Dagur - 30.04.1982, Blaðsíða 3
„Það vantar fútt í stjórnmálin.
Það talar ekki nokkur einasti
maður um bæjarstjórnarkosn-
ingarnar í vor,“ sagði áhuga-
maður um pólitík við mig um
daginn. „Það hvílir svo mikill
friður yfir þessu öllu saman að
maður gæti haldið að flokkarnir
hefðu sameinast um að segja
ekki neitt sem gæti styggt and-
stæðinginn”. Islendingur er
steinhættur að tala um aðra
flokka, getur bara tjáð sig um
kaupfélagið, eins og það ætli í
framboð, með teríuna í broddi
fylkingar.“ Það var allt of mikið
til í þessu hjá áhugamanninum
vini mínum, og varð til þess að
ég settist niður kvöld eitt og
íhugaði stöðuna.
Eins og sannur fræðimaður þá
notaði ég útilokunaraðferð
Gröss, og sá fljótt að það voru
þrjú fyrirbæri í akureyrskri póli-
tík sem bæri að rannsaka nánar.
Gamall baráttumaður fyrir
auknum réttindum hestamanna,
svo og þeirra sem eiga rollu-
skjátur og búa í bæjarlandinu,
hefur nú þegar látið þau boð út
ganga að hann ætli ekki lengur
að sameina vinstri menn, þar
sem sameiningarflokkurinn hef-
ur sundrast.
Eftir því sem hægt
er að ráða af málgagni íhalds-
manna, fslendingi, mun Sjálf-
stæðisflokkurinn ekki bjóða
fram í vor. Þetta byggi ég á 7.
tölublaði íslendings (frá 18.
febrúar), en þar segir í grein á
forsíðu blaðsins: „Þegar litið er
til þessara fjögurra áætlana, sem
gerðar hafa verið af bæjarstjórn
og verkefni þau og markmið sem
sjálfstæðismenn settu sér fyrir
síðustu bæjarstjórnarkosningar,
sést að verulegur hluti þeirra
verkefna, sem þar voru sett fram
hafa orðið að veruleika. Mál
hafa fengið farsæla úrlausn á
kjörtímabilinu . . .“
Sem sagt: Sjálfstæðisflokkur-
inn var í minnihluta á yfirstand-
andi kjörtímabili, en öll hans
mál hafa hlotið farsæla úrlausn,
orðið að veruleika. Af þessu
leiðir að hans er ekki lengur þörf
- það sjá aðrir um að fram-
kvæma stefnu hans. Hvað er að
gera með flokk sem sker sig ekki
betur úr en þetta?
Annað mál varð til þess að
sannfæra mig enn betur um rétt-
mæti þess sem undan var sagt. í
grein í íslendingi þann 15. apríl
s.l. segir Gísli, oddviti íhalds-
manna, Jónsson: . . . „En frá
því að sigurinn mikli vannst
1974, hafa vinstri flokkarnir í
bænum sameinast gegn Sjálf-
stæðismönnum og þannig reynt
að gera áhrif stærsta flokksins
sem minnst á gang bæjarmál-
anna. Þetta eru ólýðræðisleg
vinnubrögð.“
Aftur fletti ég í fræðibókum,
svellþykkum, og komst eftir
nokkurn lestur að eftirfarandi
niðurstöðu: 1. Áður hafa Sjálf-
stæðismenn komist að því að öll
þeirra áhugamál hafi náð fram
að ganga. 2. Lýðræðislega
myndaður meirihluti er ekki ó-
lýðræðislegt fyrirbæri. 3. Gísli
hefur verið búinn að stein-
gleyma því sem stóð í íslendingi
fimmtudaginn 18. febrúar.
Síðasta fyrirbærið sem ég
rannsakaði er e.t.v. mun merki-
legra en hin tvö. Þannig er mál
með vexti að frændi minn er flat-
fættur, en það er ættgengur
skrambi og hefur valdið mörg-
um af mínum nánustu miklum
vandræðum. Þessi flatfætti
frændi minn missti það upp úr
sér í síma fyrr í vetur að hann, og
fleiri sem líkt er ástatt fyrir,
hefðu stofnað félag. Flatfótur
heitir það. Ástæðan fyrir því að
þeir stofnuðu félagið var sú að
bæjaryfirvöld hafa ekki sinnt
þeim nógu mikið á umliðnum
árum og sagði frændi minn að í
rauninni hefðu flatfættir menn
verið kúgaðir árum saman. „Við
eigum okkur sameiginlegan
reynsluheim sem þú og aðrir
með heilbrigðan fót skiljið ekki.
Það er þessi reynsluheimur sem
þjappar okkur saman og við
munum í krafti atkvæðanna
koma flatfættum manni í bæjar-
stjórn. Þá munt þú sjá miklar
breytingar, breytingar sem
munu hafa áhrif á líf hvers og
eins í bænum. Við höfum líka
ákveðið að allir sem eru yfir
187,5 cm. á hæð, rauðhærðir og
með útistandandi eyru, geti
fengið aukaaðild að Flatfót.
Þetta er fólk sem svo sannarlega
á sinn eiginn reynsluheim og
þarf að koma á framfæri sínum
áhugamálum," sagði þessi
frændi minn í símann. Eftir því
sem ég kemst næst hélt hann
áfram í eina tvo tíma, en ég sofn-
aði einhvern tíma á fyrstu 20
mínútunum.
„Krummi“
AKUREYRARBÆR
Námskeið fyrir aldraða
Fyrirhugað er námskeið að Löngumýri í Skagafirði
10. maí - 21. maí. Kennslugreinar: Bókband,
hnýtingar, glermálun o.fl.
Allar upplýsingar í síma 25880.
Félagsmálstofnun Akureyrar.
Stórkostlegt úrval
" af sumarfatnaði
\
,LI
Smekkbuxur, 5litir
verökr. 449-
Jakkar, 3liiir
verðkr.295-
A
m
w
L'
i-::
lK
w
'■og
Dömu-og
herraskyrtur
meöMaó-kraga
og venjulegum
margirlitir,
verðfrákr.269-
Einnig ziljum við benda á að hjá okkurereittmesta buxnaúrval
sem um getur Norðanlands,
bæðiádömurogherra
(líka stórnúmer34,36 og 38).
^ Sendum ipostkröfu.
Skipagötu 5
Akureyri
Sími22150
//V______I
ad kaupa nýjan Skoda
Nonni litli þarf ekki einu sinni að bijóta baukinn sinn og lána þér, því verðið er aðeins
fra66.950kr.
og greiðsluskilmálamir eins góoir
___ ____ ______ GanglMkJÍning 1962
og hugsast getur. Enda selst hann grimmt þessa
dagana nýi Skódinn og því betra að tryggja sér bíl strax.
Skálafell sf.
Draupnisgata 4F Akureyri Sími 22255
3tf. apríl 1982 - DAGUR - 3