Dagur - 27.04.1982, Blaðsíða 4

Dagur - 27.04.1982, Blaðsíða 4
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI RITSTJÓRNARSlMAR: 24166 OG 24167 SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222 RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÖRNSSON BLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÓRISSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT H.F. Kjölfesta Akureyrar og eyfirskra bygga Framsóknarmenn á Akureyri hafa lagt fram stefnuskrá sína við bæjarstjórnarkosningarn- ar í vor. í upphafsorðum segir á þessa leið: „Lengi hafa framsóknarmenn haft forustu um samstarf í stjórn bæjarmála á Akureyri. Undir þeirri stjórn hafa orðið miklar framfarir á flestum sviðum. Akureyri hefur haft mikið að- dráttarafl fyrir fólk og fólksfjölgun verið meiri en víðast annars staðar. Framsóknarmenn á Akureyri telja það ávinning fyrir eyfirskar byggðir, Norðlendinga og þjóðina alla að Ak- ureyri eflist enn frekar og skapi nauðsynlegt mótvægi við Faxaflóasvæðið. Framsóknarmenn á Akureyri líta á byggðir Eyjafjarðar sem atvinnulega og menningar- lega heild og vilja því eiga gott samstarf við nágrannabyggðarlögin um uppbyggingu svæðisins og skapa íbúunum öryggi og farsæld. Framsóknarmenn á Akureyri vilja béita áhrifum sínum til að auka sjálfstæði sveitarfé- laga gagnvart ríkisvaldinu og efla samvinnu- möguleika þeirra. Þeir gera kröfu til eðlilegrar og sanngjarnrar hlutdeildar í sameiginlegum sjóðum þjóðarinnar í hlutfalli við framlag íbúa svæðisins. Végna aukinna aðgerða ríkisvalds- ins til tekjujöfnunar, vaxandi almannatrygg- inga og bætts efnahags almennings, telja framsóknarmenn á Akureyri að gamalt og rót- • gróið framfærsluhlutverk sveitarstjórna eigi að hverfa að miklu leyti. í stað þess eiga sveit- arfélög að einbeita sér í ríkara mæli að fram- kvæmdum í þágu íbúanna og stuðla m.a. þannig að aukinni atvinnuuppbyggingu. Framsóknarmenn á Akureyri vilja tryggja áfram traustan fjárhag bæjarsjóðs og bæjar- stofnana og gæta aðhalds í öllum rekstri bæjarins. Akureyri og Eyjafjarðarbyggðir hafa miklu hlutverki að gegna við uppbyggingu ís- lensks þjóðfélags. Því þarf áfram samhenta og trausta forustu sem stjórnar málefnum bæjar- ins í nánum tengslum og samvinnu við íbú- ana. í stefnuskrá framsóknarmanna á Akureyri eru síðan teknir fyrir nokkrir helstu þættir bæjarmálanna og má þar nefna atvinnumálin, skóla- og menningarmál, skipulags- og um- hverfismál, félags- og heilbrigðismál og íþrótta- og æskulýðsmál. Þegar á heildina er litið má segja, að megináhersla sé lögð á traustleika og öryggi í stjórn bæjarfélagsins og áframhaldandi framkvæmdastefnu. í lokaorðum stefnuskrárinnar segir: „Fram- sóknarmenn á Akureyri ganga bjartsýnir til þessara kosninga. Þeir treysta því að bæjar- búar meti mikils þá stefnu sem gert hefur Ak- ureyri að traustu og góðu samfélagi. Fram- sóknarmenn á Akureyri hvetja bæjarbúa til þátttöku og starfa að þeirri stefnu, þar sem samvinna, félagshyggja og öryggi skipa veg- legan sess og sem verið hefur kjölfesta Akur- eyrar og eyfirskra byggða. “ „Atvinnu- og íþróttamál u eru mer hugleiknust - segir Þóra Hjaltadóttir, sem skipar sjötta sæti á lista framsóknarmanna við bæjarstjórnarkosningar á Akureyri í sjötta sæti á lista Fram- sóknarflokksins við bæjar- stjórnarkosningar i vor er Þóra Hjaltadóttir vinnu- hagræðingur og formaður Alþýðusambands Norður- Iands. Þóra er 30 ára gömul, fædd að Melstað í Miðfirði en fluttist með foreldrum sínum að Hrafnagili í Eyja- fírði þriggja ára gömul. Hún hefur dvalið og starfað á Akureyri að mestu síðan 1969. Hún á eina dóttur, Pálínu, sem er á tólfta ári. Þóra vann lengi við af- greiðslu- og skrifstofustörf þar til hún hóf nám í vinnu- hagræðingu hjá Alþýðu- sambandi íslands árið 1980. Formaður Alþýðusam- bands Norðurlaiids var hún kosin í október á síðasta ári og einnig formaður Kjör- dæmasambands framsókn- armanna í Norðurlandi eystra. Einnig er hún gjald- keri íþróttafélagsins Þórs og hefur átt sæti í Félags- málaráði Akureyrar síðustu fjögur ár. - Hvenær hófst þú afskipti af stjórnmálum? „Eg gekk í Framsóknar- flokkinn árið 1974 og eftir því sem ég kynntist meira heimi stjórnmálanna því áhugasam- ari varð ég. Með því að vera virkur í starfi stjórnmála- flokks hefur maður tækifæri til að fylgjast betur með þjóðmálunum. Fólk er oft neikvætt út í þá sem afskipti hafa af pólitík, en mér er spurn hvað er póltík annað en lífið sjálft og hvar kemur ekki einhver tegund af pólitík inn í okkar daglega líf?“ - Telur þú eðlilegt að formaður launþegasamtaka sé í framboði hjá pólitískum flokki? „Eins og ég sagði áðan þá getur maður fylgst betur með ef maður er virkur í stjórn- málum og að vera virkur þýðir í mínum huga einnig að hafa áhrif. Við hér á Akureyri þörfnumst hraðari atvinnu- uppbyggingar nú á næstu árum og launþegahreyfingin á að vera inni í þeirri mynd. Við þurfum fyrst og fremst að efla þau atvinnufyrirtæki sem fyrir eru, svo þau geti aukið sitt atvinnuframboð. Til dæmis munu vera til áætl- anir um stækkun Slippstöðv- arinnar þannig að hún geti veitt tvöfalt fleiri atvinnu en lún gerir í dag, en þá þarf að sjálfsögðu að vera markaður fyrir framleiðsluna. Með tilkomu nýrrar tækni- og tölvubúnaðar er sú hætta á ferðum að störf falli út og þessu verður vinnumarkaður- inn að mæta með fleiri störfum.“ - Á hvað leggur þú mesta áherslu og hvar er helst úrbóta þörf? „Mér eru atvinnumálin efst í huga og ekki síst vegna þess að mitt starf er nátengt þeim. Ég á sæti í nefnd um iðnaðar- uppbyggingu við Eyjafjörð og þar hefur stóriðja komið til tals. Með þau gögn sem sem annars staðar á landinu. En ég veit ekki hve lengi sjálfboðaliðar fást til að standa í þessu sífellda fjár- betli fyrir hreyfinguna. Fjár- þörfin til rekstrar eykst með sérhverju ári, vegna þess m.a. að umsvifin við hinar ýmsu keppnir aukast og ferðakost- naður sömu- leiðis. Hvaða úrlausnir eru væn- legastar er ekki gott að segja til um, því ekki mun það verða til eflingar íþróttanna að allir fái þessa þjónustu rétta upp í hendurnar fyrir- hafnarlaust, með því að ríki Þóra Hjaltadóttir liggja fyrir í dag, get ég ekki ennþá tekið afstöðu með eða á móti, t.d. eru upplýsingar um mengun ekki nægar. Um félagslega röskun er einnig erfitt að dæma. Þá er mikil hætta á að slíkt fyrirtæki hafi meira framboð á atvinnu í hin hefð- bundnu karlastörf, en konur verði utangarðs í atvinnuupp- byggingunni. Úrbætur í atvinnumálum þurfa að verða margvíslegar og hef ég minnst á fáein atriði hér. En til við- bótar má nefna athuganir á aukinni úrvinnslu afurða okkar, svo sem lífefnafram- leiðslu og úrvinnslu úr slógi til skepnufóðurs." - Önnur mál sem þú vilt vinna að? „íþróttamálin eru mér einnig hugleikin. Hin frjálsu félagasamtök hafa lyft Grett- istaki á sviði íþróttamála hér og bær standi straum af öllum kostnaði. Fremur væri æski- legt að fleiri hendur kæmu til aðstoðar. Má þar nefna að gleðilegt væri ef enn fleiri foreldrar barna sem eyða miklum hluta síns frítíma hjá okkur kæmu einnig og legðu hönd á plóginn við fjáröflun og ýmsa vinnu sem of fáir vinna að í dag.“ - Að lokum, hvernig leggj- ast kosningarnar í þig? „Ég er sigurviss fyrir kom- andi kosningar. Við fram- sóknarmenn munum vinna verulega á. Akureyrarbæ er best borgið undir markvissri stjórn framsóknarmanna. Þetta vita íbúar bæjarins og munu tryggja að Jón Sigurð- arson verði í bæjarstjórn næsta kjörtímabil.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.