Dagur - 23.03.1982, Qupperneq 12
mmr
Akureyri, þriðjudagur 23. mars 1982
RAFGEYHAR
[ BÍUNN, BÁTINN, VINNUVÉUNA
VEUIÐ RÉTT
MERKI
Herbert „Kóki“ Ólason ásamt syni sýnum í dyrum Hafnarstrætis 96 þar sem
„Kókaborgarar“ verða til húsa. Ljósm.: gk-.
„Hamborgara-
aldan“ hefur
innreið sína
Heilbrigðisfulitrúi Akureyrar:
Nauðsynlegt að
aflífa allar
skjaldbökur
Sauðárkrókur:
Hafnar-
garðurinn
lengdur
Á fjárlögum í ár er áætlað að
lengja grjótgarðinn í Sauðár-
krókshöfn um 50 metra. Einnig er
á dagskrá að steypa þekju á hluta
hafnargarðsins. í ofsa veðri fyrir
nokkrum árum hvarf fremsti hluti
grjótgarðsins, eða sandfangarans,
og að sögn Steingríms Aðalsteins-
sonar hafnsögumanns, er þetta
brýn framkvæmd. „Þessum grjót-
garði var ætlað það hlutverk að
stöðva sandburð úr Gönguskarðs-
ós inn í höfnina. Eftir að garður-
inn styttist hefur borist mikið af
sandi inn í höfnina.“
Listavaka í
Stórutjarnar-
skóla
Árleg listavaka Lionsklúbbsins
Sigurðar Luther verður haldin í
Stórutjarnarskóla föstudags-
kvöldið 26. mars og hefst kl. 21.
Bolli Gústafsson í Laufási og
Hjörtur Pálsson dagskrárstjóri
lesa úr verkum sínum. tónlistar-
flutningur verður í höndum tón-
listarskólans á Akureyri. Málverk
eftir Kees Visser og Ulf Ragnars-
son verða til sýnis.
Aðgangur er ókeypis að venju,
en veitingar verða seldar.
Örn ráðinn
útibús-
stjóri KNÞ á
Raufarhöfn
Örn Sigurðsson frá Þórshöfn, hef-
ur verið ráðinn útibússtjóri Kaup-
félags Noröur-Þingeyinga á Rauf-
arhöfn. Örn kemur í stað Péturs
Þorgrímssonar, sem fer í vor til
Kópaskers og tekur þar við starfi
kaupfélagsstjóra. Undanfarin ár
hefur Örn starfað sem fram-
kvæmdastjóri saumastofunnar
Snælda, auk þess sem hann hefur
starfað við ýmis verslunarstörf hjá
Kaupfélagi Langnesinga.
Nýr kaup-
félags-
stjóri
á Kópaskeri
I síðustu viku var Pétur Þorgríms-
son ráðinn kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Norður-Þingeyinga í
stað Ólafs Friðrikssonar, sem hef-
ur tekið að sér stöðu kaupfélags-
stjóra á Sauðákróki. Pétur, sem
er 27 ára, hefur undanfarin ár
starfað sem útibússtjóri KNÞ á
Raufarhöfn. Hann er kvæntur
Magneu Árnadóttur og eiga þau
tvö börn. Pétur er Öxnfirðingur
að ætt og uppruna, sonur Þor-
gríms Þorsteinssonar og Þóru
Jónsdóttur í Klifshaga.
Akureyringar mega eiga von á
því aö áður en langt um líöur
muni tveir til þrír nýir matsölu-
staðir taka til starfa hér í
bænum, og má telja nær öruggt
að tveir af þessum stöðum verði
svokallaðir hamborgarastaðir.
„Það er ekki ákveðið hvaða
starfsemi verður í þessu húsi,“
sagði Magnús Þórisson, en hann
hefur keypt húsnæðið að Ráð-
hústorgi 5 þar sem Sport og hljóð
var áður til húsa. Sá orðrómur
hefur gengið fjöllunum hærra í
bænum að á neðri hæðinni yrði
hamborgarasstaður og uppi kaffi-
stofa og matsölustaður sem hefði
vínveitingaleyfi.
„Ég hef aldrei heyrt um neina
kaffistofu þarna, en það hefur
komið til tals með hamborgara-
staðinn þótt það sé ekki neitt
ákveðið íþeimefnum. Þaðstanda
yfir viðræður um það mál,“ sagði
Magnús.
Öruggar heimildir Dags herma
að bæði Tommaborgarar og
Winnys borgarar hafi sýnt áhuga á
að setja á fót hamborgarasölu í
í blaðinu í dag hirtist annar
hluti ferðagetraunar Dags og
Samvinnuferða/Landsýnar.
Þeir áskrifendur, sem taka þátt
í henni, eru beðnir um að senda
svarið sem fyrst til Dags. Um-
slagið á að merkja: Dagur,
ferðagetraun, Strandgötu 31,
602 Akureyri.
þessu húsnæði og séu bæði þessi
fyrirtæki í viðræðum við Magnús
og muni þau mál skýrast á næstu
dögum.
En á meðan öllu þessu fer fram
vinnur Herbert Ólason „Kóki“
hörðum höndum við innréttingar
á húsnæðinu í Hafnarstræti 94,
þar sem Cesar var áður til húsa.
Hann ætlar í næsta mánuði að
opna þar hamborgarastað undir
nafninu „Kóka-borgarar“ og það
leikur enginn vafi á um þær fram-
kvæmdir allar.
Þá herma sögusagnir, sem eiga
við rök að styðjast, að þrír ungir
Akureyringar hyggist setja á fót
matsölustað við Glerárgötu. Hér
yrði um lítinn „huggulegan“ mat-
sölustað að ræða, þar sem áhersla
yrði lögð á alhliða mat, en ekki
eingöngu hamborgara eins og á
hinum stöðunum.
Af framansögðu er ljóst að Ak-
ureyringar mega eiga von á nýjum
matsölustöðum í bænum, en í
augnablikinu er ekki ljóst hve
margir þeir verða.
í næstu viku verður dregið um
fyrsta aukavinninginn, sem er
vöruúttekt í verslun á Akureyri
að verðmæti kr. 400. Þeir sem
ekki eru áskrifendur eru hvattir til
að verða það sem fyrst - og taka
þátt í ferðagetrauninni. Vinsam-
legast hafið samband við Jóhann-
es Mikaelsson í síma 24222.
„Það er ágætt að fólk geri sér
grein fyrir hættunni, sem stafar
af skjaldbökum, en ég vildi líka
koma því á framfæri að það er
tiltölulega auðvelt að fyrir-
byggja smit með hreinlæti. Ég
veit til þess að fólk sem á
skjaldbökur hefur orðið fyrir
aðkasti á vinnustað, og að fólk
gengur jafnvel svo langt að
heimsækja ekki þá sem eiga
svona dýr.“ sagði Valdimar
Brynjólfsson heilbrigðisfull-
trúi.
Valdimar sagðist vilja benda
eigendum skjaldbaka á að láta
aflífa þær hjá héraðsdýralækni,
sem kemur þeim í rannsókn.
Nauðsynlegt er að sótthreinsa
búrin vel með klórupplausn eða
benslkon (1%). Hugsanlegt er að
smit hafi borist í fiskaker, en þar
sem fiskar hýsa ekki sýkilinn, er
nægjanlegt að skipta um vatn og
sótthreinsa kerið 2-3 sinnum.
Einnig er mögulegt að sótthreinsa
með því að setja klórmintöflur í
kerið hjá fiskunum.
Farið er fram á það við fólk sem
á eða hefur átt skjaldbökur, að
það hafi samband við skrifstofu
héraðslæknis (sími 24052). Nauð-
synlegt er að taka sýni úr því.
Smitberum er óheimilt að vinna
við matvælaframleiðslu uns lækn-
ing hefur átt sér stað. Athuga ber
að enginn er talinn smitberi fyrr
en sannast hefur að hann sé það.
Börnum, sem reynast smitberar
er heimilt að fara í skóla, enda sé
ríkt eftir því gengið að þau þvoi
sér vel um hendur, sérstaklega
eftir salernisnotkun. Þau mega
ekki fara í sund eða leikfimi fyrr
en þau eru talin smitfrí. Börn með
jákvæðar ræktanir mega ekki
dveljast á dagvistarstofnunum.
Sérstaklega er brýnt fyrir öllum
þeim sem á einhvern hátt vinna
við matvæli, einnig ah eimilum,
að ástunda hreinlæti og gæta þess
sérstaklega að þvo vel hendur.
Með góðu hreinlæti má koma í
veg fyrir útbreiðslu sjúkdómsins.
Ekkert hefur enn komið fram
sem bendir til þess að önnur dýr
beri með sér „salmónellu para-
typhi B.“ Rétt er þó að benda
fólki á þá hættu sem er samfara
ólöglegum innflutningi dýra og
hvetja það til að farga slíkum
dýrum. Hundaæði t.d. er til stað-
ar í Evrópu og ef það næði fót-
festu hér gæti það haft uggvænleg-
ar afleiðingar.
m
# Framboðs-
raunir Krata
á Akureyri
Listi Alþýðuflokksmanna
vegna bæjarstjórnarkosning-
anna í vor er sagður vefjast
fyrir flokksapparatinu á Akur-
eyri. „Topparnir" f flokknum á
Akureyri, vilja Jórunni
Sæmundsdóttur út af listan-
um og Tryggva Gunnarsson
alls ekki ofaren í fimmta sæti.
Talað hefur verið um að Gígja
Möller gæti skipað annað
sæti listans og eins hefur Sig-
björn Gunnarsson verið orð-
aður við eitt af efstu sætun-
um. Sömu sögu er að segja
um Þorvald Jónsson, Pétur
Torfason og Bárð Halidórs-
son, en gallinn er bara sá að
enginn þessara manna fékk
atkvæði í prófkjörinu. Raunar
var Þorvaldur búinn að lýsa
því yfir að hann ætlaði að
hætta í bæjarmálapólitíkinni,
en hart hefur verið gengið á
eftir honum að gefa kost á sér,
svo betur gangi að loka á þau
Jórunni og Tryggva.
# Getur Hreinn
lægt öldurnar
Hreinn Pátsson bæjaralög-
maður, á sæti í uppstillingar-
nefnd Alþýðuflokksmanna og
hefur hann verið erlendis að
undanförnu. Hann mun hafa
komið heim um helgina og
binda menn vonir við það að
honum takist að lægja öldurn-
ar og berja saman lista sem
UUJUUU
allir Alþýðuflokksmenn geti
sætt sig við. S&S hefur það
eftir áreiðanlegum heimildum
að Jórunn berjist hart gegn
„flokkseigandafélaginu" og
vilji að tillit verði tekið til
heildaratkvæðamagns í próf-
kjörinu, en þar hlaut hún ann-
að sæti, og munaði aðeins
fjórum atkvæðum á henni og
Frey Ófeigssyni. Hart var deilt
um framboðsmálin á fundi 15.
þessa mánaðar og er sagt að
þar hafi Jórunn haldið stfft
fram sínum hlut og hlut
Tryggva, en ekki hlotið
mikinn hljómgrunn. Krati
nokkur sagði að eflaust yrði
haldinn fulltrúaráðsfundur í
Alþýðuflokksfélagi Akureyrar
innan skamms og átti hann
allt eins von á þvi að þar yrði
kosiðum hvert sæti - nema að
bæjarlögmanninum tækist að
stilla samflokksmenn sína,
og koma í veg fyrir að margir
listar verði á lofti - eins og
þessa stundina.
# Steinull
og brú
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að þingmeirihluti nú-
verandi ríkisstjórnar er
tæpur. Eggert Haukdal getur
t.d. verið í lykilaðstöðu ef því
er að skipta. S&S hleraði að
nú væri búið að stinga dúsu
upp í Eggert með þeim afleið-
ingum að hann sé hjartanlega
sammála því að það beri að
reisa steinullarverksmiðjuna
á Sauðárkróki. Og dúsan? Eitt
stykki brú yfir ósa Öifusár -
eða þannig.
Ferðaget rau n i n