Dagur - 29.04.1982, Blaðsíða 9

Dagur - 29.04.1982, Blaðsíða 9
ANNA LÍSA Leikklúbburinn SAGA Höfundur: Helgi Már Barðason Leikstjóri: Þröstur Guðbjartsson Lýsing: Viðar Garðarsson Leikklúbburinn SAGA mun hafa sprottið upp úr leiklistar- námskeiði Æskulýðsráðs Akur- eyrar á árinu 1976. Síðar varð klúbburinn leikfélag ungs áhugafólks og félgarnir hafa jafnan flestir verið á einhvern hátt viðriðnir Félagsmiðstöðina í Dynheimum, enda hefur klúbburinn haft þar aðsetur sitt. Þó er SAGA sjálfstætt leikfélag og ekki rekið á vegum neinnar stofnunar eða skóla. Þessa dagana sýnir klúbbur- inn leikritið Önnu Lísu eftir Helga Má Barðason, ungan for- stöðumann Dynheima. Að vísu segir Anna Lísa sjálf í upphafi verks að þetta sé ef til vill frekar saga en leikrit og þar hefur hún á réttu að standa. Höfundi er greinilega í mun að rekja feril og segja frá orsökum atvika í lífi Önnu Lísu. Að því leyti sver verk hans sig í ætt við svokallað- ar nýraunsæislegar unglingasög- ur sem njóta mikillar hylli nú á dögum. I þeirri bókmenntateg- und eru unglingar viðurkenndir sem manneskjur og reynt að sýna þá í réttu ljósi; draga vandamál þeirra og umhverfis- ins fram í dagsljósið eins og þau eru. Þess konar efni á mun meira erindi við unglinga og annað fólk en aðrar og eldri unglinga- sögur sem ýmist lýsa ofurmann- legum hæfileikum söguhetjanna eða eru glansmyndir af galla- lausum fyrirmyndarungmenn- um. í þessu tilliti er Anna Lísa lóð á stóra vogarskál en hitt kann að orka tvímælis hvort verkið á er- indi á svið eða bók. Frómt frá sagt tel ég að bók hefði verið betri kostur. Einfaldlega vegna þess eðlismunar sem er á sögu og leikriti. Anna Lísa hefst á söng og þannig lýkur henni einnig, Söngvarnir eru of langir, enda eru þeir fluttir af segulbandi fyrir mannlausu sviði. Þessir söngvar minntu mig á stelpu sem er að troða sér í buxur sem eru einum fjórum númerum of litlar á hana, textinn alltof stór fyrir laglínuna. Annars var tónlistin ágætlega valin og leikin af plötum milli atriða. Þættirnir eru þrír, gerast þeg- ar Anna Lísa er fjórtán, átján og tuttugu og tveggja ára. Innbyrð- is eru þeir eins byggðir: Anna Lísa og heimilið; Anna Lísa og ástarævintýri; Anna Lísa og fé- lagar hennar í partíi. Þessi ein- falda bygging setur verkinu miklar efnisskorður, enda verð- ur viðfangsefnið einkum sam- skipti stúlkunnar við taugaveikl- aða móður sína (og fyrirmynd- arbróður meðan við nýtur), ást, vonbrigði og einstæðingsskapur eftir skakkaföll og síðast endur- fundir og málalok þar sem allt endar vel. Þetta tengir Anna Lísa svo sjálf saman með eintali milli þátta. í því eintali er líka einasta vísbending um að per- sónurnar eldist og þroskist. Það er alltaf gaman að sjá ungt áhugafólk leika og leikend- ur í Önnu Lísu voru flestir hisp- urslausir og „eðlilegir“ í hlut- verkum sínum. Þó hefði leik- stjóri mátt segja þeim meira til í skýrum framburði og raddbeit- ingu svo texti fengi að skila sér betur. Þetta vill því miður alltof oft gleymast. Annars má segja að sviðssetning hafi tekist allvel miðað við aðstæður í Dynheim- um. Leikendur eru alls ellefu og annar eins hópur starfar að sviðsbaki. Sérstaka athygli mína vakti góður leikur Sóleyjar Guðmundsdóttur í hlutverki Önnu Lísu. Hún bar sýninguna uppi. Aðrir leikendur gerðu einnig vel. Að lokum við ég benda á að viðfangsefnið í Önnu Lísu á ekki síður erindi til fullorðinna en unglinga og ég vona að félögum í SÖGU farnist vel við að koma boðum sínum á framfæri. 25.4.82 Sverrir Páll Við bjóðum Akureyringum ókeypis þjónustu. Hringið til okkar og við komum heimog hönnum skilrúmí stofuna eða handrið fyrir stigann. Símar 91-84630 og 91-84635. BJÓÐUM EINNIG VALIN ÍSLENSK HÚSGÖGN SÝNINGARSALUR ÁRMÚLA 20 - SÍMAR: 84630 og 84635 og skápar eru sérhönnuö fyrir yöur. Þd getur gj örbreytt hemú& pim með sfábwmun, hambiðum og skápum jráÁrfelRfj-. ARFELLS skilrúm, handrið .. . með breytanlegum styttukössum og hillum. .. . með skápum f. hljóm- flutningstæki. bókaskápum. blómakössum og Ijósa- köppum. . . . framleidd úr stöðluðu, varanlegu, vönduöu efni. ... Framleiðslan öll er hönnuð af Arfell hf. ARFELLS-þjónusta . . . .. . við komum og mælum, gerum teikningar og verðtilboö á staðnum. yður að kostnaðar- lausu. ... við biöjum yður aö hafa sam- band tímanlega. . . . komið með yðar hugmyndir. . . . Greiösluskilmálar. .. . . . allt að 6 mánuðir. KOKA BORGARAR HAFNARSTRÆTI 94 KÖKA BORGARAR 29. apríí 1982 - DAGUR- 9

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.