Dagur - 13.05.1982, Blaðsíða 1

Dagur - 13.05.1982, Blaðsíða 1
MIKIÐ ÚRVAL AF SKARTGRIPA- SKRÍNUM GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI 65. árgangur Akureyri, fimmtudagur 13. maí 1982 51. tölublað Sólbakur: Engin ákvörðun veríð tekin Enn hefur ekkert verið ákveðið með kaup á nýju skipi fyrir Út- gerðarfélag Akureyringa. Þann 31. júlí verður að leggja Sólbaki EA vegna aldurs. „Fyrir þann tíma verðum við að vera búnir að fá okkur skip“, sagði Gísli Konráðsson, fram- kvæmdastjóri Ú.A. „Hvaða skip það verður er alveg óvíst í dag“. Aðspurður sagði Gísli, að menn hefðu rætt um að gera við Sólbak og leigja skip á meðan, en talið er að það sé lítið ódýrara að gera hann upp en að smíða nýtt skip. „Við verðum að fá nýtt skip og reynum að gera það á þann hagsíæðasta hátt sem möguleiki er á“, sagði Gísli. „Nokkur skip hafa verið skoðuð. Þessi skip eru bæði hér á landi og erlendis". Aðalgeir og Viðar h.f. afhenda íbúðir í síðustu viku afhenti fyrirtækið Aðalgeir og Viðar h.f. stjóm verkamannabústaða sjö nýjar íbúðir í fjölbýlishúsi við Sunnu- hlíð. Það var fyrir rúmu ári að fyrirtækið tók að sér snuði sjö íbúða af þeim fjörutíu sem fram- kvæmdir hófust við í fyrra á vegum stjórnar verkamanna- bústaða. íbúðirnar, sem Aðalgeir og Viðar h.f. eru nú að ljúka við eru 2ja og 3ja herbergja, 50 fm og 90 fm að stærð. Þær verða afhentar eigendum innan skamms, full- frágengnar. Framkvæmdir á kjörtímabilinu: Malbikaðar götur hafa lengst um 90% Malbikaðar götur á Akureyri hafa lengst um 90% á því kjör- tímabili sem nú er að Ijúka og verða yfir 50 km á lengd á þessu sumri. AUt kjörtímabilið hefur verið unnið að gatnagerð og nú er lokið endurbyggingu gatna og holræsa sem gerðar voru fyrir 1960. Ný malbikunarstöð var keypt. Þetta eru helstu framkvæmdir sem unnið hefur verið að í gatnagerð á síðasta kjörtímabili. Skólamál hafa ekki setið á hak- anum, því að byggð var ný kennsluálma við Glerárskóla, hafin bygging verkmenntaskóla, húsnæði Tónlistarskólans aukið og eflt nám á sviði heilsugæslu, verslunar og myndlistar. Haldið hefur verið áfram uppbyggingu dreifikerfis hitaveitunnar og byggð varakyndistöð og nýr vatnsjöfnunargeymir hefur verið reistur fyrir vatnsveituna. Unnið var við nýju íþróttahöll- ina fyrir 25 milljónir á kjörtíma- bilinu, miðað við núgildandi verðlag, tækjahús voru reist í Hlíðarfjalli og við íþróttavöllinn, íþróttafélögin hafa fengið stuðn- ing bæjarins, trimmbraut og úti- vistarsvæði í Kjarnaskógi bætt, lokið hönnun sundlaugar í Gler- árhverfi og framkvæmdir hefjast í sumar, svo að eitthvað sé nefnt varðandi íþrótta- og útivistarmál- in. Komið hefur verið í veg fyrir mengun frá Krossanesverksmiðj- unni, stöðugt unnið að endurbót- um hjá Ú.A. og skipulag hafnar- svæðisins er í fullum gangi. Dreifikerfi rafveitunnar hefur verið styrkt og aukið og Akureyr- ingum hafa verið tryggð áhrif á uppbyggingu raforkukerfis lands- ins með sameiningu Landsvirkj- unar og Laxárvirkjunar. Reistir hafa verið leikskólar í Lundarhverfi og Síðuhverfi og hönnun leikskóla í Þórunnar- stræti er á lokastigi, auk þess sem unnið hefur verið að endurbótum á eldri dagvistum. Reistar hafa verið 12 íbúðir fyrir aldraða við Hlíð og unnið að endurbótum í Skjaldarvík. Á kjörtímabilinu hafa verið afhentar um 50 íbúðir samkvæmt lögum um verka- mannabústaði og yfir 30 eru í smíðum. Umsóknir liggja fyrir um smíði 40-50 í viðbót. Þá hafa verið teknar í notkun 27 leigu- og söluíbúðir og 19 eru í smíðum og á lokastigi. Lokið er nmfangsmiklu deili- skipulagi miðbæjarins og fram- kvæmdir hafnar í samræmi við það. Strætisvagnakerfið hefur verið endurskipulagt og keyptir tveir nýir vagnar og ákveðið hefur verið að kaupa þann þriðja ígærkvöldi var fundur á vegum Framsóknarfélags Akureyrar í Glerárskóla. Sex efstu menn á lista Framsóknarflokks■ ins fluttu ávörp og svöruðu fyrirspumum. Fundurinn var ágætlega sóttur eins og meðfylgjandi mynd ber með sér. Fundarstjóri var Orn Gústafsson. Á innfelldu myndinni er Sigfríður Angantýsdóttir. Mynd: áþ. Sameigin- legur framboðs- fundur áKEA Sameiginlegur framboðsfund- ur allra lista á Akureyri verður á Hótel KEA í kvöld klukkan 20,30. Framsögumenn af hálfu Fram- sóknarflokksins verða Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, Sigfríður Ang- antýsdóttir og Jón Sigurðarson, en Sigurður Oli Brynjólfsson og Sigurður Jóhánnesson munu svara skriflegum fyrirspurnum, sem leyfðar verða á fundinum. Á sunnudag klukkan 16 hefst í sjónvarpinu 2 klst. langur þáttur með frambjóðendum á Akureyri. Jóhanna Friðfinnsdóttir, starfsmaður Dags, dró út vinningshafann að viðstöddum tveim vottum og Ásdísi Árnadóttur, umboðsmanni Sam- vinnuferða/Landsýnar á Akureyri. „Ég held ég fái mér bara sæti“ „Hvað ertu að segja, ég held ég fái mér bara sæti“, sagði Kristín Þorláksdóttir er henni var tilkynnt að hún hefði hlot- ið aðalvinninginn í Ferðaget- raun Dags og Samvinnuferða, ferðavinning að upphæð allt að 10 þúsund krónum. Geysi- leg þátttaka var í getrauninni, en Kristín sem býr að Eskihlíð 6 í Reykjavík var sú heppna þegar dregið var úr nöfnum þátttakenda. „Þetta er óvænt ánægja og ég vona að ég geti notað þennan vinning þegar kemur fram á haustið. Ég er mikil ferðamann- eskja, hef farið 22 sinnum til út- landa og komið til 39 eða 40 landa að ég held. Þar af hef ég farið fimm sinnum með Sam- vinnuferðum svo að þeir eru víst farnir að þekkja mig þar. Kristín er frá Veigastöðum á Svalbarðsströnd, en flutti til Reykjavíkur um 1940. Hún hafði áður tekið stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri, og á einmitt 50 ára stúdentsaf- mæli í sumar. „Ég ætla endilega að reyna að komast norður í júní og heilsa upp á gamla skólann minn, og svo sé ég til með utan- landsferðina“. Kristín sagðist vera búin að vera áskrifandi að Degi síðan 1963. „Faðir minn, Þorlákur Marteinsson var einn af stofn- endum Dags og sat þar m.a. í blaðstjórn, en þegar hann dó tók ég við áskriftinni og hef fengið Dag síðan“. Fyrir hönd Dags og Sam- vinnuferða óskum við Kristínu til hamingju með vinninginn og vonum að hún eigi skemmtilega vinningsferð fyrir höndum. Öll- um þeim fjölda sem tók þátt í þessum leik þökkum við einnig fyrir þeirra hlut.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.