Dagur - 13.05.1982, Page 12
MTOE
Akureyri, fímmtudagur 13. maí 1982
VIFTUREIMAR
í FLESTA BÍLA
Húsavík:
í sumar
„Það var orðið áliðið í fyrra
þegar útboðið fór fram, en ekki
svo, að í venjulegu árferði hefði
allt átt að vera í himnalagi. En
eins og menn muna var árferðið
ekkert venjulegt og allt fennti í
kaf í byrjun október. Þó tókst í
fyrra að steypa undirstöðurnar,
en annað var eftir þegar vinna
stöðvaðist“, sagði Þorvaldur
Vestmann, tæknifræðingur hjá
Tækniþjónustunni s.f. á Húsa-
vík, um nýju flugstöðvarbygg-
inguna sem er að rísa á Húsa-
víkurflugvelli. Innan skamms
verður botnplata hússins
steypt. Nú er búið að auglýsa
eftir tilboðum í uppsteypu á
byggingunni. Tilboð eiga að
hafa borist ekki síðar en 25. maí
n.k.
Þorvaldur sagði að húsinu væri
skipt í tvo áfanga, á þessu ári
verður norðurhluti hússins steypt-
ur upp, en í þeim hluta verður
m.a. flugturn. Á næsta ári verður
farþegasalur og farþegaafgreiðsl-
an steypt upp. Þorvaldur sagði að
fjárframlög frá hinu opinbera
réðu framkvæmdahraðanum, en
auðvitað hefði verið æskilegt að
steypa allt húsið upp í einum
áfanga.
Heildarflatarmál hússins er 580
fermetrar. Húsið er sams konar
og það sem reist var á vegum
Flugmálastjórnar við flugvöllinn í
Vestmannaeyjum. Eina breyting-
in er sú að flugturninn verður
byggður við húsið en stendur ekki
stakur eins og í Vestmannaeyj-
um. „Þeir bjartsýnustu láta sig
dreyma uni að framkvæmdum
verði lokið í byrjun árs 1985“,
sagði Þorvaldur að lokum.
Dalvík:
Skátar
stofna
hjálparsveit
Dalvík 10. maí.
Um síðustu helgi var stofnuð
hjálparsveit skáta á Dalvík af
meðlimum skátafélagsins á
staðnum og fyrir tilstilli Lands-
sambands hjálparsveita skáta.
Félagar eru bæði úr röðum
skáta og utan þeirra.
Á stofnfundinum sl. laugardag
mættu 15 manns, sem allirgerðust
félagar. Einnig geta menn gerst
stofnfélagar á næsta sveitarfundi,
sem verður mjög fljótlega.
í stjórn hjálparsveitarinnar
voru kosnir: Zophonías Jón-
mundsson, Haraldur Rögnvalds-
son oe Sveinbjörn Sveinbjörns-
son. I varastjórn voru kosnir:
Bjarni Reynisson, Sigríður Guð-
mundsdóttir og Guðmundur Ósk-
arsson. Stjórnin á eftir að skipta
með sér verkum og kjósa
formann.
Félagar úr hjálparsveit skáta á
Akureyri hafa boðist til að að-
stoða sveitina með þjálfun og
leiðbeiningum.
AG
Miklar f ramkvæmdir hjá
vegagerðinni í sumar
Dagur hafði sambandi við Sig-
urð Oddsson hjá vegagerðinni
á dögunum og spurðist fyrir um
framkvæmdir á hennar vegum í
sumar. í stuttu máli voru svörin
á þessa leið:
Mestu framkvæmdirnar verða í
Víkurskarði og hljóða fjárveiting-
ar hins opinbera til þeirra upp á
7,0 millj. kr. „Okkur dreymirum
að geta lokið við að undirbyggja
veginn og gera hann vetrarfæran í
haust“, sagði Sigurður. Þá verður
lokið við brúna yfir Svarfaðar-
dalsá á Ólafsfjarðarvegi og lokið
við kaflann frá Skíðadalsvegi til
Dalvíkur og slitlag lagt á þann
kafla. Einnig verður endanlega
gengið frá spottanum frá Kálf-
skinni að Þorvaldsdalsárbrú
þannig að þá verður leiðin Akur-
eyri - Dalvík öll komin undir slit-
lag nema kaflinn á milli Þorvalds-
dalsár og Hálsár.
Fyrir hendi er
1,5 millj. kr. fjárveiting til lagfær-
ingar á Grenivíkurvegi sem lík-
lega verður notuð í lagfæringar
við Nollaklif. 1,6 millj. fara í
Skíðadalsveg og Svarfaðardals-
veg niður við vegamót Ólafsfjarð-
arvegar, 1 millj. í Eyjafjarðarveg
vestri framan Melgerðis, 0,3
millj. verða notaðar til að tengja
brúna á Miðbraut, Laugaland -
Hrafnagil og Bárðardalsvegur
vestri fær 0,3 millj. í smá endur-
bætur. Þá fær Staðarbraut frá
Aðaldalsvegi að Laxárvirkjun
Ámi Arnasson með llmtrésbita
Nýjung hjá B.T.B.:
Framleiðsla
á límtré
Þessa dagana er veriö að taka í
notkun vélasamstæöu til fram-
leiðslu á svokölluðu límtré hjá
Byggingavöruverslun Tómasar
Björnssonar - BTB.
Árni Árnason framkvæmda-
stjóri BTB tjáði okkur að límtré
væru tréplankar settir saman enda
í enda með ákveðinni aðferð,
þannig að hægt væri að framleiða
lengri einingar en fást úr ósam-
settu tré, án þess þó að það kæmi
niður á burðarþolinu. í stuttu
máli gengur framleiðslan fyrir sig
með eftirfarandi hætti: Fyrst er
timbrið þurrkað í þar til gerðum
þurrkara en að því loknu er því
rennt í svonefnda fingrunarvél og
þeir endar sem fella á saman
fræstir á ákveðinn hátt. Þá tekur
límingin við og er límið pressað
með gífurlegum þrýstingi inn í
samskeytin en jafnframt eru
endarnir hitaðir og eigá þá plank-
arnir, eftir þessa meðferð, að vera
jafngóðir og ósamsettir plankar,
sömu lengdar.
Árni sagði að límtré. hefði tölu-
vert verið notað hér á landi en
hingað til hefði það verið innflutt.
T.d. hefði innflutt límtré verið
notað bæði í íþróttahúsinu nýja
og verkmenntaskólanum. Um síð-
ustu áramót var lagður tollur á
innflutt límtré og gera þeir hjá
BTB sér vonir um að innlend
framleiðsla geti leyst þá erlendu
af hólmi.
meðferð, og einnig Uppsveitar-
vegur skammt frá Ásbyrgi. Þess
utan eru til 1,5 millj. til endurbóta
á vegi í Aðaldal og fyrirhugað er
að klæða veginn frá Húsavík að
Skjálfandafljóti slitlagi fyrir 8,9
miílj. kr. og einnig er'áætlað að
lagfæra veginn frá Reynihlíð í
Mývatnssveit suður undir Voga
og upp undir Kísiliðju og leggja á
hann bundið slitlag, til þess þarf 2
millj. kr. Á Melrakkasléttu er
fyrirhugað að ljúka við að byggja
upp veginn til Raufarhafnar og
fara til þess 1,8 millj. kr. Að lok-
um má nefna Ólafsfjarðarveg
eystri sem fær 0,4 millj. kr.
Framkvæmdir eru þegar hafnar
á sumum þessara staða og sagði
Sigurður að búið hefði verið að
gera út 5 vinnuflokka þegar hríð-
arhveliurinn skall á um daginn og
urðu þeir allir að hætta vinnu en
eru nú aftur komnir af stað af tví-
efldum krafti.
Varðandi lagningu bundins slit-
lags sagði Sigurður að þeim vega-
gerðarmönnum hefði reynst erfitt
að finna rétta efnið með sem
mestri viðloðun, réttri korna-
dreifingu og nógu sterka bergteg-
und. „Annars hefur frammistaða
slitlagsins farið fram úr okkar
björtustu vonum og ég held mér
sé óhætt að segja að lagning slit-
lags hér í kjördæminu hafi lukkast
betur en á nokkru öðru svæði á
landinu“, sagði Sigurður að
lokum.
Bora fyrir
hitaveituna
í sumar verður boruð hola fyrir
Hitaveitu Ólafsfjaröar í Laug-
arengi, áætlað er að bora 1200
til 1500 m holu.
Jón E. Friðriksson, bæjarstjóri,
sagði að Ólafsfirðingar fengju nú
helming heita vatnsins frá Laug-
arengi, en hinn helmingurinn
kemur úr holu í Skeggjabrekku-
dal. Jón sagði að enn væri ekki
hægt að tala um skort á heitu vatni
í Ólafsfirði , en menn teldu ráðlegt
að fara að huga að aukinni vatns-
öflun í tíma.
# Seldu níu
þúsund
herðatré
Um síðustu helgi gengu fél-
agar í Lionsklúbbnum Hæng
um Akureyri og buðu fólki
herðatré. Þeir héldu af stað
með 10 þúsund herðatré og
þeim tókst að selja níu þús-
und stykki. Að sögn þeirra
Hængsmanna voru mjög
margir að heiman er þeir
börðu að dyrum og hafa þeir í
hyggju að fara aftur af stað og
losna við þau þúsund stykki
sem eru eftir. Akureyringar
ættu að geta hengt upp föt sín
á næstunni.
# Togaramönn-
um
hrósað
Sl. mánudag landaði Akureyr-
artogarinn Harðbakur á Siglu-
firði. Fréttaritari Dags, sem
jafnframt er verkstjóri á
bryggjunni, sagði í samtali
við S & S að hann gæti alltaf
dáðst að þeirri reglusemi og
snyrtimennsku sem ríkti í Ak-
ureyrartogurunum og þar
væri Harðbakur e.t.v. fremst-
ur í flokki.
# Þorsteinn
fer f rá
Króknum
Þorsteinn Þorsteinsson,
bæjarstjóri á Sauðárkróki, er
sagðúr vera búinn að lýsa því
yfir að hann muni ekki gegna
lengur starfi bæjarstjóra. Þor-
steinn hóf starf fyrir fjórum
árum og að sögn heima-
manna hefur hann gegnt
embætti bæjarstjóra með
prýði. Sérstaklega hefur hann
unnið vel f málefnum steinull-
arverksmiðjunnar, sem virð-
ist ætla að hafna á Sauðár-
króki þegar allt kemur til alls.
# Góðbyrjun...
Kosningapési sjálfstæðis-
manna var borinn út f hús fyrr
í vikunni. Að sjálfsögðu var
hann bláleitur. Krakkar báru
hann samviskusamlega í
hvert hús og reyndu að selja
hann í sumum þeirra. Eftir því
sem við komumst næst gekk
treglega að fá greidda pen-
inga fyrir pésann, en greini-
lega eru sölumennirnir ungu
efni í góða sjálfstæðlsmenn.
# Díana,
Elísabet
og Guðm.
Sæm.
í erlendum fréttum I D & V f
fyrradag, eða var það f Morg-
unblaðinu, mátti lesa að
Elfsabet Englandsdrottning
hefur ákveðið að Dfana
tengdadóttir hennar skuli
fæða barnið sem hún gengur
með í höll hennar hátignar,
barnið fæðist í heimahúsi
með öðrum orðum. Sú saga
gengur fjöllunum hærra, að
drottningin hafi lesið grein
Guðmundar Sæmundssonar
um fæðingar í heimahúsum,
orðið heilluð og harðbannað
stelpunni henni Díönu að fara
á spítala.