Dagur - 02.07.1982, Blaðsíða 3
DAGDVELJA
Bragi V. Bergmann
Eldspýtnaþraut
Hvaða sex eldspýtur ættir þú
að fjarlægja, án þess að breyta
stöðu hinna, þannig að eftir
standi þrír rétthyrningar?
Lausn bls. 10
Vefðimaimasögur
Veiöimaðurinn við lögregluþjóninn:
- Ég hélt að þetta væri elgur.
- Og hvenær uppgvötvaðir þú að
þetta var ekki elgur?
- Þegar hann skaut til baka.
☆ ☆☆
- Nei Halli gamli, sæll og blessaður.
Hvernig gengur sportfiskeríið?
- Ég hætti við fiskveiðarnar og snéri
mér að golfinu
- Nú hvers vegna?
- Ég uppgvötvaði að golflygarar þurfa
aldrei að sýna neitt þegar þeir koma
heim...
☆ ☆☆
- Hefur skjólstæðingur þinn orð fyrir
að vera sannsögull, spurði dómarinn.
- Já herra dómari, sagði lögfræðing-
urinn. - Hann er einn af fáum fiski-
mönnum sem getur komið heim úr
veiðiferð og sagt að hann hafi ekkert
veitt og engan stóran misst...
☆ ☆☆
- Nei, halló Nonni, ertu að veiða?
- Nei nei. Bara drekkja ormum ...
☆ ☆☆
Kona sportveiðimannsins var að tala
við vinkonu sína í fyrradag:
- Ég gerði vist allt vitlaust í gær. Ég
talaði of hátt, setti vitlausa beitu á öng-
ulinn, dró færið of hratt inn - og veiddi
fleiri laxa en hann.
☆ ☆☆
- .. ,og þeir voru meira að segja svo
gráðugir að ég varð að fela mig bak við
stóran stein á meðan ég beit á öngul-
inn...!
☆ ☆☆
Fiskimaðurinn: Ég laug aldrei, þegar
ég var strákur.
Sonur hans: - Hvenær byrjaðir þú þá
að Ijúga...?
☆ ☆☆
Veiðimaðurinn mikli var að segja frá
afrekum sínum:
- Ég hafði misst byssuna mína og nú
kom heljarstórt Ijón vaðandi. Þá mundi
ég að ég hafði einhver tíma heyrt að
hægt væri að stöðva villidýr með því
að horfa nógu hvast í augun á þeim.
Og ég gerði það. Ég sat og starði á
Ijónið. Og það starði á mig. Og stóð.
- Er þetta mögulegt? Hvernig á að
skýra þetta? spurði einn áheyrandinn.
- Égveitengaskýringuáþví.nemaer
vera skyldi þá, að ég kúrði uppi í tré,
sjö metrum yfirjörðu ...
☆ ☆☆
- .. .Og þegar ég sá þetta svaka Ijón,
þá kastaði ég mér á það, alls óhræddur
og skar af því skottið.
- Skottið? Hvers vegna ekki höfuðið?
- Það var einhver annar búinn að því.
☆ ☆☆
Þeir voru á veiðum, en höfðu ekki feng-
ið neina bráð. Þeir þrömmuðu heim
með byssurnar um öxl og þá sagöi
annar:
- í rauninni gerir ekkert til að við veið-
um ekkert, því eiginlega finnst mér að-
eins sósan góð, en lítið varið í
kjötið...
☆ ☆☆
Fiskimaður hafði sent konuna slna á
fæðingardeildina. Þegar stundin nálg-
aðist, fór hann þangað og var á vappi á
ganginum. Loks kom hjúkrunarkonan
fram og segir að hann hafi eignast son.
- En það er ekki allt búið enn, bætti'
hún við.
Eftir nokkra stund, kemur hún aftur og
segir:
- Þér hafið líka eignast dóttur, enþað
er ekki allt búið enn.
Stuttu síðar kemur hún enn einu sinni
fram og segir fiskimanninum að hann
hafi eignast annan son í viðbót.
Þá æðir þrlburafaðirinn inn á sjúkra-
stofuna og kallar:
- Tja, mikið fjandi Guðríður mín! Þú
hefur bara lent í torfu ...!
Myndaþraut
Skiptu þessari mynd í
tvennt, þannig aö annar
hehningurinn sé nákvæm
eftirmynd hins.
Lausn bis 10
Ertþú á réttri línu?
2. júlí 1982 - DAGUR - 3