Dagur - 23.03.1982, Blaðsíða 1

Dagur - 23.03.1982, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR i SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI 65. árgangur Akureyri, þriðjudagur 23. mars 1982 33. tölublað Yegna óhappsins á ísafirði um helgina þar sem kviknaði í öðrum hreyfli Fokker Friendship vélar Flugleiða hefur ein af þotum félagsins verið í stöðugu Akureyrar-flugi síðan. Myndin er af þotunni, tekin á Akureyrarflugvelli á sunnudaginn. Ljósm.: gk-. Stækkun á Hótel KEA: Eykst gistirými um 80-90%? Krossanes: Fýlan úr sögunni Framleiðslu í Krossanesverk- smiðjunni var hætt í bili á föstu- daginn, og nú eiga Akureyring- ar ekki á hættu framvegis að þurfa að búa við ólyktina sem stundum hefur komið frá verk- smiðjunni. Nú er unnið við lokatengingu nýju hreinsitækjanna, og eru norskir sérfræðingar væntanlegir til landsins í vikunni í sambandi við það verk. Búið er að rífa niður strompinn.sem spúð hefur reykn- um yfir bæinn þegar vindátt hefur verið norðlæg, og í framtíðinni mun Akureyringum engin óþæg- indi stafa af mengun frá verk- smiðjunni. Bjargráðasjóður: Greiðsla lána að hefjast „Einhvern næstu daga mun Bjargráðasjóður fá fyrir- greiðslu í Seðlabankanum, Búnaðarbankanum og Lands- bankanum. Nú er unnið að því eins og tök eru á, að flýta af- greiðslu þessara lána,“ sagði Stefán Yalgeirsson, alþingis- maður í samtali við Dag. Stefán sagði að á þessu stigi væri ekki hægt að nefna hve mikið fé Bjargráðasjóður fengi. „Sjóð- urinn mun lána kartöflubændum og þeim, sem þurftu að kaupa mjög mikið fóður í vetur. Ég vona að mestu vandræðin verði úr sög- unni þegar búið er að afgreiða þessi Ián,“ sagði Stefán að lokum. „Ég veit að það er fullur vilji fyrir því að fara í þessar fram- kvæmdir, en ákvörðun um hvenær það verður gert hefur ekki verið tekin,“ sagði Gunn- ar Karlsson hótelstjóri á Hótel KEA á Akureyri, er við spurð- um hann hvort fyrir dyrum stæðu breytingar á hótelinu sem miðuðu að því að auka gistirými. „Það liggja fyrir tvær tillögur sem eru nokkuð fullmótaðar', og önnur tillagan var unnin upp eftir áramótin. Hún gerir ráð fyrir breytingum á því húsnæði sem við höfum til staðar með því að nýta húsnæðið þar sem brauðgerðin og apótekið voru til húsa. Ég tel nokkuð víst að þegar ráðist verði í þetta þá verði sá kostur ofan á, það verði horfið frá þeim miklu viðbyggingum sem voru fyrirhug- aðar. Þessar framkvæmdir gætu þýtt fjölgun um 20-24 herbergi til við- bótar þeim 28 herbergjum sem fyrir, eru þannig að aukningin í gistirýminu yrði á milli 80 og 90%. Það myndi gjörbreyta stöðunni hér ef í þetta yrði ráðist. Ég veit að það er fullur vilji á þessum framkvæmdum og möguleikar á fjármögnun þeirra hafa verið kannaðar, en endanleg ákvörðun hefur ekki verið tekin,“ sagði Gunnar. 120 þúsund raunum bls.7 Hreppsnefnd Hrafnagils- hrepps felldi samninginn Undanfarnar vikur hafa staðið yfír samningsfundir milli Hita- veitu Akureyrar og Hrafnagils- hrepps um rétt á heitu vatni úr borholum hitaveitunnar I Hrafnagilshreppi. Föstudaginn 12. mars náðist loks samkomu- lag á 6 klst. löngum samninga- fundi samninganefnda og var skrifað undir með fyrirvara. Samkvæmt heimildum Dags var gert ráð fyrir því í samnings- drögunum, að eitthvað af vatn- inu, sem talið er að horfið hafi við boranir, yrði bætt og við- bótarvatn fengist keypt af hit- aveitunni. Gegn þessu fengi hita- veitan allar hitalagnir og hita- réttindi á svæðinu. Hrepps- nefnd Hrafnagilshrepps felldi þessi samningsdrög á fundi stuttu seinna. Forsaga málsins er að Laugar- borg, Barnaskólinn og síðar Hrafnagilsskóli voru hituð upp með vatni sem fékkst úr lind á svæðinu. Hrafnagilshreppur byggði brunn við lindina og dælu- stöð, þaðan var dælt 6-8 1/sek. af 50 gráðu heitu vatni. Seinna voru boraðar þarna grunnar borholur og reist ný dælustöð. Úr þessum holum fékkst mjög svipað magn af vatni og áður hafði fengist úr lindinni, en hún þornaði við þess- ar framkvæmdir. Eftir boranir og kraftmiklar djúpdælingar Hitaveitunnar minnkaði þetta vatn og hvarf loks alveg. Þetta sama gerðist einnig annarsstaðar í grenndinni t.d. við Reykhús og Grísará. Hitaveita Akureyrar hefur fengið vatn úr tveim borholum í Hrafnagilshreppi, önnur er í landi Hrafnagils en hin er í landi Botns. Gerði Hitaveitan samning um vatnsréttindi í landi Hrafna- gils við Hjalta Jósepsson bónda, en Botn er í eigu Akureyrrbæjar. Hrafnagilshreppur fór nú fram á bætur fyrir það vatn sem hvarf, en Hitaveitan neitaði að þarna væru nokkur tengsl á milli. Að sögn heimamanna kemur þessi af- staða Hitaveitunnar flestum spánskt fyrir sjónir vegna þess, að Hitaveitan hafi þegar bætt fyrir vatn í svipuðu tilfelli, það er að segja í Reykhúsum. Einnig mun það koma fram í skýrslum Orku- stofnunar að „tengsl" séu á milli þessara vatnssvæða er um ræðir. Til þess að knýja fram úrslit í þessu máli stefndi hreppsnefnd Hrafnagilshrepps bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar Akureyrar til ógildingar á samningi Hitaveit- unnar og Hjalta Jósepssonar Hrafnagili. Eins og áður sagði felldi hreppsnefnd Hrafnagilshrepps samningsdrög þau er ácur eru nefnd en stjórn Hitaveitunnar fjallar um þau í dag eða á morgun.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.