér með þau á fótunum. Það er gífurlega mikil ásókn í notaðan búnað í unglingastærð- unum. Krakkarnir vaxa upp úr þessu á einum vetri og það má ekki kaupa t.d. skíðaskó svo stóra að þeir endist í mörg ár. Ef krakk- inn fer í of stóra skó, gengur hon- um illa og hann missir áhugann, hættir. Það er líka ómögulegt að kaupa nýja skó á krakka hvern einasta vetur. Því er það að fólk kemur með gömlu skóna til mín, skiptir og fær stærri skó. Ef ég ætti að setja eitthvað út á þann búnað, sem ég sé fólk með upp í fjalli, þá held ég að ég myndi fyrst staðnæmast við bindingarn- ar. Þar eru margir illa staddir, of margir eru með gamlar bindingar, lítið sem ekkert stilltar, og sumir eru á of löngum skfðum. Það má líka segja að það sé skammarlegt, hve margir eru enn í fjallinu án þess að hafa „stoppara" á skíðun- um, en það er í sjálfu sér ekki betra að vera með gamlar bind- ingar, sem festa þig ekki nógu vel við skíðin, eða að þær séu þannig að þú ert alltaf laus. Ef binding- arnar eru gamlar er slysahættan meiri. Jú, vissulega er tíska í þessu eins og öðru, en nú orðið er hún aðallega meðal strákpollanna. Það eru einhverjir Steinmarkstæl- ar í þeim stundum. Almennt klæðir fólk sig vel þegar það fer á skíði, enda er ekki hægt að vera t.d. í stólalyftunni nema vel klæddur." Viðar Garðarsson að störfum í fyrirtækinu. Ljósm. KGA 19. mars 1982 - DAGUR - 5

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.