Dagur - 29.04.1982, Blaðsíða 12
Soveskt
rækjuskip
Sovéskt verksmiðjuskip lagðist
að Oddeyrarbryggju sl. mánu-
dag með frysta rækju til upp-
skipunar hér.
Það er K. Jónsson og co., sem
er að kaupa 200 lestir af rækju og
hyggst pilla hana og sjóða niður.
Skipið, sem kemur hingað beina
leið frá Múrmansk, er 5080 lesta
frystiskip með 70 manna áhöfn og
safnar það rækju úr rækjutogur-
um sem veiða í Barentshafi.
Rækjan er fínasta úthafsrækja og
kærkomin fyrir K. Jónson, þar
sem nægjanlegt magn fyrir niður-
suðuverksmiðjurnar er ekki til í
landinu, en íslendingar eru með
góða samninga við V-Þjóðverja
og nú er verið að framleiða upp í
þá samninga.
Halldór
æfir hjá
WestHam
Hinn stórefnilegi knattspyrnu-
maður úr Þór, Halldór Askels-
son, er nú staddur í London, en
þar æfir hann með hinu fræga
enska knattspyrnuliði West
Ham.
Halldór þykir með allra efnileg-
ustu knattspyrnumönnum sem
komið hafa fram her á landi í
mörg herrans ár og í fyrra, er
hann var í 3. aldursflokki, lék
hann með tveimur landsliðum,
drengjalandsliði skipuðu piltum
14-16 ára og með unglingalands-
liðinu skipuðu unglingum 16-18
ára.
Halldór leikur í sumar á fyrra
ári í 2. aldursflokki, og einnig má
telja víst að hann verði fasturleik-
maður í meistaraflokki félagsins.
Halldór mun dvelja í hálfan mán-
uð við æfingar hjá West Ham í
London, cn með honunt íferðinni
er Þröstur Guðjónsson þjálfari,
sem kynnir sér þjálfun hjá félag-
inu.
Halldór Áskelsson.
Tvær rannsóknar-
borholur
í sumar verða boraðar rannsókn-
arholur fyrir Hitaveitu Akureyrar
að Reykjum í Fnjóskadal og
Grýtu í Öngulsstaðahreppi. Hola
Hitaveitunnar á Glerárdal verður
virkjuð og í ráði er að bora rann-
sóknarholu í Glerárdal.
Grund
gefur stór-
fétil
Grímseyjar
Gísli Sigurbjörnsson forstjóri,
afhenti biskupi íslands, herra
Pétri Sigurgeirssyni, nýlega
gjöf að upphæð kr. 20.000 til
Grímseyjarkirkju og með gjöf-
inni fylgdi eftirfarandi bréf:
„Á þessu ári eru sextíu ár liðin
frá því að Elli- og hjúkrunar-
heimilið Grund tók til starfa. Séra
Sigurbjörn Á. Gíslason, einn
stofnenda og formaður stjórnar-
nefndar til æviloka, lét sér annt
um fólkið í Grímsey og þótti vænt
um það.
Meðfylgjandi ávísun er gjöf til
kirkjunnar í Grímsey til minning-
ar um hann og samstarfsmenn.
Með bestu kveðju frá okkur á
Grund til fólksins í Grímsey og
herra biskupsins, sem um langt
árabil var prestur þess.“
íslenska kirkjan þakkar þessa
myndarlegu gjöf og þann hlýhug
sem að baki liggur. Stjórn Elli- og
hjúkrunarheimilisins Grundar,
með Gísla Sigurbjörnsson í farar-
broddi, hefur hlynnt að mörgum
góðum málum um langt skeið og
gefið þar fordæmi og vakið marga
til meðvitundar um félagsleg og
kirkjuleg mál.
Skóli fyrir atferlis
trufluð böm
„Við höfum nú þegar auglýst
eftir skólastjóra og kennara,“
sagði Ingólfur Armannsson
fræðslustjóri, aðspurður um
hvað liði áformum um skóla
fyrir atferlistrufluð börn í kjör-
dæminu.
„Það er komin heimild til að setja
hann á stofn næsta haust og var
samþykkt á síðasta fræðsluráðs-
fundi að auglýsa eftir starfsfólki.
Einnig höfum við fengið svolítið
fjármagn í stofnkostnað og er nú
verið að athuga möguleikana á að
kaupa hús undir skólann, en það
er þó allt á athugunarstigi.
Skólinn er fyrst og fremst ætl-
aður börnum með geðræn eða fé-
lagsleg vandamál eða hvoru-
tveggja og reiknum vð með að til
að byrja með verði þar ca. 5-8
börn. Þetta verður dagskóli,
börnin verða þar frá 9-5 og fá þar
mat o.þ.h. auk kennslunnar.“
Skólanum er ætlað að þjóna
öllu kjördæminu þó svo að hann
verði staðsettur á Akureyri þann-
ig að þeir nemendur sem eiga
lengra að sækja verða væntanlega
vistaðir hér í bænum,“ sagði Ing-
ólfur að lokum.
Rækjunni skipað á land.
Mynd: áþ
Mótmæla vegi
um Vaðlareit
Á aðalfundi Skógræktarfélags
Eyfirðinga, sem haldinn var fyrir
skömmu, var samþykkt ályktun
um lagningu vegar um Vaðlareit
ogstóriöju. Félagiðereindregiðá
móti lagningu Leiruvegar um
Vaðlareit. „Fundurinn gerir
kröfu um að öll veglínan, frá Hall-
andi til Akureyrar verði endur-
hönnuð með það að markmiði að
vegurinn verði lagður ofan við
Vaðlareit. Einnig ályktar fundur-
inn að leitað skuli samkomulags
við landeigendur um að opna
Vaðlareit fyrir almennri útivist."
Fundurinn varaði eindregið við
öllum fyrirætlunum um byggingu
málmbræðslu (álvers) í Eyjafirði
og taldi að það samrýmdist ekki
þeim markmiðum félagsins að
græða upp skóg á þessu svæði.
„Ekki hægt að
selja íbúðir hér“
— segir Hörður Tulinius hjá Híbýli hf.
„Við erum með tvö verkefni í
bænum, og þegar vinnu lýkur
við þau verk í vor og haust er
ekkert fyrirsjáanlegt fyrir okk-
ur að gera hér. Þess vegna höf-
um við verið að leita fyrir okkur
með verkefni utan Akureyrar,
og höfum m.a. í hyggju að gera
tilboð í byggingu heimavistar
við Menntaskólann á Egils-
stöðum og við grunnskólann á
Sauðárkróki. Auk þess er fleira
sem við erum að velta fyrir
okkur“, sagði Hörður Tulinius
í samtali við Dag, en Hörður er
einn eigenda byggingaverk-
takafyrirtækisins Híbýli h.f. á
Akureyri.
„Hér er mjög alvarlegt mál á
ferðinni að mnu mati, og það
hljóta allir að sjá að eitthvað er
að, þegar fyrirtæki eins og Híbýli
þarf að leita út fyrir Akureyri eftir
verkefnum. Þó höfum við lóðir til
þessaðbyggjaáum lOOíbúðirhér
í bænum og höfum greitt bygg-
ingaleyfisgjald fyrir tvö fjölbýlis-
hús. En við getum ekki byggt á
þessum lóðum. Ástæðan er ein-
faldlega sú að það er ekki hægt að
selja íbúðir hér í bænum í dag.
Vaxtabirgðin er svo mikil að fólk
leggur ekki út í það að hefja bygg-
ingar“, sagði Hörður.
Sem fyrr sagði íhuga forráða-
menn Híbýlis h.f. nú að gera til-
boð í ákveðin verkefni bæði á
Sauðárkróki og á Egilgsstöðum.
Það kom fram í samtalinu við
Hörð að fleiri verkefni koma
einnig til greina utan Akureyrar,
þótt enn séu þau mál á því stigi að
ekki sé tímabært að skýra nánar
frá þeim.
# Góð sala í
gallabuxum
Sipverjarnir á sovéska rækju-
flutningaskipinu sem hefur
iegið í Akureyrarhöfn undan-
farna daga, hafa víssulega
sett svip á bæinn, enda fara
þeir ekki um nema nokkrir
saman í hóp, einhverra hluta
vegna! - Örlítið litu þeir við í
verslunum bæjarins, sovét-
mennirnir og voru, að sögn
þeirra sem fylgdust með
vöruskoðun þeirra, hrifnir af
mörgu er á boðstólum var. En
það er eins og svo oft áður
með sovéska sjómenn, gjald-
eyririnn var af fremur skorn-
um skammti, eða svo virtist
vera. En við höfum haft af því
fregnir að þeim málum hafi
verið kippt í lag. Segja okkur
vandaðir menn að þeir
sovésku hafi boðið hér ódýrt
vodka til sölu, líters flöskur á
aðeins 150 krónur flöskuna
og hafi margir Akureyringar
gert góð kaup á þeim vett-
vangi. En hvað skyldu sovét-
mennirnír svo hafa gert við
krónurnar? Margir þeirra
keyptu sér Duffys gallabuxur,
og sáust þeir alsælir á svip
rölta um bæinn þannig
klæddir. Mun að sögn hafa
gengið nærri gallabuxna-
birgðum ákveðinna verslana
hér í bænum.
# Gömulhúsog
gamlir menn
Sjálfstæðismenn á Akureyri
leita nú með logandi Ijósi að
baráttumálum. Gísli Jónsson
TQ ra ■'T'i "p
-J] Ö JjU
fann eitt á dögunum og var
ekki seinn á sér að rita um það
í íslending. Hann komst sem
sé að því að gera ætti upp og
breyta Lundi við Eiðsvalla-
götu í sýningarsal. í tilefni
þess orti kunningi S&S:
íhaldskjörorð eru tvenn,
ekk’ er feit sú spýta,
gömul hús og gamla menn,
gera þeir upp og nýta.
# Snyrtilegri bæ
Víða má sjá fólk taka til í görð-
um og er það vel. S&S vill
benda bæjarbúum á auglýs-
ingu frá heilbrigðisfulltrúa,
sem birtist í blaðinu i dag. Hin
áriega fegrunarvika á Akur-
eyri er ákveðin 10. til 19. maí
nk. Starfsmenn Akureyrar-
bæjar munu þá fjarlægja rusl
sem hreinsað hefur verið af
íbúðarhúsalóðum og sett er í
hrúgur á götukanta. Atvinnu-
rekendur eru sérstaklega
hvattir til að hreinsa um-
rædda daga.
# Og snyrtilegri
miðbæ
Miðbærinn á Akureyri er kafli
út af fyrir sig. Þar standa svo
gömul og hrörleg hús að þau
eru eigendum sínum til
skammar. Þsð þarf ekki að til-
taka nákvæmlega hvar þessi
hús standa við Hafnarstrætið,
síður en svo. En þar sem S&S
efast um að húsin verði rifin á
næstu vikum, mánuðum eða
árum, vill það benda á að
málning myndi bæta útlit
húsanna til muna.