Dagur - 13.05.1982, Qupperneq 9
Knattspyman fer á fulla ferð um helgina.
Islandsmótió í knatt-
spyrnu að hefjast
Um næstu helgi rennur upp
langþráð stund fyrir knatt-
spyrnuáhugamenn, eftir lang-
an og snjóþungan vetur, að Is-
landsmótið í knattspymu
hefst. Á þessu keppnistíma-
bili verða leiknir mörg hundr-
uð leikir, og jafnoft verða ein-
hverjir ánægðir með góðan
sigur og jafnvel jafntefli, en
það verða einnig jafn margir
vonsviknir með lélegan árang-
ur sinna manna. Nú verður í
fyrsta sinn keppt í fjórðu
deild, og í einum riðli þeirrar
deildar Ieika nokkur lið héðan
frá Akureyri og úr nágrenni.
Nokkur lið héðan leika einnig
Islandsmót í
kraftlyftingum
Næstkomandi laugardag og sunnudag verður íslandsmeist-
aramótið í kraftlyftingum haldið í íþróttahúsi Glerárskóla og
hefst kl. 14,00 báða dagana. Þar mæta til leiks 29 sterkustu
kraftlyftingamenn landsins þar af 9 frá Akureyri. Meðal
þáttakenda verða þeir Skúli Oskarsson og Jón Páll Sigmars-
son. Akureyringar eru hvattir til að fjölmenna á þetta fyrsta
íslandsmót í kraftlyftingum sem haldið er utan Reykjavíkur.
KA leikur á úti-
velli gegn Val
í þriðju deild, tvö í annarri og
eitt í fyrstu. í sumar mun að-
gangseyrir á meistaraflokksleiki
verða 60 krónur fyrir fullorðna,
þannig að dýrt verður fyrir þá
sem sjá hér alla leiki. Ekki veitír
þó af fyrir félögin að fá pening í
kassann, því að kostnaður við
rekstur knattspyrnunnar er
geysilegur. Það er t.d. bara
meistaraflokkur hvers félags
sem skilar aðgangseyri, en hjá
félögunum taka oft fimm aldurs-
flokkar þátt í mótum og ferða-
kostnaður þeirra mikill.
í sumar eigum við möguleika
á að sjá eitt þekktasta knatt-
spyrnulið heims leika hér á Ak-
ureyrarvelli, en það er Manc-
hester United sem hér leikur í
bvriun ágúst við KA.
Fyrsti leikur KA á þessu
keppnistímabili verður gegn
stórliðinu Val og verður leikið í
Reykjavík, og vonandi á grasi.
KA hefur leikið nokkra æfinga-
leiki í vor og gengið sæmilega.
Lið KA er að mestu skipað sömu
leikmönnum og í fyrra og styrk-
ur liðsins liggur í jöfnum leik-
mönnum með mikla keppnis-
reynslu. Þó má búast við að bæði
liðin KA og Valur leiki rólega og
taki sem minnsta áhættu. Spá
íþróttasíðunnar er jafntefli,
ekkert mark verði skorað.
Þór leikur
við Njarðvík
Þeir
dæma
i
1. deild
Þrír dómarar frá Akureyri munu
dæma í fyrstu deildinni í sumar.
Það eru þeir Rafn Hjaltalín,
Þóroddur Hjaltalín og Kjartan
Tómasson. Rafn er einn reynd-
asti dómari deildarinnar í dag,
og Þóroddur hefur einnig
nokkra reynslu i henni. Kjartan
er hins vegar að stíga sín fyrstu
spor sem dómari í fyrstu deild,
en hann hefur dæmt fjöldan all-
an af leikjum í hinum deildun-
um. Ekki er að efa að allir þessir
menn munu skila hlutverki sínu
með prýði.
Fyrsti leikur Þórsara, nýbakaðra
bikarmeistara KRA, á keppnis-
tímabilinu verður við Njarðvík
og fer leikurinn fram á Þórsvell-
inum á laugardaginn. Njarðvík-
ingar eru nýliðar í deildinni og
ekki mikið vitað um styrk
þeirra. Þó má búast við að þar
séu snjallir knattspyrnumenn og
ef til vill einhverjir sem ekki hafa
komist í fyrstu deildar lið Kefl-
víkinga. Þórsurum hefur gengið
mjög vel í æfingaleikjum sínum í
vor og ættu því að vinna þennan
leik auðveldlega. Lið þeirra er
mjög gott um þessar mundir,
skipað ungum og efnilegum leik-
mönnum.
Íþróttasíðan spáir Þórssigri,
þremur mörkum gegn engu.
Leiðrétting
í síðasta blaði var sagt að Þórs-
arar hefðu orðið Akureyrar-
meistarar í knattspyrnu. Það er
ekki rétt, en þeir urðu bikar-
meistarar KRA, en Akureyr-
armótið fer fram í sumar ög þá
verða leiknar tvær umferðir.
Fyrsta golfmót sumarsins
Kylflngar á Akureyri ætla að
trítla af stað um helgina, en á
laugardag halda þeir fyrsta
mót sitt á árinu.
Það er svokölluð „Flagga-
keppni“, en í þeirri keppni
reyna keppendur að komast sem
lengst á pari vallarins auk for-
gjafar sinnar, og sigrar sá sem
kemur flagginu sínu sem flestar
holur. Skemmtilegt fyrirkomu-
lag og nú er bara að dusta rykið
af golfpokunum, pússa kylfurn-
ar og drífa sig af stað.
IGNIS
Kælitæki í fjölbreyttu úrvali
Ávallt sama hagstæða verðið.
Víðgerðar- og varahluta-
þjónusta í sérflokki
Óseyri 6, Akureyri . Pósthólf 432 . Sími 24223
Viðtalstímar
frambjóðenda:
Frambjóðendur Framsóknarflokksins verða til viðtals
á skrifstofunni Hafnarstræti 90, mánudagatil fimmtu-
daga kl. 17-19 og 20-22, og á föstudögum kl. 17-19.
Komið og spjallið við frambjóð-
endur og þiggið kaffiveitingar.
xl
xM
Kosningaskrífstofa
FramsóknarQokksins
erað Hafharstræti 90
Opin virka daga kl. 09-22, um helgarkl. 13-18.
Símar: 21180-24442-24090.
Stuðningsmenn B-listans
sýnum nú samtakamáttinn,
mætum til starfa á skrífstofunni.
AJramhaidandi
framsókn
tilframfara
) á Akureyri
J
13. maí 1982 - DAGUR - 9