Dagur - 29.04.1982, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
65. árgangur
Akureyri, fimmtudagur 29. aprfl 1982
45. tölublað
BLÖNDUVIRKJUN SAMKVÆMT VIRKJUNARLEIÐ I:
Samningurinn stað-
festur í ráðherranefnd
Hluti fundarmanna.
Tálmanir í
Oddeyrargötu?
Um árabil hafa íbúar við Odd-
eyrargötu haft miklar áhyggjur
af vaxandi umferð um götuna.
Þegar bæjaryfírvöld auglýstu á
sínum tíma eftir athugasemd-
um við deiliskipulagið barst
þeim bréf frá öllum íbúum göt-
unnar þar sem þeir Iýstu þess-
um áhyggjum sínum. Bæjaryf-
irvöld samþykktu þá að draga
bæri úr umerðarþunganum -
og hraða ökutækja - með tálm-
unum af einhverju tagi. íbúum
götunnar fannst framkvæmdin
ganga hægt og því efndu þeir til
fundar í síðustu viku þar sem
þessi mál voru rædd.
Jón Björnsson félagsmála-
stjóri, sagði í viðtali við Dag að
við nánari athugun hefði komið í
ljós að tillaga um lausn þessa máls
væri á teikniborðinu. Fulltrúar
íbúanna munu á næstu dögum
eiga fund með Gunnari Jóhann-
essyni verkfræðingi hjá Akureyr-
arbæ, og einnig munu þeir sitja
fund með umferðarmálanefnd
Akureyrarbæjar.
Leitað eflir
samstarfi um
framboðsfundi
Framsóknarfélag Akureyrar hef-
ur leitað eftir samstarfi við aðra
flokka og hópa, sem bjóða fram
til bæjarstjórnarkosninga á Akur-
.eyri-22. maí nk., um sameiginlega
framboðsfundi (almennan borg-
arafund, útvarps- og sjón-
varpsumræður).
Enn er ekki vitað um undirtekt-
ir en svör berast væntanlega ein-
hvern næstu daga.
Þingflokkur Framsóknar-
flokksins samþykkti á fundi sín-
um á mánudag einróma álykt-
un um virkjun Blöndu með
þeim fyrirvara að miðlun um-
fram 220 gigalítra verði háð
samþykki Alþingis Á fundi ráð-
herranefndar um virkjunar-
málin á þriðjudag var svo sam-
þykkt að ganga að þessum
fyrirvara.
Allt bendir nú til að
hafíst verði handa við Blöndu-
virkjun innan skamms.
Ályktunin er svohljóðandi:
„Pingflokkur Framsóknar-
flokksins leggur áherslu á að
virkjun Blöndu verði fyrst í röð
þeirra virkjana, sem framundan
eru og ramkvæmdir hefjist þegar
á þessu ári.
Þingflokkurinn telur jafnframt
mjög miiilvægt að víðtækt sam-
komulag verði um virkjunina.
Deilur geta valdið seinkun á virkj-
unarframkvæmdum og auknum
kostnaði. Þingflokkurinn leggur
því áherslu á að þannig verði
haldið á framkvæmd málsins að
almennt samkomulag megi verða
jm virkjun Blöndu.
Vakin er athygli á því, að for-
sendur fyrir orkuspá eru veikar
því ákvarðanir um orkufrekan
iðnað að því marki, sem lagt hefur
verið til grundvallar, hafa ekki
erin verið teknar. Með tilliti til
þess, að í samningnum eru mjög
ákveðin vilyrði fyrir því, að miðl-
unarlón verði fyrstu árin.ekki yfir
220 Gl., telur þingflokkurinn rétt
að stíflumannvirki verði í upphafi
byggð fyrir þá miðlun. Ef nauð-
synlegt verður talið með tilliti til
markaðar og raforkukerfisins í
heild að auka miðlunina síðar,
verði það háð samþykki Alþingis.
Með ofangreindum athuga-
semdum heimilar þingflokkurinn
ráðherrum flokksins að staðfesta í
ríkisstjórninni samning um
virkjun Blöndu með þeim fyrir-
vara, að miðlun umfram 220 Gl.
verði háð samþykki Alþingis.
Þingflokkurinn leggur jafn-
framt áherslu á að Landsvirkjun
taki sem fyrst við framkvæmd
verksins.“
STAK:
Búið að
undirrita
I síðustu viku var skrifað undir
sérkjarasamning Akureyrar-
bæjar og STAK. Samningurinn
gildir frá áramótum og fellur úr
gildi um mitt sumar. Að með-
altali hækka laun starfsmanna
Akureyrarbæjar um 4.5%.
Að sögn Erlings Aðalsteins-
sonar formanns STAK, var t.d.
starfsmat endurskoðað og mönn-
um raðað í launaflokka í samræmi
við það. Ný ákvæði eru einnig um
starfsaldurshækkanir, töluverðar
breytingar verða á launaflokkum
sjúkraliða og skrifstofúfólks sem
er að hefja störf.
Erlingur bætti því við að hann
væri ánægður með þennan sér-
kjarasamning, en hann sagði jafn-
framt að enn væru opinberir
starfsmenn ekki búnir að ná þeim
launum sem gilda á hinum al-
menna vinnumarkaði. „í því sam-
bandi má minna á könnun kjara-
nefndar VSÍ og ASÍ,“ sagði
formaður STAK að lokum.
MJÓLKURSAMLAG KEA:
Innlögð mjólk 21 milljón lítrar
Aðalfundur Mjólkursamlags
KEA var haldinn í Samkomu-
húsinu á Akureyri, mánudag-
inn 26. aprfl 1982 og hófst hann
kl. 13.00. Formaður kaup-
félagsstjórnar, Hjörtur E. Þór-
arinsson Tjörn, setti fundinn.
Á fundinn mættu um 130
mjólkurframleiðendur. Mjóik-
ursamlagsstjóri, Vernharður
Sveinsson, flutti ítarlega
skýrslu um rekstur Mjólkur-
samlagsins á árinu 1982. Inn-
lagt mjólkurmagn var rösklega
21 milljón lítrar og hafði
minnkað um 338 þús. lítra eða
1,56% frá fyrra ári. Þetta
mjólkurmagn nam 20,6% af
mótteknu mjólkurmagni sam-
laganna á landinu sl. ár. Með-
alfítumagn mjólkurinnar var
4,081% en 97,76% fóru í 1.
flokk. Mjólkurframleiðendur
1981 voru alls 267 og hafði
fækkað um 9 frá fyrra ári.
Meðalinnlegg á mjólkurfram-
leiðanda var 79.448 lítrar. Af
mjólkinni var 23,4% selt sem
neyslumjólk en 76,6% fór til
framleiðslu á ýmsum mjólkur-
vörum. Heildarvelta Mjólkur-
samlagsins nam kr. 147,3 millj-
ónum en kr. 0.428 pr. Itr. vant-
aði á að reksturinn skilaði
framleiðendum fullu grund-
vallarverði.
í setningarræðu sinni sagði
Hjörtur E. Þórarinsson formaður
stjórnar kaupfélagsins m.a., að
nú væru að fullu yfirunnin þeir
erfiðleikar í vinnslu og fram-
leiðslu, sem við hafi verið að
stríða fyrstu misserin í hinu nýja
mjólkursamlagi. Hjörtur fjallaði
um samdrátt í mjólkurfram-
leiðslu, sem hefði verið nauðsyn-
legur, en óhjákvæmilega komið á
óheppilegum tíma, þegar fjár-
magnskostnaður við nýju stöðina
fór að leggjast á framleiðsluna
með fullum þunga. Hjörtur sagði
síðan:
„Þá vil ég að lokum segja að ég
álít að eyfirskir bændur hafi
ástæður til bjartsýni, eða a.m.k.
minni svartsýni en flestir aðrir
bændur landsins. Markaður
innanlands fyrir mjólkurvörur er
traustur. Hann er í þróun og í
heild vaxandi.“
Þá nefndi Hjörtur mikilvægi
þess að hafa sem næst mjólkur-
framleiðsltisvæðunum nógu
marga neytendur með nógu mikla
kaupgetu. Eyfirskir bændur hlytu
að kappkosta að halda stöðu sinni
sem aðal smjör- og ostaframleið-
endur landsins og að Eyjafjörður
héldi áfram að vera aðalforðabúr
landsins af þessum lífsnauðsyn-
legu matvælum. Hann sagði að
svartar blikur væru á himni sauð-
fjárræktar ílandinu,en þærblikur
væru minna ógnvekjandi fyrir ey-
firska bændur en flesta aðra. Samt
mættu menn vera við því búnir að
þurfa að draga úr tiltölulega litl-
um sauðfjárbúskap næstu árin, en
það væri að sínu mati ekkert stór-
hættulegt mál. Það væri þó undir
því komið að unnt yrði að halda í
mjólkurframleiðsluna og helst að
auka í takt við fjölgun neytenda í
landinu. Þá væri auk þess vaxandi
svigrúm til að framleiða nautakjöt
sem hliðargrein við mjólkurfram-
leiðsluna, sem væri mjög mikil-
vægt því nautakjötsmarkaður
væri mjög vaxandi í landinu.