Dagur - 26.03.1982, Blaðsíða 9

Dagur - 26.03.1982, Blaðsíða 9
Ragnar Lár. MEÐ BLOKK OG BLYANT Karlmenn eru mun íhaldssamarí Þegar minnst er á tískuna, þá kemur mönnum gjarna konan í hug, þar eð tískan er oftast tengd henni. En langt er því frá, að karimaðurinn eltist ekki einnig við tískuna, þó fæstir karlmenn viðurkenni það. Karl- menn eru líka mun íhaldssamari en kvenmenn, og þessvegna ganga þeir ennþá í hinum forn- fálegu og jafnframt óþægilegu jakkafötum. Jakkafötin hafa með öðrum orðum verið við lýði í aldir, með nokkrum tilbrigðum þó. Um höfuðbúnað karlmanna gildir sama máli, hattarnir eru aldagömul uppfinning, en til- breytingin hefur verið öllu tneiri í garð þeirra. Upphaflega munu hattar til komnir af illri nauðsyn. Peir hafa verið gerðir til skjóls við sólargeislum eða regni. Þeir hafa því varla verið notaðir af steinaldarmönnum á ísöld. í þá tíð hafa önnur höfuðföt hentað betur. Nú á dögum eru hattar mest til skrauts, a.m.k. hjá hin- um svokallaða siðmenntaða heimi, en því má ekki gleyma , að þeir eru hin mesta nauðsyn enn í dag, þar sem brennandi sólargeislar hellast ofan í hvirfil manna. Þegar við karlmenn lát- um það henda okkur að gera gys að konum fyrir eltingaleik þeirra við tískuna, þá skulum við ekki gleyma því, að karlþjóðin hefur verið ansi iðin við þennan sama eltingaleik. Hártískan hefur verið með ýmsu móti gegnum aldirnar, ým- ist stutt eða síð og allt þar á milli. Þegar bítlatískan á sínum tíma tröllreið heiminum, þá urðu margir til þess að hneykslast. Rólyndustu menn áttu ekki orð til yfir þessa úrkynjun, en sömu menn voru komnir með sítt hár fyrr en varði. Langt er því frá, að bítlatískan væri nýjung í hár- tísku karlmanna, en óneitanlega var hún byltingarkennd á þeim tíma sem hún skaut upp kollin- um. A sama tíma og menn í Eng- landi hneyksluðust á piltunum frá Liverpool og hártískunni þeirra, sátu virðulegir dómarar landsins í réttarsölum, skrýddir ljóshærðum hárkollum, (fram- ieiddum í Hampiðjunni). Með þessum línum fylgja nokkrar teikningar sem sýna karla frá ýmsum tíma. skrýfinguna. Næst skulum við líta á Rómverjan. Skegg hans er vel snyrt og hárið greitt fram. Þessa tísku má sjá hjá sumum mönnum enn þann dag í dag, þó ástæðan fyrir „fram- greiðslunni," sé stundum önnur en eltingaleikur við tískuna eina saman. Þá er að líta á tvær myndir frá 17. öld. Sá með hatt- inn er flæmskur höfðingi. Hann hefur greinilega látið klippa sig sítt. Sá með prestakragan er enskur hefðarmaður og er greinilegt að hann hefur ekki kastað höndunum til snyrtingar- innar. Tvær myndir eru frá 19. öld. Sá með pípuhattinn er í hversdagsklæðum hefðar- manna. Skeggið er samskonar og t.d. Steingrímur skáld, Thor- steinsson bar, og bartarnir eru áberandi. Sá með köflótta hatt- inn er ekki í hversdagsklæðum. Þennan klæðnað báru kylfingar þessara ára í Bretlandi, en enn í dag má sjá kylfinga í köflóttum buxum. Loks er mynd frá 20. öldinni. Hún gæti verið áf ame- rískum blaðamanni á árunum 1930-40, aðstoðamanni A1 Cap- one, eða íslendingi á stríðsárun- um síðari. Já, það er margt skrýtið í kýr- hausnum. Fyrst skulum við líta á Persann. Hár hans og skegg er vandlega skrýft, en því miður fylgir ekki mynd af krullujárn- inu sem notað hefur verið við & býður enginn annarllHan Kynntuhér kostina sembjóðast Dæmi um noktena valkosti af mörgum. Hámark mánaðarlegra innborgana hjá Iðnaðarbankanum er nú 4.000 kr í öllum flokkum. Eftir 3 mánaða sparnað áttu þannig 12.000 kr. á IB reikningi þínum. Að viðbættum vöxtum þínum og IB-láni frá Iðnaðarbankanum hefurðu í höndunum kr. 24.500 til þinnar ráðstöfunar. - Þremur mánuðum eftir að þú hófst sparnað. SPARNAÐAR- DÆMI UM MANAÐARLEGA INNBORGUN SPARNAÐUR IÐNAÐARBANKINN RÁÐSTÖFUNAR- MANAÐARLEG ENDURGR. TÍMABIL í LOK TÍMABILS LÁNAR ÞÉR FÉMEÐ VÖXTUM ENDURGREIÐSLA TÍMABIL 3 . man. 1.000.00 2.500.00 4.000.00 3.000.00 7.500.00 12.000.00 3.000.00 7.500.00 12.000.00 6.125.00 15.310.00 24.500.00 1.062.33 2.655.81 4.249.30 3 . man. 5 , man. 1.000.00 2.500.00 4.000.00 5.000.00 12.500.00 20.000.00 5.000.00 12.500.00 20.000.00 10.350.00 25.872.50 41.400.00 1.094.42 2.736.06 4.377.60 5 . man. 6 . man. 1.000.00 2.500.00 4.000.00 6.000.00 15.000.00 24.000.00 6.000.00 15.000.00 24.000.00 12.505.00 31.262.50 50.020.00 1.110.71 2.776.77 4.442.83 6 . man. Þetta er hámarksupphæð, en velja má aðrar lægri. Möguleikarnir eru margir. Þú mátt hækka innborganir og lengja sparnað. Einnig getur þú geymt þér lánarétt þinn, - ef þér hentar. Við höfum sagt það áður, - og við segjum það enn: Það býdur enginn annar IB-lán. Bankiþeiim sem hyggja aö framtíöinni Mnaðarbankinn Glerárgötu 7 Akureyri w* r 59

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.