Dagur - 27.04.1982, Blaðsíða 11

Dagur - 27.04.1982, Blaðsíða 11
—Ný efni í sumarfatnað— Hvít efni m/gylltum þræði Indversk bómull, rauð og hvít Röndótt og doppótt efni í sumarkjóla og blússur Væntanlegt í vikunni mikið úrval af beltum, hárböndum og nælum Kaký, 13 litir Ný sending Arzberg postulínsskálar, vasar, kertastjakar, bollapör m/disk, tekatlar og sykursett Opið ájaugardögum kl. 10-12 alttílsauma emman SKIPAGATA 14 B - SÍMI 96-23504 PÓSTHÓLF 84 - 602 AKUREYRI Trilla óskast 4ra-5 tonna trilla óskast. Upplýsingar' í síma 33201 á kvöldin. Tilkynning Við gröfum grunna, plön o.fl. Allt á sama stað. - Gröfur - jarðýtur - bílar - fylling, grófblönduð - sandur. Byggingafyrirtæki og aðrir, reynið viðskiptin, sendið útboðsgögn. Ath. allt á sama stað. GLERÁ SF., afgreiðsla eftir 1. maí á Glerá, sími 24329, skrif- stofa sími 22372. P.O. box 616. Tilkynning um aðstöðugjald á Akureyri Samkvæmt heimild í V. kafla laga nr. 73/1980, um tekjustofna sveitarfélaga, samanber reglugerð nr. 83/1962, um aðstöðugjald, verða innheimt að- stöðugjöld í sveitarfélaginu á árinu 1982 sam- kvæmt eftirfarandi gjaldstiga. 0,33% af rekstri fiskiskipa og flugvéla. 0,65% af rekstri verslunarskipa og fiskiðnaði. 1,0 % af hverskonar iðnaði öðrum. 1.3' % af öðrum atvinnurekstri. Akureyri, 21. apríl 1982. Skattstjóri Norðurlandsumdæmis eystra. Munið brauðkassa, IX Diskamottur úr korki ix Kerti og sérvíettur Lítiðinn ☆ Fellistólar KOMPAN ir Gjafavörur skipagötu 2 Sími 25917. Opið laugardaga kl. 10-12. ÍX Loftljós Getraunagróði Sýningar að Melum fimmtudagskvöld 29. apríl kl. 21 og laugardagskvöld kl. 21. Miðasala við innganginn. Ath. allra síðustu sýningar. Ungmennafélag Skriðuhrepps. Leikfélag Akureyrar Eftirlitsmaðurinn Höfundar: N.W. Gogol og Jón Hjartarson. Leikstjórar: Guðrún Ásmundsdóttir og Ásdís Skúladóttir. Leikmynd: IvarTörök. Lýsing: David Walters. Tónlist: Gunnar Reynir Sveinsson. Frumsýning föstudag 30. apríl kl. 20.30. Önnur sýning sunnudag kl. 20.30 verður tileinkuð ári aldraðra og gefst þeim kostur á 50% afslætti. Aðgöngumiðasala alla daga frá kl. 17. Sími24073. Guðlaugur les Miðvikudaginn 28. aprfl nk., mun Guðlaugur Arason rithöf- undur, lesa úr verkum sínum í Rauða húsinu og hefst lestur- inn klukkan 21.00. Dregið um aukavinning Dregið hefur verið út nafn vinningshafa í fjórðu ferðaget- raun Dags og Samvinnuferða - Landsýnar. Nafn þess heppna er Sigmundur Þórisson, Heið- arlundi 2i, Akureyri og getur hann fengið staðfestingu á því hjá Degi að hann eigi rétt á vöruúttekt í versluninni Cesar fyrir 400 krónur. Síðasti hluti ferðagetraunar- innar birtist í blaðinu í dag. í næstu viku verður dregið um aukavinning vegna fimmtu spurn- ingar og að hálfum mánuði liðn- um verður aðalvinningurinn dreg- inn út, en það er sem kunnugt er utanlandsferð fyrir einn að fjár- hæð allt að 10 þúsund krónur. AÐEINS FYRIR ASKRIFENDUR Grikkland - land hinna fornu hetju- dáða og fósturland mestu heimspek- inga veraldar, er nýr áfangastaður i leiguflugi Samvinnuferða - Land- sýnar í sumar. Náttúra þessa einstaka lands er einkar hrífandi. Meginlandið, eyjarn- ar og blátært hafið skapar fagra og samfellda mynd sem engum gleym- ist, enda er Grikkland oft kallað „Hin Iandfræðilega paradís Evrópu". Gríska þjóðin er með eindæmum glaðlynd og gestrisin. Söngurinn, dansin og lífsgleðin er henni í blóð borin og ferðamaðurinn hrífst með i leikinn þegar halla fer af degi og mild sumarnóttin tekur völdin af degin- um. Sérstaða Grikklands meðal sumar- leyfisstaða Evrópu er mikil og skap- ast öðru fremur af óvenjulegu sam- bandi fortíðar og nútíðar i landinu. Óvíða í heiminum er að finna merkari vitnisburð fornrar frægðar og litríkr- ar sögu. Nægir að nefna Meyjahorfið á Akrópóhshæðinni, Herodeon-leik- húsið og véfréttarstaðinn Delfi, sem dæmi um sögufræga staði er fylla ferðamanninn lbtningu og minna á hetjulega baráttu og glæsta sigra grísku þjóðarinnar. Farþegar Samvinnuferða - Land- sýnar hafa um tvo fyrsta flokks gisti- staði að velja: White House íbúðim- ar og Hotel Margi House. Báðir gisti- staðirnir eru örstutt frá ströndinni, vandaðir og þægilegir. I Grikklandi er að sjálfsögðu boðið upp á fjölmargar skoðunarferðir, m.a. til Aþenu, Delfi og Argolis. í heils dags ævintýrasiglingu eru nokkrar grísku eyjanna heimsóttar. í Grikklandsferð sameinar þú gaml- an og nýjan tíma - nýtur afslöppunar og spennandi ævintýra í senn og kynnist þannig hinu fullkomna sumarleyfi. □ Oska eftir að gerast áskrifandi. □ Er áskrifandi. Nafn: SPURNING: 6 Meðal þekktra fornminja sem far- þegar Samvinnuferða - Landsýnar kynnast í Grikklandi er: --- Alþýðuleikhúsið. — Herodeon-leikhúsið. --- Þingleikhúsið. Setið X við rétt svar. 's tit: i i i !Uf> .\— hU tJUAU — u.i 27. apríl 1982 - DAGUR -11

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.