Dagur - 26.03.1982, Blaðsíða 5
Skákþlng Norðurlands:
Þrír urðu efstir
eftir hörkukeppni
Skákþing Norðurlands fór fram
á Húsavík um síðustu helgi.
Þátttakendur voru 57 taisins
Happdrættí SÁÁ:
Leitað
til
fyrir-
tækja
Byggingahappadrætti SAÁ er
nú í fullum gangi, en þann 7.
april verður dregið um hina
glæsilegu vinninga sem í boði
eru, 9 glæsilegar bifreiðir.
SÁÁ hefur í hyggju að snúa sér
til fyrirtækja víðsvegar um landið
með beiðni um stuðning og vonast
eftir góðum undirtektum. Nokk-
uð hefur verið um það að fyrir-
tæki hafí keypt, sem nemur einum
miða á hvern starfsmann. Á Ak-
ureyri er þeim fyrirtækjum sem
áhuga hafa á að styðja SÁÁ bent
á að hafa samband við Hallgrím
Arason í síma 21818, og mun
hann taka vilyrðum um stuðning.
Fyrirtækin munu síðan fá senda
happadrættismiða fyrir þeirri
upphæð sem þau tiltaka.
Eins og kunnugt er hyggjast
SÁÁ-menn hefja byggingu
sjúkrastöðvar í stað gömlu bygg-
ingarinnar að Silungapolli sem
hefur þjónað því hlutverki til
þessa, en hún er fyrir löngu orðin
allt of lítil og úrelt í alla staði.
Leiðrétting
í frétt í blaðinu sl. þriðjudag vai
frá því sagt, að samningar milli
Hitaveitu Akureyrar annarsvegar
og Hrafnagilshrepps og Hrafna-
gilsskóla hinsvegar, um heitt vatn
úr borholum Hitaveitunnar í
hreppnum, hafi verið felldir.
Heldur var sterkt til orða tekið,
því nær væri að segja að heima-
menn séu enn að athuga samn-
ingsdrögin og ætli sér að óska eftir
nánari viðræðum um viss atriði í
þeim.
Heildsala -
smásala
ÓMyri 6, Akureyri . PAmthóll 432 . Sfml 24223
alls staðar að af Norðurlandi.
Keppni í meistaraflokki var
mjög spennandi og jöfn. Úrslit
réðust ekki fyrr en í síðustu
umferð.
Helstu úrslit urðu þessi: 1.-3.
sæti: Jón Kristinsson Hólmavík,
Jakob Kristinsson Akureyri og
Gylfi Þórhallsson Akureyri. Þeir
voru allir með 5 1/2 vinning af 7
mögulegum. í 4.-5. sæti voru þeir
Pálmi Pétursson Akureyri og Jón
Garðar Viðarsson Akureyri með
5 vinninga af 7. í 6. sæti var Jón
Árni Jónsson.
Þar sem Jón Kristinsson keppti
sem gestur kom titillinn í hlut
Jakobs, því hann var hærri að stig-
um en Gylfi.
Önnur úrslit urðu þau að í ung-
lingaflokki sigraði Emil Friðfinns-
son Akureyri. í öðru sæti varð
Arnar Þorsteinsson Akureyri og í
3.-4. sæti urðu þeir Haraldur Sig-
urjónsson Húsavík og Páll A.
Jónsson Siglufirði. í kvennaflokki
varð hlutskörpust Ásrún Árna-
dóttir og í öðru sæti Arnfríður
Friðriksdóttir.
í hraðskák urðu úrslit sem hér
segir: Jakob Kristinsson varð
efstur, í 2. sæti Jón Kristinsson, í
3. sæti Hjörleifur Halldórsson, í
4. sæti Pálmi Pétursson oj> í 5. sæti
Jón Garðar Viðarsson. I kvenna-
flokki sigraði Sveinfríður Hall-
dórsdóttir Eyjafirði og í unglinga-
flokki sigraði Arnar Þorsteinsson.
Skákstjóri var Albert Sigurðar-
son.
Viljum ráða nema i
prentiðn.
(poö)
Prentverk Odds Björnssonar h.f. Akureyri
H-100
.
Heitur og kaldur veislumatur sendur hvert á
land sem er.
Pantanir og upplýsingar í síma 25500.
H-100opið öll kvöld.
Munið snyrtiiega kiæðnaðinn.
Leikfélag Akureyrar
Dýrin í
Hálsaskógi
Sýning sunnudaginn 28. mars kl. 17 og
þriðjudaginn 30. mars kl. 18.
Örfáar sýningar eftir.
Miðasala alla daga, sími 24073.
Eiginmaður minn og faðir okkar,
HÖSKULDURJÓHANNESSON,
frá Hesjuvöllum,
andaðist að heimili sinu, Hamarstíg 37, þriðjudaginn 23. mars.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju, þriðjudaginn 30. mars kl.
13.30. Jarðsett verður að Lögmannshlið. Blóm og kransar af-
þakkaðir, en þeir, sem vildu minnast hans, er bent á sjúkrahús
Akureyrar.
Rósa Vilhjálmsdóttir,
börn og tengdabörn.
Nauðungaruppboð
Fimmtudaginn 1. apríl n.k. kl. 14 verður seld á nauðungarupp-
boði við lögreglustöðina á Akureyri bifreiðin A-1865.
Fyrir hönd bæjarfógetans á Akureyri,
Erlingur Óskarsson.
Húseignir til sölu
Vekjum athygli á eftirtöldum eignum:
3ja herbergja íbúð við Hafnarstræti:
íbúðin er að hluta til undir risi, íbúð þessi er mjög
björt og skemmtileg. Nýleg teppi á gólfum.
4ra herbergja raðhúsaíbúð við Seljahlíð:
íbúðin getur verið laus eftir samkomulagi, góð
íbúð á vinsælum stað.
Raðhúsaíbúð á tveimur hæðum við Einholt:
Góð íbúð á rólegum og góðum stað. Laus eftir
samkomulagi.
4ra herbergja raðhús á einni hæð við
Grundargerði:
Einkasala. Laus 1. júlí.
® 2 46 47
Fasteignasalan
Strandgötul
Landsbankahúsinu.
Opið frá kl. 16.30 til 18.30.
Heimasími sölumanna:
Sigurjón 25296 og
Stefán 21717.
Auglýsing frá Ríkisútvarpinu:
Starf tæknimanns
útvarps á Akureyri
er laust til umsóknar. Um tvær hálfar stöður gæti
verið að ræða.
Tilskilin er menntun í útvarpsvirkjun eða önnur
sambærileg menntun.
Umsóknarfresturertil 15. apríl.
Starfsmannastjóri.
^ÚRNATtl
Skemmti- og
HEÍÍS menningardagskrá
til að minnast 30. mars, verður haldin á Hótel
KEA, laugardaginn 27. mars kl. 2.
Ræðumaður: Böðvar Guðmundsson.
Skemmtiatriði - Tónlist - Happdrætti - Kaffiveitingar.
Komum og eflum baráttuandann
Akureyrardeild SHA
26. mars 1982 - DAGUR - 5