Dagur - 21.05.1982, Blaðsíða 16
ÞJÓNUSTA
FYRIR
HÁÞRÝSTISLÖNGUR
OLÍUSLÖNGUR og BARKA
PRESSUM
TENGIN Á
FULLKOMIN TÆKI
VÖNDUÐ VINNA
Dalbæ - heimili aldraðra á
Dalvík - barst nýlega stór-
mannleg gjöf. Heimilinu var
gefin jörðin Ytra-Holt í Svarf-
aðardal og gefendur voru
bræðumir Valtýr Jóhannesson
og Garðar Helgi Jóhannesson,
ábúendur þar. Með jörðinni
fylgja allar byggingar sem á
henni eru eða eins og segir í
gjafabréfinu „múrfast, naglfast
og jarðfast“.
Guðjón Brjánsson, forstöðu-
maður heimiiisins, sagði þetta
vera stærstu gjöf sem heimilinu
hefði borist. Líklega væru það fá
dvalarheimili sem fengið hefðu
aðra eins gjöf og sýndi það glöggt
stórhug og velvilja þeirra Ytra-
Holtsbræðra í garð heimilisins.
Jörðin Ytra-Holt Iiggur á mörk-
um Dalvíkurbæjar og Svarfaðar-
dalshrepps og eru landkostir
hennar gífurlegir - mikið og gott
ræktarland og ekki síðra beitar-
land.
Þá sagði Guðjón, að í Dalbæ
væri kominn vorhugur í mann-
skapinn, sumir farnir að sá mat-
jurtum, aðrir uppteknir í sauð-
burði eða við hestamennsku.
Frambjóðendur til bæjarstjórnar
héldu fund á heimilinu á miðviku-
dagskvöldið og nú stendur þar yfir
málverkasýning eftir ýmsa nor-
ræna myndlistarmenn.
í sumar verður gengið frá dag-
deild við heimilið og verður þai
aðstaða fyrir 6-8 manns, snyrtiað-
staða, bókasafn, heilsugæsla o.fl.
Guðjón Brjánsson mun nú láta
af störfum sem forstöðumaður
heimilisins en því hefur hann
gegnt frá því að starfsemin hófst. í
hans stað kemur Gunnar Berg-
mann til starfa í Dalbæ.
Vorvaka ’82:
Umfangsmesti listvið-
burður í sögu Akureyrar
27. maí hefst hér á Akureyri
listahátíð sem mun standa sam-
fellt yfir í heilan mánuð. Hátíð
þessi ber nafnið Vorvaka ’82 og
samanstendur af fjölda listvið-
burða, erlendra og innlendra.
Má þar nefna flutning Passíu-
kórsins á „African Sanctus“,
myndlistarsýningu Félags ís-
lenskra myndlistarmanna,
landsmót skólahljómsveita,
Ijósmyndasýningu Ken Reyn-
olds, tónleika The London
Symfonietta, tónleika hljóm-
sveitar Tónlistarskólans, sýn-
ingu á handritum íslandsklukk-
unnar, keramik-, vefnaðar- og
glerlistarsýningar, franskan lát-
bragðsleik og sænskan trúð-
leik, trúðaskóla, vísnasöng
o.fl. o.fl.
Forsaga þessa máls er sú að í
fyrra höfðu forráðamenn Lista-
hátíðar í Reykjavík samband við
bæjaryfirvöld á Akureyri og
grennsluðust fyrir um áhuga á, að
einhver atriði Listahátíðar ’82
kæmu norður. Félag íslenskra
myndlistarmanna hafði einnig
áformað myndlistarsýningu hér á
meðan Listahátíð stæði yfir í
Reykjavík.
Fleiri aðilar höfðu uppi ráða-
gerðir um tónleika og sýningar
hér á þessum tíma, má þar nefna
Passíukórinn og Tónlistarskól-
ann, en áformað var að efna til
„músíkdaga í maí“ eins og oft
áður. Þá var í bígerð, á Amts-
bókasafninu, sýning á handritum
íslandsklukkunnar eftir Halldór
Laxness og einnig átti að halda
hér landsmót skólahljómsveita.
Þegar í ljós kom að allir þessir
aðilar höfðu uppi áform um list-
viðburði í sumar var ákveðið að
slá þessu öilu saman í eina sam-
fellda listahátíð og er óhætt að
segja að þarna sé í uppsiglingu
umfangsmesti listviðburður í sögu
Akureyrar. Sumir segja reyndar
að þetta sé lengsta listahátíð í
heimi.
Þess skal getið að gert er ráð
fyrir að fleiri atriði geti bæst við
þau sem nú eru ákveðin og verða
á kynntri dagskrá. Sj álfsagt er t. d.
að nota þá aðstöðu sem útbúin
verður í Skemmunni, þ.e. hljóm-
sveitarpallur og aðstaða fyrir
áheyrendur. Þeir sem áhuga hafa
á því eru beðnir að hafa samband
við Hauk Sigurðsson á bæjarskrif-
stofunni, 4. hæð.
Sauðburður á Sveinsstöðum.
Mynd M.Ó.
Framkvæmdastofnun um tekjur á Akureyri árið 1980:
Meðaltekjur á verksmiðjum
SÍS hærri en í fiskiðnaði
Þegar starfsmenn Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins at-
huguöu laun starfsfólks í vefj-
ariönaði á Akureyri, þ.e. í
verksmiðjum SÍS á Gleráreyr-
um, kom í Ijós að árið 1980
voru meðaltekjur á ársverk
nokkuð hærri þar en meðal
starfsfólks í fiskiðnaði á Akur-
eyri. Að sögn Bjarna Einars-
sonar hjá Framkvæmdastofnun
kom þessi niðurstaða nokkuð á
óvart, því að fram til þessa hef-
ur almennt verið talið að laun í
vefjariðnaði á Akureyri væru
lægri en í fiskiðnaði. Áður hef-
ur verið frá því greint í Degi að
laun starfsfólks í vefjariðnaði á
Norðurlandi eystra árið 1980
hefðu verið hærri en hjá sam-
bærilegum starfshópum annars
staðar á landinu.
Árið 1980 voru meðaltekjur á
ársverk7,7 millj. gkr. á Akureyri.
í vefjariðnaði störfuðu 827, þar af
voru 375 í hálfu starfi og minna,
en 452 voru í fullu starfi, þ.e. í
meira en hálfu starfi. Samtals er
hér um að ræða 461 ársverk. Með-
altekjuráársverk voru8,l milljón
gkr. Til samanburðar má geta
þess að í fiskiðnaði voru 345
ársverk, 319 voru í hlutastarfi og
300 í fullu starfi. Meðaltekjur í
fiskiðnaði á Akureyri árið 1980
voru 7,1 millj. gkr.
Landsmeðaltal árstekna meðal
sjómanna árið 1980 var 14,0 millj.
gkr. og landsmeðaltal í fiskiðnaði
var7,l millj. gkr. eins og áðurvar
getið og 7,7 millj. gkr. í vefjariðn-
aði. „Þessar tölur segja okkur
mikið, vefjariðnaður er ekki sá
láglaunaiðnaður sem menn hafa
talið fram til þessa,“ sagði Bjarni.
Opnar Sjallinn
17. júní?
„Við vonumst til að geta lokið
viðgerðum á stóra salnum fyrir
17. júní en svalirnar og litli salur-
inn koma væntanlega í gagnið
seinna í sumar,“ sagði Þórður
Gunnarsson umboðsmaður
Brunabótafélags íslands, inntur
eftir hvernig liði framkvæmdum í
Sjálfstæðishúsinu. „Stúdentar
ættu að geta fagnað útskrift í
Sjallanum eins og venjulega en
mun færri komast að en áður.
Aðalgeir Finnsson verktaki
sagði að ef ekki hömluðu verkföll
ætti allt að geta staðist áætlun.
Samið hefði verið um að ljúka
viðgerð stóra saiarins og anddyr-
isins fyrir útskrift stúdenta og væri
ekki meining þeirra að sú áætlun
breyttist.
M
# Ingimundur
kveður
Siglufjörð
Bæjarstjórar koma og fara. í
síðustu viku sögðum við frá
því að bæjarstjórinn á Sauð-
árkróki hefði í hyggju að fara
þaðan og nú hafa borist
fregnir af þvi, að Ingimundur
Einarsson, bæjarstjóri á
Siglufirði, óski ekki eftir
endurráðningu. Hann til-
kynnti á fundi bæjarráðs 10.
maí sl. að hann hefði í hyggju
að flytja frá Siglufirði um miðj-
an júní. Bæjarráð beindi því til
bæjarstjórnar að starf bæjar-
stjóra á Siglufirði verði aug-
lýst laust til umsóknar. Um-
sóknarfrestur er tii 5. júní.
# „Rekstrar-
fyrirkomulag
dagvista
öfugsnúið“
í síðustu viku birtist bréf í
Degi frá stjórn Foreldrasam-
takanna á Akureyri. Jón
Björnsson, félagsmálastjóri á
Akureyri, svarar þessu bréfi í
síðasta blaðj þar sem hann
segir m.a. orðrétt: „Þá er í
bréfinu agnúast út í stefnu-
skráratriði einhvers stjórn-
málaflokks, það er að „beita
aðhaldi í rekstri" dagvistar-
stofnana, og réttilega bent á,
œiM
að það eitt sé engln lausn. Hitt
er heldur engin lausn, að láta
eins og rekstur sveitarfélaga
sé fjárhagslega vandræða-
laus fyrir sveitarfélögin. Hið
sanna er, að rekstrarfyrir-
komulag dagvista er svo
öfugsnúið, að það er fyrir
löngu orðið megínþröskuld-
urinn í uppbyggingu þeirra,
miklu meiri heldur en meintur
illvilji einhverra stjórnmála-
flokka“.
# „Dagvistun
fyrir öil
börn nánast
óhugsandi“
Síðan segir Jón Björnsson:
„Dagvistun fyrir öll börn er
nánast óhugsandi, sé ekki
gerð breytíng á lagafyrirmæi-
um um rekstur dagvista/
tekjustofna sveitarfélaga. Því
fyrr sem einhver, foreldra-
samtök eða stjórnmálaflokk-
ur, kemur á framfæri breyt-
ingu hér á, því betra, það er
ólíkt gagnsamara en að karpa
um jafn sjálfsagðan hlut og
það, að aðhaldi skuli beitt í
rekstri".