Dagur - 27.04.1982, Page 7
GRÁNUFÉLAGSGÖTU 4 SIMI 23599
£**+++¥++**+¥*•¥■ **+•¥■+++•¥•++•¥■++**++*+++++*+*+**+****++++***+■¥-******•¥■***■¥■•¥•+■*
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X-
X
Alhliða
raflagnir í
húsbyggingar,
bíla, báta, skip
og búvélar.
Stóraukið
verkfæraúrval
fyrir
iðnaðarmenn.
•••••
Allt
raflagnaefni
jafnan
fyrirliggjandi.
BOSCH Borvélar - Stingsagir - Hjólsagir o. fl.
Á næstu vikum veröur fáanlegt mlkiö úrval BOSCH
LOFTVERKFÆRA
FURUVELLIR 13
AKUREYRI ■ SlMI (86)25400
NAFNNR. 6094-9528
BOSCH
LOFTVERKFÆRI
inhell
LOFTPRESSUR fyrir máln-
ingarsprautur og lottverk-
færl. Eigum einnig sprautu-
könnur.
HITACHI
Vorum aö taka upp mikiö úrval af
þessum frábæru verkfærum.
Stingsagir, hjólsagir, heflar, pússuvélar,
skrúfvélar o. fl. fyrir tré og járn.
VERKIN VINNAST VEL MEÐ
HITACHI
Baffls BÍLARAFMAGN
rafeindakveikjan vinsæla
ísetning á staönum. vJ«qu^URAF-
KERFIBIFREIÐA
Japönsk gæðakerti
EIGUM ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI FLESTA VARA-
HLUTI i RAFKERFI BIFREIÐA.
RAFLAGNAVERKSTÆÐI
-k
-k
-k
-k
-k
-k
-k
-k
-k
-k
-k
-k
-k
■k
++++1ririrkirirk1rirérk-kirkirkirirkirkic£±±4vklrtrkiricickirkirkirkirk1rk-iriririrkirkirkirirk'kirk4rirkicirir1rirli
6 - DAGUR - 27. apríl 1982
Skammt sunnan Akureyrar
standa tvö myndarleg góðurhús
austan við þjóðveginn, en vest-
an hans er Grísará. Inni í þess-
um gróðurhúsum vaxa dalíur,
stjúpur, flauelsblóm, rófur og
margt fleira, sem oft langt mál
yrði upp að telja. Það eru þeir
bræður Hreiðar og Eiríkur sem
standa fyrir þessum rekstri, en
faðir þeirra, Hreiðar Eiríksson,
hóf starfrækslu gróðurhúss árið
1944 og nefndi það Laugar-
brekku. Hann reisti það
nokkru norðar, hjá Reykhús-
um, en nafninu héldu þeir
bræður, þó nýju húsin væru
töluvert sunnar. Húsin hjá
Grísará eru um 700 fermetrar,
en gömlu húsin eru um 300 fer-
metrar.
Eiríkur tók þvi Ijúfmannlega
þegar hann var beðinn að sýna
Degi gróðurHúsin hjá Grísará,
sem við skulum nefna Laugar-
brekku hér á eftir. Þaö er eins víst
að tugir, ef ekki hundruð Akur-
eyringa munu li'ta við í Laugar-
brekku næstu vikurnar því nú er
tími sumarblóma runninn upp og
þeir bræöur eiga svo sannarlega
nóg til af þeim. „Við ræktum á
vorin sumarblóm og matjurtar-
plöntur, og þegar líöur á sumarið
og á haustin framleiðum við ým-
iskonar grænmeti. Þessa stundina
erum við að ala upp sumarblóm
og matjurtir og dálítið af blómstr-
andi pottablómum, sem ætluðeru
til sölu alveg á næstunni," sagði
Eiríkur.
Véívæðingin hefur haldið inn-
reið sína í gróðurhús landsmanna
- ekki síður en í aðra vinnustaði.
Fyrir rúmri viku, sáði Eiríkur
ásamt fimm öðrum, 70 þúsund
rófum. Þetta geröu þeirá tveimur
dógum. í fyrra náðu þeir félagar
því að sá um 44 þúsund rófum á
einum degi - en í garnia daga var
sáö í kassa og „piklað" í moldar-
pottana, sem voru mótaöir með
höndunum. Þá var algengt að
fjórir gætu sáð um fjögur-fimm
þúsund rófum á dag. Rófurnar
sem sáð var á dögunum, ættu að
komast á diska Norölendinga um
ntiðjan júlí.
Vorverkin eru hafin í Kjarna.
Aö sögn Hallgríms Indriða-
sonar framkvæmdastjóra
Skógræktarfélags Eyfirðinga,
eru þau fyrstu fólgin í því að
fara um skóginn í Kjarna og
lagfæra það sem brotnar á vet-
urna. „Það hefur brotnað tölu-
vert í vetur,“ sagði Hallgrímur,
þegar við gengum um skóginn í
blíðskaparveðri fyrir skömmu.
„í plöntuuppeldisstöðinni er
nú unnið við pökkun og töku
græölinga. Græðlingar frá því í
fyrrasumar eru nú pottaðir og
um mánaðamótin hefst sáning,
en við sáum í u.þ.b. 300 fer-
metra. Sá skiki ætti að gefa
okkur um 150 þúsund trjá-
plöntur, sem er veruleg aukn-
ing síðan í fyrra.
Hvaö plöntur getur þú keypt í
Kjarna? Hallgrímur sagði að í
Kjarna væru á boöstólum nær all-
ar þær trjá- og runnategundir,
sem geta þrifist hér á landi. „Við
verðum líklega með unt 60 teg-
undir trjáa og runna. Vorið er að
sjálfsögðu besti gróðursetningar-
tíminn, um leiö og frost er fariö úr
jörðu er gott að fara að undirbúa
gróðursetningu."
Við komum nú að þar sem
Ingvar Eiríksson og Matthías
Jónsson voru að grisja skóginn.
„Það tekur ekki nema tvær mínút-
ur að fella þetta tré, en það hefur
sjálfsagt verið hér í tíu ár," sagði
Ingvar mæðulega þegar hann
mundaði vélsögina. Á þeim
Eiríkur hugar að rófunum. Á tveimur dögum var sáð um 70 þúsund af rófum. Þeim verður plantað út í næsta mánuðiog
koma vonandi í búðir nokkrum vikum síðar.
Snúum okkur aftur af blómun-
urn. „Við einbeitum okkur aðal-
lega að ræktun á pottablómum
svo sem flauelsblómum, salvíum,
dalíum og pctúníum. Einnig má
nefna útiblóm, svo sem Ijóns-
munna, morgunfrú og stjúpur.
Petúnían er að byrja að springa
út. Hún er ákaflega vinsælt garða-
og stofublóm.
- Er hægt að tala um tísku í
blómum?
„Það er ekki svo að hægt sé að
tala um breytta tísku árlega -
síður en svo.
- Virðist þér áhugi fólks fyrir
blómum og blómarækt fara vax-
andi?
„Ég held það. Sumir eru hrein-
ustu snillingar í að ala upp inni-
blóm, en það er vissum erfiðleik-
um bundið að rækta útiblóm við
stofuhita og þá birtu sem venju-
lega er í íbúðum."
- Er ekki alltaf mikið um að
vera á vorin í gróðurhúsum?
„Það gerist allt á sama tíma -
við þurfum að planta út matjurt-
um og selja fólki sumarblóm og
matjurtaplöntur til útplöntunar. í
meðalári byrjum við að planta út
um miðjan maí og venjulega eru
rófurnar fyrstar, en blómkálið
síðast. Við verðum nú með fyrstu
mönnum að setja rófur á markað-
inn, en oft getum við verið viku á
undan því sem gerist á Suður-
landi. Þetta er þó misjafnt eftir
árferði - í fyrra vorum við heldur
á eftir, því fyrripartur sumarins
var kaldur.“
- Hvernig er að vera garð-
yrkjubóndi í Eyjafirði?
„Ja, markaðurinn er góður. Ég
efast um að aðrir, sem rækta
grænmeti og sumarblóm, njóti
jafn góðs markaðar. Laugar-
brekka er nánast eini framleið-
andinn á mjög stóru svæði - eitt-
hvað er framleitt af sumarlbóm-
um í Skagafirði og á Hveravöllum
í Reykjahverfi, auk þess sem t.d.
garðyrkjudeild Akureyrarbæjar
ræktar þau. Sú framleiðsla fer
hins vegar ekki á almennan
markað. Við seljum vestur í Hún-
avatns-
sýslur og austur um alla firði. Það
fer mikið til Neskaupstaðar, Eg-
ils-
staðar og á Seyðisfjörð svo dæmi
séu nefnd. Það hefur komið fyrir
að við höfum selt til ísafjarðar, en
það er ekki mikið. Hins vegar
erum við núna að pakka mold,
sem á að fara þangað.
Hvað heita vatnið varðar, þá
má segja að í þeim málum sé stað-
an frekar óviss. í þrjú ár var virk
hola skammt frá gróðurhúsunum
og við fengum vatn úr henni. í þau
ár var ekki hægt áð tala um skort á
heitu vatni, en við höfum alltaf
haft fremur lítið af því. Nú hefur
það gerst að vatnið hvarf úr hol-
unni og það er allt útlit fyrir það
að orkumálin, þ.e. verð orkunn-
ar, verði okkur þyngri í skauti en
áður. Það segir sig sjálft að ef við
þurfum að kaupa heita vatnið á
mun hærra verði en aðrir ilræktar-
bændur, þá verður eitthvað að
láta undan síga. Það má segja að
stór hluti garðyrkjubænda fái ork-
una fyrir nánast ekki neitt - fyrir
utan þann kostnað sem er því
samfara að leiða hana heim að
húsi. Laugarbrekka er hins vegar
á svæði sem býður nánast ein-
göngu uppá dýra orku, en við
vonum að það skýrist á næstu
mánuðum á hvaða verði við mun-
um fá hana í framtíðinni. Ef ork-
an verður aðeins fáanleg á háu
verði geri ég ráð fyrir að a.m.k.
sumarblómaframleiðslan muni
dragast saman, en það yrði hægt
að halda áfram framleiðslu matj-
urta.“
- Er það ekki skemmtilegt
starf að vera garðyrkjubóndi?
„Jú, það er ekki hægt að segja
annað, þetta er mjög ánægjuleg
starfsgrein. Auðvitað fer það eftir
sumir geta ekki hugsað sér annað
en blómarækt á meðan aðrir vilja
rækta eitthvað sem hægt er að
leggja sér til munns og ég verð víst
að játa það, að ég hef mun meira
gaman af grænmetisframleiðslu.
Hún er líka á margan hátt auð-
veldari. Ég þarf t. d. ekki að gerast
smásali eins og þegar blómin eru
annars vegar. Það er vissulega
ánægjulegt að fá að umgangast
fólk - og það gerir maður þegar
fólk kemur og kaupir blómin, en
það er þægilegra að fara með
grænmetið til dreifingaraðilans,
sem í mínu tilfelli er Kaupfélag
Eyfirðinga, og geta lagt það beint
inn.“
- Áttu ekki uppáhaldsblóm?
„Þetta er nokkuð erfið
spurning, en ef til vill hefur garð-
yrkjubóndinn mest uppáhald á
blóminu sem selst best.“
Blóm
sem varð
á vegi
ljósmyndarans.
cr
LAUGARBREKKA
Þau voru að pakka mold, sem seld vérður á Isafirði. T.v. Ragnheiður Hreiðarsdóttir
og Hreiðar Eiríksson. Moldinni er blandað eftir öllum kúnstarinnar reglum, svo _
blómin dafni sem best. Myndir: áþ
Myndir og texti;
KJARNI
skamma tíma sem við Hallgrímur
stöldruðum við, féllu nokkrar
laglegar hríslur til jarðar. Leik-
manninum þótti illa farið með
trén, en Hallgrímur benti rétti-
Jega á að nú þrifust næstu tré mun
betur - þau mættu ekki búa of
þröngt ef þroski þeirra ætti að
vera eðlilegur.
„Trjáplöntusala í garða hefur
vaxið mjög mikið á undanförnum
árum og okkur finnst það benda
til þess, að fólk sé farið að hugsa
mun betur um lóðirnar en áður.
Einnig kaupir garðyrkjudeild
bæjarins mikið af okkur - á síð-
ustu árum hefur það margfald-'
ast.“
Við komum nú að almennings-
snyrtingunum í Kjarna, en þær
hafa ekki komið að miklum not-
um undanfarin ár, þar sem pen-
inga hefur skort til að ljúka við
þær. Hallgrímur sagði að loks
hefði komið fjárveiting til
verksins. Hann bætti því við að
það hefði komið til álita að opna
Kjarna ekki í sumar ef peningar
hefðu ekki borist. „Það var ekki
hægt að bjóða fólki upp á þetta
ástand öllu lengur,“ sagði Hall-
grímur-og nú þarf fólk ekki leng-
Sigríður Hreiðarsdóttir var að ganga frá græðlingum sem síðar áttu að fara í
kæli, en það er gert til að hægja á vexti þeirra.
ur að hlaupa út um allan skóg í leit
að þéttum runna eða giiskoru.
Hvað um aðrar framkvæmdir?
„Það verður unnið hér að stíga-
gerð og að gróðursetningu og
vonandi verður hægt að friða
hluta af Naustaborgum.“
Hallgrímur benti í vestur- í átt-
ina að Naustaborgum. - „í fyrra
girtum við 2ja km Ianga girðingu
og vonandi verður hægt að ljúka
því verki og friða Naustaborgirn-
ar til skógræktar og útivistar.
Þetta er fallegt svæði, sem bæjar-
búar eiga eflaust eftir að kunna að
meta í náinni framtíð.“
í nokkurra skrefa fjarlægð frá
höfuðstöðvunum, sem eru í ein-
lyftri byggingu, er gróðurhús.
Hallgrímur var inntur eftir hvað
færi fram inni í því. „Þarna eru
um 22 þúsund græðlingar, eða
með öðrum orðurri 30 runnateg-
undir. í norðurhluta hússins er lít-
ill klefi sem í er hærra hitastig en í
hinum hluta hússins. Ef við hefð-
um heitt vatn gætum við sinnt
uppeldi átrjágróðri.mun betur en
hægt er í dag.“
- O -
Skógræktarfélag Eyfirðinga
hefur í mörg horn að líta. í sumar
munu starfsmenn þess planta út
trjám á Laugalandi á Þelamörk og
í Kjarna, en þeir hafa líka umsjón
með hríslunum í Leyningshólum
og í Vaðlareit. Hallgrímur sagði
að tveir síðastnefndu staðirnir
væru orðnir mjög vinsælir útivist-
arstaðir. Því þyrfti að leita sam-
komulags við landeigendur um að
opna þá fyrir almennri útivist og
koma upp ýmiskonar aðstöðu.
„Það þarf að fara að hugsa fyrir
göngustígagerð, það þyrfti að
koma vatni inn í Leyningshóla og
snyrtingar vantar á báða staðina.
Ég veit að almenningur yrði mjög
þakklátur ef hægt væri að fram-
kvæma þetta og ýmislegt fleira á
þessum stöðum, en það kostar
mikið fé.“
Ég sá svolitla laut þegar við
Hallgrfmur gengum um Kjana og
ég er ákveðinn að fara þangað í
sólbað í sumar!
Hallgrímur Indriðason.
Ingvar Eiríksson að grisja í Kjarna.
Það nýjasta
frá
POP húsinu
Litadýrð
í sérflokki
Námskeið
Knattspymuráð Akureyrar gengst fyrir námskeiði
handa væntanlegum knattspyrnudómurum, dag-
ana 30. apríl til 2. maí, í félagsmiðstöðinni Lundar-
skóla. Væntanlegir þátttakendur eru beðnir að
hafa samband við Marinó Viborg Marinósson,
sem fyrst. Sími 22498, vinnusími 21655.
Látið nú ekki gott tækifæri ganga yður úr
greipum og öðlist réttindi til dómgæslu.
KRA
Bifreiðastjórar:
Hafið bílbænina í bílnum
og orð hennar hugföst,
þegar þið akið.
Drottinn Guð, veit mér
vernd þína, og lát mig
minnast ábyrgðar minnar
er ég ek þessari bifreið.
í Jesú nafni. Amen.
Fæst í Kirkjufelli, Reykja-
vík og Hljómveri, Akur-
eyri.
27. apríl 1982 - DAGUR - 7