Dagur - 18.05.1982, Qupperneq 7
„ Vonandi nær hræðslu-
áróðurínn ekki eyrum fólks“
— segir Sigurður Óli Brynjólfsson bæjarfulltrúi, efsti maður á lista Framsóknarflokksins á Akureyri
Sigurður Óli Bryjólfsson, kennari, skipar 1. sætið á lista
framsóknarmanna á Akureyri. Hann er 52 ára, ættaður frá
Ytra-Krossanesi. Hann hefur kennt við Gagnfræðaskóla
Akureyrar í nær þrjá áratugi, en starfar nú við Iðnskólann.
Hann hefur verið bæjarfulltrúi fyrir Framsóknarflokkinn á
Akureyri síðan 1962. Kona hans er Hólmfríður Kristjáns-
dóttir frá Holti, Þistilfirði, og eiga þau 5 börn.
- Sigurður, í ársskýrslu Fram-
kvæmdastjórnar ríkisins sem út
kom nýlega var að finna heldur
betur jákvæða umsögn um þróun
Akureyrar frá 1971, en sum árin
fjölgaði jafnvel meira á Akureyri
einni en öllu höfuðborgarsvæð-
inu. Hvað viltu segja um þennan
dóm Framkvæmdastofnunar?
- Hann staðfestir það, að
framkvæmdastefnan sem við
framsóknarmenn höfum alltaf
lagt ríka áherslu á, ásamt með
þeirri trú okkar að Akureyri væri
framtíðarbær, er rétt. Með þess-
ari stefnu höfum við viljað að
sameiginlegar framkvæmdir væru
í takt við framfaravilja fólksins,
sem með bjartsýni, áræði og
dugnaði hefur haslað sér hér völl
og gefið gott fordæmi. Fram-
kvæmdir á vegum bæjarins hvetja
einstaklingana til nýrra átaka og
öfugt, og þannig viljum við halda
ótrauðir áfram.
Ótrúleg vantrú
á uppeldishlutverki
heimilanna
- Hvað hefur áunnist á undan-
förnu kjörtímabili? Hefur það
verið eins líflegt tímabil þegar á
heildina er litið og áratugurinn
1971-1981?
- Á þessu kjörtímabili hefur
sami þróttur verið í framkvæmd-
um og áður. Til dæmis hafa mal-
bikaðar götur í bænum lengst um
hvorki meira né minna en 90%.
Varla er það stöðnun, eins og
sjálfstæðismenn í minnihluta
bæjarstjórnar hafa haldið fram.
Nú er stefnt að því að malbik
verði komið á allar götur á næsta
kjörtímabili. Petta er raunhæf
áætlun, því aðundirbygginggatna
hefur verið með þeim hætti á
undanfórnum árum, að sennilega
stendur ekkert bæjarfélag Akur-
eyri betur í þeim efnum.
Áratuga draumur um íþrótta-
höll er að verða að veruleika.
Jafnframt er stefnt að því að reisa
íþróttahús við Oddeyrarskólann
og uppbyggingu á sviði vetrar-
íþrótta, þegar íþróttahöllinni er
lokið, en það verkefni hefur eins
og gefur að skilja tekið stærstan
hluta fjármagnsins til íþrótta-
mannvirkja.
Dagvistarrými hefur meira en
tvöfaldast á kjörtímabilinu og
stefnt er að enn frekari aukningu,
vegna þess að við teljum að enn
hafi ekki verið komið til móts við
raunverulegar þarfir, eins og þær
eru í dag. Hins vegar finnst mér sá
málflutningur varhugaverður að
tala um að barnauppeldi verði
ekki leyst af hendi svo vel sé nema
á dagvistarheimilum og öðrum
opinberum stofnunum. Hvar eru
heimilin í þessari mynd? Mér
finnst ríkja alveg ótrúleg vantrú á
getu heimilanna til að ala upp
börn. Börnin eiga að vera sem
mestum samvistum við fjölskyld-
ur sínar, annað er annars flokks
lausn. Við eigum að kappkosta að
vernda börnin og gæta réttar
s.l. ári til að mæta fjárveitingu
sem átti að koma frá ríkissjóði en
kom ekki. Lögð er áfram áhersla
á að hraða þessum framkvæmd-
um og við krefjumst þess að stað-
ið verði við fyrri áætlanir um
Sigurður Óli Brvnjólfsson.
þeirra til eðlilegs fjölskyldulífs í
stað þess að láta þau gjalda fyrir
lífsgæðakapphlaupið.
Stækkun sjúkrahússins um
meira en helming er á góðri leið,
meðal annars vegna þess að Ak-
ureyrarbær útvegaði stórt lán á
stöðu þess og verksvið.
Á kjörtímabilinu var reist stór
kennslu- og tengiálma við Glerár-
skóla, þótt framlög ríkissjóðs
yrðu að mestu að fjármagna úr
bæjarsjóði, meðan á byggingu
stóð. Skóli fyrir verkmenntir er í
byggingu, áætlanir eru um bygg-
ingu skóla í Síðuhverfi og sund-
laug við Glerárskóla fer að nálg-
ast útboðsstig.
Pannig er hægt að tala um og
rekja dæmi um framkvæmdir á
fjölmörgum sviðum, svo sem við
vatnsveitu, hitaveitu, höfnina,
rafveituna, Laxárvirkjun-Lands-
virkjun, heimili aldraðra, félags-
legar íbúðir, strætisvagna og
fleira og fleira. Þetta kalla sjálf-
stæðismenn stöðnun og er það
aumt hlutskipti í kosningabaráttu
að hafa slíkt álit á dugnaði og at-
orku Akureyringa.
Verðum að
vera þátttakendur
í nýtingu
orkunnar
- Hvað með atvinnuuppbygg-
ingu á Akureyri í framtíðinni?
- Mér finnst mikilvægast í
þeim málum að viðhalda bjartsýni
og framfaravilja fólksins sjálfs.
Það má ekki koma því svo fyrir,
að hræðsluáróðurinn valdi því að
menn sjái engar lausnir nema að-
fengnar frá öðrum. Við eigum að
leggja megináhersluna á það að
benda á þau þrekvirki sem hér
hafa verið unnin á sviði atvinnu-
mála og halda áfram að treysta
þann grunn sem lagður hefur
verið. Við framsóknarmenn höf-
um það álit á Akureyringum og
Eyfirðingum, að það sé ekki of-
verkið þeirra að vinna sig upp úr
þeim örðugleikum sem nú eru um
sinn og raunar hefur alltof mikið
verið gert úr. Fólk á þessu svæði
er ekki gjarnt á að vera með bar-
lóm og kröfugerð á stjórnvöld.
Þetta hefur orðið til þess að þegar
Eyfirðingar hefja upp raust sína
og benda á að úrbóta sé þörf, þá
er mark á því tekið. Á s.l. hausti
var stjórnvöldum bent alvarlega á
þá stöðu sem iðnaðurinn á Akur-
eyri var kominn í og má segja að
stjórnvöld hafi brugðist rétt við,
þótt betur hefði mát gera.
Nú er mikið rætt um stóriðju
eða ekki stóriðju við Eyjafjörð.
Það er einn hlutur sem alltaf vill
gleymast í þessari umræðu. Hann
er sá, að Akureyrarbær hefur
sjálfur ekkert land undir stóran
orkufrekan iðnað. Mér finnst það
neðan við lágmarkskurteisismörk
við nágranna okkar, ef Akureyr-
ingar láta sem þeir geti og eigi að
ráðstafa landi þeirra undir slíkan
atvinnurekstur. Þeir sem þannig
tala eru að lítilsvirða íbúa ná-
grannasveitarfélaga okkar og það
sem þeir hafa í raun lagt af mörk-
um til uppbyggingar þessa bæjar.
Þess vegna legg ég mikla áherslu
á, að samstarf um skipulag og
landnýtingu Eyj afj arðarsvæðisins
verði styrkt og þannig lagður
grundvöllur að sameiginlegri
stefnu öllum íbúum svæðisins í
hag. Það er skoðun mín, að Ey-
firðingar verði að leggja áherslu á
að hér rísi upp iðnaður sem nýtir
orku sem við komum til með að
framleiða, en það verður að nást
gott samkomuiag um það hvers
konar iðjuver verða reist. Slíkt
eða slík fyrirtæki verðum við að fá
og verða þannig þátttakendur í
þeirri nýtingu orkunnar sem
framundan er, ekki síst þegar haft
er í huga að Akureyrarbær er orð-
inn meðeigandi í Landsvirkjun.
Vöxtur byggðar sem slíkri starf-
semi fylgir styrkir ekki aðeins
þéttbýlið, heldur t.d. einnig sveit-
irnar með því að stækka heima-
markað fyrir landbúnaðarvörur.
og styrkir einnig þjónustuhlut-
verk Ákureyrar.
Við leggjum
verk okkar
undir dóm
bæjarbúa
- Nú líður senn að lokum þess-
arar kosningabaráttu. Hvað
finnst þér hafa einkennt hana?
- Hræðsluáróður sjálfstæðis-
manna hefur verið nokkuð áber-
andi, en ég hef þá trú að hann hafi
ekki náð eyrum manna, frekar en
leiftursóknin forðum. Menn tala
um að áhugaleysi ríki meðal
bæjarbúa. Mér finnst hins vegar
áhugi bæjarbúa á bæjarmálum
vera mikill og það kemur fram í
daglegum samræðum manna á
milli. Það má hins vegar benda á
það, að í okkar lýðræðisþjóðfé-
lagi er þátttaka í sveitar- og bæjar-
stjórnarkosningum sú leið sem
fólk hefur til að beita áhrifum
sínum. Það skiptir máli hverjir
stjórna. Við framsóknarmenn
leggjum verk okkar undir dóm
bæjarbúa og göngum bjartsýnir til
kosninganna, bjartsýnir á að fólk
meti framkvæmdastefnu okkar.
Við treystum bæjarbúum til að
halda áfram að byggja upp öflugt
og þroskavænlegt samfélag og
væntum trausts þeirra og stuðn-
ings við stefnu okkar, til að svo
megi verða.
Stefán Valgeirsson alþingismaður:
Orosending til norðlendinga
vegna sveitarstjórnarkosninganna
Góðir Norðlendingar
Um næstu helgi verður kosið
um hverjir eigi að hafa forystu
um málefni sveitafélags þíns
næstu fjögur árin. í öllum
þéttbýlisstöðum í Norður-
landskjördæmi eystra hafa
framsóknarmenn haft þessa
forystu á því kjörtímabili sem
nú er að ljúka, þetta hafa ver-
ið „framsóknarár" í þess orðs
fyllstu merkjingu. Full
atvinna og miklar framfarir
þrátt fyrir óhagstæðar ytri að-
stæður. Engin þjóð í Vestur-
Evrópu hefur búið við jafn
gott atvinnuástand þessi ár og
við íslendingar. í þeim þjóð-
löndum, sem íhaldsöflin hafa
ráðið er atvinnuástandið verst
og þar af leiðandi óréttlætið
mest.
Kjósandi góður, vilt þú
skipta? í þeim kostningum
sem í hönd fara er kosið um
hvort breyting verður á for-
ystu í þínu sveitarfélagi, hvort
framsóknarmenn eigi að fara
með forystuhlutverk áfram
eða hvort sjálfstæðismenn
eigi að taka við því. I Norður-
landi eystra eru aðrir kostir
ekki fyrir hendi hvað sem hver
segir.
Ef þú kemst að þeirri niður-
stöðu að æskilegt sé að „leift-
ursóknarlið“ Sjálfstæðisfl-
okksins taki nú við stjórn í
þínu sveitarfélagi, og jafnvel í
landsstjórninni, þá er það ein-
falt mál fyrir þig - þú krossar
framan við D-listann, lista
leiftursóknarmanna. En ef þú
vilt umfram allt koma í veg
fyrir valdatöku þeirra þá er sá
kostur öruggastur að kjósa B-
listann, lista framsóknar-
manna, því ef þú kastar at-
kvæði þínu á aðra framboðs-
lista, sem hafa litla eða tak-
markaða möguleika til áhrifa
að kostningum loknum þá
gæti það leitt til þess, þó með
óbeinum hætti sé, að þú værir
að styðja íhaldið til aukinna
áhrifa. Og eftir því sem at-
kvæði dreifast á fleiri fram-
boðslista íhaldsandstæðinga
býður það sömu hættu heim.
Framsóknarflokkurinn set-
ur það ofar öðrum stefnumál-
um sínum að gripið sé til allra
tiltækra ráða til að koma í veg
fyrir atvinnuleysi hvar sem er í
landinu. Með því að kjósa
lista framsóknarmanna strik-
ar þú um leið undir kröfuna
um fulla atvinnu og gerir þitt
til þess að hún verði
framkvæmd.
Kjósandi góður, ég vil
hvetja þig til að leiða hugann
að því hvernig umhorfs var í
þinni byggð og þínu nágrenni
í lok viðreisnar og gera nú út-
tekt á því hvað unnist hefur
síðan, þ.e. á „Framsóknarár-
atugunum“. Staðreyndirnar
tala sínu máli fyrir þá sem á
annað borð sjá og skilja.
Ég vil hvetja alla þá sem
hafa svipað viðhorf til þjóð-
mála og við framsóknarmenn
að koma nú til liðs við okkur
til að efla byggðir Norður-
lands, til að koma í veg fyrir
Stefán Valgeirsson.
áform „leiftursóknarmanna“,
sem allir eiga að þekkja hver
eru og því óþarft að kynna
þau hér. Við leysum ekki
atvinnumálin nema á félag-
slegum grundvelli.
Á þessu ári er öld liðin síð-
an fyrsta samvinnufélagið var
stofnað. Án þeirra hefði okk-
ur ekki tekist að ná þeirri
velmegun og því framfarastigi
sem allstaðar blasir nú við
augum manna, ekki síst hér á
Norðurlandi, og sem undir-
strikar hver máttur fjöldans er
þegar hann fæst til að standa
saman - er samtaka. Er ekki
viðeigandi á aldarafmæli sam-
vinnufélagsins í landinu að við
Norðlendingar fylkjum liði til
meiri átaka í atvinnumálum
og öðrum framfaramálum
fjórðungsins með því að kjósa
þá menn til áhrifa,-sem eru og
hafa verið sverð og skjöldur
samvinnufélaganna og um
leið norðlenskra byggða, því
það hlýtur að fara saman og
verður ekki sundur slitið.
Það sem úrslitum getur
ráðið er að þeir sem eiga
samleið með okkur framsókn-
armönnum vinni nú vel þessa
daga, sem eftir eru fram að
kostningum. Það sem gildir er
samstilt átak fjöldans. Því
heiti ég á þig, kjósandi góður,
að hafa samband við kostn-
ingaskrifstofu flokksins, gera
það sem þú ert megnugur til
þess að útkoman verði okkur
sem hagstæðust. Sigur Fram-
sóknarflokksins er þinn sigur,
sigur norðlenskra byggða.
Með kveðju
Stefán Valgeírsson
„Ég er til
í slaginn“
„Þetta hefur gengið alveg sér-
staklega vel, mikiu betur en
ég gerði mér vonir um áður en
ég opnaði“, sagði Herbert
„Kóki“ Ólason er Dagur
spjallaði við hann á dögunum.
„Kóki“ hefur sem kunnugt er
rekið fyrsta hamborgarastað-
inn sem opnaður hefur verið á
Akureyri síðan í lok aprfl.
Staðurinn er rekinn undir
nafninu „Kókaborgarar“ og
boðið er upp á „einfaldan
Kóka“ - „tvöfaldan Kóka“ á
matseðlinum m.a.
Ýmsir eru vantrúaðir á að Ak-
ureyri sé nógu stór bær til þess
að þar geti þrifist sérstakir
hamborgarastaðir, en „Kóki“ er
á öðru máli.
- Með tilkomu svona staða
breytast neysluvenjur fólks. Á
þessum stöðum er hægt að fá
ódýran mat sem afgreiddur er á
mjög stuttum tíma. Þá er verð-
inu haldið niðri, en hjá mér er
það stefnan að hafa verðið lágt
en byggja söluna upp á magn-
inu. Þótt verðið verði lágt er
ekkert til sparað, ég er með úr-
vals hráefni og til gamans má
geta þess að allt það hráefni sem
ég vinn úr er fengið hér á Eyja-
fjarðarsvæðinu. Úrvals hráefni
sem við leggjum okkur fram um
að gera sem bestan mat úr.
- En eru „Kókaborgarar"
eitthvað frábrugðnir öðrum
hamborgurum sem hægt hefur
verið að fá hér í bænum til
þessa? -
- Það tel ég tvímælalaust,
enda held ég því fram og stend
við það að „Kókaborgarar" séu
bestu hamborgarar sem eru á
markaðnum. Sjáðu til. Þegar
boðið er upp á úrvals hráefni og
úrvals starfsfólk, hlýtur útkom-
an að verða góð. Hjá mér er
fyrsta flokks starfslið, og okkar
metnaður er að bjóða viðskipta-
vinum okkar upp á betri vöru en
aðrir eru með.
- Hvers vegna geta „Kóka-
borgarar“ verið svona sérstakir
og keppt við viðurkennda vöru
eins og t.d. „Tommaborgara“?
- Hvers vegna ekki. Eins og
Tommi, get ég lagt mig allan
fram og boðið upp á góða vöru
og ég geri það. Ég er mjög
ánægður með að sá andstæðing-
ur sem ég á eftir að glíma við hér
á Akureyri er Tommi en ekki
einhver annar. Ég vil berjast við
einhvern sem má sín einhvers,
mér finnst það eðlilegra heldur
en að berjast við einhvern minni
máttar. Síðan verður það bara
að koma í ljós hver verður undir
í bardaganum, en sá sem sigrar
verður auðvitað sá sem getur
boðið upp á betri vöru og b'etri
þjónustu. Þetta finnst mér
sanngjarnt, og ég er tilbúinn í
slaginn.
Þankar að loknum
f ramboðsf u nd i
Á framboðsfundi á Hótel KEA
s.l. fimmtudagskvöld kynnti
Gísli Jónsson þann möguleika
fyrir fundarmönnum, að Sjálf-
stæðisflokkurinn ynni hreinan
meirihluta í bæjarstjórn næsta
kjörtímabil. Ætli flestu skyn-
sömu fólki þyki sú framtíðarsýn
ekki fremur langsótt, en látum
svo vera. Hverjum og einum er
frjálst að trúa því, að kraftaverk
geti gerst, þótt öll skynsamleg
rök mæli þeim í gegn.
Allmikið fannst mér á skorta,
að hinn ágæti svarabróðir minn í
spurningaþáttum væri eins mál-
efnalegur og yfirvegaður í mál-
flutningi sínum og vænta mætti
af svo vel gefnum og lffsreynd-
um manni. Ræðan beindist mest
að því að agnúast út í störf full-
trúa Framsóknarflokksins í
bæjarstjórn, ásaka þá fyrir stefn-
uleysi og glundroða. Þeir hefðu
einu sinni tekið afstöðu í þrennu
lagi og gátu ekki verið sundur -
leitari, þegar aðeins voru þrír
fulltrúar. Það liggur við, að
manni finnist heldur betur
stungin tólg af fulltrúa þess
flokks, sem öðrum fremur telur
sig berjast fyrir einstaklings-
frelsi. Er annarra flokka mönn-
um þá ekki heimilt að hafa eigin
skoðanir • á málunum utan
flokkslínunnar, fylgja þeim
fram og standa við þær? Eða
hefur Gísli aldrei heyrt getið um
menn að nafni Davíð Oddsson
og Albert Guðmundsson, bú-
setta í Reykjavík?
Gísli vék að atvinnumálum í
ræðu sinni. Þá kom upp í huga
mér spurning, sem ég var að
hugsa um að beina til hans á
fundinum. En ég hætti við það,
þegar ég minntist þess, að ég
hafði ekki lesið hina heiðbláu
stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins,
sem borist hafði heim til mín
eins og sjálfsagt á öll heimili í
bænum. Kauðalegt væri að
spyrja um það á opinberum
fundi, sem e.t.v. stæði í svo út-
breiddu plaggi.
Þegar heim kom fór ég að lesa
atvinnumálakafla stefnuskrár-
innar. En, ó, vei, hann reyndist
með því marki brenndur, sem
svo oft einkennir slíkar ritsmíð-
ar, almennt orðalag, sem enginn
festir hendur á. Þar stendur
m.a., að unnið verði að því, að
nýiðnaði, þar með talinni stór-
iðju, verði valinn staður á Eyja-
fjarðarsvæðinu. Sv'o mörg eru
þau orð. Skörulegra hefði nú
verið, að flokkur einstaklings-
framtaks og frelsis tilgreindi þó
ekki væri nema eitt, helst tvö
eða þrjú forgangsverkefni á
sviði iðnaðar, sem hann mundi
beita sér fyrir á komandi kjör-
tímabili.
Þegar kom að skólamálunum
var orðalagið eilítið ákveðnara.
En eins atriðis saknaði ég þar.
Hvergi er minnst á þann mögu-
leika, að upp verði tekin há-
skólakennsla á Akureyri. í
kosningasjónvarpi á sunnudag
gaf Gísli þá yfirlýsingu, að þetta
málefni hefði ekki þótt tíma-
bært, önnur verkefni væru meira
aðkallandi. Er þetta nú ekki
dálítill misskilningur og ótíma-
bær hógværð? Mál þetta nær
ekki fram að ganga nema fyrir
ákvörðun Alþingis og tilstyrk
æðstu yfirvalda í menntamálum,
sem í Reykjavík sitja. Og þar
komast hlutirnir ekki á hreyf-
ingu nema heimamenn þrýsti á.
Slíkt kemst ekki á af sjálfu sér
eins og Gísli lét í veðri vaka að
átt hefði sér stað með stofnun
Menntaskólans á sínum tíma.
Ekki er ég viss um að allir hafi
verið þess sinnis á þeim árum.
Áreiðanlega verður nógar úrtöl-
ur og andstöðu að yfirvinna og
því eins gott að hefja róðurinn
strax.
Þarna er líka verið að fá til
bæjarins fleiri atvinnutækifæri,
sem allir eru sammála um að
vanti og einmitt í þjónustugrein,
en þar hefur fjölgun í mannafla
verið mest á síðustu árum og all-
ir vísir menn sammála um, að sú
þróun haldi áfram. Og fjár-
mögnunin á að koma úr ríkis-
kassanum en ekki skerða hlut
þeirra verkefna, sem Akureyr-
arbær vinnur að.
Guðmundur Gunnarssun.
6 - DAGUR -18. maí 1982
18. maí 1982 - DAGUR - 7